Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 20

Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 NÝTTÁ ÍSLAIMDI Súrkál frá hinu þekkta norska fyrir- tæki Stabburet. parise S0T TVPE rsuirkál Fæst í matvöruverslunum Heildsölubirgðir: Hamragrill hf. Sími 82128. _________________________] ALLTAF A LAUGARDÖGUM T-EgRáW Lesbók 22. febr. 1986 lllllQÍ JÖkulSSOIl skrifar grein um Ríkarð III Englandskonung í tilefni þess að innan tíðar verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu samnefnt leikrit eftir Will- iam Shakespeare. Illugi gerir grein fyrir ástandi þjóð- mála þar í landi á hans tímum eða á 15. öld. Mælt með Borges nefnist grein eftir Sigurð A. Magnússon um skáldjöfurinn og íslandsvininn Jorge Luis Borges. Þáttur verslunar og viðskipta í lífi miðborga er viðfangsefni Bjarka Jóhannessonar arkitekts og skipulagsfræðings og er þetta 2. grein hans af þrem- ur um þetta efni. Beinhákarl í nótinni er smásaga eftir Svan Geirdal. Þá birtist með þessari Lesbók efnisyfirlit fyrir árið 1985. Vönduð og menningarleg helgarlesning V estur-Þýskaland: F orseti austur-þýska þingsins í heimsókn Bonn, 20. febrúar. AP. FORSETAR austur- og vestur- þýska þingsins, Horst Sinder- mann og Philipp Jenninger, hitt- ust að máli á heimili þess siðar- nefnda við Rínarfljót í dag, eftir Óveðrið í Bandaríkjunum: 16 manns látnir San Francisco, 20. febrúar. AP. EKKERT lát er á óveðrinu í vesturríkjum Bandaríkjanna. Hefur mikið tjón hlotizt af völd- um flóða, skriðufalla, og ágangs sjávar síðustu átta daga. Vitað er um 16 manns sem beðið hafa bana af völdum veðursins og fjögurra er saknað. Alls hafa 12.000 manns misst heimili sín. að nokkrir stjórnmálamenn í Vestur-Þýskalandi höfðu lýst yfir andstöðu við það að fundur þeirra yrði með formlegri hætti. Þetta er fyrsti fundur þingfor- seta landanna til þessa. Búist var við að fundur þing- forsetanna stæði í um klukkustund og síðar í dag átti austur-þýski þingforsetinn, að hitta leiðtoga stjórnarflokkanna, Kristilegra og Ftjálsra demókrata, auk leiðtoga Sósíaldemókrataflokksins, en Sind- ermann er í Vestur-Þýskalandi í boði þeirra. Þingmenn mikið til hægri í Vest- ur-Þýskalandi hafa verið andsnúnir tengslum milli þinga landanna, þar sem þeir telja þingið í Austur- Þýskalandi ekki lýðræðislega kjör- ið. Sindermann verður í Vestur- Þýskalandi í þijá daga og óskaði eftir því að fá að hitta leiðtoga Kristilegra demókrata, þá Jenning- er og Helmut Kohl. Þeir samþykktu það þrátt fyrir nokkra andstöðu þingflokka sinna. GENGI GJALDMÍÐLA London, 20. febrúar AP Bandaríkjadollar féll gagn- vart sumum helstu gjaldmiðl- um á fimmtudag en hækkaði gagnvart öðrum og þykir það benda til þess að verðfalli dollarans fari nú að linna. Á þriðjudag féll doUarinn gagn- vart gjaldmiðlum Frakklands, HoUands, Ítalíu og Kanada en hækkaði gagnvart gjaldmiðl- um Vestur-Þýskalands, Sviss og Bretlands. Gullverð lækk- aði. I Tókýó hækkaði dollarinn, kostaði 179,85 jen er gjaldeyr- irsmarkaðir lokuðu í dag en kostaði 178,80 á miðvikudag. Sterlingspundið kostaði 1,45225 dollara er gjaldeyris- markaðir lokuðu en kostaði 1,4645 dollara á miðvikudag. Annars var gengi dollarans þannig að fyrir hann fengust 2,3085 vestur-þýsk mörk (2,3015), 1,9170 svissneskir frankar (1,91175), 7,0825 franskir frankar (7,0950), 2,6050 hollensk gyllinni (2,6110), 1.569,00 ítalskar lírur (1-571,25), og 1,3905 kanadískir dollarar (1,39425) AP/Símamynd Vísindamenn í sljórnstöð sovésku geimvísindastofnunarinnar fylgjast með því í gær er rannsóknastöð var skotið á loft. Eldflaugin, sem flytur rannsóknastöðina á braut um jörðu, sést á stórum skjá t.h. Sovétmenn skjóta á loft stórri geimrannsóknastöð Moskvu, 20. febrúar. AP. SOVÉTMENN skutu í dag á loft stórri geimstöð, sem ætlað er að verða varanlegur mannabústaður og rannsóknamiðstöð, að sögn sovésku fréttastofunnar Tass. Geimstöðin heitir Mir (Friður), og eru á henni sex tengilúgur fyrir feijugeimför, sem flytja munu þang- að geimfara, búnað og vistir. Stöðin er enn fremur búin mun fullkomnari sjálfvirkum stjómbúnaði og rann- sóknartækjum en Salyut-7, sem skotið var út í geiminn árið 1982. Salyut-7 er enn á braut, en mannlaus eins og stendur. Starfsemi beggja stöðvanna er með eðlilegum hætti, að sögn Tass. Sovéska sjónvarpið sýndi örstutta fréttamynd af geimskotinu, en lítið sást af rannsóknarstöðinni sjálfri. Geimfarar verða sendir til starfa í nýju geimstöðinni „eftir að hún hefur verið reynd úti í geimnum", hafði Tass eftir Alexei Leonov hers- höfðingja og fyrrum geimfara, sem gegnir starfl aðstoðarforstöðumanns þjálfunarstofnunar sovéskra geim- fara. Sovéskir geimvísindamenn spáðu því í október, að Sovétríkin yrðu búin að koma upp varanlegri mannaðri geimstöð fyrir 1990. í Mir eru sérstakar vistarverur fyrir geimfarana og rannsóknarstof- ur, þar sem unnt verður að stunda tilraunir í læknisfræði, líffræði, stjömufræði og fleiri vísindagrein- um. Leonov hershöfðingi sagði Tass- fréttastofunni, að með tilkomu nýju stöðvarinnar væm mörkuð þáttaskil á sviði „hagnýtra geimferða", þar sem umfangsmikil framleiðslustörf tækju við af rannsóknum og tilraun- um. Viötalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík b Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, J Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á J móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum M borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa. ? Laugardaginn 22. febrúar, verða til viðtals Katrín Fjeldsted,- • formaður Heilbrigðisráðs og í stjórn Umferðarnefndar Reykja- ^ víkur, og Júlíus Hafstein, formaður íþróttaráðs Reykjavikur, ^ samstarfsnefndar um ferðamál og í stjórn SVR. L—..........______________________

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.