Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
43
Minning:
Helga Gísladóttir
frá Siglufirði
Fædd 31. raaí 1910
Dáin 2. ágúst 1985
Helga Glsladóttir fæddist á
Tjörnum í Sléttuhlíð, Skagafirði,
31. maí 1910. Foreldrar hennar
voru hjónin Gísli Kristinsson
bóndi á Tjörnum og Ásta Jóhann-
esdóttir. Helga var næstyngst 9
systkina. Fjölskyldan fluttist síð-
an til Siglufjarðar 1914 svo að
Helga hefir að mestu leyti alizt
upp hér. Hún mun hafa hlotið
venjulega barna- og unglinga-
menntun á Siglufirði og síðan farið
að vinna fyrir sér. Hún stundaði
nám í Verzlunarskóla íslands og
lauk þaðan prófi 1932. Eftir heim-
komuna þaðan kenndi Helga bók-
.færslu i Gagnfræðaskóla Siglu-
fjarðar og var elskuð og virt af
nemendum sínum.
Helga giftist 21. október 1933
Kjartani Bjarnasyni þá starfs-
manni i Sparisjóði Siglufjarðar.
Þau eignuðust saman 6 börn, en
misstu eitt i æsku. Hin 5, Bjarni,
Svanhildur, Ásthildur, Gisli og
Sigurjón hafa nú öll eignazt sinar
fjölskyldur, og voru barnabörnin
Helgu sérstakur gleðigjafi.
Náin kynni tókust með okkur
Helgu vorið 1947 þegar ég hóf störf
í Sparisjóði Siglufjarðar með
Kjartani eiginmanni hennar. Þau
hjón voru samhent mjög, og var
vinur annars beggja vinur. Var ég
boðin í kaffi á heimili þeirra síð-
asta dag hvers mánaðar í nokkur
ár eða þegar mánaðaruppgjör var
í Sparisjóðnum og vinnudagur þvi
lengri en venjulega, enda var ekki
kaffi á hverjum vinnustað í þá
daga. Þannig atvikaðist það að ég
var í kaffiboði á afmælisdegi
Helgu 6 ár í röð eða á meðan ég
starfaði í Sparisjóðnum, þar eð
hún var fædd síðasta dag maímán-
aðar eins og fyrr getur.
Annars var sama hvenær komið
var á heimili Helgu og Kjartans,
öllum var boðið inn upp á kaffi.
Helga stóð alltaf sína vakt. Hún
var gestrisin og glaðvær húsmóðir
og sönn móðir börnum sínum. Þau
hjón voru vinföst og þegar ég gift-
ist rénaði ekki vinátta okkar, held-
ur jókst um helming þar eð eigin-
maður minn var að sjálfsögðu
tekinn í vinahópinn.
Helga vac, mjög fróðleiksfús og
víðlesin kona og var því sérstak-
lega gaman að koma á heimili
hennar um eða rétt eftir jól og
heyra hana fara lifandi orðum um
innihald jólabókanna sem hún var
þá oftast búin að lesa ótrúlega
margar. Það kenndi margra grasa
í bókahillunum á hinu hlýlega
heimili, Hlíðarvegi lc, enda áttu
hjónin mikið og gott bókasfan. En
það var ekki einungis hlýlegt inn-
andyra, heldur var hin stóra lóð
umhverfis húsið einn sannkallaður
gróðurreitur og bar vott um dugn-
að, fegurðarsmekk og næma til-
finningu eigendanna fyrir um-
hverfi sínu. Núna er það sérstök
bæjarprýði að sjá skóginn þeirra
blasa við sjónum manna í hlíðinni
fyrir ofan kirkjuna.
Það var mikið áfall fyrir fjöl-
skylduna er snjóflóð féll á húsið
og garðinn 14. febrúar 1971, stór-
skemmdi húsið og reif upp stór
tré með rótum. Það alvarlegasta
við þann atburð var þó að Helga
grófst í snjó, en náðist fljótt fyrir
Látinn er Guðmundur Márteinn
Ölversson. Hann fékk hægt andlát
í Reykjavík, þar sem hann dvaldi
til að leita sér iækninga. Gummi,
eins og hann var alltaf kallaður,
átti um langt árabil við vanheilsu
að strfða og gekk m.a. undir
hjartaaðgerð í London fyrir
nokkrum árum.
Sagt er að fegursta blóm jarðar-
innar sé brosið. Ég man brosin
hans Gumma er ég lít til baka og
minnist allra stundanna sem við
áttum saman fyrir um átján ár-
um, en þá voru veikindin farin að
gera vart við sig. Eyddi hann þá
mörgum stundum í eldhúsinu hjá
mér með pípuna sína, þar sem við
ræddum um lífið og tilveruna.
Hann var sérstæður persónuleiki,
dugnað og snarræði yngsta sonar
síns. Þau höfðu setið þrjú saman
í stofu, hann og hjónin, og áttu sér
einskis ills von. Eftir þetta áfall
mun Helga aldrei hafa orðið fylli-
lega heil heilsu og setti ávallt að
henni kvíða þegar mikið snjóaði í
fjallið.
Árið 1979 þegar Kjartan lét af
störfum eftir hálfrar aldar sam-
fellt starf hjá Sparisjóði Siglu-
fjarðar, þar af síðustu 17 árin sem
sparisjóðsstjóri, fluttust þau hjón
til Reykjavíkur í Stóragerði 20.
Húsið hér á Siglufirði áttu þau
samt áfram og hingað norður leit-
aði hugurinn, einkum þegar tók
að vora og auðnaðist þeim að
dvelja í sínum sælureit í fjallinu
hér nokkurn tíma á hverju sumri
meðan þeim entist aldur. Kjartan
lézt 25. október 1982 og var það
Helgu mikið áfall. Hún komst
samt norður á sumrin með aðstoð
maður tilfinninga, þar sem oft
reynist erfitt að rata meðalveginn.
Skólaganga Gumma var ekki löng
en hann var vel lesinn og heima í
flestum málefnum, snillingur í
frásögn og oft hrókur alls fagnað-
ar, enda hafði hann góðan húmor
og var alls staðar vel látinn. Með
honum er genginn góður drengur.
Gummi fæddist á Neskaupstað
þann 7. júlí 1931, sonur þeirra
góðu hjóna Matthildar Jónsdóttur
frá Mjóafirði og Ölvers Guð-
mundssonar útgerðarmanns frá
Sandvík í Norðfjarðarhreppi.
Hann var fjórði í röð ellefu systk-
ina, og ólst upp hjá foreldrum sín-
um á Neskaupstað. Hann stundaði
störf við sjóinn, eins og títt er um
drengi sem búa í sjávarplássum.
barna sinna, og var einnig búin
að dvelja hér í mánaðartíma á
þessu sumri ásamt yngsta syni
sínum og fjölskyldu hans og njóta
þeirrar dvalar.
Stuttu eftir að hún kom suður
veiktist hún og lézt 2. ágúst sl. í
Landspítalanum eftir stutta legu.
Hún þurfti því ekki lengur að bíða
eftir kallinu mikla til eilífðar-
strandarinnar þar sem ég veit að
Kjartan hefur beðið og tekið á móti
henni.
Ég og Knútur eiginmaður minn
erum þakklát fyrirað hafa kynnzt
þessum góðu hjónum og átt þau
að vinum. Blessuð sé minning
þeirra.
Við vottum eftirlifandi börnum
þeirra, systkinunum fimm og fjöl-
skyldum þeirra, okkar dýpstu
samúð og biðjum þeim blessunar
Ungur tók hann vélstjórapróf og
starfaði sem vélstjóri á bátum
föður síns eða hjá öðrum.
Ekki kvæntist Gummi né eign-
aðist börn en bjó á heimili for-
eldra sinna til hins síðasta og eftir
lát föður síns 1976, hélt hann
heimili með móður sinni.
Móður og systkinum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Margrét Jónsdóttir
guðs.
Anna Snorradóttir, Siglufirdi.
Guðmundur Marteinn
• •
Olversson — Minning
Skólaritvélarnar eru í Pennanum.
Ódýrar, þægilegar og eftirsóttar skólarit-
vélar. Hvergi fleiri gerðir á einum stað!
Er pennaveskið þitt gamalt og slitið?
Nýtt pennaveski finnur þú t' Pennanum.
Sjáðu bara úrvalið! Og verðið frá 47 kr.
Aukahlutir skipta oft miklu máli.
Hér er smádæmi úr valinu: Hárná-
kvæmir penslar, stórvirk strokleður,
mikils háttar möppur, öruggir hringfar-
ar, popparalegir dósayddarar.
Stílabókaflóðið er í Pennanum. Allar
stærðir og gerðir af girnilegum stílabók-
um. Þú finnur þær í bunkum. Verð frá 8
kr.
Odýrar og óþrjótandi skólavörur í Hafnarstræti og Hallarmúla, sími 83211.