Morgunblaðið - 21.02.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
Þrír af hverjum fjórum
íslendingum leita lækn-
inga ársfjórðungslega
SAMKVÆMT nýlegri könnun
Landlæknisembættisins njóta
þrír af hveijum fjórum Islend-
ingum heilbrigðisþjónustu á
hveiju þriggja mánaða tímabili,
hver maður að meðaltali tvisvar.
Eftirspurn eftir heilbrigðisþjón-
ustu eykst með aldrinum og eru
konur í meirihluta i öllum aldurs-
hópum. Sama gildir um lyfja-
notkun.
Könnunin spannaði tímabilið frá
nóvemberlokum 1984 til loka febrú-
„Gaggó Vest“
féll af toppnum
NOKKRAR breytingar hafa
orðið á vinsældalista rásar 2
frá því í síðustu viku. Lögin
í 1. og 2. sæti hafa þó skipt
um sæti innbyrðis. Meðal
nýrra iaga á listanum er
„Sanctify your self“ með
Simple Minds sem fer úr 21.
sæti í það 7.
Litlar breytingar urðu á
tveimur efstu sætunum eins og
sjá má á listanum sem hér fer
á eftir:
1. (2) How Will I Know
Whitney Houston
2. (1) Gaggó Vest
Gunnar Þórðarson/Eiríkur Hauksson
3. (8) Rebell Yell
Billyldol
4. (15) BumingHeart
Survivor
5. (3) Gull
Gunnar Þórðarson/Eiríkur Hauksson
6. (4) The Sun Always Shines on TV
Aha
7. (21) Sanctify your Self
Simple Minds
8. (9)WalkofLife
Dire Straits
9. (7) The Great Wall of China
Rikshaw
10. (14) BorderLine
Madonna
ar 1985. Hún för fram í formi
spuminga sem starfsmenn Hag-
vangs leituðu svara við símleiðis.
Úrtakið náði til 1.000 íbúa á öllu
landinu, á aldrinum 18-70 ára. 83%
svöruðu. Markmiðið var þríþætt: Í
fyrsta lagi að kanna notkun heil-
brigðisþjónustu eftir aldri og bú-
setu.
Á þessu þriggja mánaða tímabili
höfðu 76% aðspurðra haft samskipti
við heilbrigðisþjónustuna. Þar af
voru konur 85%, en karlar 67%.
Heildarfjöldi samskipta var 1.415,
sem jafngildir því að hver einstakl-
ingur hafí leitað heilbrigðisþjónustu
1,8 sinnum á tímabilinu. Langflestir
aðspurðra töldu heilbrigðisþjón-
ustuna góða, eða 85%, og þar af
töldu 60% hana mjög góða. Hins
vegar fannst 8,3% aðspurðra að
henni væri ábótavant.
Könnunin leiddi í ljós að heilsu-
gæslu- og heimilislæknaþjónusta er
burðarás heilbrigðisþjónustu í
landinu, en 53% aðspurðra leituðu
hennar. 10,2% leituðu hins vegar
heilsubótar utan hins opinberu heil-
brigðiskerfís. Flestir þeirra, eða 5%,
höfðu farið í líkamsnudd, 2,7% fóru
í svæðanudd og 2% höfðu leitað til
huglækna.
Konur nota lyf meira en karlar
eftir könnuninni að dæma. Að
meðaltali fengu 36,5% aðspurðra lyf
samkvæmt lyfseðli á tímabilinu. Þar
af vom konur 43,5%, en karlar
29,4%. 70,2% kvenna sem tóku þátt
í könnuninni sögðust neyta fjör- og
steinefna, en 47,9% karla. Bæði
kynin virðast nota náttúrumeðöl í
sama magni, en alls höfðu 23%
aðspurðra neytt þeirra á tímabilinu.
Rúmlega 20% heimila lögðu út
yfír 1.000 krónur í beinan kostnað
vegna læknisþjónustu á tímabilinu.
Hins vegar borguðu 60% heimila
meira en 1.000 krónur fyrir tann-
viðgerðir þessa þrjá. mánuði.
Fultrúar Kaupmannasamtakanna innan-
búðar hjá Guðlaugi. Ingi Björn Hafsteins-
son, Jóhannes Jónsson, Magnús E. Finnsson,
Guðlaugur Pá>sson og Kolbeinn Kristinsson.
„Til hamingju með daginn Laugi minn,“ sagði
Barbara Lind Ingólfsdóttir.
„Blessaður vertu — það er ekk-
ert merkilegt að verða níræður“
Selfossi 20. febrúar.
GUÐLAUGUR Pálsson kaup-
maður á Eyrarbakka er 90 ára
í dag. Hann hefur rekið verslun
á Eyrarbakka síðan 4. desember
1917 og er enn að. Rekstur sinn
hóf Guðlaugur í Kirkjuhúsi á
Bakkanum en flutti tveimur
árum siðar í Sjónarhól þar sem
verslunin er enn í dag, í 100 ára
gömlu húsi.
„Blessaður vertu þetta er ekkert
merkilegt að verða níræður, ég sá
mynd af manni í Morgunblaðinu í
gær og hann var 94 ára,“ sagði
Guðlaugur þegar hann var heim-
sóttur um hádegisbilið í dag. Það
streymdu að blóm og gjafír frá
einstaklingum og fyrirtækjum og
allir sem komu inn í búðina óskuðu
afmælisbaminu til hamingju.
Unga fólkið skýst oft inn til
Guðlaugs og fær sér gott í munn-
inn. „Til hamingju með daginn
Guðlaugur," sagði Guðjón Guð-
mundsson 15 ára um leið og hann
bað um bijóstsykur. Afi hans,
Guðjón Guðmundsson, flutti mikið
af vörum fyrir Guðlaug bæði á
hestum og síðar á bílum. „Þetta
var traustur og ábyggilegur mað-
ur,“ sagði Guðlaugur. „Til ham-
ingju með daginn Laugi minn,“
sagði Barbara Lind 11 ára úr
næsta húsi.
Guðlaugur hélt áfram að gera
lítið úr aldrinum enda hefur hann
platað árin og haldið sérung um
og kvikum. f búðinni eru vömmar
í snyrtilegum röðum í hillunum og
sjálfur snýst hann fram og aftur
léttur á fæti við að sinna viðskipta-
vinum sínum.
Þá heiðruðu fulltrúar Kaup-
mannasamtakanna Guðlaug með
heimsókn. Starfsmenn hreppsins
settu upp nýtt skilti yfír verslunar-
dymar í tilefni dagsins og ham-
ingjuóskir til þessa heiðurskaup-
manns streymdu að. Sigurður
Andersen símstöðvarstjóri snaraði
inn á borð 40 símskeytum með
þeim orðum að þetta væri nú bara
brot af því sem ætti eftir að koma.
Sig. Jóns.
Ágreiningur um hlut lífeyris-
sjóðanna hægði á viðræðunum
ÞEGAR líða tók á aðfaranótt fimmtudagsins tók að draga úr
bjartsýni og góðum vonum sem samningamenn ASÍ og samtaka
vinnuveitenda höfðu gert sér um góðan gang samningaviðræðna
sinna nóttina áður og i fyrrakvöld. Ástæðan var sú, að i samninga-
nefnd ASÍ var ágreiningur um samkomulag, sem þeir Guðmundur
H. Garðarsson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna,
og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, höfðu gert til lausnar á
deilum um framlög lífeyrissjóðanna til fjármögnunar húsnæðis-
lánakerfisins. Ekki tókst að sætta sjónarmið samninganefndarinn-
ar og þeirra Ásmundar og Guðmundar, sem er formaður stjórnar
stærsta Iífeyrissjóðs landsins (með um 17 þúsund félaga og höfuð-
stól upp á hálfan fjórða milljarð) og á endanum varð ljóst að
ágreiningurinn var það mikill, að ekki tækist að leysa hann þá
um nóttina. Upp úr klukkan sex í gærmorgun var ákveðið að
fresta fundinum þar til siðdegis í gær. í upphafi fundar í gær-
kvöldi var nánari útfærsla á þessu samkomulagi úr undirnefnd-
inni lögð fyrir samninganef ndinar og var útlit fyrir að það stæði.
Guðmundur og stjóm Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna höfðu frá
upphafí verið andvígir því — og
töldu sig ekki hafa heimild til að
fallast á — að lífeyrissjóðimir
myndu alfarið hætta að lána fé-
lögum sínum beint til húsbygg-
inga og verðu þess í stað allt að
70% af ráðstöfunarfé sínu til
kaupa á skuldabréfum opinbem
byggingarsjóðanna. í viðtali við
Morgunblaðið á þriðjudaginn í síð-
ustu viku sagðistGuðmundurtelja
að það kerfí, sem hugmyndin er
að koma upp, sé óæskilegt og
rangt. Hann sagði að allt frá
upphafí hefði lífeyrissjóður VR
keypt ríkistryggð skuldabréf fyrir
8—15% af ráðstöfunarfé sínu. í
frétt blaðsins kom og fram, að
sjóðurinn ver nokkrum hluta af
ráðstöfunarfé sínu til kaupa á
skuldabréfum af verslunarlána-
sjóði, sem síðan lánar fyrirtækjum
í verslun.
í gær sagði Guðmundur að allt
frá upphafí hafí það verið stefna
og einlægur ásetningur þeirra,
sem fara með forystu í Lífeyris-
sjóði verslunarmanna, að stuðla
að því að meira fé væri varið til
opinbera húsnæðislánakerfísins.
Þeir væru hinsvegar andvígir
þjóðnýtingu lífeyrissjóðanna —
þess í stað ætti að halda áfram
að leyfa sjóðunum að lána beint
jafnframt því sem opinbera hús-
næðislánakerfíð væri opið áfram.
„Við í sjóðstjóminni höfum þegar
gert ráðstafanir til að auka fram-
lag okkar til opinberu sjóðanna,"
sagði hann.
Lífeyrissjóðirnir
bera uppi húsnæðis-
lánakerfið
Hugmynd samningamanna
ASÍ, VSÍ og VMS er að mun
meira af ráðstöfunarfé lífeyris-
sjóðanna verði varið til kaupa á
ríkisskuldabréfum, sem fjár-
magna hið opinbera húsnæðis-
lánakerfí að verulegu leyti. Sömu-
leiðis hefur verið rætt um að hluti
af fjármagni sjóðanna verði lánað-
ur ríkissjóði til að standa straum
af niðurfærslu verðbólgunnar. I
þessu sambandi hefur verið bent
á, að lífeyrissjóður sjómanna
stendur undir um fjórðungi af
húsnæðislánakerfínu með því að
verja þremur fjórðu hlutum ráð-
stöfunarfjár síns til kaupa á
skuldabréfum opinberu bygging-
arsjóðanna. Að sögn eins samn-
ingamanna verkalýðshreyfíngar-
innar ver um það bil helmingur
lífeyrissjóðanna í landinu um eða
yfír 40% af ráðstöfunarfé sínu til
húsnæðislánakerfísins á þennan
hátt. „Það kerfí stendur og fellur
með lífeyrissjóðunum," sagði
annar samningamaður.
Eins og fyrr segir var upp-
haflega talað um að sjóðimir
verðu allt að 60—70% af ráðstöf-
unarfé sínu til þessara skulda-
bréfakaupa. Nú mun vera fallið
frá þeirri hugmynd, enda ljóst að
fleiri en stjóm lífeyrissjóðs VR eru
andvígir henni. I stað þess er í
farvatninu samkomulag um að
lánaréttindi úr opinberu bygging-
arsjóðunum verði í hlutfalli við
framlag viðkomandi lífeyrissjóða
til húsnæðislánakerfísins. Er rætt
um að lágmark í þessu sambandi
verði um 20% og hámark
50-60%.
Efnafólk borgi meira
Samningamönnum úr báðum
fylkingum ber saman um að ekki
komist verulegur skriður á við-
ræðumar á nýjan leik fyrr en
samkomulag hefur tekist í þessu
máli, því eins og einn sagði: „Það
eru ekki síst lífeyrissjóðimir, sem
eiga að Qármagna þessa samn-
inga. Það verður ekki hægt að
fara að takast á um önnur mál
og reikna út fastar stærðir og
takast á um kaup og kauptrygg-
ingu fyrr en við höfum góða
hugmynd um hversu mikið fé
þetta getur verið." Annar sagði:
„Um leið og húsnæðis- og lífeyris-
sjóðamálið smellur saman verður
hægt að ijúka í að ljúka þessu.“
Sá sami kvað gróflega áætlað að
lífeyrissjóðimir legðu til á þennan
hátt liðlega helming þeirra ca.
1.200 milljóna króna, sem talið
væri að þyrfti að leggja til svo
samningar tækjust eftir niður-
færsluleiðinni — en henni er ætlað
að skera verðbólgu niður í 6—7%
á árinu. Fyrir liggja gróflegar
áætlanir um að hægt verði að
afla þess fjár, sem upp á vantar,
með auknum og skilgreindum
spamaði og jafnvel frekari skatt-
heimtu efnafólks og skattheimtu
á raunvemlega munaðarvöru. Á
móti ræða menn verulega lækkun
margra matvöruflokka, ýmissa
gjalda og óbeinna skatta, svo sem
aðflutningsgjalda af bílum. Sá
kostur er ekki talinn sístur við
lækkun aðflutningsgjalda af bíl-
um, að þeirrar lækkunar mun
þegar í stað gæta í lækkun fram-
færsluvísitölu, þar sem nýir bílar
vega um 5%. Meginröksemdin
fyrir væntanlegri ósk um lækkun
bílatolla er sú, að bílar séu ekki
munaðarvara og því beri ekki að
tolla þá sem slíka.
„Taka að okkur
sljórn efnahag'smála “
En íjármögnun húsnæðislána-
kerfísins var þó engan veginn eina
ágreiningsefnið, sem enn var
óleyst þegar fundinum var frestað
í gærmorgun. „Það er eftir feikn-
arlega mikil vinna," sagði einn
samningamanna síðdegis í gær,
„enda hefur verið valin feiknar-
lega flókin leið í þessum samning-
um. Við erum meira og minna að
tala um að taka að okkur stjóm
efnahagsmála að vissu leyti. Það
er ekkert uppgert í heild og frá
þessum samningum verður ekki
gengið nema í heildarpakka."
í gærdag töldu menn að sam-
komulag væri um það bil að takast
um lífeyrismál — m.a. að á næstu
fjórum árum eða svo verði því
marki náð að greitt verði í lífeyris-
sjóðina af öilum launum, eins og
rakið hefur verið í fréttum blaðs-
ins undanfarna daga. Ágreiningur
um kauptryggingarákvæði var í
gærdag hinn sami og daginn áður,
somuleiðis um launahækkanir á
samningstímabilinu. Markmiðið
virðist þó ljóst: að tryggja að
kaupmáttur á þessu ári verði hinn
sami og í fyrra og jafnvel, að hinir
lægst launuðu fái aukalega hækk-
un.