Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
197. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Njósnahneykslið í Vestur-Þýskalandi:
Zimmermann
ekki vikið frá
Bonn, 3. september. AP.
HELMUT Kohl hafnaði í dag öllum kröfum um að Friedrich Zimmermann,
innanrikisráðherra Vestur-Þýskalands, segði af sér vegna njósnamálsins.
í umræðum á Sambandsþinginu í
Bonn varði Kohl viðbrögð Zimm-
ermanns við flótta Hans Joachims
Tiedge til Austur-Þýskalands og
sagði að Zimmermann hefði ekki
gert neinar skyssur hvorki áður né
eftir að Hans Joachim Tiedge flúði
til Austur-Þýskalands.
Hann sagði óhæft að hvert
njósnamál sem upp kæmi leiddi til
afsagnar viðkomandi ráðherra. Það
hefði í för með sér að erlendar
leyniþjónustur gætu ráðið hversu
lengi ráðherrar gegndu embættum
sínum í Vestur-Þýskalandi.
Vill Gorbachev
tilslakanir?
Moskvu. 3. september. AP.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi Sov-
étríkjanna, er reiðubúinn til að leggja
fram „róttækar" tillögur í afvopnunar-
málum, að sögn bandarískra þing-
manna, sem áttu viðræður við Gorb-
achev í dag.
Sam Nunn, þingmaður demókrata
frá Georgíu, sagði að viðræðurnar í
Kreml hefðu sýnt að Gorbachev
sætti sig ekki við geimvarnarrann-
sóknir Bandaríkjamanna.
Þingmaðurinn Byrd, sem einnig
tók þátt í viðræðunum, sagði að
væru Bandaríkjamenn reiðubúnir
til að ræða leiðir til að koma í veg
fyrir hervæðingu í geimnum á fundi
Reagans og Gorbachevs í Genf í
nóvember, væri víst að Sovétmenn
legðu fram „róttækar" tillögur til
afvopnunarmála.
í ljós kom að meirihluti þing-
heims fylgir Kohl að málum. 1 dag
voru greidd atkvæði um það á þing-
inu hvort Zimmermann ætti að
regja af sér og voru 275 þingmenn á
móti, en 214 með. Einn sat hjá.
Stjórnarandstöðuflokkur sósíal-
demókrata fór fram á atkvæða-
greiðsluna og var hún ekki bind-
andi.
Bandaríski herforinginn Bernard
W. Rogers, æðsti maður herafla
Atlantshafsbandalagsins í Evrópu,
sagði í dag að vestrænar þjóðir yrðu
að leggja harðar að sér við að leita
uppi njósnara Varsjárbandalags-
landa i sínum röðum.
Hann sagði að njósnahneykslið í
Þýskalandi bæri því vitni hversu
auðvelt væri fyrir utanaðkomandi
aðila að koma fyrir njósnurum f
vestrænum leyniþjónust.um.
Hús verður Elínu að bráð
AP/Símamynd
Sam English situr á tröppum að rústum húss síns á strönd Dauphin-eyju eftir að fellibylurinn Elín geisaði á
eyjunni á mánudag.
Ar frá því að óeirðir hófust vegna aðskilnaöarstefnu:
Verkfalli námamanna
í Suður-Afríku aflýst
Jóhannesarborc, 3. september. AP.
NÁMSMENN við háskólann í Sow-
eto í Jóhannesarborg gengu í dag úr
Fyrsta einvígisskákin:
Áskorandinn hefur
meiri sigurlíkur
Moskvu, 3. september. AP.
FYRSTA skák Karpovs og Kasp-
arovs í heimsmeistaraeinvíginu fór
í bið í dag eftir að Kasparov, sem
hafði hvítt, lék sinn 42. leik.
Skákmeistarar, sem fylgdust
með skákinni í Tsjaíkovský-
höllinni í Moskvu, sögðu að Kar-
pov gæti neyðst til að gefa skák-
ina þegar hún verður tefld áfram
á morgun, miðvikudag, ef Kasp-
arov hefur leikið réttan biðleik.
Kasparov gekk fyrstur inn á
sviðið og virtist sjálfsöruggur í
fasi. Eftir að hann hafði tekið í
hönd Karpovs hófu þeir seinni
viðureign sína um heimsmeist-
aratitilinn.
Sjá nánar um fyrstu einvíg-
isskákina á blaðsíðu 22.
AP/Símamynd
Vladas Mikenas dómari setur klukkuna af stað í fyratu einvígisskák
Anatolys Karpov heimsmeistara og Garris Kasparov áskoranda.
kennslustundum og átök blossuðu
upp í Höfðaborg, en í dag er ár liðið
síðan óeirðir blökkumanna hófust í
Suður-Afríku til að mótmæla að-
skilnaðarstefnu stjórnvalda þar í
landi.
Stéttarfélag svartra náma-
manna tilkynnti í dag að verkfalli
námamanna hefði verið frestað
eftir að stjórnendur gullnámu í
grennd við Jóhannesarborg ráku
sex til sjö þúsund námamenn frá
störfum vegna verkfallsaðgerða.
Lögregla og verðir við námuna
réðust að námamönnum, sem
felldu niður vinnu, með táragasi
til að reka þá frá hóteli þar sem
um 1.400 námamenn, er vildu snúa
til vinnu, höfðu komið sér fyrir.
Verkfallið virtist hjaðna eftir
því sem á daginn leið og síðdegis
lá vinna aðeins niðri í tveimur
námum.
Greint var frá þvi í dag að lög-
reglumenn hefðu skot'ð blökku-
mann til bana í þorpinu Duncan er
þeir hófu skothríð á mannþyrp-
ingu eftir að bensínsprengja
sprakk við lögreglubifreið.
I Soweto sóttu háskólastúdentar
ekki fyrirlestra og gengu þúsund-
um saman um götur. Vildu þeir
minnast óeirða undanfarins árs
meö þessum hætti.
Gæslusveitir lögreglu og hers
fóru um borgarhlutann, en réðust
ekki að stúdentunum fyrr en þeir
hófu að grýta steinum. Þá gripu
gæslusveitirnar til táragass til að
dreifa mannfjöldanum.
í Höfðaborg kveiktu unglingar
götuelda og lögðu eld að bifreið-
um, en engin dauðsföll voru til-
kynnt frá óeirðunum. Undanfarna
sex daga hafa a.m.k. 29 manns lát-
ist og rúmlega 150 særst í átökum
í Höfðaborg.
Gengi suður-afríska randsins
lækkaði í dag gagnvart dollaran-
um þrátt fyrir stuðning frá seðla-
banka landsins, sem rekinn er af
rikinu. Seðlabankinn í Suður-
Afríku hefur aðstoðað við að
ákveða gengi randsins síðan á
mánudag er gjaldeyris- og verð-
bréfamarkaðir voru opnaðir aftur.
Þeir voru lokaðir í fimm daga
vegna gengishruns randsins.
Mikil átök blossa
upp í Afganistan
Islamahad, Pakmtan, 3. neptember. AP.
HAFT er eftir vestrænum sendi-
ráðsstarfsmanni að mikið mann-
fall hafi orðið í Afganistan þegar
Sovétmenn gerðu árásir á birgða-
lestir afganskra skæruliða.
Að sögn geisa nú mikil átök í
Paktia-héraði, sem liggur að
Pakistan, og hafa báðir aðilar
orðið fyrir miklu mannfalli.
Talið er að Sovétmenn hafi
sent um 10.000 hermenn á vett-
vang til að stöðva birgðaflutning
afganskra skæruliða til Afgan-
istan í síðustu viku og ná aftur
yfirráðum yfir borginni Khost,
sem hefur verið umkringd
skæruliðum í tæpt ár.
Leiðtogar skæruliða segja að
komið hafi til átaka við sovéskt
herlið og herspítalinn í Kabúl
annar vart straumi særðra
skæruliða og sovéskra her-
manna.
Talið er að allt að 1.000 manns
hafi fallið í átökunum, en það
hefur ekki fengist staðfest.