Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 15

Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 15 fullan á almannafæri. í dag eyðir þorri ungs fólks sínum vasapening- um í heilsurækt og fín fot. Það er „stællinn". Og þessi breyting hefur einmitt átt sér stað á sama tíma og veitingastöðum með vínveitingar hefur Qölgað um helming í landinu. Það verður með öðrum orðum minna eftirsóknarvert að sjást undir áhrifum áfengis þegar framboðið hefur aukist verulega. Einmitt þetta atriði er allrar athygli vert. Eða ætti ekki áfengis- neysla í landinu að hafa stóraukist með flölgun vínveitingahúsa? Það segja okkur rannsóknir sem Ámi Gunnlaugsson vitnar sífellt í. Stað- reyndin er þó sú, að fremur hefur verið um samdrátt að ræða og glæný frétt frá Áfengisvamarráði staðfestir einmitt að svo hafí verið. Skýtur það ekki skökku við niður- stöður rannsóknanna? Hug-arfarsbreyting- gagnvart áfengi Hugarfarsbreyting gagnvart áfengi er að eiga sér stað í landinu. Sú sælkeraöld sem við emm að gahga inn í hefur átt ríkan þátt í því. Fjölgun milliklassa veitinga- staða þar sem léttvín er haft um hönd hefur smátt og smátt leitt til hóflegri drykkju. Menn neyta minna áfengismagns, en velja vínið af meiri kostgæfni og gefa því meiri gaum, hvað í glasinu er. Það, að fara á matsölustað og fá sér glas af léttu víni með góðum mat er mikið að koma í stað þess að kaupa flösku af sterku áfengi til neyslu í heimahúsum áður en haldið er á dansleik. Vissulega er ofneysla áfengis viðurstyggð og geri ég enga tilraun til að mæla henni bót. En hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta, eins og þar stendur. Áfengi er einn af þessum hlutum, sem umgangast ber af varúð, rétt eins og það getur verið hættulegt að aka fjölskyldu- bílnum of hratt, temja sér ofát eða fara yfir götu án þess að líta fyrst til beggja handa. Meira að segja hefur landlæknir varað landslýð við því að elskast ógætilega. Slíkt geti leitt til alnæmissmitunar. Varúðar er víðast þörf. Bæjarbúum blöskrar Skynsamlega rekin bindindis- fræðsla er af hinu góða, en öfgafull- ur áróður og aðgerðir bindindis- manna geta líka snúið vopnunum í höndum þeirra. Þannig hefur fram- ganga þeirra í málum veitingarekst- urs í Hafnarfirði á síðustu mánuð- um leitt til þess, að bæjarbúum hefur blöskrað. Það sýnir hin mikla þátttaka í undirskriftasöfnuninni og sýnir sig væntanlega einnig í kjörklefanum næstkomandi laugar- dag. Höfundur er ritstjóri og útgefandi tímaritanna Lúxus ogHús & hi- býli. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI Atkvæðagreiðsla um áfengisútsölu ATKVÆÐASEÐILL Ert þú samþykk(ur) opnun áfengisútsölu í Hafnarfirði? □ JÁ □ NEI eftirPil V. Daníelsson Á morgun, laugardaginn 22. febrúar, fer fram atkvæðagreiðsla um heimild fyrir Áfengis- og tób- aksverslun ríkisins til þess að opna áfengisútsölu í Hafnarfírði. Hér er um alvarlegt mál að ræða. Atkvæðagreiðslan er eingöngu um þann þátt áfengismálanna að gera fólki auðveldara að kaupa áfengi en snertir ekki aðalvandamálið, sem er afleiðingar áfengisneyslunnar, en að öðru jöfnu eykur Qölgun út- sölustaða neysluna og þar með það böl, sem af henni leiðir. Við þurfíim því að íhuga þessi mál vel, látum þau ekki fram hjá okkur fara heldur tökum afstöðu með tilliti til málsins í heild og gera það eitt, sem vamar því að ástandið í áfengis- og öðrum vímuefnamálum versni og helst að bæta nokkuð úr. Áfengisútsalan hefur hvergi bætt úr slæmu ástandi í áfengismálum en hún hefur víða gert það verra. Það er því rökrétt að segja nei. Ef við viljum almennt vinna gegn „Áfengisútsalan hefur hvergi bætt úr slæmu ástandi í áfengismálum en hún hefur viða gert það verra. Það er því rökrétt að segja nei.“ vímuefnaneysiu, en byijun hennar er áfengisneysla, þá segjum við nei. Ef við viljum forða fólki, yngra sem eldra, frá vaxandi böli vímu- efnaneyslunnar, þá hljótum við að segja nei. Ef við viljum ekki að við sjálf eða okkar nánustu lendi í því að þurfa að greiða þann toll, sem áfengisneysian tekur af svo allt of mörgum, þá skulum við segja nei. Ef við viljum draga úr slysatíðni vegna ölvunaraksturs hljótum við að segja nei. Ef við viljum ekki taka þá áhættu að áfengisútsalan verði staðsett í nágrenni við íbúðarhverfí okkar þá er rétt að segja nei. Ef við viljum vemda bæinn okkar fyrir auknu böli vimuefnaneyslunn- ar verðum við að segja nei. Margt fleira sem miður fer í sambandi við áfengisneyslu mætti telja eins og aukin lögbrot, ofbeldis- verk, lausung og hverskonar spill- ing^u. Við þurfum því að vera vel á verði, gera okkur grein fyrir málum og mæta á kjörstað til þess að taka virka afstöðu. Og sú afstaða hlýtur að miðast við það að hugsa um velferð þessa byggðarlags í heild en ekki einhvem ímyndaðan stund- arhag tiltölulega fárra. Höfundur er kunnur baráttumað- urgegn vínneyslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.