Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 45
Minning. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 45 Hulda Michelsen Ijósmyndari Hulda Michelsen, ljósmyndari, fæddist 26. nóvember 1912, hún var 3ja barn í röðinni af 12 börn- um hjónanna Guðrúnar Pálsdótt- ur og Jörgen Frank Michelsen, úr- smíðameistara á Sauðárkróki. Hún lærði ung ljósmyndun hjá Ijósmyndastofunni Jón & Vigfús- son á Akureyri. Hélt síðan fyrir síðari heimsstyrjöldina til Kaup- mannahafnar og vann á ljós- mýndastofu þar. Var í Kaup- mannahöfn á stríðsárunum og þar missti hún aleiguna í loftárás sem gerð var á Shell-húsið í Kaup- mannahöfn. Eftir það fór hún til Þýskalands um stundar sakir, en kom svo aftur til Kaupmanna- hafnar og heim til íslands með fyrstu ferð frá Danmörku eftir stríð árið 1945. Þá lá leið hennar til Bandaríkjanna og vann hún á ljósmyndastofu þar í eitt ár. Árið 1949 er hún ráðin ljós- myndari á Rannsóknastofu Há- skólans, sem þá var undir stjórn prófessors Nielsar Dungal, sem hún áleit alla tíð sinn mesta læri- föður. Á Rannsóknarstofu Háskól- ans vann hún óslitið þar til hún lét af störfum vegna sjúkleika og ald- urs. Tengsl hennar við Rann- sóknastofuna voru ávallt sterk og eftir að hún lét af störfum kom hún þangað oft og heilsaði upp á starfsfélaga sína. Hulda hafði mikla ánægju af ferðalögum alla tíð. Ferðaðist hún innanlands sem utan og lágu leiðir hennar erlendis, oft til þeirra landa sem íslendingar voru ekki í þá daga farnir að sækja heim, svo sem Rússlands, Kína og austur- landa nær, svo eitthvað sé nefnt. Hulda var mjög trygglynd og átti marga vini, var samband hennar við fjölskyldu hennar mjög náið. Eitt af áhugamálum hennar var ræktun og að græða landið og var gaman að heyra hana segja frá er hún hafði farið um helgar inn á óræktað svæði með fræfötur, og svo næsta ár hélt hún á staðinn til að fylgjast með árangri. Að lokum þökkum við sam- starfsmenn hennar, starf hennar og samfylgd öll þessi mörgu ár. Starfsfólk Rannsóknastofu Háskólans, v/Barónsstíg. « I I I I I • I Stubbur verður stór í Pennanum. Þegar þú ferð í Pennann a? kaupa skóladótið skaltu takí með þér gula blýantsstubbinr frá því í fyrra. Þú færð nýjar blýant fyrir gamla stubbinr þinn! Þannig verður stubbui stór á skiptiblýantamarkaðin um. fT-UfflTE- Fjölbreytt úrval, gott verö. Húsgögn, gjafavörur UTH rwi Bláskógar Ármúla 8. Símar 686080 — 686244 Eins og öltum afmætisbömum sæmir :5lánm\riðuppveistutug^óóum upp á svissneskt gæðakonfekt og Coca Cota. En öfugt við önnur afmælisbörn ætlar Snævars-Videó að Pú-leigif eina spólihög^ Hittumst í Höfðatúninu!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.