Morgunblaðið - 21.02.1986, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.02.1986, Qupperneq 17
h MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1986 17 að er gáð. Á þessum árstíma er mest líf að finna við sjóinn. Ekki er Reykvíkingum mikill vandi á höndum að nálgast hann, enda eru flörur Qölbreytilegar innan borgar- markanna. Gróður á landi bíður vorsins, en í Qörunni má fínna margskonar þörunga allan ársins hring, þar er líka ijölskrúðugt dýra- líf sem vert er að gefa gaum. Allt að 50—60 tegundir fugla fínnast hér á svæðinu að vetrarlagi en margar eru mjög sjaldgæfar. Flest- ar tegundimar halda sig við eða á sjó. I dagsferð um höfuðborgar- svæðið má búast við að sjá 25—30 þær algengustu. Mest er um and- fugla og máva en einnig eru nokkr- ar tegundir vaðfugla og spörfugla algengar. Um jarðfræði svæðisins Á Reykjavíkursvæðinu eru varð- veittar fjölbreytilegar jarðmyndan- ir, þar á meðal einstæð sjávarsetlög frá hlýskeiðum ísaldar. Elstu berg- lög í Reykjavík em í Viðey og á Viðeyjarsundi og mynduðust í löngu kólnaðri eldstöð sem hlóð upp undir- stöðu Reykjavíkur fyrir rúmum 2 milljónum ára. Heitt vatn fæst nú uppúr þessum jarðlögum í Laugar- dal. í Háubökkum, í Elliðaárvogi og í Ártúnshöfða sést hvar jökul- bergslög og sjávarsetlög ligja inná milli þessarar fomu undirstöðu og yngri hraunstrauma sem em senni- lega ættaðir ofan af Mosfellsheiði, hraunlögin ganga undir nafninu Reykj avíkurgrágrýti og em Skóla- vörðuholt, Öskjuhlíð og fleiri hæðir í Reykjavík byggðar upp úr þeim. Við Fossvog sjást enn yngri sjávar- setlög hvíla á jökulrákuðum klöpp- um og er líklegt að þessi lög séu frá síðasta hlýskeiði ísaldar fyrir um 100 þúsund ámm. Enn áttu jöklar eftir að hylja Reykjavík og nágrenni, en hörfuðu loks fyrir um 12 þúsund áram síðan. Frá ísaldar- lokum em varðveitt merki um hærri sjávarstöðu í Öskjuhlíð, en þar em hnullungakantur og brimþrep í hæðinni, 43 metmm yfír núverandi sjávarmáli. Fullyrða má að jarð- myndanir í Reykjavík séu sérstak- lega merk heimild um loftslags- breytingar á síðari hluta ísaldar og eiga sér enga hliðstæðu. Öll þessi gömlu jarðlög má telja til undir- stöðu Reykjavíkur. Á henni hvíla víða laus setlög sem myndast hafa á síðasta jökulskeiði og við ísaldar- lok en við strendur em landmótun- aröflin enn að verki. Þar hlaðast jafnt og þétt upp setlög. Reykjavík- urtjöm er að uppmna til gamalt sjávarlón. Þess má vænta að rann- sóknir á jarðvegi og setmyndunum 'Ijamarinnar geti veitt markverðar upplýsingar um sögu gróðurs og mannvistar. Úr þeim upplýsingum verður hægt að lesa betur og betur eftir því sem vísindunum fleygir fram. (FráNVSV) Spyija má hveijir beri ábyrgð á svo harkalegum aðgerðum gegn lífskjömm fólks. Hreppsnefnd Staðarsveitar hefur fjallað um þessi mál á fundi 6. febrúar sl. og sent Framleiðsluráði landbúnaðarins og landbúnaðarráð- herra bréf þar sem farið er fram á sérstaka leiðréttingu til þeirra sem verst verða úti. Vonandi ber sú málaleitan árangur. Höfundur er bándiá Ölkeldu /// Staðarsveit. Eyjamenn, eflum áhrif ungs fólks í bæjarstjórn eftir Ólaf Lárusson Dagana 22. og 23. febrúar nk. fer fram prófkjör hjá sjálfstæðis- félögunum í Vestmannaeyjum. Þar gefst sjálfstæðismönnum og stuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokksins kostur á að velja fólk á lista Sjálf- stæðisfíokksins fyrir næstu sveitar- stjómarkosningar. Á því kjörtíma- bili sem nú er að ljúka hefur verið gert stórátak f maibikun gatna auk Ólafur Lárusson þess sem vemlegum fjármunum hefur verið vanð til uppbyggingar í skólamálum. í Eyjum er nú hægt að afla sér menntunar sem áður varð að sækja upp á fastalandið. Við höfnina, sem er í raun lífasð byggðarlagsins, hefur verið varið miklum fjármunum. Þá hafa verið í gangi framkvæmdir þar sem unnið er að undirbyggingu gatna fyrir malbikun á sumri komanda. Svo sem þessi upptalning leiðir í ljós þá em ýmsar framkvæmdir vel á veg komnar. Ég tel að áfram verði að vinna af víðsýni og festu á næsta kjörtímabili. Þótt margt hafí verið vel gert þá em mörg spennandi verkefni óunnin. Ég hef fullan hug á því að taka þátt í því starfí og gef því kost á mér í prófkjörið. Eitt mesta hagsmunamál bæjar- búa er að bæjarsjóður verði rekinn markvisst og í fjárhagslegu jafn- vægi. Á undanfömum ámm hefur miðað í rétta átt í þeim eftium. Þess verður að gæta vandlega að bæjarbúum verði ekki íþyngt með of háum álögum, en slíkt mjmdi hamla gegn fysilegri búsetu hér. Það sem gert hefur búsetu í Vest- mannaeyjum vænlega er fyrst og fremst næg atvinna og auk þess hefur löngum þótt hér gott mannlíf. Með áframhaldandi meirihluta- stjóm Sjálfstæðisflokksins getum við tryggt að svo verði áfram. Vinna verður að því að fá hingað fjölbreyttari atvinnutækifæri. Ég tel vænlegastan kost fullvinnslu á sjávarafurðum. Þá tel ég eðlilegt að fá hingað fískiðnbraut í fram- haldsskólann og væntanlegt verk- menntahús. Menntamálaráðherra hefur nýlega lýst áhuga sfnum á stofnun sjávarútvegsskóia. Vest- mannaeyjar em rétti staðurinn fyrir slíkan skóla. Þama em miklir hagsmunir í húfí fyrir þjóðfélagið og byggðarlagið. Hér er hægt að mennta menn til að veiða físk, framleiða veiðarfæri, og fínnst mér þvi vera kominn tími til að mennta fólk í fullvinnslu þessara afurða. Menn þurfa sífellt að vera vel á verði varðandi almenna þjónustu, áframhaldandi uppbyggingu fyrir aldraða og leggja þarf kapp á að skapa æskunni áfram tækifæri til heilbrigðs tómstundastarfs. Með því að taka virkan þátt í prófkjörinu og gefa ungu fólki tækifæri til að hafa áhrif, stuðla bæjarbúar að því að bænum sé stjómað af þrótti og áræði. Greinarhöfundur er kennari i Vestmannaeyjum og formaður Eyverja, félags ungra sjáifstæðis- BÉBDIUL Viltu standa þig betur? Mundu þá O eða oo AAa gnaE Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777 KJ ARADAGARNIR í VÖRUMARKAÐINUM ÍSÍÖSSS ZS°lo AFSL. irhverguætwkaup pú GER ÞETTA TILBOÐ GILDIR AÐEINS I DAG FÖSTUD. 21.FEBR. Vörumarkaðurinn hf. lÁrmúla 1 a, sími 686117 Kjaradagarnir í Vörumarkaðinum Þetta tilboð gildir aðeins í dag, ______föstudag 21. febrúar. © Vörumarkaðurinn hf. I Ármúla 1a, sími 686112

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.