Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Starfsmenn Lána-
sjóðsins á launa-
skrá launadeildar
Kennarasambandi íslands boðinn samningsréttur í gegnum Bandalag kennara
Kennarar undirbúa aðgerðir á næstunni nái kröfur þeirra ekki fram að ganga
Fersk loðna til frystingar er
flokkuð eftir fjölda styklqa í hveiju
kílói. Fyrir efsta flokkinn verða
greiddar 8,75 krónur, 6,50 fyrir
næsta flokk og 5 krónur fýrir
lægsta flokkinn. Greidd verður 6%
uppbót á framangreint verð úr
verðjöfnunardeild aflatrygginga-
sjóðs. Ennfremur mun fiskvinnslan
greiða 39% ofan á verðið eins og
verð á öðrum fiski samkvæmt lög-
um um kostnaðarhlutdeild.
Verð á loðnuhrognum til fryst-
ingar var ekki ákveðið í fyrra, en
var á vetrarloðnuvertíð 1984 16
krónur. Verð á ferskri loðnu til
frystingar er nú það sama og á síð-
ustu vetrarvertíð.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að tillögu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar að ganga að
tilboði Valar hf. um byggingu
undirstaða geyma í Oskjuhlíð og
fleira því tengt.
Alls bárust tíu tilboð og var tilboð
Valar hf. lægst, upp á 31.438.843
krónur sem er 79,73% af kostnað-
aráætlun. Næstlægsta tilboð kom
MIKILL baráttuhugur ríkti á
fjölmennum fundi Kennararsam-
bands íslands, sem haldinn var á
Hótel Sögu í gær. Geir Haarde,
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra, las upp bréf fjármálaráð-
herra til Kennarasambandsins,
þar sem fram kemur að ráðherra
lýsi sig reiðubúinn til að veita
Bandalagi kennarafélaga, þ.e.
Kennarasambandi íslands og
Hinu íslenska kennarafélagi,
samningsrétt um gerð aðalkjara-
frá Gunnari og Guðmundi sf. og
var það um 520 þúsund krónum
hærra en tilboð Valar hf.
Völur hf. hefur starfað sem véla-
leigufyrirtæki og jarðvinnuverktaki
í rúmlega 20 ár. Hefur fyrirtækið
unnið flöimörg verk fyrir Reykja-
víkurborg á liðnum árum, síðast
endumýjun á hluta Laugavegar í
samvinnu við gatnamálastjóra.
samninga. Kári Amórsson skóla-
stjóri í Fossvogsskóla lýsti yfir
að skipulagðar hefðu verið að-
gerðir sem kennarar hyggðust
grípa til ef laun kennarafélag-
anna tveggja yrðu ekki sam-
ræmd hið fyrsta. Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra
sagði að verið væri að leggja síð-
ustu hönd á tillögur um lög-
verndun starfsheitis kennara.
í bréfí fjármálaráðherra kemur
fram að fulltrúar Kennarasam-
bands íslands hafi ítrekað óskað
eftir að sambandið fengi samnings-
rétt og jafnframt vakið athygli
ráðuneytisins á misræmi í launum
kennara eftir því hvoru félagi þeir
tilheyrðu. Þá sé ljóst að samræmi
í launum verði ekki tryggt nema
samningagerð verði í höndum eins
aðila. Bandalag kennarafélaga, sem
kennarafélögin eru aðilar að, hefur
það markmið m.a. að vinna að
sameiningu félaganna og sjálfstæð-
um samningsrétti, handa stéttarfé-
lagi kennara og því lýsir fjármála-
ráðherra því yflr að hann sé „reiðu-
búinn að veita Bandalagi kennara-
félaga viðurkenningu til að fara
með fyrirsvar ríkisstarfsmanna
innan sinna vébanda um gerð að-
alkjarasamninga".
Valgeir Gestsson formaður
Kennarasambands íslands sagði að
markmið Kennarasambands íslands
væri ekki að ná sama samningsrétti
og Hið íslenska kennarafélag hefði
í BHM. Það er, að ef ekki semst
með deiluaðilum þá fari deilan í
kjaradóm, en í þeim samningum
sem sambandið stæði frammi fyrir
á næstunni yrði þessi samningaleið
farin. Hann lýsti þvi jafnframt yflr
að tekin yrði afstaða til þess á
næstu dögum hvort Kennarasam-
band íslands stæði að gerð kjara-
samninga innan Bandalags kenn-
arafélaga í framtíðinni.
Kári Amórsson talsmaður að-
gerðanefndar Kennarasambands
Islands, sagði að ljóst væri að ef
ekki fengjust þau viðbrögð hjá
stjómvöldum, sem kennarar hefðu
sett sér við kröfunni um launajöfn-
un milli kennarafélaganna tveggja,
þá yrði gripið til mun harðari að-
gerða en áður hafí þekkst. Kennar-
ar í Kennarasambandi íslands yrðu
hvattir til að taka þátt í samræmd-
um aðgerðum um land allt. í fyrstu
yrði vakin athygli, með auglýsing-
um og greinaskrifum í dagblöðum,
á hvemig grunnskólalögunum er í
raun framfylgt og því misrétti, sem
nemendur búa við þar sem réttinda-
lausir menn starfa við kennslu.
“Beri herferðin ekki árangur verður
gripið til svæðisbundinna aðgerða
með þeim hugsanlegu afleiðingum
að skólar lokast í lengri tíma,“ sagði
Kári Amórsson.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra lýsti yfir vilja sfnum
ti) að ræða nánar við fulltrúa kenn-
ara um starfsaðstöðu þeirra og
laun. Nú væri samstarfsnefnd sú
sem starfað hefði lengi og skipuð
er fúlltrúum kennarar og mennta-
málaráðuneytisins um það bil að
ljúka störfum. Nefndin mun leggja
fram tillögur að frumvarpi um lög-
vemdun starfsheitis kennara sem
munu hafa í för með sér aukna
vemdun starfsréttinda.
í ályktun fundarins sem sam-
þykkt var í fundarlok, skorar fund-
urinn á alla félagsmenn Kennara-
sambands íslands að standa saman
í baráttunni um tafarlausa leiðrétt-
ingu launa, sjálfstæðan samnings-
og verkfallsrétt fyrir Kennarasam-
band íslands, fulla verðtryggingu
launa og verulega launahækkun og
lögvemduð starfsréttindi og starfs-
heiti kennara.
Undirstöður geyma í Öskjuhlíð:
Borgarráð samþykkti
tilboð Valar hf.
FRÁ og með næstu mánaðamót-
um fá allir starfsmenn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna laun sín
greidd hjá launadeild fjármála-
ráðuneytis, en hingað til hafa
fastráðnir starfsmenn eingöngu
fengið greitt hjá ráðuneytinu, en
lausráðnir starfsmenn hafa feng-
ið greitt úr sjóðnum, og hefur
veðdeild Landsbankans séð um
afgreiðslu launanna.
23 krónur
fyrir kíló
loðnuhrogna
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ráðuneytisins hefur orðið ásátt
um lágmarksverð á loðnuhrogn-
um og loðnu til frystingar. Verð
á hrognum verður 23 krónur á
hvert kUó og 5 til 8,75 krónur
fyir hvert kíló af loðnu. Þá var
samkomulag um verð á loðnu í
beitu og skepnufóður verði 3
krónur á hvert kíló.
Fj ölmenni á fundi kenn-
ara um laun o g réttíndi
í júlí 1985 óskaði ríkisendurskoð-
un skýringa á því hvers vegna
launadeild fjármálaráðuneytis væri
ekki falið að greiða öll laun fyrir
sjóðinn, en ríkisendurskoðun gerði
einnig athugasemdir við ráðningu
starfsfólks umfram heimildir. At-
hygli var vakin á því að launagjöld
sjóðsins hafi á árinu 1984 verið 8,4
milljónir króna, en samkvæmt fjár-
lögum hafi þau átt að vera 2,6
milljónir. Við lánasjóðinn starfa nú
25 manns, og verða janúarlaun
fyrstu launin sem allir starfsmenn
sjóðsins fá greidd frá launadeild-
inni.
Kennarar fjölmenntu á baráttufund Kennarasambands íslands á Hótel Sögu.
Morgunblaðið/Bjami
__ Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Raðgast um
utanríkismál
Utanríkismálanefnd Alþingis
er sú þingnefnd, sem lögum
samkvæmt situr að störfum allt
árið og er ríkissljórninni til
ráðuneytis um mikilsverð mál-
efni á starfssviði sínu.
I gærmorgun hittust þeir á
fundi í utanríkisráðuneytinu Matt-
hías Á. Mathiesen, nýskipaður
utanríkisráðherra, Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar, og Ingi S. Ingvars-
son, ráðuneytisstjóri. Var þessi
mynd tekin, þegar þeir ræddu
saman.
Ragnar Arnason á
þegar að segja af sér
— segir Auðunn Svavar Sigurðsson, varaformað-
ur stjórnar Lánasjóðs íslenzkra námsmanna
„ÞAÐ ER ljóst að Ragnar Árna-
son, fuiltrúi fjármálaráðherra í
stjórn Lánasjóðs íslenzkra náms-
manna, situr þar án umboðs nú-
verandi stjórnvalda. Hann var
skipaður eftir tilnefningu Ragn-
ars Arnalds, fjármálaráðherra
síðustu rikisstjórnar. Sem um-
boðslaus maður leyfir hann sér
að ráðast að Óiafi Arnarsyni,
fulltrúa stúdenta í sjóðsstjórn-
inni, og krefjast þess að hann
segi af sér. Ragnari Árnasyni
væri nær að líta í eign barm áður
en hann krefst afsagnar ann-
arra,“ sagði Auðunn Svavar
Sigurðsson, varaformaður
stjórnar LÍN, í samtali við Morg-
unblaðið.
Auðunn Svavar og Árdís Þórðar-
dóttir, varaformaður og formaður
í stjórn LÍN, lögðu fram bókun á
fundi stjórnar sjóðsins 21. janúar
síðstliðinn, sem var á þá leið, að
Ragnar Ámason, fulltrúi fjármála-
ráðherra í stjórn LÍN, sé gjörsam-
lega sambandslaus við umbjóðanda
sinn og seta hans í stjóminni þjóni
einungis flokkspólitískum hags-
munum Alþýðubandalagsins. Ragn-
ar Árnason vinni beint og óbeint
gegn stefnu ríkisstjómarinnar og
fjármálaráðherra og sé það því ský-
laus krafa undirritaðra að hann og
varamaður hans segi nú þegar af
sér úr stjóm LÍN.
Auðunn sagði, að á fundi stjómar
sjóðsins síðastliðið miðvikudags-
kvöld, hefði varamaður Ragnars
Árnasonar, Einar Valur Ingimund-
arson, lýst því yfir, að hann myndi
tafarlaust segja af sér, væri þess
óskað af fjármálaráðherra. Annað
teldi hann siðlaust. Auðunn gat
þess jafnframt að það hefði komið
fram hjá Ragnari sú skoðun, er
hann var fulltrúi stúdenta í sjóðs-
stjórninni, að fulltrúar stjómvalda
ættu að segja af sér við ríkisstjóm-
arskipti. „Slík fordæmi em til, en
Ragnar virðist bæði hafa gleymt
þessum orðum sínum eða álitur að
annað eigi við um hann en aðra.
Með setu sinni og störfum í stjóm
sjóðsins afhjúpar Ragnar siðleysi
sitt, tvískinnung og pólitískan til-
gang," sagði Auðunn Svavar Sig-
urðsson.
-r-.-u uKinaw