Morgunblaðið - 30.01.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
23
3. Eldsneylls- 4. Á braut
tankur losaóur umhverfis
2. Eldflaugar ,rá-
losaöar frá. —•"t _ '
Falla í gtó. A-->5 ./ “ ”
5. I gegn ui
gufuhvolfiö
á leiö til
jarðar. /
Sffí&tfXtQWt
1. Geimskot.' él Len'dir'eins' og ve'njulég' fíúgvel".
Stjornklefi.
Alls geta sjö manns veriö
um borð í geimskutlunni
Gervihnettir
Margvísleg tæki
— Stjörnusjónauki,
sem ráðgert er að
koma um borð 1985.
Að baki bjartsýn-
inni leynist óttinn
við hætturnar
Houston, 29. janúar. AP.
DJÚPT í vitund bandarískra geimfara hefur alltaf leynzt óttinn við,
að ólýsanlegur harmleikur ætti eftir að gerast. Þessi ótti hefur
oftast farið dult og að því leyti voru geimfararnir í Chailenger
ekkert frábrugðnir öðrum. Þeir sniðgengu alltaf spurningar um
hættur þær, sem kynnu að bíða þeirra.
Jafnvel Christa McAuliffe hafði
það til siðs að hlæja burt kvíða sinn.
„Ég ætla að horfa á hina geim-
farana og svo lengi sem þeir eru
ekki hræddir, þá verð ég það ekki
heldur," sagði hún fyrir skömmu.
Fý-rrverandi Apollo-geimfari,
Frank Borman, sagði það einu sinni
í gamni, að honum fyndist hann
öruggari í geimfari á leið til tungls-
ins en í bfl á þjóðvegi í Texas.
Geimfarinn Vance Brand hefur
sagt, að það hvíli „hjúpur djörfung-
ar“ yfir geimferðum, en viðurkenndi
síðan, að það mætti líta á þetta
frá mörgum hliðum.
Að baki bjartsýnisskrafinu lá
alltaf í leyni óttinn við yfirvofandi
hættur. Ottinn við þessar hættur
kom aðeins sjaldan í ljós og um þær
var helzt aldrei rætt.
Þessar hættur komu hins vegar
berlega í ljós í gær, er geimfeijan
Challenger fórst í feiknarlegri
sprengingu ásamt öllum þeim 7
mönnum, sem með henni voru. Þá
var hulunni svipt af hættunum, sem
eru samfara geimferðunum.
Bonnie Jo Allen, eiginkona geim-
farans Joe Allens, hefur sagt:
„Möguleikinn á því að þetta gerist,
er alltaf fyrir hendi og við vitum
það. Við biðjum þess allan tímann,
að það gerist ekki, en þar kom að
lokum, að það gerðist."
Eðlisfræðingurinn Taylor Wang,
sem fór í geimferð með Challenger
í fyrravor, skýrði frá því í gær, að
honum og öðrum geimförum hefði
verið ráðlagt fyrirfram að „semja
erfðaskrá og sknfa bréf til fjöl-
skyldu sinnar“. „í leynum hugans
felst alltaf hugboð um, að eitthvað
geti gerzt, en þú hugsar ekki um
það. Ef þú gerðir það, færir þú
ekki í geimferð."
Donald K. Slayton, einn úr 7
manna hópi fyrstu bandarísku
geimfaranna, er kannski enn gagn-
orðari: „Allir vita, að þetta á eftir
gerast fyrr eða síðar,“ sagði hann
í gær. „Maður óskar þess bara, að
það verði síðar.“
Enda þótt þrír bandarískir geim-
farar hefðu beðið bana í eldsvoða,
þegar það kviknaði í Apollo 1 á
jörðu niðri fyrir 19 arum, þá var
það engu að síður staðreynd, að
NASA hafði staðið fyrir 55 mönn-
uðum geimferðum, án þess að
nokkur hefði týnt lífi — þar til
Challenger var skotið upp á þriðju-
dag.
„Þetta hefur gengið ótrúlega vel
árum saman, en hættan á því, að
eitthvað hræðilegt gerðist, var allt-
af fyrir hendi,“ sagði John Glenn
öldungadeildarþingmaður, en hann
er fyrsti Bandaríkjamaðurinn, sem
fór í geimferð umhverfís jörðu.
Alan Bean, sem gekk á tunglinu
í ferð Apollo 12 og dvaldist 26 daga
úti í geimnum um borð í Skylab
2, viðurkenndi einu sinni í viðtali
þær hættur, sem geimferðunum eru
samfara:
„Hver viti borinn maður fyndi til
kvíða, ef hann væri kominn efst
upp á slíkt magn af sprengiefni til
þess að bíða þess að verða sendur
þangað, þar sem ekkert loft er til
og eina leiðin til þess að komast
niður er að stökkva í fallhlíf ofan
í sjóinn."
Stýri og hemlar.
Hreyflar.
Eldsneytis
geymar.
Geimferjan að störfum
Geimfaramir höfðu
enga undankomuleið
Houston, 29. janúar. AP.
í FYRSTU fjórum tilraunaferðum geimferjanna út fyrir gufu-
hvolfið var um borð búnaður til að skjóta flugmönnunum út, en
með því að fjölgaði í áhöfn og feijumar urðu áreiðanlegri var
neyðarbúnaður þessi fjarlægður úr feijunum.
ir sjö hefðu með engu móti getað
bjargað sér með slíkum búnaði, að
sögn talsmanns NASA.
Talsmaðurinn, Terry White,
sagði útilokað að koma neyðar-
búnaði af þessu tagi fyrir í geim-
ferjunni. Allt að átta menn væru í
áhöfn og sætu þeir víðs vegar um
feijuna.
„Feijan er of stór og eftir flugtak
er engin undankomuleið nema í
nauðlendingu þar sem tekst að
lenda feijunni óbrotinni. Það má
líkja þessu við farþegaþotur. Hvem-
ig á að tryggja undankomu 300
Neyðarbúnaður af þessu tagi
hefði að engu gagni komið er
Challenger splundraðist rúmri mín-
útu eftir flugtak í gær. Geimfaram-
„Snúum
harmleik
í sigur“
manna í flugvél sem springur?,“
sagði White.
Sérstakur búnaður var til að
skjóta geimförum út úr Apollo-,
Gemini- og Mercury-geimförunum
ef neyð hefði steðjað að eftir flug-
tak. Þau voru mikið smærri en
geimfeijumar.
Eini neyðarbúnaðurinn í geim-
feijunum eru neyðarrennur, sem
komið geta að notum á skotpallin-
um eða eftir lendingu. Einnig eru
sérstakar neyðarlúgur, sem komast
má út um í nauðlendingu á hafi.
Þá eru um borð björgunarbátar.
Einnig geta geimfaramir losað
eldflaugarnar og eldsneytistankinn
frá feijunni með einu handtaki, ef
þörf krefur.
New York, 29. janúar. AP.
CHALLENGER-slysið var að
vonum aðalefni bandarískra
blaða í dag. Birtu þau frásagnir
af því með geysistórum fyrir-
sögnum og áhrifamiklum mynd-
um. Blaðið New York Times
helgaði þessum atburði alla for-
síðu sína undir fyrirsögninni:
„Geimfeijan springur". Enn-
fremur var fjallað um harmleik-
inn á 9 blaðsíðum inni í blaðinu.
í leiðara undir fyrirsögninni:
„Dauði kennara", kemst blaðið m.a.
þannig að orði: „Reagan forseti
hefur boðað hina réttu huggun.
Ekki að örvænta og ekki að hörfa,
heldur fara fleiri geimferðir. Senda
jafnvel einhvem tímann fleiri skóla-
kennara út í geiminn. Á þessu
augnabliki syrgir þjóðin, en á því
næsta verður verkefnið það að
heiðra hina látnu með því að snúa
einu sinni enn harmleik í sigur.“
Los Angeles Times segir í leið-
aragrein: „Allir þeir, sem vinna við
geimferðaáætlunina, gera sér grein
fyrir hættunni á því, að eitthvað
fari úrskeiðis þrátt fyrir ströngustu
viðleitni til þess að gera alla hluti
rétt. Geimfaramir sjö, sem létu lífið
á leið sinni með leifturhraða út í
geiminn, sættu sig við hættuna,
vegna þess að þeir unnu því verk-
efni, sem þeir höfðu valið.“
Einkaumboð á íslandi
JÓHANN 0LAFSSON & C0
43 Sundaborg
-------104 Reykjavík ...........
Hun er betri!
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
1000 watta — kraftmikill mótor
Sogkraftur 54 sekúndulltrar
2400 mm vatnsúla
71. poki
4 fylgihlutir I innbyggðri geymslu
Mjög hljóðlát (66 db. A)
Fislétt, aðeins 8,8 kg
Þreföld ryksfa
Hægt að láta blása
Teppabankari fáanlegur
9,7 m vinnuradíus
Sjálfvirkur snúruinndráttur
Hagstætt verð
Míele
RYKSUGAN
Mikligarður v/Sund
JL-húsið, rafdeild,
Rafha, Austurveri,
Gellir, Skipholti,
Teppabúðin, Suöurlandsbraut
KB, Borgarnesi,
KBH, Egilsstöðum
—KASK, Höfn---------—
Rafbúð RÓ, Keflavík,
Árvirkinn, Selfossi,
Straumur, ísafirði,
Kjarni, Vestmannaeyjum,
Rafþjónusta Sigurdórs,
Akranesi,
Raftækjaverkstæði Gríms og
Áma, -Húsavík,— ............
Útsölustaöir: