Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986 27 AP/Símamynd Joseph Beuys lést á fimmtudag. Hér er hann að fylgjast með uppsetningu verka sinna fyrir sýningu á þýskri tuttugustu aldar list í konunglegu akademíunni í London á síðasta ári. Beuys var eini listamaðurinn sem fékk heilt herbergi undir verk sin á sýningunni. Hatturinn var einkennismerki listamannsins og skildi hann höfuðfatið aldrei við sig. Joseph Beuys lát- inn af hjartaslagi DUsseldorf, 24. januar. AP. JOSEPH Beuys, einn helsti framúrstefnulistamaður Vestur- Þýskalands, lést á fimmtudag af hjartaslagi á heimili sinu skammt fyrir utan DUsseldorf 64 ára að aldri. Hann hafði átt við Iangvarandi sjúkdóma að stríða. Beuys var þekktastur fyrir framúrstefnulegar höggmyndir, hluti og teikningar, sem og gjöm- inga á öllum sviðum fjölmiðlunar. Beuys mótaði verk sín iðulega úr efnum, sem sjaldgæft er að notuð séu til listsköpunar. Þar á meðal var dýrafíta, flókaefni og pylsur. Einn gjömingur þessa sér- sinnaða listamanns var fólginn í því að fylla píanó af þvottavéla- sápu, eitt sinn sat hann á sviði og hvíslaði ljóð eftir Johann Wolf- gang von Goethe til áheyrenda og öðru sinni kuðlaði hann saman gömlum dagblöðum. Beuys var alltaf umdeildur í listaheiminum og menn ekki á eitt sáttir um það hvort list hans væri list eða ekki list. Verk hans hafa gengið kaupum og sölum fyrir stórfé og nýverið seldist eitt verka hans úr flókaefni á 500 þúsund krónur. Beuys gegndi prófessorsstöðu við listaakademíuna í Dusseldorf og hann var einn fyrstu félaga Græningjanna. Suður-Jemen: Er strjðið milli þrig'gja fylkinga? Manama, Bahrain, 24. janúar. AP. FYLKINGARNAR, sem beijast í Suður-Jemen, eru ekki tvær, held- ur þijár og sú þriðja skipuð mönnum, sem andvígir eru Sovét- ríkjunum. Arabískir stjórnarer- indrekar héldu þessu fram í dag. Arabískir stjómarerindrekar í ríkjunum við Persaflóa skýrðu frá því í dag, að fylkingamar, sem tækjust á um völdin í Suður-Jemen, væru þijár en áður höfðu þeir sagt, Ellemann- Jensen tóm- hentur heim Kaupmannahöfn, 24. janúar. AP. UFFE Ellemann-Jensen, utan- ríkisráðherra Danmerkur, kom í dag tómhentur úr ferð til fimm ríkja Evrópubanda- lagsins (EB). Reyndust leið- togar á Italíu, Bretlandi, Frakklandi, Spáni og Vestur- Þýzkalandi ófúsir til að endur- skoða áform um breytingar á stofnskrá bandalagsins, Róm- arsáttmálanum. Ellemann-Jensen segir ekkert EB-ríki reiðubúið að endurskoða breytingarnar á Rómarsáttmálan- um, sem staðfestar verða við há- tíðlega athöfn í Lúxemborg 17. febrúar nk. Hann kveðst þó hafa fengið fyrir því tryggingar að Danir gætu áfram haldið sig við eigin reglur um mengunarvarnir og aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum, en þær ganga lengra og eru strangari en reglur annarra EB-ríkja. að stríðið stæði á milli tveggja hópa marxista. „Átökin milli marxistafylking- anna hafa fætt af sér þriðja hópinn, menn, sem eru svo andsnúnir Sovét- mönnum, að þeir gerðu sex sinnum stórárás á sovéska sendiráðið," sagði einn stjómarerindrekanna. Taldi hann, að þessi þriðja fylking kynni að bera sigur úr býtum í stríðinu en aðrir töldu það ólíklegt. Embættismenn í ríkjunum við Persaflóa segja, að kommúnistar í Suður-Jemen séu aðeins „þræivopn- aður og miskunnarlaus minnihluti", meirihluti landsmanna, sem eru 2,1 milljón talsins, sé andsnúinn komm- únisma og telji hann jafngilda tilræði við trúna. Bandaríkin: Launaskrið og lít- ið atvinnuleysi Washington, 23. janúar. AP. TEKJUR einstaklinga í Banda- ríkjunum hækkuðu um 1,4% í desembermánuði á síðasta ári og höfðu ekki hækkað jafn mikið á einum mánuði síðustu tvö árin, að því er fregnir herma frá Washington. A sama tíma jókst eyðsla um 2% og hefur ekki aukist jafn mikið í rúmlega tíu ár eða frá því í maimánuði 1975, þegar eyðsla jókst um 2,5%. Þá hefur atvinnuleysi ekki verið jafn lítið í desember í Bandaríkjun- um frá því í upphafi þessa áratugar og iðnaðarframleiðsla og húsbygg- ingar jukust. Hagfræðingar eru ekki á einu máli um hvort þessi batameki efnahagslífsins eru ein- ungis stundarfyrirbæri eða hvort um langþráðan bata er að ræða, sem beðið hefur verið lengi eftir. Málgagn Páfagarðs: Sakar sandinista um að ofsækja trúað fólk Páfagurði, 24. jonúar. AP. OPINBERT málgagn Páfagarðs fordæmdi í dag „ofsóknir" og „óréttlætanlegar árásir" á kaþ- ólska presta og trúað fólk í Nicaragua. í grein í blaðinu L’Osservatore Romano, málgagni Páfagarðs, sagði, að framferði sandinista- stjómarinnar í Nicaragua væri verulegt áhyggjuefni. Kirkjan og trúað fólk í landinu væri ofsótt og kaþólskir prestar reknir burt. Sl. fjögur ár hefðu sandinistar rekið á brott 17 erlenda presta undir því yfirskini, að þeir væru gagnbylting- armenn. í greininni var einnig sagt frá fundi sem erkibiskupinn í Managua, Manuel Obando y Bravo, átti sl. þriðjudag með de Cuellar, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna. Þá skýrði erkibiskupinn frá því að sandinistastjómin væri að rejma að þagga niður í kirkjunni og sakaði kirkjunnar menn um að vasast í pólitík. Sýndi hann de Cuellar tvö bréf sem biskuparáðið í Nicaragua hefði sent Daniel Or- tega, forseta landsins, en í þeim em sandinistar sakaðir um ofsóknir og hótanir við erlenda presta og fólk, sem vinnur fyrir kirkjuna. Biskupamir segja í bréfunum að stjómvöld komi oft í veg fyrir að kirkjan geti komið sínum boðskap á framfæri í blöðum og þegar hann olíuflutningaskipi frá Grikklandi eftir árekstur þess við hollenzk- an togara í dag. Gerðist þetta fyrir utan austurströnd Eng- lands. Mikil olíubrák myndaðist á sjón- um og það í aðeins fárra mílna fjarlægð frá tumum, sem standa þama og bora eftir jarðgasi á hafs- botni. Tuttugu og átta af 31 manns áhöfn skipsins yfirgáfu það um borð í björgunarbáta og síðan tóku þyrlur þá upp og fluttu til lands. fáist birtur, sé hann iðulega klipptur til og afskræmdur á ýmsan hátt. Einnig hafi útvarpsstöð kaþólsku kirkjunnar í Managua verið lokað og þannig komið í veg fyrir að landsfólkið gæti fylgst með starf- semi kirkjunnar. Skipstjórinn og tveir menn aðrir úr áhöfninni urðu um kyrrt í skipinu. Olíuskipið ber heitið Orleans og er 76.000 tonn að stærð. Hollenzki togarinn, Jan van Toon, sem er aðeins 295 tonn, varð ekki fyrir neinum alvarlegum skemmdum og enginn úr áhöfn hans slasaðist. Brezka samgöngumálaráðuneyt- ið skýrði svo frá í dag, að 460 manns hefðu verið fluttir burt frá gasborunartumum, er brennandi olíu tók að reka í átt að þeim. Eldur í olíuskipi á Ermarsundi Yarmouth, 24. janúar. AP. ELDUR kom upp í fullfermdu GÆÐIN OFAR ÖLLU. Birgdir af þessum frábæru verkfærum jafnan fyrirliggjandi. G.J. Fossberg Vélaverzlun hf. Skúlagötu 63 Símar 18560-13027
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.