Morgunblaðið - 30.01.1986, Page 15
15
í bið verður árangur hans að teljast
vel sómasamlegur. Tékkinn Pavella
hlaut sigur i mótinu og krækti í 7
vinninga af 9 mögulegum. Þetta
er í annað sinn sem hann er sigur-
vegari í Hallsberg, þó sigurinn
væri ekki átakalaus því Galego frá
Portúgal hlaut jafnmarga vinninga,
en varð lægri á stigum. Röð efstu
manna varð þessi:
1. Pavella (Tékkóslóvakíu) 7v.
2. Galego (Portúgal) 7 v.
3. N.L. Carr (Englandi) 6v.
4. Johanson (Svíþjóð) 6v.
■» 5. Þröstur Þórhallsson 5v.
i
Aðrir keppendur voru neðar.
Hvítt: Þröstur Þórhalsson.
u Svart: J. Gullbrand (Svíþjóð)
- 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 -
li Bb4?, (Það er hulin ráðgáta hvi
i.menn freistast æ ofan í æ til að
rrtefla þetta afbrigði á svart, þrátt
li fyrir svartan orðstír.) 6. e4 — Rd5,
7. Bd2 - Rxc3,8. bxcS - Bf8 (Allt
hefiir þetta sést áður þótt 8. — Be7
sé vinsælla.) Dg4 — a6? (9. —
Rc6, 10. f4 — d6 var auðvitað
betra.) 10. Bd3 - d6, 11. f4 -
i.g6? 12. h4 (Auðvitað, nú þrengist
rr mjög að svörtum.) 12. — h5, 13.
, Df3 - Dc7, 14. 0-0 - Rc6, 15.
iexd6 — Dxd6 (15. — Bxd6 var
£ betra.) 16. Rxc6 — bxc6, 17. Be4
t — Bd7, 18. Be3 — f5 (ljótur leikur,
en fátt var til vamar.) 19. Hadl!
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Hinir ólíklegu rútubílaræningjar afhjúpaðir að lokum.
Ogæfulegar andhetjur
Kvihmyndlr
Sæbjöm Valdimarsson
REGNBOGINN: Stigamenn —
Restless Natives *
Leikstjóri: Michael Hoffman.
Handrit: Ninian Dunnett, Kvik-
myndataka Oliver Stapleton.
Tónlist: Big Country.
Aðalhlutverk: Vincent Friell, Joe
Mullaney, Teri Lally, Ned Beatty,
Robert Urquhart, Bemard Hill,
Ianin McCaU. Bresk frá EMI,
1985.
Litlar spumir hafa borist af kvik-
myndagerð nágranna vorra, Skota,
en nokkur snilldarverk eftir Bill
Forsyth hafa þó skolast til landsins,
bæði til sýninga í kvikmyndahúsum,
(Local Hero) og á myndböndum,
(Gregory’s Girl, Comfort and
Joy). Sýning Stigamanna vekur
því nokkra eftirvæntingu.
Myndin segir frá tveimur ofur
venjulegum og hálf atvinnulausum
Skotum, sem fremja rán á ferða-
mönnum í skoðunarferðum til að
rífa sig uppúr auraleysi og andlegu
volæði. Til að byrja með gengur
stigamennskan með ágætum,
kumpánamir verða fréttamatur og
fá Hróa hattar komplexa. Fljótlega
þykir amerískum kerlingum eftir-
■ b c d • l o h
(Biskupinn má ekki hirða því 19. —
fxe4, 20. Dxe4 — Bg7, 21. Dxg6+
— Kd8, 22. f5 og hótanir hvits eru
óveijandi.) 19. — Dc7, 20. Bd3 —
Bg7, 21. Bc5 (Hindrar hrókunar-
réttinn.) 21. - Da5, 22. Df2 -
Hh7 (Sú saga er sögð að andstæð-
ingur Kasparovs hafi eitt sinn þurft
að leika svipuðum hróksleik gegn
meistaranum í afkáralegri stöðu.
Skellihló þá Kasparov að andstæð-
ingnum og rúllaði honum upp í fá-
einum leilqum, kannski svipuð
meðferð og svartur fær nú?) 23.
Bc4 - Bf6, 24. Bb4 - Dc7, 25.
Hfel — He7? (Til lítils var þetta
flakk á hróknum en staðan var
gjörtöpuð.) 26. Bxe7 — Bxe7, 27.
Dd4 - Da7, 28. Dxa7 - Hxa7,
29. Bxe6 og svartur gafst nú upp
og þó fyrr hefði verið.
sóknarvert að láta ræna sig og
ferðamannastraumurinn tekur fjör-
kipp. Annar lúðinn nær sérí kven-
mann, hinn kynnist alvöruglæpa-
manni og er það upphafíð á endi
ránsferðanna.
Því miður er enginn Forsyth á
ferð, Stigamenn er heldur lítilflör-
leg gamanmynd sem fellur fyrst og
fremst á því að hún fjallar um ákaf-
lega aulalegar persónur sem litla
samúð fá hjá áhorfandanum. Það
fær enginn þá tiltrú á þeim að þeir
geti þrifíð sig andskotalaust, hvað
þá heldur meira. Þessum uppburð-
arlitlu ungmennium þústuðum af
atvinnuleysi Jámfrúarinnar og
meðfæddum vesaldóm, á þó að Ifð-
ast heilt sumar, að ræna hundruð
túrista með barnagull að vopni,
hafa lögregluna að fífli og heilla
fegurðardísir. Allt er þetta heldur
vandræðaleg framsetning sem
kæfír allar leyndar meiningar í
fæðingunni.
Vinnubrögðin eru heldur slök,
bestu hlutina gerir kvikmyndatöku-
maðurinn þegar hann gleymir
myndefninu og vísar myndavélinni
til fjalla, (hann skyldi þó ekki hafa
verið á mála hjá skoska ferðamála-
ráðinu?).
Myndefni á borð við Stígamenn
á kannski erindi í skoska sjónvarp-
inu, þó ríkir þar vonandi betra
skopskyn en svo. Myndin færir
mann jú heim sanninn um eitt:
Glæpir borga sig ekki nema í léleg-
um myndum.
- ■' j
Um mjólk og tennur
eftír ór. Jón Óttar Ragnarsson
Allt fra þvi tennurnar byrja að mynaast þurfa þær
kalk, fyrst til uppbyggingar, siðar á ævinni til viðhalds
Með daglegri mjólkurneyslu er líkamanum tryggður
lágmarks kalkskammtur, og þannig unnið gegn
hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts. Tennurnar
fá þannig á hverjum degi þau byggingarefni sem
þær þarfnast og verða sterkar og fallegar fram eftir
öllum aldri. Cleymum bara ekki að bursta þær
reglulega.
Mjólkin gefur
gott útlit
Meö góðu útiiti er yfirleitt átt við fallega
líkamsbyggingu, hæfilegt holdafar, fagurt
andlitsfall, heilbrigðar tennnur og góða húð.
Fæða hefur bein áhrif á úttit okkar og vellíðan.
Tengsl mataræðis og útlits eru svo margslungin
að næstum öll næringarefni fæðunnar, yfir 40
talsins, koma þar við sögu.
Öll vijjum við líta vel út. En sýningarfólk bvggir
atvinnu sína og afkomu á góðu útliti. Ragna
Sæmundsdóttir er ein okkar efnilegasta fyrirsæta.
Hún veit að mjólkurdrykkir hafa umtalsverð og
jákvæð áhrif á útlit okkar. Hún drekkur mjólk
daglega.
Úr mjólkinni fáum við kalk og magníum fyrir
tennur og bein og A-vítamín fyrir húðina. Einnig
mikið af B-vítaminum, sem gera húðinni gott og
ekki síður hári og nöglum. Síðast en ekki síst er
enginn sykur í venjulegum nru'ólkurdrykkjum, og
hver og einn getur ráðið fituinnihaldinu með því
að nota léttmjólk eða undanrennu.
Til að halda góðri heilsu og líta vel út þurfum við
fiölbreytt, gott fæði. I þeim efnum skipar
mjólkurmaturinn öndvegi.
MjÓLKURDACSNEFND
Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna.
A