Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986 Orðsending tij stíórnar NLFÍ eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur í Morgunblaðinu í fyrradag birt- ist tilkynning frá stjóm NLFI, þess efnis að hún sé að undirbúa máls- höfðun á hendur mér fyrir rógs- herferð í blöðum og á einkavett- vangi. Það er ekki frítt við að ég fagni þessari ákvörðun stjómar- manna NLFÍ, því fyrir dómstólum kæmi þó sannleikurinn í ljós. Ég mun þó hafa verið fyrri til að fara fram á rannsókn þessa máls fyrir dómstólum, því ég sendi dóms- málaráðherra bréf hinn 20. jan. sl. ásamt ýmsum gögnum, með fyrir- spum um hvort ekki sé ástæða til að opinber rannsókn fari fram á umsvifum þessara aðila innan NLFR, NLFI og síðast en ekki síst Heilsuhælis NLFÍ. Varðandi pistilinn frá stjóm NLFÍ í gær vil ég gera eftirfarandi athugasemdir: Hver er ritstjóri Heilsuverndar? Síðan hvenær hef ég verið „rit- stjómarfulltrúi" og hver hefur þá verið ritstjórinn og af hveiju hef ég aldrei verið kynnt fyrir þeim aðila? Ég tók við útgáfu Heilsuvemdar í febrúar 1983 og hef séð um útgáfu blaðsins að öllu leyti, þ.e. samið og/eða þýtt greinar og pistla, fengið aðra til að skrifa greinar fyrir blað- ið, frítt, tekið myndir ef þurft hefur, séð um söfnun og innheimtu auglýsinga, séð um dreifingu blaðs- ins og komið áskrifendaskrá í tölvu, en hún var í mesta ólestri og síðast en ekki síst haft alla umsjón með prentun og prófarkalestri eða í stuttu máli sagt, haft allan veg og vanda af útgáfu blaðsins. I ritnefnd em, að mér hefur verið sagt, Gísli Ólafsson (fulltrúi nr. 3), Halldóra Hjartardóttir (fulltrúi nr. 7) og Þorvaldur Bjamason (fulltrúi nr. 5). Skv. ummælum Halldóm í Helgarpóstinum 28. nóv. sl. vissi hún ekkert um að nafn hennar hefði verið á þessum lista og ég get mér þess til að hún hafi heldur ekkert verið látin vita um að hún væri í ritnefnd. Halldóm og Þorvald hef ég aldrei talað við néð séð. Gísli Ólafsson setti mig upphaflega inn í starfíð og hefur verið mér á ýmsan hátt innanhandar, til dæmis við yfirlestur efnis. Ég tjáði Jóni Gunnari Hannes- sjmi nú sl. haust að ég hygðist hætta þessu starfi strax að út- komnu síðara hefti Heilsuvemdar 1985. IJtkoma þess strandar á því að mig vantar afmælisgrein um Heilsuhælið 30 ára, en bað, si. vor, Friðgeir Ingimundarson, fram- kvæmdastjóra þess, að skrifa þá grein, því mér sýndist það í hans verkahring. Ennfremur vantar mig pistil um landsþingið sl. haust ásamt reikningum NLFÍ. Hef ég fyrir allnokkm beðið Gísla að taka þetta saman, enda var hann annar tveggja þingritara. Ég var hvorki boðin né boðuð á þingið og var þar því ekki, enda frétti ég ekki fyrr en eftir á hvar og hvenær það var haldið. Ég tel mig ekki hafa lokið störfum sem ritsjóri Heilsuvemdar fyrr en síðara hefti 1985 er komið út. __ Ástæðumar fyrir uppsögn minni em þau mál sem ég hef verið að fjalla um í blöðum undanfarið. Aðalfundur í NLFR Varðandi það að svona eigi að ræða innanfélags vil ég benda á eftirfarandi auglýsingu, sem birtist í DV laugardaginn 18. jan. 1986. Auglýsingu þessa sá ég því miður ekki fyrr en eftir að fundurinn hafði verið haldinn, en hún talar sínu máli um félagsandann í NLFR. Læt Ýmislegt Aðatfundur NLFR verður haldinn a l-aujiuvej;i 206 sunnudacmn 19 jan- uar kl. 13.00. l.aj>abrcytinj>ar. Sljorn- in. Loksins. I jstamir frá I.ady og l'arus eru konrnir aftur. Fullir af spcnnandi ok sexi natt- OR undirfatriaði. l.istinn kostar aðcins 100 kr. Skrifið strax til: G.H.G., Box 11151, 131 Itvik, eða hrinRÍð i sima 75661 eöa 71950 milli kl 13 0« 16 virka daga. Utsala - prúttmarkaður. Scljum i daj> nnlli kl. 13 oj> 18, afj>anj>s- lajjcr ur Ijósaverslun SiRdd hatisku- ljós við allra hæfi. : Ekki missir sa seni fyrstur niætir. Hrismóar 6, Garðabæ, bak við Garðakaup. Oraumaprinsar QR prmsessur, fáið scndan vörulista Guðrún Jóhannsdóttir „Ég mun þó hafa verið fyrri til að fara fram á rannsókn þessa máls fyrir dómstólum, því ég sendi dómsmálaráð- herra bréf, hinn 20. jan. sl., ásamt gögnum, með fyrirspum um hvort ekki sé ástæða til að opinber rannsókn fari fram á umsvifum þess- ara aðila innan NLFR, NLFI og síðast en ekki síst Heilsuhælis NLFÍ.“ ég allan dálkinn undir „Ýmislegt" fylgja, Iesendum til glöggvunar. Bókhaldsendurskoðun Stjóm NLFÍ segir bókhald allt undir eftirliti Heilbrigðismálaráðu- neytisins og daggjaldanefndar. í reglugerð fyrir Heilsuhælið, nr. 452, dags. 29. desember 1978, gr. 10 segir svo: „Reiknisár stofnunarinnar er almanaksárið. Reikningar, endur- skoðaðir af löggiltum endurskoð- anda; skulu lagðir fyrir stjóm NLFI, til samþykktar." Samkvæmt þessari málsgrein reglugerðarinnar er bókhaldseftirlit alfarið í höndum stjómar NLFÍ, því hún ræður hver endurskoðar bókhaldið. Sigurður Guðmundsson var end- urskoðandi Heilsuhælisins og þá væntanlega NLFÍ um leið, fram á vor 1984. Var honum þá sagt upp störfum fyrirvaralaust eftir rúm- lega 10 ára farsælt starf. í hans stað var ráðinn Tryggvi E. Geirs- son, sem mér hefur verið tjáð af kunnugum að sé einhverskonar „fóstursonur Ólafs Þorgrímssonar, lögfræðings og formanns rekstrar- stjómar hælisins. Sel ég fóstrið þó ekki dýrara en ég keypti það. Stjórn NLFÍ svíður vöndurinn Ef stjóm NLFÍ hefði haft hug á að losna undan ákúmm mínum og umvöndunum hefði verið einfaldast fyrir hana að svara spumingum mínum í Helgarpóstinum 9. jan. sl. Þær em þess eðlis að hver einasta heiðarleg félagsstjóm hefði getað svarað þeim án þess að hóta spyij- anda málsókn. Þeim fæst þó væntanlega svar- að fyrir rétti. Tek undir með starfs- mannaráði HNLFÍ! Ég vil taka undir þá yfirlýsingu starfsmannaráðs Heilsuhælisins, sem birtist á bls 52 í Morgunblaðinu í fyrradag, að það sé undarlegt háttalag að halda ekki rekstrar- stjómarfundi reglulega. Það hlýtur að þurfa að fjalla eitthvað um ráðn- ingu yfírlæknis, þó ekki væri annað. Höfundur er ritstjóri Heilsuvemd- ar, málgagns NLFÍ. Langbrækur Gallerí Langbrók á Bernhöftstorfu lagt niður NÚ UM helgina eru síðustu opnunardagar i Gallerí Lang- brók á Bemhöftstorfu. Opið verður frá 2—6 laugardag og sunnudag. Eftir helgina verður galleríið lagt niður. Gallerí Langbrók var stofnað sumarið 1978 á Vitastíg en fluttist vorið 1980 í Landlæknishúsið á Bemhoftstorfu. Var það fyrsta starfsemin sem hófst á endur- reistri Bemhöftstorfu. Þá höfðu Langbrækur lagt peninga og vinnu sem jafngiltu 5 ára leigu til viðgerða á húsnæðinu. Nú er það svo að á gallerí- rekstri verður enginn feitur og hlýtur slík starfsemi að vera rekin fyrst og fremst á hugsjónum og bjartsýni og í þeirri trú að verið Hér hefur Gallerí Langbrók verið til húsa. sé að auka við menningarlíf stað- arins. í slíkri trú hefur Gallerí Langbrók verið til í næstum átta ár. En hugsjónin og bjartsýnin urðu fyrir áfalli síðastliðið sumar þegar nefnd sú sem rekur húsin á Bemhöftstorfu, Minjavemd, hækkaði leiguna á húsnæði Lang- brókar allhressilega. Þegar nýja leigan gekk í gildi í júlí dró um helmingur Langbrókarhópsins sig í hlé en nokkrar héldu áfram. Fyrir fjórum mánuðum hófu þær Langbrækur, sem enn stóðu, að reyna að fá leiguna lækkaða í viðráðanlegt horf fyrir gallerí. Minjavemd var bent á að þeim væri til álitsauka að styðja við bakið á menningarstarfsemi sem þessari, sem unnið hefur sér sess í Bemhöftstorfu. En þrátt fyrir ítrekaðar óskir um svör við þessum málaleitun- um, hafa Langbrækur ekki verið virtar svars. Hefur því sú ákvörð- un verið tekin að leggja Gallerí Langbrók niður. Svo virðist sem Minjavemd telji hlutverk sitt ekki aðeins vera að vinna að varðveislu menningar- minja, heldur einnig að skapa þær. (Frá Galleri Langforók.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.