Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986 23 Sigfús Þormar Gunnarsson: Heyrðum frétt- irnar í BBC SIGFÚS Þormar Gunnarsson var í Jemen í tæpt ár og segist hafa haft það gott og líkað dvölin vel. — Hvemig fréttuð þið fyrst af átökunum? „í gegnum BBC.“ — Fylgdust þið með fréttum í gegnum BBC?“ „Það var nú iítið fylgzt með frétt- um þama, en þegar það var, þá var það helzt í gegnum BBC. — Hvað með sjónvarp? „Ég fýlgdist nú lítið með sjón- varpsefninu, enda fór allt þar fram á arabísku. Það var helzt, að við horfðum á fótboltann, en annars notuðum við myndbandið meira." — Hversu margir vom í búðun- um þar sem íslendingamir höfðu aðsetur? „í kringum 160 manns, mest Filippseyingar, en einnig töluvert af Dönum, Englendingum og Portú- gölum." — Hvemig gekk sambúðin? „Mjögvel." Ólafur Gröndal. „Hafði ekki vit á því að verða hræddur." Ólafur Gröndal: Rússarnir fóru strax og fréttist um átökin ÓLAFUR Gröndal var sá eini af íslendingunum sem ekki var við vinnu i A1 Mukalla. Hann starfaði í vinnuflokki í Seiyunn, sem er um 350 km norður af Mukalla og í 800 km fjarlægð frá Aden, þar sem bardagarnir geysa. — Hvemig varð þér við þegar þú fréttir af bardögunum, Ólafur? „Maður gerði sér varla grein fyrir því hvað var um að vera og hafði því ekki vit á því að verða hræddur." — Var engin ólga í Seiyunn? „Það var svolítil ókyrrð fyrst í stað. Skólum var strax lokað og gömlum hermönnum safnað saman og settir í viðbragðsstöðu. Annars vom innfæddir í Seiyunn frekar vantrúaðir á að átökin kæmu til með að breiðast út og reyndu að gera sem minnst úr öllu saman. En það vom þama um 200 Rússar á varðstöð og þeir yfírgáfu landið strax og fréttist af átökunum. Ætli þeir hafi ekki vitað betur en flestir aðrir um undirrót ástandsins og talið vænlegast að hafa sig á brott hið fyrsta. Sigfús Thorarensenn með barnabörn. samskipti við Jemena sagði Sigfús að þau hefðu verið lítil, einkum hefði ráðið málvanþekking á báða bóga. Auk þess væri svo tiltölulega eðlilegt að svona vinnuhópar út- lendinga væm nokkuð út af fyrir sig og gengju fyrst og fremst að því að sinna fengnum verkefnum. Guðmundur Gunnarsson: Lífið var mest vinna GUÐMUNDUR Gunnarsson véla- maður hefur starfað samtals í fjögur ár í Jemen. — Hvernig líkaði þér dvölin, Guðmundur? „Ágætlega. Það var kannski helzt loftslagið sem var ólíkt þar og heima. Hitinn var mikill, milli 3Ö og 40 stig, og sól allan daginn. Annars var lífið hjá okkur mest vinna, þvf vinnuvikan var aldrei styttri en 60 tímar." — En hvað gerðu menn í stopul- um frístundum? „Frístundimar fóm mest í alla vega snúninga í kringum sjálfan sig, en svo var í búðunum tóm- stundaaðstaða, billjardborð og tennisvöllur og fleira af því tagi, sem hægt var að nota. Stundum remm við líka til fískjar." — Hvemig lýsir þú ástandinu í A1 Mukalla á síðustu dögum? „Ég varð ekki var við nein bein átök, en hemaðarviðbúnaður og öryggisgæsla vom meiri en maður hafði átt að venjast. Það var greini- lega spenna í loftinu." — Hvað búa margir í Mukalla? „Það er talað um 100 þúsund manns, og þá er átt við Mukalla og nágrannabæi." — Svipað og í Reykjavík, sem sagt? „Það má segja það, en íbúamir em þó dreifðir á tölvert stærra svæði en í Reykjavík og nágrenni." — Hvaða atvinnu stunda menn helst f Mukalla? „Verslun fyrst og fremst. Þetta er innflutningshöfn, miðsvæðis í landinu og sú stærsta fyrir utan Aden.“ Bardagar í Aden, höfuðborg Suður-Jemen Bjarki Laxdal vélamaður Settu sjónarspil ásvið BJARKI Laxdal vélamaður hefur verið átta mánuði í A1 Mukalla, en hefur áður starfað erlendis og er því ýmsu vanur: — Hvemig varð þér við þegar þú fréttir af uppreisninni gegn forseta landsins og átökunum í Aden? „Maður varð strax spenntur og það myndaðist töluverð ólga í búð- unum hjá okkur. Maður óttaðist það alltaf að það syði upp úr í Mukalla, sérstaklega eftir að það spurðist að héraðsstjórinn hafði snúið við blaðinu, hætt að styðja forsetann Ali Nasser Mohammed og lýst yfir stuðningi við uppreisnarmenn. Hér- aðið sem hann stjómar er mikilvæg- asta hérað landsins ef Aden er undanskilið.“ — Bjuggust menn við átökum í Mukalla? „Það fylltust allar götur af ör- yggisvörðum, en ekki urðum við vör við skriðdreka og önnur stórtæk stríðsvopn. Þó fékk maður það á tilfinninguna að slíkar sveitir væm skammt undan. Hins vegar var greinilegt að stjómendur Mukalla reyndu að gera allt sem þeir gátu til að ýta ekki undir spennu meðal almennings. Það var til dæmis lítið um uppreisnina fjallað í útvarpinu og fólkið sem hlustaði á staðarút- varpið vissi í rauninni minna en við hvað var að gerast f landinu." — Svo það hefur ekki ríkt hræðsluástand meðal almennings í borginni? „Nei, fólkið í Mukalla var raunar yfír sig hissa á því að við skyldum ætla að yfírgefa landið vegna ástandsins. Sem sýnir kannski best hveð lítið það vissi um bardagana." — En hvemig gekk ferðalagið til Djibouti? „Það gekk þungt til að byija með. Löggæslumenn í Mukalla vildu ekki viðurkenna að hér væri um brottflutning fólks að ræða vegna neyðarástands, heldur ætluðu þeir sér að láta þetta líta út eins og við væmm að yfírgefa landið af fúsum og fijálsum vilja. Við áttum að fara að kvöldi til á fímmtudaginn og stóðum í þeirri trúa að við þyrftum aðeins að aka frá búðunum og fara beint um borð í skipið sem beið okkar. En þá settu þeir sjónarspil á svið á bryggjunni, létu fara fram tollskoðun og höfðu menn frá út- lendingaeftirlitinu til að fylgjast með og fara yfír pappíra. Þessar kúnstir fóm fram í litlum skúr, ekki stærri en 6 fermetra, og menn geta rétt ímyndað sér hversu greið- lega það hefur gengið að afgreiða þannig 250 manns frá 17 þjóðlönd- um. Enda stóð þetta yfír í tæpa fímm klukkutíma." — En þið farið sfðan um borð f flutningaskipið Diamond Princess að lokinni tollskoðun? „Já, við vomm komin um borð í það um klukkan þijú um nóttina. Flutningaskipið þurfti að fara með okkur út fyrir 12 mílur áður en hægt yrði að flytja okkur yfír í herskipið Newcastle. Þegar tók að birta af degi var farið að undirbúa flutninginn yfír í Newcastle, en það var svo slæmt í sjóinn að það var ekki hægt að notast við gúmbáta. Þá var bmgðið á það ráð að flytja fimm og fímm í einu með þyrlu, og það var fjögurra tíma töm. Skipin sigldu samsfða á meðan, en þegar búið var að flytja alla yfír var herskipið sett á fulla ferð, sem em 28 hnútar á klukkustund. Her- skipið lagðist síðan að bryggju í Djibouti um tíuleytið um morgun- inn, þar sem ísleifur Jónsson tók á móti okkur,“ sagði Bjarki Laxdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.