Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21, FEBRÚAR1986 í Nýlista- safni Ungur maður, Birgir Andrésson, sýnir eins og stendur verk sín í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Birgir er nokkuð sérstæður í myndlistar- verkum sínum og spekúlerar mikið í gangi himintungla og vill sam- kvæmt eigin yfirlýsingum líkjast Tycho Brahe, hinum danska stjörnuspekingi. Birgir hefur einnig gefíð út yfírlýsingu um gáfnafar slæmra myndlistarmanna — ekki veit ég, hvort nokkur alvara er í þeirri speki, en frekar gæti ég trú- að, að um glettu væri að ræða og vonandi er það svo. Myndir Birgis eru allar gerðar á TYCHO BRAHE svartan grunn og minna nokkuð á stjörnukort, enda mun það vera í samræmi við skoðanir hins hár- prúða skapara. Fyrir ofan hverja mynd á vegg eru teiknaðar í járn ýmsar myndir, sem mætti skilja sem tákn fyrir stjömukortið fyrir neðan. Samt fór nú svo fyrir þeim, er þetta ritar, að boðskap þessara verka var honum um megn að skilja, nema sem glettu og tilraun til frumleika. Það er svo annað mál, að það þarf nokkra dirfsku til að koma upp slíkri sýningu, ég tala nú ekki um á þessum seinustu og erfíðustu tím- um, þegar galleríin leggja upp laup- ana hvert af öðru og sum gerast jafnvel leikhús,_eins og virðist með Kjarvalsstaði. Otrúlegt en satt, og maður spyr, hvað er að gerast? Verður næsta myndlistarsýning á sviði í Þjóðleikhúsinu. Það er ekki ein báran stök með glettur í listinni, og ætli maður flokki ekki sýningu Birgis Andréssonar undir slíkt. •• Oskudagur í Stykkishólmi m Stykkishólmi, 13. febrúar. ÖSKUDAGURINN í gær var mikil hátíð fyrir börnin, enda var mikið um að vera. Búningar alla- vega litir og allskonar uppfinn- ingar og nýtíska á ferðinni. Það var ákveðið að byrja fagnaðinn við skólann og ganga svo i skrúð- göngu um bæinn, en því miður leyfði veðrið ekki það, það var bæði rok og rigning. Var því ákveðið að skemmtunin skyldi fara einungis fram í félags- heimilinu og hefjast kl. 4 um daginn. Stundvíslega fylltist salur félags- heimilisins af glöðum hóp bama í allskonar búningum, var mikið um dýrðir, dansað af innlifun og fjöldi fullorðinna, bæði foreldrar og aðrir, komu að horfa á. Bflaröðin fyrir utan var með því langmesta sem sést hefír samankomin á einum stað. Mikill spenningur var því ákveðið var að veita verðlaun fyrir bestu búningana og auðvitað var þar dómnefnd til staðar. Og þó að rigning og rok væri úti, var sólskin inni og brosin mörg, sem sagt þetta var skemmtilegur dagur. m Frumsýnir „Yonne, prinsessan af Búrgund“ á mánudaginn LEIKFÉLAG Flensborgarskóla frumsýnir nk. mánudag, 24. febrúar, leikritið Yvonne, prins- essa af Búrgund, eftir Pólveij- ann Witold Gombrowicz. Höfundurinn fluttist til Argent- ínu og sneri aftur til Evrópu 1963. Hann settist að í Suður-Frakklandi. Witold Gombrowicz skrifaði skáld- sögur, leikrit og greinar og ritstýrði ýmsum bókmenntatímaritum. Þekkt- asta verk hans auk Yvonne, prinsess- unnar af Búrgund, er skáldsagan Ferdydurke. Hann léstárið 1969. í frétt frá Leikfélagi Flensborgar- skóla segir að leikritið fjalli um stúlk- unna Yvonne sem er öðruvísi en allir aðrir. Prins nokkur ákveður að not- færa sér hana til þess að gera eitt- hvað nýtt og skemmtilegt og trúlof- ast henni. Kemur þetta að sjálfsögðu illa við konungshjónin og þau taka til sinna ráða. Leikritið hefur tvisvar verið sýnt áður hér á landi, hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1968 undir stjóm Sveins Einarssonar og hjá Herranótt nokkru síðar undir stjóm Hrafns Gunnlaugs- sonar. Frá æfingu á leikritinu „Yvonne, prinsessan af Búrgund". Frá vinstri: Gísli Guðlaugsson, Svava Arnardóttir og Gunnsteinn Sigurðs- son. Sjaldan hafa verið jafn pottþétt kaup Verðið á lúxusútgáfu frá aðeins rHcMöTIH W' Ódýrastur í rekstri. Rómuð þjónusta. Öruggasta endursalan. Þetta eru kostir verðlaunabíls og Charade er margfaldur verðlaunabíll. Bílasýning á laugardag 1—5. Sýnum einnig Cuore, Cab Van og Rocky. DAIHATSUUMBOÐIÐ Ármúla 23, s. 685870 — 681733

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.