Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 1
56 SIÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ1913
20. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Olíuskip íárekstriá Norðursjó
AP/Símamynd
Eldur logar í grísku olíuskipi eftir árekstur þess
við hollenskan togara á Norðursjó í gærmorgun.
Áhöfninni tókst að bjarga giftusamlega, en þrír
menn urðu eftir um borð til að líta til með skip-
með skipinu. Nokkur olía lekur frá því, en ekki
var talin mikil hætta stafa af henni. Ef myndin
er grannt skoðuð má sjá olíuflekk við skipssíð-
una. Sjáfréttábls. 27.
Bandaríkin með
heræfingar undan
strönd Líbýu
Washington og Trípólí, 24. janúar. AP.
BANDARÍSKU flugmóðurskipin
Saratoga og Coral Sea settu í dag
stefnuna í átt til Líbýu, þar sem
fyrirhugaðar eru heræfingar
undan strönd landsins. Bandarísk
yfirvöld höfnuðu þvi alfarið að
verið væri að ögra Líbýumönnum
með æfingunum, enda væri þarna
um alþjóðlegt hafsvæði að ræða.
Kliadafy, Libýuleiðtogi, sagði
hins vegar að æfingarnar væru
ögrun og hefði hann skipað hern-
um í viðbragðsstöðu vegna æfing-
anna og sent flugvélar út yfir
Sidra-flóa til að verja hafsvæðið
sem tilheyrir Líbýu.
Bandaríkjamenn viðurkenna ekki
kröfu Líbýumanna til Sidra-flóa. Til
árekstra kom í ágúst 1981, er banda-
rísk skip voru þar að æfíngum. Þá
skutu bandarískar flugvélar niður
tvær líbýskar herflugvélar eftir að
vélar Líbýumanna höfðu orðið fyrri
til árásar.
Bandaríkjamenn sendu alþjóða-
Suður-Jemen:
40 þúsund manna her
gerir atlögu að Aden
f slendingarnir níu komust heilu og höldnu til Djibouti
Manama og Djibouti, 24. janúar. AP.
FORSETI S-Jemen, AU Nass-
er Mohammed, stýrði gagn-
árás á hendur uppreisnaröfl-
unum í Aden, höfuðborg
landsins, í dag. í árásinni taka
þátt 40 þúsund hermenn, en
uppreisnarmenn hafa komið
sér upp virkjum i borginni.
Ástandið þar er sagt mjög
slæmt, þar sem ekki hefur
verið hirt um að grafa líkams-
leifar fallinna hermanna.
Samkvæmt heimildum frá
London hafa Sovétmenn látið
Breta vita að þeir muni ekki
beita herliði til þess að hlutast
til um innanríkismál S-Jemen.
íslendingarnir sem voru í
S-Jemen eru komnir heilu og
höldnu til Djibouti og áttu að
halda seint í kvöld áfram til
Egyptalands.
Uppreisnarmenn hafa tilnefnt
Abu-Bakhr Al-Attas, forsætisráð-
herra, sem leiðtoga sinn, að því er
útvarp þeirra hermdi. Ekkert var
minnst á Abdul-Fattah Ismail, sem
var talinn leiðtogi uppreisnar-
manna og hefur það gefið fregnum
um dauða hans byr undir báða
vængi. Þá var það staðfest að
margir leiðtogar stjómarinnar
hefðu verið skotnir niður að undir-
lagi Mohammeds forseta á fundi
legt og var stórhissa á því að við
skyldum ætla að yfirgefa landið
vegna ástandsins."
13. janúar, daginn sem uppreisnin
hófst.
íslendingamir níu sem voru í
Mukalla á suðurströnd Jemen þeg-
ar átökin bmtust út, voru fluttir
með breska herskipinu Newcastle
til smáríkisins Djitwuti í nótt. Til
stóð að þeir færu flugleiðis ásamt
fleira erlendu flóttafólki til Kairo í
Egyptalandi seint í kvöld. Þaðan
fara þeir líklega í samfloti með
dönskum starfsbræðrum sínum í
Jemen sem leið liggur til Kaup-
mannahafnar um eða upp úr helgi.
íslendingunum líður öllum vel.
Morgunblaðið átti símaviðtal við
Íslendingana í Djibouti í gærdag,
þar sem þeir dvöldust að heimili
Isleifs Jónssonar, starfsmanns
Sameinuðu þjóðanna og konu hans,
Bimu Bjamadóttur. „Ég kynntist
Jemenum tölvert, einkum þegar við
bjuggum í Aden, og mér finnst
þeir alveg sérstaklega viðmótsþýðir
og elskulegir. Mér finnst átakan-
Iegt hvað er að gerast í landinu.
Þó að grunnt hafi verið um aldir á
ættbálkadeilum, óraði engan fyrir
að svona færi,“ sagði Hjördís Þor-
steinsdóttir í samtali við blaðið.
„Það ríkti meiri spenna í búðun-
um hjá okkur en almennt hjá borg-
arbúum í A1 Mukalla," sagði Bjarki
Laxdal. „Við óttuðumst að upp úr
syði þegar héraðsstjórinn í Mukalla
sneri bakinu við forseta Jemen, Ali
Nasser Mohammed, og lýsti yfir
stuðningi við uppreisnarmenn. En
fólkið í Mukalla var tiltölulega ró-
Sjá viðtöl við íslendingana
bls. 22-24 og frétt á bls. 27.
á
flugvellinum í Trípólí aðvörun þess
efnis að þeir yrðu að heræfingum á
þessu svæði fram til mánaðamóta.
Heimildir í Bandaríkjunum herma
að til æfinganna sé boðað nú til
þess að sýna að Bandaríkjamenn séu
hvergi smeykir við aukin flotavið-
búnað Sovétmanna á Miðjarðarhaf-
inu, né að her Líbýu sé í viðbraðgs-
stöðu.
Sovétmenn, sem styðja Líbýu, eru
nú með sex herskip á svæðinu og
hafa þess utan aukið eftirlit sitt með
flota Bandaríkjamanna.
Barist í
Uganda
Kampala, llganda, 24. janúar. AP.
HARÐIR bardagar geysa í
Kampala, höfuðborg Uganda,
eftir að uppreisnarmenn gerðu
árás á borgina úr norðri og
suðvestri. Heimildir herma að
hundruðir stjórnarhermanna
hafi sést flýja til austurs frá
borginni, en aðrar sveitir þeirra
reyndu að hrinda árásinni.
Fregnum bar ekki saman um
hvort Basilio Okello, yfírmaður
herafla stjómarinnar, lifði af skot-
árás, sem gerð var er hann ávarpaði
mannfjölda. Sumir sögðu hann hafa
látist, en aðrar fregnir hermdu að
hann hefði sloppið ósærður og skip-
að hermönnum sínum að skjóta á
mannfjöldann.
Uppreisnarmenn höfðu undirrit-
að friðarsamninga við stjómina 17.
desember á liðnuiári. Friðarsamn-
ingamir héldu ekki og ásak^r nú
hvor aðili hinn um friðrof. Forsetar
Kenya og Tanzaníu reyna nú að
komaáfriði ílandinu.
Bretland:
Brittan viðskipta-
ráðherra segir af sér
T iinjiiniim O Á ínn/inn A D
Lundúnum, 24. janúar. AP.
LEON Brittan, ráðherra viðskipta- og iðnaðarmála, sagði af sér
embætti í dag og hefur Margaret Thatcher, forsætisráðherra sam-
þykkt afsögnina með eftirsjá. Brittan neitaði að ræða við fréttamenn
er hann yfirgaf þinghúsið eftir fund þeirra Thatchers, en eftir fund
í Jórvík sagði hann að enginn ráðherra sem ekki nyti trausts gæti
sinnt störfum sínum sem skyldi og þvf hefði hann ákveðið að segja
af sér. Brittan er annar ráðherrann sem segir af sér embætti í ríkis-
stjórn Thatchers á tveimur vikum. Eftirmaður Brittans hefur ennþá
ekki verið tilnefndur.
Brittan hefur verið legið á hálsi
fyrir að hafa lekið upplýsingum til
fréttamanna sem sköðuðu fyrrver-
andi vamarmálaráðherra, Michael
Heseltine, og er það einkum vegna
þrýstings frá þingmönnum íhalds-
flokksins sem hann neyddist til að
segja af sér, þar sem þeir drógu í
efa heilindi hans. Sem dæmi um
hljóðið í þingmönnum íhaldsflokks-
ins, má nefna að einn þeirra, Terry
Dick, sagði að hann gæti ekki stutt
neinn þann sem hann tryði ekki á,
né gæti vitað hvort segði allan
sannleikann eða ekki. Ef Brittan
hefði ekki yfirgefið ríkisstjómina
fyrir mánudagskvöld, gæti hann
ekki stutt hana lengur.
Blöðum í Bretlandi bar saman
um það í morgun að ríkisstjómin
ætti við mikla erfiðleika að etja og
hefði mistekist að endurvinna sér
traust almennings í framhaldi af
afsögn vamarmálaráðherrans og
deilunum sem fylgdu um framtíð
Westlands þyrluframleiðandans.
Eftir að Thatcher viðurkenndi á
þingi í gær að embætti hennar hefði
haft vitneskju um áætlanir Brittans
um að leka upplýsingunum til
fréttamanna, sem sköðuðu Heselt-
ine, varð mikið upphlaup meðal
þingmanna íhaldsflokksins. Á
stormasömum fundi þeirra í gær-
kveldi var hart lagt að Brittan að
segja af sér og hann ásakaður fyrir
að hafa brugðist flokknum og komið
forsætisráðherranum í óþolandi
aðstöðu. Hótuðu margir þeirra, að
því er hermt er, að styðja ekki ríkis-
stjómina í umræðu um málið á þingi
sem fyrirhuguð er á mánudaginn.