Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 Guð í munni Gorbachevs og annarra Sovétmanna Grænlenskur selveiöimaður. Grænfriðungar eru búnir að eyðileggja markað- inn fyrir selskinn með þeim afleiðingum að margar byggðir í Græniandi eru að leggjast í auðn. Grænland: Moskvu, 3. sept. AP. ÞAÐ hefur vakið nokkra athygli, að Mikhail S. Gorbachev, leiðtogi Sov- étmanna, skyldi hafa nefnt guð á nafn í viðtalinu, sem við hann birtist í bandaríska tímaritinu Time fyrir nokkrum dögum. Eins og alkunna er halda ráðamenn í Sovétríkjunum því fram, að þar ráði guðleysið ríkj- um, og því datt mörgum í hug, að hann hefði ekki gætt sín sem skyldi í viðtalinu, orðið fótaskortur á tung- unni eins og stundum er sagt. Sannleikurinn er sá, að í rúss- neskri tungu og talmáli er jafn oft vikið að guði og í öðrum tungum. Sovéskir embættismenn grípa stundum til þess í ræðum sínum, fréttaskýrendur í sjónvarpi hika ekki við að grípa til guðsorðanna og í máli alls almennings úir og grúir af slíkum tilvitnunum. Gorb- achev á hins vegar að vera guðlaus eins og aðrir frammámenn í Sovét- ríkjunum en á einum stað í við- Grænfriðungar harma afleiðingar áróðursins „Eina lífveran sem hér er í útrýmingarhættu er mannskepnan, sagði grænlenskur veiðimaður við grænfriðunga ( umannaq, (>rænlandi,3. september, Ritzau. GRÆNFRIÐUNGAR harma sárlega þann vanda, sem barátta þeirra gegn selveiðum hefur valdið grænlenskum veiðimönnum, og hafa þeir boðist til gera hvað þeir geta til að bæta fyrir skaðann. Þessi iðrunarfulla yfirlýsing er árangurinn af ferð grænfriðunga um veiðimannasamfélögin við Uumannaq-fjörð á Vestur-Grænlandi en hún hófst sl. föstudag og lýkur á morgun, miðvikudag. Þetta er í fyrsta sinn sem full- trúar grænfriðunga standa augliti til auglitis við grænlenska veiði- menn, sem orðið hafa ákaflega illa úti í áróðrinum gegn selveiðum. Heita má að markaðurinn fyrir selskinn sé ónýtur í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum og tekjur veiði- mannanna eru nú ekki nema brot af því, sem áður var. „Já, það er rétt. Við höfum eyði- lagt markaðinn fyrir selskinn en það var þó ekki það, sem við stefndum að. Ef við hefðum gert okkur grein fyrir erfiðleikum ykkar fyrir sjö, átta árum, hefði þetta ekki farið svona. Þið hafið fulla ástæðu til að vera okkur reiðir," sagði Alan Pickaver, sem stýrt hefur baráttu grænfriðunga gegn selveiðunum, á fundi með veiðimönnum í smábænum Niaq- ornat. „Við verðum líka að gera okkur grein fyrir því, að markað- urinn fyrir selskinn á Vesturlönd- um verður enginn í mörg ár enn, en grænfriðungar eru tilbúnir til að ábyrgjast, að svona nokkuð endurtaki sig ekki. Ég vil taka það skýrt fram, að við erum ekki á móti selveiðum og hvalveiðum lít- illa samfélaga. Við erum á móti þessum veiðum þegar þær eru eingöngu stundaðar í ábataskyni af fólki, sem ekki þarf á þeim að halda." Fulltrúar grænfriðunga hétu því ennfremur, að á fundi samtakanna í septemberlok yrði rætt um hvernig best væri að liðsinna grænlenskum veiðimönnum og í því skyni komið á fót nefnd með fulltrúum grænfriðunga og græn- lenskra veiðimanna. Þegar grænfriðungarnir komu með þyrlu til Uumannaq-fjarðar tóku á móti þeim mörg hundruð manns, sem mótmæltu því eyði- leggingarstarfi, sem samtökin hefðu unnið á grænlensku þjóðlifi. Áður bjó við fjörðinn sjálfstætt fólk, sem lifði á því, sem landið gaf, en nú má heita, að allir séu á opinberu framfæri. „Þetta ástand talinu sagði hann: „Vissulega, guð i upphæðum hefur gefið okkur næga visku til að finna leiðir til að bæta samskipti þjóðanna...“ Hinir opinberu fjölmiðlar í Sov- étrikjunum slepptu raunar þessum orðum Gorbachevs þegar þeir birtu viðtalið og þeir klipptu líka út ummæli hans um Krúsjeff heit- inn, fyrrum leiðtoga Sovétríkj- anna, sem var opinberlega bolað burt úr rússneskri sögu eftir að hann var hrakinn frá völdum árið 1964. Gorbachev sagði, að þrátt fyrir stirða sambúð og Kúbumálið hefðu þeir John heitinn Kennedy og Krúsjeff komið saman til fund- ar í Vín þar sem ræddu heimsmál- hefur eyðilagt sjálfsvirðingu okkar og afleiðingarnar eru þær, að unga fólkið flýr í burtu, hver sem betur getur. Ef ekki verður breyting á mun hér allt fara í eyði á fáum árum,“ sagði Johannes Tobiassen, einn veiðimannanna í Uumannaq. „Þegar við horfum út á fjörðinn sjáum við að hann iðar allur af sel og hval. Eina lífveran, sem hér er í útrýmingarhættu, er mann- skepnan." Fulltrúar grænfriðunga munu einnig hitta að máli talsmenn ISI, samtaka frumbyggja í Alaska, Kanada og Grænlandi, sem hafa skorið upp herör gegn tilraunum grænfriðunga til að eyðileggja þeirra fornu lífshætti. Er þá átt við veiðar á dýrum vegna feldsins en grænfriðungar hafa það hug- sjónamál að eyðileggja þann at- vinnuveg. Vonast fulltrúar ISI til að geta komið grænfriðungum í skilning um hvað þeir eru að gera fólkinu á norðurslóðum. Gengi gjaldmiðla London, 3. september. AP. GENGI Bandaríkjadollars hækk- aði I dag gagnvart evrópskum gjaldmiðlum þegar fréttir bárust um aukin umsvif í bandarískum byggingariðnaði. Gullverðið lækkaöi hins vegar. I Washington var frá því greint, að umsvif í byggingar- iðnaði hefðu aukist um 1,2% í júlí sl. en almennt hafði verið búist við dálitlum samdrætti. Vegna þessara frétta og frétta sl. föstudag um meiri hagvöxt en gert hafði verið ráð fyrir og minni viðskiptahalla hefur gengi dollarans verið að hækka síðustu daga. Í Tókýó fengust í kvöld 238,85 jen fyrir dollarann en 238,50 í gær. Fyrir pundið fengust nú 1,3695 dollarar en 1,3817 í gær. Fyrir einn dollara fást nú: 2,8540 vestur-þýsk mörk (2,8335), 2,3507 svissnesk- ir frankar (2,3340), 8,7075 franskir frankar (8,6575), 3,2120 hollensk gyllini (3,1870), 1.905,00 ítalskar lírur (1.893,00), 1,3708 kanadískir dollarar (1,3715). Fyrir gullúnsuna fengust í kvöld 328 dollarar en 334,50 í gær, mánudag. Heimsmeistaraeinvígið: Kasparov með unna biðskák FYRSTA skákin í heimsmeistaraeinvígi þeirra Karpovs og Kasp- arovs fór í bið í Moskvu í gær. í biðstöðunni hafði áskorandinn, Gary Kasparov, peði meira í hróksendatafli og unna stöAu. Ef Kasparov nær að vinna skákina er þetta þriðji sigur hans gegn Karpov í röð, því tveimur síðustu skákunum í einvígi þeirra sl. vetur lyktaði með sigri Kasparovs. Áskorandinn hafði hvítt í fyrstu skákinni og kom Karpov greinilega á óvart meö byrjana- vali sínu, því heimsmeistarinn notaöi mikinn tíma. Eftir drottningauppskipti í tólfta leik hafði Kasparov greinilega þægilegri stöðu og í framhaldinu náði Karpov ekki að finna neitt virkt mótspil. Eftir 25 leiki var svo illa komið fyrir Karpov að hann varð að gefa peð, en honum tókst að skipta upp í hróksendatafl með fjórum hrókum, en í slíkum stöðum er oft hægt að halda jafntefli með peði minna. En Kasparov tefldi af nákvæmni í endataflinu, peðameirihluti hans á drottningarvæng reynd- ist mjög sterkur og er skákin fór í bið hafði hann náð að mynda sér hættulegt frípeð sem ólíklegt er að Karpov nái að ráða við. Vinni Kasparov skákina, get- ur það haft úrslitaáhrif á gang einvígisins því Karpov hefur næstum ávallt farið mjög vel af stað í heimsmeistaraeinvígjum, svo sem því síðasta er hann var kominn með fjögurra vinninga forskot eftir aðeins níu skákir. 1. einvígi8skákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Nimzoindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3. Upp á síðkastið er þessi leikjaröð mun sjaldséðari en í fyrra einvíginu var hinum ridd- aranum jafnan leikið út á und- an í stöðunni og ekki gefinn kostur á Nimzoindversku vörn- inni. 3. — Bb4, 4. RÍ3 — c5, 5. g3. Ekki veit ég til þess að Kasparov hafi áður beitt þessu afbrigði, reyndar er það ekki í miklum hávegum haft í fræðun- um. 5. — Re4, 6. Dd3 — Da5, 7. Dxe4 — Bxc3+, 8. Bd2 — Bxd2+, 9. Rxd2 — Db6!? Nokkuð djarfur leikur, það er ólíkt Karpov að fara á peðaveið- ar í stað þess að leika mönnun- um út. í skákinni Georgardze- Beljavsky, Sovétríkjunum 1983, varð framhaldið 9. — Rc6, 10. d5 - Rd4, 11. Kdl - d6, 12. e3 — Rf5 og svartur fékk góða stöðu, en auðvitað hefur áskor- andinn lumað á endurbót. 10. dxc5 — Dxb2,11. Hbl — Dc3. Sennilega bezti kosturinn, ef 11. - Dxa2 þá 12. Dd4 - 0-0, 13. Dc3 - Da6,14. Bg2 - e5,15. Dxe5 — Rc6, 16. De3 með yfir- burðastöðu. — 12. Dd3! — Dxd3, 13. exd3 — Ra6, 14. d4 — Hb8. Með drottningarkaupunum náði Kasparov að lagfæra peða- stöðu sína og hefur þægilegt endatafl, ekki sízt vegna hinna sterku peða á c- og d-línunni. Það var því ekki úr vegi fyrir svart að ráðast gegn þessum peðamassa og leika 14. — e5, annaðhvort nú eða í næsta leik. 15. Bg2 — Ke7,16. Ke2 — Hd8? Þessi leikur er of hægfara, því hvítur hindrar auðveldlega að svartur nái að losa um sig með d7 — d6. Betra var því 16. - b6. 17. Re4 — b6, 18. Rd6 — Rc7. Nú er svartur orðinn of seinn til að leika 18. — bxc5? vegna 19. Rxc8+ - Hdxc8, 20. Bb7 og vinnur. 19. Hb4! - Re8, 20. Rxe8 — Kxe8, 21. Hhbl — Ba6, 22. Ke3 22. - d5!? Vafalaust erfið ákvörðun. 22. — Hbc8? gekk auðvitað ekki vegna 23. Ha4. Nú vonast Karp- ov eftir 23. cxd5 — exd5, 24. cxb6 — axb6, 25. Hxb6 —Hxb6, 26. Hxb6 — Bc4, 27. a4 — Ha8, 28. Hb4 — Ha6 með jafnteflis- möguleikum. — 23. cxd6! (framhjáhlaup) — Hbc8, 24. Kd3 — Hxd6, 25. Ha4 — b5. Eina leiðin til að forðast mannstaþ. 26. cxb5 — Hb8, 27. Hab4 — Bb7, 28. Bxb7 — Hxb7, 29. a4 Með peðameirihluta á drottn- ingarvæng og vel staðsett lið eru sigurlikur hvíts mjög mikl- ar. 29. — Ke7, 30. h4 — h6, 31. f3 — Hd5, 32. Hcl — Hbd7, 33. a5! — g5, 34. hxg5 — Hxg5, 35. g4 — h5, 36. b6 — axb6, 37. axb6 — Hb7, 38. Hc5! f5, 39. gxh5 - Hxh5, 40. Kc4 - Hh8, 41. Kb5 — Ha8. í þessari stöðu lék hvítur, Kasparov, biðleik. Einfaldast er líklega 42. Hc7+.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.