Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986 Þeim er búið fall sembyrgja sín augu Hafa sumir stj órnmálamenn og æðstu embættismenn efnahagsmála gleymt því hver er undirstöðuatvinnuvegur íslenzkrar þjóðar? eftir Gunnar Flóvenz Að undanfömu hefir allmikið verið rætt í Qölmiðlum um síversnandi afkomu íslenzks fiskiðnaðar. 1 um- ræðum þessum hefir m.a. komið fram, að saltsfldarframleiðslan er nú í fyrsta skipti í fjölda ára komin í hóp þeirra greina íslenzks fiskiðnað- ar, sem að undanfömu hafa verið reknar með tapi. Þá hefir einnig nokkuð verið rætt og ritað um mismun á verði því, sem greitt er fyrir fisk upp úr sjó hérlend- is og í nágrannalöndunum. f þeim samanburði er þess ekki alltaf gætt að færa fram nægilegar skýringar og stundum er því nánast slegið föstu að erlendis sé greitt margfalt hærra verð en hér fyrir allar tegundir fisks. Þótt sfld hafí ekki verið sérstaklega nefnd í því sambandi hljóta menn að lita svo á að einnig sé átt við hana í umræddum samanburði. f tilefni framangreindra umræðna mun hér á eftir verða gerð nokkur grein fyrir breyttum aðstæðum varð- andi markaðs- og sölumál saltsfldar og þeim áhrifúm sem gengisfall Bandaríkjadollars og röng gengis- skráning íslenzku krónunnar hefir haft á afkomu fslenzks fískiðnaðar, á það ekki sízt við um saltsfldarfram- leiðsluna. Að lokum mun svo verða birtur samanburður, sem gerður hefir verið á verði þvf, sem greitt er fyrir sfld upp úr sjó á íslandi og í helztu samkeppnislöndunum. Breytt markaðsástand Eftir hrunið mikla á norsk-íslenzka vorgotssfldarstofninum („Norður- landssfldinni") seint á sjöunda ára- tugnum hefir sfldarútgerð og sfldar- vinnsla landsmanna eingöngu byggzt á veiðum úr sunnlenzka sumargots- sfldarstofninum. Síld þessi hrygnir síðari hluta sumars og er því yfirleitt miklu magrari á veiðitímanum en vorgotssfldin. Jafnft-amt er hún smærri og langtum blandaðri að stærð en norsk-íslenzka vorgotssfld- in. Veiðar Norðurlandssfldarinnar byggðust fyrst og fremst á mjöl- og lýsisvinnslu og var aðeins stærsta og bezta sfldin valin til söltunar eftir því sem sölumöguleikar leyfðu. Suð- uriandssfldina hefír aftur á móti í fjölda ára tekizt að nýta svo til ein- göngu til manneldis og þá aðallega til söltunar. Miklar sveiflur á stærð og fítumagni sunnlenzku sfldarinnar frá ári til árs hafa oft valdið erfiðleik- um í sambandi við sölu hennar, ekki sízt þar sem söltun er ekki fram- kvæmanleg nema salan hafí verið tryggð með fyrirframsamningum. Fyrir þessa stærðarblönduðu Suð- urlandssíld hafa söltunarstöðvarn- ar á undanförnum árum orðið að greiða að meðaltali um 440% hærra verð en til bræðslu, en á Norðurlandssíldinni var tilsvar- andi verðmunur að meðaltali um 85% á tímabilinu frá 1947-1968. (Sjá mynd 1 ). Til fróðleiks má einnig geta þess að í Noregi og víðar hefir verðmunurinn á fersksfld til söltunar og bræðslu verið það lítill að fjöldi skipshafna hefir kosið að stunda heldur bræðsluveiðar en að veiða sfld til söltunar. Einnig er athyglisvert að í Noregi var á sl. ári greitt lægra verð fyrir smæstu sfldina til söltunar en bræðslu. Á síðustu tveim áratugunum hafa orðið gífurlegar breytingar á öllum saltsfldarmörkuðum. Neyzluvenjur hafa víðast hvar gjörbreytzt og eftir- spumin eftir saltsfld er nú aðeins brot að því sem hún áður var. Ástæðumar fyrir þessum breyting- um eru fjölmargar og flóknar og er því ekki unnt að gera grein fyrir þeim í yfirliti þessu, enda hafa þær oft verið skýrðar áður í fjölmiðlum. Þó er nauðsynlegt að leiðrétta þann misskilning, sem fram kom nýlega í sjónvarpsþætti, að fólk hefði á tima- bili gleymt að borða saltsfld vegna lítils framboðs. Þetta er röng tilgáta. Jafnvel á þeim árum þegar bannað var að veiða sfld hér við land f hring- nót og miklar veiðitakmarkanir í gildi hjá Norðmönnum var aldrei neinn skortur á saltaðri sfld á mörkuðunum. Sem dæmi um breytt markaðs- ástand má nefna að á áðumefndu tímabili hefir árleg neyzla á hefð- bundnum tegundum saltsfldar í Sví- þjóð — fyrrum helzta saltsfldarmark- aði okkar — minnkað úr 250 þús. tunnum í 80 þús. tunnur. Um helm- ingur af þessum 80 þús. tunnum verður að vera venjuleg harðsöltuð sfld af sömu stærð og með svipuðu fitumagni og Norðurlandssfldin ís- 'mMM Gunnar Flóvenz „Það er núverandi gengisstefna ásamt óheyrilegri erlendri skuldasöfnun, sem að verulegn leyti hefir leitt til þeirra furðu- legu kringnmstæðna, að 20-40% hærra sölu- verð en keppinautarnir bjóða skuli nú ekki vera viðunandi til að geta saltað síld með eðlileg- um hætti á íslandi.“ lenzka var. Sfld af þeirri stærð og með því fitumagni hefir ekki veiðst hér við land svo orð sé á gerandi síðan Norðurlandssfldin hvarf af miðunum við Norður- og Austurland. Á undan- fömum árum hafa því Norðmenn, og að litlu leyti Kanadamenn, verið þeir einu, sem haft hafa slíka sfld á boð- stólum. Sfld úr norsk-fslenzka stofn- inum veiðist nú hvergi nema við Noregsstrendur. Svipaðar breytingar hafa átt sér stað á saltsfldarmörkuðunum í Finn- landi og Danmörku. Á finnska mark- aðnum hefir árleg neyzla saltaðrar sfldar t.d. minnkað úr 80 þús. tunnum í 30-40 þús. tunnur. Á íslandi hefír m.a. verið reynt að mæta þessum breyttu kringumstæð- um á saltsfldarmörkuðunum með síaukinni tilrauna- og rannsókna- starfsemi, m.a. í samvinnu og sam- ráði við Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins. Árangurinn hefír verið vonum betri og má fullyrða að án þessarar starf- semi hefði sfldarsötlun á fslandi aðeins verið brot af því sem hún hefir verið á undanfömum árum. Áframhaldandi offramboð Markaðssvæði saltaðarar sildar er mjög takmarkað og að mestu bundið við norðan- og austanverða Evrópu. (Sjá mynd- ). Auk þess er ennþá nokkur markaður fyrir saltaða sfld í Norður-Ameríku, einkum kanadísk saltsfldarflök, sem seld eru á hálfvirði þess sem kostar að framleiða flökin á íslandi. v. Allar vestrænar sfldveiðiþjóðir — að Vestur-Þjóðverjum einum undan- skildum — hafa á undanfömum ámm veitt meira af síld en unnt er að nýta til manneldis í heimalöndunum. Vegna offramboðs og þeirra breyt- inga á neyzluvenjum, sem áður er um getið, hefir aðeins lítið brot af sfldarafla þessara þjóða farið til sölt- unar. Þetta er staðreynd, sem íslending- ar virðast ætla að vera lengi að átta sig á, því hér á landi gætir stöðugt þess misskilnings, að sfldveiðar verði að mestu að byggjast á því að salta sfldina. Sannleikurinn er hinsvegar sá, að vegna hins takmarkaða markaðar er aðeins unnt að nýta 10-12% af síldaraflanum í heimin- um til söltunar og varla meira en 5% sé miðað við síld af sambæri- legri stærð og gæðum og íslenzka Suðurlandssíldin. Þar sem verksvið Sfldarútvegs- nefndar nær aðeins til saltaðrar síldar verður hér ekki fjallað um nýtingu á sfld til annarrar vinnslu, svo sem allskyns niðurlagningar, niðursuðu, reykingar, frystingar og bræðslu. % 1000 Mynd 1. 900 600 500 MISMUNUR Á VERÐI, SEM GREITT VAR FYRIR NORDUR LANDSSÍLD TIL SÖLTUNAR OG BRÆDSLU 1947-1968 OG SUÐURLANDSSÍLD 1978-1985, Þ.E. HVE MORGUM % -VERDID TIL SÖLTUNAR HEFUR VERIÐ HÆRRA EN_ TIL BRÆDSLU 400 300 200 NORÐURLANDS- SÍLD VALIN TIL 8ÖLTUNAR SUOURLANDS- SlLD MEOALTAL ALLRA STÆROARFLOKKA ATH. EFTIR SÍLDVEIOIHLÉID 1072 - 74. VAR EKKERT VERO ÁKVEOIÐ A SUÐURLANDSSÍLD TIL BRÆOSLU FVRR EN 1878 % 1000 900 600 500 400 300 200 100 Fynr hina stærðarblönduðu Suðurlandssíld hafa söltunarstöðvamar á undanfömum árum orðið að greiða að meðaltali um 440% hærra verð en til bræðslu. En á Norðurlandssíldinni var tilsvarandi verðmunur að meðaltali 85% á tímabilinu frá 1947 og þar til Norðurlandssíldin hvarf af miðunum hér við land 1968. Saltsfld í neytendaumbúðum heyrir heldur ekki undir starfssvið Sfldarút- vegsnefndar. I því sambandi er þó rétt að geta þess hér, að íslenzka saltsfldin er að mestu leyti seld til neytenda í mark- aðslöndunum í því ástandi sem hún kemur upp úr tunnunum. Reynsla undan- farinna ára Vegna samfelldrar verðbólgu, óstöðugrar stefnu í gengismálum, óhagkvæms skipulags veiða og vinnslu og hærra fersksíldarverðs hér en í nágrannalöndunum um langt árabil, höfum við að jafnaði orðið að krefjast 25-50% hærra verðs fyrir saltaða Suðurlandssfld en keppinaut- amir bjóða og er þá miðað við tilsvar- andi stærðar- og fítuflokka. Þessi staða hefír gert alla starfsemi í sambandi við sölu íslenzku saltsfldar- innar ótrúlega erfíða. Þótt oft hafi verið mjótt á munun- um að illa færi og stundum jafnvel legið við að sfldarsöltun á íslandi legðist að mestu niður, hefir þó ár frá ári tekizt að halda uppi þessum mikla verðmun. Af þeim ástæðum hefir þeirrar tilhneigingar gætt í vaxandi mæli hjá ýmsum sfldarsalt- endum o.fl. að treysta því — þrátt fyrir viðvaranir Sfldarútvegsneftidar — að áframhald geti orðið á slíkri heppni. Af sömu ástæðum hefír tala söltunarstöðva því sem næst tvöfald- ast á fáum árum. Til frekari skýringa og að gefnu tilefni er óhjákvæmilegt að vekja athygli á eftirfarandi staðreyndum varðandi söltunina á undanfömum árum, sem gefa um leið nokkra hugmynd um það á hve veikum grunni hin mikla sfldarsöltun hefír byggzt: 1. Á sama tima og neyzla salt- síldar hefir dregizt saman á svo til öllum mörkuðum hefir íslend- ingum tekizt að halda uppi meiri árlegri söltun á Suðurlandssíld en átti sér stað að meðaltali norðan- lands og austan á síldveiðitímabil- inu frá 1935, er Sildarútvegsnefnd tók til starfa, og þar til hrunið mikla varð á norskíslenzka síldar- stofninum („Norðurlandssiidinni") seint á sjöunda áratugnum. (Sjá mynd:‘). 2. Á sama tima og ýmsar aðrar þjóðir verða að setja verulegan hluta síldaraflans til bræðslu hefir íslendingum tekizt að nýta tíl sölt- unar hlutfallslega margfalt meira af síldarafla sínum en þekkist í löndum keppinautanna. 3. Á sama tíma og síldveiðar eru stundaðar með stórfelldum ríkis- styrkjum i löndum keppinautanna hefir á íslandi verið greitt — án rikisstyrkja — hlutfallslega langt- um hærra verð fyrir fersksQd tU söltunar, miðað við annan fisk upp úr sjó, en þekkist annars staðar. Hér hefir meira að segja verið greitt hærra verð fyrir sUd tU söltunar en frystingar, öfugt við það sem gerist í Noregi og viðar. Hér hefir jafnvel orðið að greiða hiuta af söluverði saltsíldar til að verðbæta nokkrar aðrar fiskteg- undir, sem þó er verulegur skortur á í helztu markaðslöndunum. 4. Á sama tíma og söltun síldar hefir víða verið talin neyðarúrræði i löndum keppinautanna, hefir afkoma íslenzkra sUdarsöltunar- stöðva verið betri en hjá flestum ef ekki öllum öðrum greinum ís- lenzks fiskiðnaðar. 5. Á sama tíma og markaðir Efnahagsbandalags Evrópu hafa verið lokaðir vegna geysihárra tolla á íslenzkri saltsild, hefir heUdarútflutningur á saltaðri sUd frá íslandi verið meiri en sem nemur samanlögðum saltsUdarút- flutningi allra keppinauta okkar. Allar þessar staðreyndir eiga einn- ig við um nýafstaðna vertíð nema ein: Sfldarsöltunin á árinu var, eins og ýmsar aðrar greinar fiskiðnaðar- ins, rekin með tapi. Nú kann einhver að spyija hvaða breytingar hafi á sl. ári orðið þess valdandi að í stað góðrar afkomu í fjölda ára hafi taprekstur orðið á söltuninni 1985. Orsakimar eru margvíslegar eins og fyrr er getið en það sem einkum skipti sköpum á sl. ári voru eftirfar- andi atriði: 1. Vaxandi offramboð á saltsfld, eins og áður hefur verið minnzt á. 2. Sfaukin undirboð ríkisstyrktra keppinauta, sem leiddu til þess að lækka varð söluverð til stærsta mark-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.