Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 51 ■3T VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS , ... um sólina, vorið og land mitt og þjóð. Hver orti þetta? Þóra Jóhannsdóttir skrif ar: Velvakandi minn. Enn einu sinni sendi ég þér kvæði sem mig langar til að fá upplýsingar um, til dæmis hver höfundurinnn sé og hvort kvæðið er lengra en þetta. Kvæðið er svona: Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð um sólina vorið og land mitt og þjóð. Og mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð hún leiðir mig vemdar og er mér svo góð. Ef gæti ég farið sem fiskur um haf ég fengi mér dýrustu perlur og raf. Og rafið ég geymdi og gæfi ekki braut en gerði henni mömmu úr perlunum skraut Ef kynni ég að sauma ég keypti mér lín og klæði ég gerði mér snotur og fín. Og mömmu úr silki ég saumaði margt úr silfri og gulli hið dýrasta skart. Þrá matarolía Húsfreyja skrifar: Ég fór inn í Glæsibæ nýlega og vantaði matarolíu. Keypti sól- blómaolíu frá Smjörlíki hf. og fór hin ánægðasta með hana heim. Þegar til kom reyndist hún þrá. Er ég hringdi og sagði frá þessu var því mjög vel tekið og mér sagt að koma með hina gölluðu vöru til að fá skipt. Starfsfólkið var elskulegt — en við gáðum í milli 5—10 flöskur, sem allar reyndust þráar og ónothæfar. Síðasti neysludagur er ekki skráður á flöskurnar og mér er spurn: Hvers konar versl- unarhættir eru þetta eiginlega? Ég hélt að það væri skylda með viðkvæma matvöru að skrá slíkt. Smjörlíki hf. þyrfti sennilega að athuga í fleiri búðum hvort vara þeirra er yfirleitt söluhæf. Hvað varð um skattalækk- anirnar? Vonsvikinn kjósandi skrifar: Fyrir síðustu kosningar boðuðu sjáifstæöismenn miklar lækkanir á sköttum launafólks, jafnvel niðurfellingu á tekjuskatti. Hvað hefur lækkað? Ég hafði 409.894 krónur í tekjur á síðasta ári og þarf nú að greiða 98.363 í skatta. Svo háa skatta hef ég ekki fengið áður miðað við tekj- ur. Ég hef eitt barn til frádráttar, konan annað. Ég óska eftir skýringum á þessu. Skrifið eða hringið til Velvakanda Þessir hringdu . steins Jónssonar eða Þóris Bergssonar eins og hann kallaði sig. Arnar Jónsson leikari las úr Verkum hans og gerði það svo frábærlega vel að það er ein- stakt. Við hlustuðum á þetta nokkur eftir hádegismatinn og þó það hafi verið nokkuð af fólki í stofunni, fullorðið fólk og ungl- ingar, hefði mátt heyra saumnál detta meðan Arnar var að lesa, það hlustuðu allir dolfallnir. Það besta á rás 2 H.M.T. hringdi: Mig langaði til að benda fólki á þátt sem er á rás 2 á miðviku- dögum milli þrjú og fjögur, stjórnað af Gunnari Salvarssyni og heitir Nú er lag. Þar hljóma unaðslegir tónar. Maður fær að hlusta á þá bestu í dægurlaga- og djassheiminum: Frank Sin- atra, Ellu Fitzgerald, Billy Holi- day, Charlie Parker, Oscar Pet- erson og marga fleiri snillinga. Um daginn var heill þáttur með tómum Cole Porter-lögum sungnum og leiknum af topp- fólki. Betra er ekki hægt að bjóða mér, nema ef vera skyldi heilan þátt með eintómum Frank Sinatra-lögum. En það er nú víst til of mikils ætlast. Einstaklega vel gert Lára hringdi: Mig langaði að koma á fram- færi þakklæti til útvarpsins vegna þáttar sem var á dagskrá á sunnudaginn, um verk Þor- Brjóstnæla Einn af lesendum Morgun- blaðsins hafði samband við Vel- vakanda og bað um að þess yrði getið að tapazt hefði brjóstnæla Láru fannst Arnar Jónsson lesa fráhærlega vel úr verkum l*óris Bergssonar. með tveimur víravirkiskúlum og nistum. Gæti hafa verið á leið í rútu frá Laugarvatni að Nátt- úrulækningafélagshælinu í Hveragerði eða þar innanhúss sunnudaginn 25. ágúst sl. Finn- andi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 36508. * Astæöulaus ótti l.H. hringdi: Mig langar að koma því áliti á framfæri, og ég veit ég tala fyrir munn margra, að mér finnst hreint ótrúleg þröngsýni ein- kenna þennan máltilbúning all- an vegna rekstrar heimilis fyrir fyrrverandi fanga, á vegum Verndar. Ég held að almenningi stafi miklu meiri hætta af allrahanda liði sem gengur laust heldur en þeim mönnum sem Vernd hefur tekið upp á sína arma. Þetta er fólk sem hefur lent í ýmsum erf- iðleikum og er að reyna að koma sér á réttan kjöl aftur, ekki sí- brotamenn sem sitja inni aftur og aftur stuttan tíma fyrir ýms- ar sakir meðal annars ofbeldi. Mér er spurn: Hvorir eru líklegri til að vera hættulegri? Ég væri ekki hrædd við að búa í nágrenni við svona heimili. Týndi 700 krónum G.Á. hringdi: Sonur minn fór í bæinn á mið- vikudagsmorgun og tókst þar að týna 700 krónum. Ef einhver skyldi nú hafa fundið þær yrðum við mjög þakklát ef sá hefði samband í síma 72405. Blaðburóarfólk óskast! Austurbær Miöbær II Laugavegur 34—80 Hverfisgata 4—62 Hverfisgata 63—120 Sjafnargata „Við erum svo bjartsýn að trúa því að okkar íslendinga bíði björt og glœst framtíð " Þrátf fyrir slaka fjárhagsafkomu þjóðarinnar og erfiða baráffu við verðbólgu og erlenda skuldasöfnun eru framfíðarmóguleikar okkar ótvírœðir. Við erum jú afsprengi íslenskrar nátfúru og hún er harðgerð og lífseig. íslenska þjóðin hefur fyrrmátfþola erfiðleika og þraukað af. Við höfum meðfædda hœfileika til að sigrast á erfiðleikum og vissulega er landið og nátfúran okkur hliðholl. Við öndum að okkur tœru ómenguðu lofti og vatnið er sennilega hvergi eins gott í öllum heiminum - og allir vita að súrefni og vatn er undirstaða lífsins. Við höfum því yfir engu að kvarta - okkur eru gefnar dýrmœtustu og bestu gjafir jarðarinnar. Það er því enginn hroki heidur staðreynd. að með þetta veganesti hafa íslendingar náð að skáka (og jafnvel máta) meðbrœðrum okkar erlendis bœði í andlegu og líkamlegu atgerfi. í vísindum, listum og íþróttum eigum við afburðafólk á heimsmœli- kvarða. En við viljum meira. Við viljum að íslendingar tefli fram miklu stœrrí hóp afburðafólks - endanlega að þessi hópur verði öll þjóðin. Þjóðin ósigrandi. .Skógurinn er eins grœnn og laufblöðin á trjánum". Athyglisvert líkingamál. Laufblaðið ert þú - skógurinn er þjóðin. Hversu sterkur/ sterk ert þú? Okkar hlutvörk hjá Vaxtarrœktinni er og verður að byggja upp .heilbrigða sál í hraustum líkama'. Það er okkar áhugamál og fag. Á þeim grunni höfum við byggt líkams- ræktarstöð okkar, sérþekkingu og margra ára þjálfun. Við aðstoðum afburðafólk - þig - við að ná topþnum. Við viljum að öllþjóðln nái toppnum og þess vegna bjóðum við allri þjóðinni til okkar í líkams- og heilsurœkt. Það verður að vísu svolítið þröngt á þingi, en við erum líka mjög bjartsýn - þú veist. Hafðu samband - þú sérð aldrei eftir þvf- og skógurinn verður fagurgrœnn. Dugguvogi 7. Sími: 35000. fHwgtntÞIftfcife Áskriftarsímim er 83033
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.