Morgunblaðið - 04.09.1985, Síða 43

Morgunblaðið - 04.09.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 43 Minning: Helga Gísladóttir frá Siglufirði Fædd 31. raaí 1910 Dáin 2. ágúst 1985 Helga Glsladóttir fæddist á Tjörnum í Sléttuhlíð, Skagafirði, 31. maí 1910. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Kristinsson bóndi á Tjörnum og Ásta Jóhann- esdóttir. Helga var næstyngst 9 systkina. Fjölskyldan fluttist síð- an til Siglufjarðar 1914 svo að Helga hefir að mestu leyti alizt upp hér. Hún mun hafa hlotið venjulega barna- og unglinga- menntun á Siglufirði og síðan farið að vinna fyrir sér. Hún stundaði nám í Verzlunarskóla íslands og lauk þaðan prófi 1932. Eftir heim- komuna þaðan kenndi Helga bók- .færslu i Gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar og var elskuð og virt af nemendum sínum. Helga giftist 21. október 1933 Kjartani Bjarnasyni þá starfs- manni i Sparisjóði Siglufjarðar. Þau eignuðust saman 6 börn, en misstu eitt i æsku. Hin 5, Bjarni, Svanhildur, Ásthildur, Gisli og Sigurjón hafa nú öll eignazt sinar fjölskyldur, og voru barnabörnin Helgu sérstakur gleðigjafi. Náin kynni tókust með okkur Helgu vorið 1947 þegar ég hóf störf í Sparisjóði Siglufjarðar með Kjartani eiginmanni hennar. Þau hjón voru samhent mjög, og var vinur annars beggja vinur. Var ég boðin í kaffi á heimili þeirra síð- asta dag hvers mánaðar í nokkur ár eða þegar mánaðaruppgjör var í Sparisjóðnum og vinnudagur þvi lengri en venjulega, enda var ekki kaffi á hverjum vinnustað í þá daga. Þannig atvikaðist það að ég var í kaffiboði á afmælisdegi Helgu 6 ár í röð eða á meðan ég starfaði í Sparisjóðnum, þar eð hún var fædd síðasta dag maímán- aðar eins og fyrr getur. Annars var sama hvenær komið var á heimili Helgu og Kjartans, öllum var boðið inn upp á kaffi. Helga stóð alltaf sína vakt. Hún var gestrisin og glaðvær húsmóðir og sönn móðir börnum sínum. Þau hjón voru vinföst og þegar ég gift- ist rénaði ekki vinátta okkar, held- ur jókst um helming þar eð eigin- maður minn var að sjálfsögðu tekinn í vinahópinn. Helga vac, mjög fróðleiksfús og víðlesin kona og var því sérstak- lega gaman að koma á heimili hennar um eða rétt eftir jól og heyra hana fara lifandi orðum um innihald jólabókanna sem hún var þá oftast búin að lesa ótrúlega margar. Það kenndi margra grasa í bókahillunum á hinu hlýlega heimili, Hlíðarvegi lc, enda áttu hjónin mikið og gott bókasfan. En það var ekki einungis hlýlegt inn- andyra, heldur var hin stóra lóð umhverfis húsið einn sannkallaður gróðurreitur og bar vott um dugn- að, fegurðarsmekk og næma til- finningu eigendanna fyrir um- hverfi sínu. Núna er það sérstök bæjarprýði að sjá skóginn þeirra blasa við sjónum manna í hlíðinni fyrir ofan kirkjuna. Það var mikið áfall fyrir fjöl- skylduna er snjóflóð féll á húsið og garðinn 14. febrúar 1971, stór- skemmdi húsið og reif upp stór tré með rótum. Það alvarlegasta við þann atburð var þó að Helga grófst í snjó, en náðist fljótt fyrir Látinn er Guðmundur Márteinn Ölversson. Hann fékk hægt andlát í Reykjavík, þar sem hann dvaldi til að leita sér iækninga. Gummi, eins og hann var alltaf kallaður, átti um langt árabil við vanheilsu að strfða og gekk m.a. undir hjartaaðgerð í London fyrir nokkrum árum. Sagt er að fegursta blóm jarðar- innar sé brosið. Ég man brosin hans Gumma er ég lít til baka og minnist allra stundanna sem við áttum saman fyrir um átján ár- um, en þá voru veikindin farin að gera vart við sig. Eyddi hann þá mörgum stundum í eldhúsinu hjá mér með pípuna sína, þar sem við ræddum um lífið og tilveruna. Hann var sérstæður persónuleiki, dugnað og snarræði yngsta sonar síns. Þau höfðu setið þrjú saman í stofu, hann og hjónin, og áttu sér einskis ills von. Eftir þetta áfall mun Helga aldrei hafa orðið fylli- lega heil heilsu og setti ávallt að henni kvíða þegar mikið snjóaði í fjallið. Árið 1979 þegar Kjartan lét af störfum eftir hálfrar aldar sam- fellt starf hjá Sparisjóði Siglu- fjarðar, þar af síðustu 17 árin sem sparisjóðsstjóri, fluttust þau hjón til Reykjavíkur í Stóragerði 20. Húsið hér á Siglufirði áttu þau samt áfram og hingað norður leit- aði hugurinn, einkum þegar tók að vora og auðnaðist þeim að dvelja í sínum sælureit í fjallinu hér nokkurn tíma á hverju sumri meðan þeim entist aldur. Kjartan lézt 25. október 1982 og var það Helgu mikið áfall. Hún komst samt norður á sumrin með aðstoð maður tilfinninga, þar sem oft reynist erfitt að rata meðalveginn. Skólaganga Gumma var ekki löng en hann var vel lesinn og heima í flestum málefnum, snillingur í frásögn og oft hrókur alls fagnað- ar, enda hafði hann góðan húmor og var alls staðar vel látinn. Með honum er genginn góður drengur. Gummi fæddist á Neskaupstað þann 7. júlí 1931, sonur þeirra góðu hjóna Matthildar Jónsdóttur frá Mjóafirði og Ölvers Guð- mundssonar útgerðarmanns frá Sandvík í Norðfjarðarhreppi. Hann var fjórði í röð ellefu systk- ina, og ólst upp hjá foreldrum sín- um á Neskaupstað. Hann stundaði störf við sjóinn, eins og títt er um drengi sem búa í sjávarplássum. barna sinna, og var einnig búin að dvelja hér í mánaðartíma á þessu sumri ásamt yngsta syni sínum og fjölskyldu hans og njóta þeirrar dvalar. Stuttu eftir að hún kom suður veiktist hún og lézt 2. ágúst sl. í Landspítalanum eftir stutta legu. Hún þurfti því ekki lengur að bíða eftir kallinu mikla til eilífðar- strandarinnar þar sem ég veit að Kjartan hefur beðið og tekið á móti henni. Ég og Knútur eiginmaður minn erum þakklát fyrirað hafa kynnzt þessum góðu hjónum og átt þau að vinum. Blessuð sé minning þeirra. Við vottum eftirlifandi börnum þeirra, systkinunum fimm og fjöl- skyldum þeirra, okkar dýpstu samúð og biðjum þeim blessunar Ungur tók hann vélstjórapróf og starfaði sem vélstjóri á bátum föður síns eða hjá öðrum. Ekki kvæntist Gummi né eign- aðist börn en bjó á heimili for- eldra sinna til hins síðasta og eftir lát föður síns 1976, hélt hann heimili með móður sinni. Móður og systkinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Margrét Jónsdóttir guðs. Anna Snorradóttir, Siglufirdi. Guðmundur Marteinn • • Olversson — Minning Skólaritvélarnar eru í Pennanum. Ódýrar, þægilegar og eftirsóttar skólarit- vélar. Hvergi fleiri gerðir á einum stað! Er pennaveskið þitt gamalt og slitið? Nýtt pennaveski finnur þú t' Pennanum. Sjáðu bara úrvalið! Og verðið frá 47 kr. Aukahlutir skipta oft miklu máli. Hér er smádæmi úr valinu: Hárná- kvæmir penslar, stórvirk strokleður, mikils háttar möppur, öruggir hringfar- ar, popparalegir dósayddarar. Stílabókaflóðið er í Pennanum. Allar stærðir og gerðir af girnilegum stílabók- um. Þú finnur þær í bunkum. Verð frá 8 kr. Odýrar og óþrjótandi skólavörur í Hafnarstræti og Hallarmúla, sími 83211.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.