Morgunblaðið - 25.01.1986, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
Golden Cup í Strasbourg:
Blaðamenn frá Svíþjóð
fleiri en sundmennirnir
ÞAÐ var mikill erill, ys og þys í
Sitigheim-sundhöllinni í Stras-
. bourg á Golden Cup-sundmótinu,
sem haldiö var dagana 17., 18.
og 19. janúar. Fulltrúar fjölmiðla
komu hvaöanœva aö úr heimin-
um til aö fylgjast með mótinu,
þótt ekki skipti þaö miklu máli f
sundheiminum og þess tœplega
að vœnta að sett yröu heimsmet
eða árangur yröi stórkostlegur.
Frá Svíþjóö komu meira aö segja
fleiri blaöamenn en sundmenn.
Margir bestu sundmanna heims
mœttu til leiks og var breiddin
mikil f flestum sundgreinum.
Golden Cup-mótið var nú haldið
fjóröa sinni og verður sterkara
með hverju ári. Það er enda segin
saga aö eftir þvf sem fleiri sterkir
sundmenn keppa eitt áriö koma
fleiri það nœsta. Átta sundmenn
komu til Strasbourg ofan af ís-
landi og einn íslendingur, Ragnar
Guðmundsson, kom gagngert frá
Danmörku til þátttöku. Eðvarð
Eðvarðsson, sundkappi frá Njarð-
vfkum, krœkti sár f bronsverðlaun
bsaði í 200 og 100 m baksundi
og var það vel af sér vikið þvf
margir keppinauta hans á mótinu
eru meðal bestu baksundmanna
Evrópu.
Rakaðir Kínverjar
Kínverjar komu best undirbúnir
til mótsins og greinilegt að þeir
ætluðu sér ekki að fara þaðan tóm-
hentir. Þeir höfðu rakað sig hátt
og lágt, utan hvað höfuðhárin
fengu að halda sér, og slíkt gera
sundmenn ekki nema þeir ætli að
taka á honum stóra sínum. Kín-
verjarnir unnu fjögur gullverðlaun,
ein silfurverðlaun og fjögur brons-
verðlaun á mótinu.
Svíar sendu aðeins tvo sund-
menn til keppninnar, þá Tommy
Werner og Michael Sederlund, og
fimm fréttamenn til að fylgjast með
þeim. Werner er skærasta von
Svía í skriðsundi og hefur hann
fengið styrk til að fara í háskóla í
Bandaríkjunum á hausti komanda.
Þar mun hann æfa með Sederholm
og skærustu stjörnu Bandaríkja-
manna, Matt Biondi, sem á síðasta
ári setti heimsmet í 100 m skrið-
sundi og Bandaríkjamet í 200 m
skriðsundi, sem nægði til aö setja
hann í annað sæti á heimslistanum
í þeirri grein. Werner var á síðasta
ári 8. á heimslistanum í 200 m
skriðsundi og 13. í 100 m Það var
í raun aðeins formsatriði fyrir
Werner að synda 100 m á Golden
Cup, hann kom, sá og sigraöi.
Ástæðan til þess að Svíarnir
sendu ekki fleiri menn á Golden
Cup var sú að sænska meistara-
mótið hófst á föstudag og vilja
Svíarvera íformi.
Það færist nú í vöxt að meistara-
mót séu haldinn fyrr en áður í
hinum ýmsu löndum. Það er vegna
þess að sundmenn miða yfirleitt
við að vera í toppformi tvisvar á
ári og taliö betra að lengra líði á
milli til að betri tími gefist til upp-
byggingar.
Hollenskt náttúrubarn
Hollendingar sendu á síðasta
ári þrjá sterkustu sundmenn sína
á Golden Cup-sundmótið en i ár
var það aðeins sundkonan Anne-
Marie Verstappen, sem talist get-
ur til fremstu afreksmanna Hol-
lendinga í sundi. Verstappen er
náttúrubarn í sundi og fyrir síðustu
Ólympíuleika, þar sem hún vann
tvenn bronsverðlaun og ein silfur-
verðlaun, æfði hún aðeins sjö
klukkustundir á viku. í vetur hefur
hún æft sautján klukkustundir á
viku og ætlar sér sigur á heims-
meistaramótinu i Madrid á þessu
ári. Verstappen syndir eins og
selur þegar lítiö liggur við og álagið
í hófi, en svo virðist sem taugarnar
bresti þegar kemur á mikilvæg
mót. Hún var þriðja á heimslistan-
um í 100 og fyrst í 50 m skriðsundi
á síðasta ári og átti ekki í neinum
vandræðum með að sigra í 100 m
skriðsundi á Golden Cup-mótinu
þar sem hún synti á 57,07 sekúnd-
um. í kjölfar hennar sigldi Nadja
Bergnecht frá Austur-Þýskalandi á
57,98 sekúndum, aðeins sekúndu
frá sínum besta tíma, sem færði
henni 15. sætið á heimslistanum
1985.
Grand Prix-sundmót
Ein nýjung veröur í sundheimin-
um á þessu ári: Nú mun hefjast
svo kölluð Grand Prix-keppni.
Verða þá haldin mót víða um heim
og geta sundmenn safnað stigum.
Að lokum þessarar Grand Prix-
keppni stendur sá með pálmann í
höndunum, sem vinnurflesta sigra
eða sýnir bestan meðalárangur.
Því hefur verið fundið til foráttu í
slíkri keppni að halda hana árlega
og talið skynsamlegra að halda
hana með nokkurra ára millibili
þannig að menn geti einbeitt sér
að Ólympíuleikum, Evrópukeppni
og heimsmeistarakeppni.
Golden Cup er reyndar ekki með
í Grand Prix þetta áriö, en þar sem
Evrópumótið verður haldið í Sitig-
heim-sundhöllinni í Strasbourg á
næsta ári er drjúg ástæða fyrir
væntanlega keppendur þar til að
taka þátt í mótinu og kynnast
aðstæðum. Það má því búast viö
aö mótið trekki ekki síður að kepp-
endurnæsta ár.
Golden Cup-mótið skiptir ekki
sköpum í sundheiminum. Þar er
ekki keppt um meistaratitla og
mótið er haldið þegar flestir sund-
menn æfa af kappi. Menn koma
því þreyttir til leiks, keppa í sem
flestum greinum og æfa gjarnan
rösklega með. Miklu frekar er litið
á mótið sem æfingamót og þátt-
taka er í því til að öðlast reynslu
og kynnast spennunni sem fylgir
því að keppa við sterka andstæð-
inga.
Sterkara með
hverju ári
Golden Cup var nú haldið í
fjórða sinn. Mótið veröur sterkara
með hverju ári og má taka sem
dæmi um það að hefði Eðvarð
Eðvarðsson synt jafnvel í Stras-
bourg á síðasta ári og nú hefði
hann orðið lang fyrstur í 200 og
100 m baksundi. Að þessu sinni
nægði sá tími „aðeins" til 3. sætis
íbáðum greinum.
Á mótinu var keppt í 100 og 200
m baksundi, 100 og 200 m bringu-
sundi, 100 og 200 m flugsundi,
100 m skriðsundi, 4x100 m skrið-
sundi og 1.000 m skriðsundi.
Margir eru þeirrar skoðunar að hér
sé um of fáar greinar að ræða
vegna þess að sundmenn vilji
keppa í sem flestum greinum. Nú
er í athugun að gera mótið fjöl-
þættara á næsta ári. Á Golden
Cup var einnig keppt í dýfingum
og sundknattleik og haldnar sýn-
ingar í listsundi eöa sundfimi, eftir
því hvort nafnið menn kjósa frem-
ur.
Mótið var sett 17. janúar og
hófst á því að landslið hverrar
þjóðar voru kynnt. [ setningar-
ávarpi Muriel Schmid, fréttafull-
trúa Golden Cup á mótinu, var
þeim, sem langt voru komnir að,
sérstaklega þakkað: íslendingum,
Sovétmönnum og Kínverjum.
Á morgnana var keppt í undan-
rásum og synt til úrslita á kvöldin.
Þegar úrslitin fóru fram var Sitig-
heim-sundhöllin, sem tekur 2.000
manns í sæti ætíð þéttsetin og
áhorfendur með á nótunum.
Frönskum skólabörnum var
boðið til að horfa á undanrásirnar
á laugardag og voru áhorfenda-
stæðin þá eins og fuglabjarg, slík
voru lætin í um 1.500 krökkum,
sem æptu, skríktu, blístruðu og
púuðu af öllum lífs og sálar kröft-
um.
Á kvöldin var annað upp á ten-
ingnum þótt eftirvænting lægi í
loftinu. Yfirleitt voru nokkur fagn-
aðarlæti þegar sundmenn voru
kynntir fyrir keppni og fagnaðar-
rokur brutust út þegar Frakkarnir
komust á blað.
Framkvæmd mótsins var öll til
fyrirmyndar og hvert atriði fór fram
eftir áætlaðri dagskrá. Sundfata-
framleiðandinn Golden Cup kost-
aði mótið og greiddi uppihald
sundmanna, en franska sundsam-
bandið sá um framkvæmd þess.
Golden Cup er dótturfyrirtæki
Triumph, sem þekktast er á Islandi
fyrir nærfataframleiðslu.
Dótturfyrirtæki Triumph eru æði
mörg og er Golden Cup þeirra
yngst, stofnað 1979.
í lausu lofti
Morgunblaðið/KB.
• Á Golden Cup-mótinu var
einnig keppt í dýfingum og
þar mátti sjá ýmsar möguleg-
ar og ómögulegar listir leikn-
ar í lausu lofti. Ekki er gott
að sjá hvort þessi skoska
stúlka er að koma eða fara.
Jafnvægislist
Morgunblaðiö/KB
• Tveimur fyrstu keppnisdögunum lauk meö sýningum í sundfimi. Bæði sýndi hópur frá Elsass
héraði listir sínar við tónlist og Evrópumeistaranir frá 1985, þær Alexandra Worisch og Eva Edinger,
brugðu sér áleik í lauginni. Hór má sjá hvar önnur þeirra kemur upp úr vatninu, fæturnir fyrst, af
mikilli jafnvægislist. Yfirborð laugarinnar gárast varla.