Morgunblaðið - 21.02.1986, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21, FEBRÚAR1986
í Nýlista-
safni
Ungur maður, Birgir Andrésson,
sýnir eins og stendur verk sín í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Birgir
er nokkuð sérstæður í myndlistar-
verkum sínum og spekúlerar mikið
í gangi himintungla og vill sam-
kvæmt eigin yfirlýsingum líkjast
Tycho Brahe, hinum danska
stjörnuspekingi. Birgir hefur einnig
gefíð út yfírlýsingu um gáfnafar
slæmra myndlistarmanna — ekki
veit ég, hvort nokkur alvara er í
þeirri speki, en frekar gæti ég trú-
að, að um glettu væri að ræða og
vonandi er það svo.
Myndir Birgis eru allar gerðar á
TYCHO BRAHE
svartan grunn og minna nokkuð á
stjörnukort, enda mun það vera í
samræmi við skoðanir hins hár-
prúða skapara. Fyrir ofan hverja
mynd á vegg eru teiknaðar í járn
ýmsar myndir, sem mætti skilja sem
tákn fyrir stjömukortið fyrir neðan.
Samt fór nú svo fyrir þeim, er þetta
ritar, að boðskap þessara verka var
honum um megn að skilja, nema
sem glettu og tilraun til frumleika.
Það er svo annað mál, að það þarf
nokkra dirfsku til að koma upp
slíkri sýningu, ég tala nú ekki um
á þessum seinustu og erfíðustu tím-
um, þegar galleríin leggja upp laup-
ana hvert af öðru og sum gerast
jafnvel leikhús,_eins og virðist með
Kjarvalsstaði. Otrúlegt en satt, og
maður spyr, hvað er að gerast?
Verður næsta myndlistarsýning á
sviði í Þjóðleikhúsinu. Það er ekki
ein báran stök með glettur í listinni,
og ætli maður flokki ekki sýningu
Birgis Andréssonar undir slíkt.
••
Oskudagur í
Stykkishólmi
m Stykkishólmi, 13. febrúar.
ÖSKUDAGURINN í gær var
mikil hátíð fyrir börnin, enda var
mikið um að vera. Búningar alla-
vega litir og allskonar uppfinn-
ingar og nýtíska á ferðinni. Það
var ákveðið að byrja fagnaðinn
við skólann og ganga svo i skrúð-
göngu um bæinn, en því miður
leyfði veðrið ekki það, það var
bæði rok og rigning. Var því
ákveðið að skemmtunin skyldi
fara einungis fram í félags-
heimilinu og hefjast kl. 4 um
daginn.
Stundvíslega fylltist salur félags-
heimilisins af glöðum hóp bama í
allskonar búningum, var mikið um
dýrðir, dansað af innlifun og fjöldi
fullorðinna, bæði foreldrar og aðrir,
komu að horfa á. Bflaröðin fyrir
utan var með því langmesta sem
sést hefír samankomin á einum
stað. Mikill spenningur var því
ákveðið var að veita verðlaun fyrir
bestu búningana og auðvitað var
þar dómnefnd til staðar. Og þó að
rigning og rok væri úti, var sólskin
inni og brosin mörg, sem sagt þetta
var skemmtilegur dagur.
m
Frumsýnir „Yonne, prinsessan
af Búrgund“ á mánudaginn
LEIKFÉLAG Flensborgarskóla
frumsýnir nk. mánudag, 24.
febrúar, leikritið Yvonne, prins-
essa af Búrgund, eftir Pólveij-
ann Witold Gombrowicz.
Höfundurinn fluttist til Argent-
ínu og sneri aftur til Evrópu 1963.
Hann settist að í Suður-Frakklandi.
Witold Gombrowicz skrifaði skáld-
sögur, leikrit og greinar og ritstýrði
ýmsum bókmenntatímaritum. Þekkt-
asta verk hans auk Yvonne, prinsess-
unnar af Búrgund, er skáldsagan
Ferdydurke. Hann léstárið 1969.
í frétt frá Leikfélagi Flensborgar-
skóla segir að leikritið fjalli um stúlk-
unna Yvonne sem er öðruvísi en allir
aðrir. Prins nokkur ákveður að not-
færa sér hana til þess að gera eitt-
hvað nýtt og skemmtilegt og trúlof-
ast henni. Kemur þetta að sjálfsögðu
illa við konungshjónin og þau taka
til sinna ráða.
Leikritið hefur tvisvar verið sýnt
áður hér á landi, hjá Leikfélagi
Reykjavíkur 1968 undir stjóm Sveins
Einarssonar og hjá Herranótt nokkru
síðar undir stjóm Hrafns Gunnlaugs-
sonar.
Frá æfingu á leikritinu „Yvonne, prinsessan af Búrgund". Frá
vinstri: Gísli Guðlaugsson, Svava Arnardóttir og Gunnsteinn Sigurðs-
son.
Sjaldan hafa verið jafn pottþétt kaup
Verðið á lúxusútgáfu frá aðeins
rHcMöTIH W'
Ódýrastur í rekstri. Rómuð þjónusta.
Öruggasta endursalan.
Þetta eru kostir verðlaunabíls og Charade er margfaldur
verðlaunabíll.
Bílasýning á laugardag 1—5.
Sýnum einnig Cuore, Cab Van
og Rocky. DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, s. 685870 — 681733