Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 1
64SIÐUR B
STOFNAÐ1913
49. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
Prentemiðja Morgfunblaðsins
Egyptaland:
Herinn berst við
uppreisnarmenn
Kairó, 27. febrúar. AP.
ENN KOM til átaka í Kairó snemma i morgnn milli hermanna og
þjódvarðliða, sem voru í uppreisnarhug. Bardagarnir voru í íbúðar-
hverfi í Kairó við pýramídana og hrekja staðhæfingar yfirvalda um
að uppreisninni, sem staðið hefur í þrjá daga, hafi verið hrundið.
Osama El-Baz, sem er pólitískur
ráðgjafi Hosnis Mubarak, forseta,
sagði að 36 manns hefðu beðið
bana og 321 særst í óeirðunum.
Óeirðimar hófust á þriðjudags-
nótt á því að egypskir þjóðvarðliðar
gengu berserksgang á götum Kairó
eftir að orðrómur komst á kreik um
að herskylda þeirra hefði verið
lengd. Lögðu þeir eld að þremur
hótelum, verslunum og næturklúbb-
um og bmtust inn í fangelsi, þar
sem öfgasinnaðir múhameðstrúar-
menn eru í haldi.
El-Baz sagði að egypski herinn,
sem kallaður var til á miðvikudag,
hefði afvopnað þjóðvarðliðana og
ríkið væri ekki í hættu.
Hann kvað 32 þjóðvarðliða hafa
beðið bana, tvo hermenn og tvo
óbreytta borgara. 273 lögreglu-
menn hefðu særst, 12 hermenn og
36 borgarar.
Sjónarvottar kváðust hafa séð
skotið af skriðdrekabyssum, hrið-
skotabyssum og sjálfvirkum vopn-
um nærri pýramídunum við örygg-
isbúðimar, þar sem átökin hófust.
Skothrfðin stóð {klukkustund.
íbúar í hverfínu Shubra í Kairó
sögðu að hermenn og uppreisnar-
menn hefðu skipst á skotum fyrir
sólarupprás í morgun.
Útgöngubanninu, sem sett var á
á miðvikudag, var aflétt í þrjár
klukkustundir í dag til þess að íbúar
höfuðborgarinnar, sem em tólf
milljónir, gætu orðið sér úti um
matvæli og aðrar nauðsynjavörur.
Stjómarandstaðan hefur farið
fram á breytingar á stjóminni
vegna þessa, en El-Baz kvað
ástandið ekki þess eðlis að breyt-
inga sé þörf. Hann sagði að stjómin
væri reiðubúin til að axla ábyrgðina
ef gerð hefðu verið mistök. „En nú
þarf fyrst og fremst að bæla niður
uppreisnina án þess að breyta
landinu f einræðisríki eða lögreglu-
ríki,“ sagði El-Baz.
Stjómin hefur vísað því á bug
að lengja eigi herskyldu egypskra
þjóðvarðliða úr þremur ámm í fjög-
ur, hér sé um orðróm að ræða, sem
óvinveittir aðiljar innan egypsku
þjóðvarðliðanna hafi komið af stað.
Margrét Danadrottning og Hin-
rik prins, maður hennar, vom í
opinberri heimsókn í Egyptalandi
þegar óeirðimar hófust. Voru þau
í skyndingu flutt með þyrlu frá
hóteli sfnu f Kairó til alþjóðaflug-
vallarins f grennd við borgina og
fóm þau þaðan heim til Danmerkur
í fyrradag.
AP/Símamynd
Hermenn standa vörð við brynvarðan vagn fyrir utan búðir egypsku
þjóðvarðliðanna i Giza nærri Kairó. Myndin var tekin f gærmorgun,
skönunu eftir að hlé varð á skotbardögum milli hermanna og þjóð-
varðliða, að sögn vitna.
Þjóðaratkvæðagreiðslan í Danmörku:
Danir segjajá við
breytingartillögum
Filippseyjar:
Pólitískum
f öngum sleppt
Manila, 27. febrúar. AP.
STJÓRN Corazon Aquino,
forseta Filippseyja, leysti í
dag a.m.k. tug pólitískra
fanga úr haldi. Fimmhundruð
manns eru nú í haldi frá
stjómartíð Marcosar og telur
talsmaður Aquino óliklegt að
þeir verði allir látnir lausir.
Föngunum var sleppt eftir að
Fidel Ramos, nýskipaður yfir-
maður heraflans, lýsti yfir því
að 33 pólitískir fangar fengju
frelsi.
Philip Habib, erindreki Reag-
ans, Bandaríkjaforseta, á
Filippseyjum, ræddi í dag við
Aquino og óskaði henni til
hamingju með sigurinn.
Aquino bað Marcos í viðtali
við bandaríska sjónvarpsstöð um
að segja þeim stuðningsmönn-
um sfnum, sem enn eru á
Filippseyjum, að grípa ekki til
vopna gegn nýju stjóminni.
Marcos kom í gær til Hawaii
ásamt konu sinni, Imeldu, Fab-
ian Ver, fyrrum yfirmanni her-
aflans, og öðrum fylgdarmönn-
um. Ekki er vitað hve lengi
Marcos verður á Hawaii.
Kaupmannahöfn, 27. febrúar. Frá Ib
Björnbak, fréttaritara Morgunbladsins.
ÞAÐ leikur enginn vafi á þvi að
Danir verða áfram í Evrópu-
bandalaginu. Það var sýnt fram
á það i þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni, sem fram fór í dag um
endurbætumar á Rómarsáttmála
Evrópubandaiagsins. 56,2 pró-
sent þeirra, sem greiddu at-
kvæði, sögðu já við endurbótun-
um, 43,8 prósent greiddu at-
kvæði á móti. 74,8 prósent kosn-
ingabærra manna greiddu at-
kvæði.
Jafnaðarmenn, sem börðust gegn
breytingartillögunum, fengu sýnu
meiri hljómgrunn meðal stuðnings-
manna sinna, en búist hafði verið
við samkvæmt skoðanakönnunum.
Talið er víst að 75 prósent stuðn-
ingsmanna þeirra hafí sagt nei í
atkvæðagreiðslunni í samræmi við
stefnu flokksins.
En það hefur ekki í för með sér
að meirihluti jafnaðarmanna sé
andvfgur aðildinni að Evrópubanda-
laginu. í atkvæðagreiðslunni kom
nefnilega einnig í ljós að 77 prósent
kjósenda jafnaðarmanna vilja vera
áfram f EB. Það er þvf vegna þess
að umtalsverður meirihluti þing-
manna jafnaðarmanna er á móti
breytingartillögunum að stuðnings-
menn þeirra greiddu atkvæði gegn
tillögunum.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar þýða
að Uffe Elleman-Jensen, utanríkis-
ráðherra, getur flogið til Hollands
til að skrifa undir breytingamar.
En þau hafa einnig í för með sér
AP/Slmamynd
Umkringdur blaðaþ’ósmyndurum greiðir Poul Schliiter, forsætisráð-
herra Danmerkur, atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær.
að koma mun til átaka á danska
þinginu um einstakar breytingartil-
lögur á Rómarsáttmálanum.
Poul Schliiter, forsætisráðherra,
sagði eftir að úrslit voru kunngerð:
„Ég vona að þetta bindi enda á
langt stríð. Úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar sýna að þjóðin er ekki á sama
máli og meirihluti þingmanna, sem
greiddi atkvæði gegn breytingartil-
lögunum.”
Jafnaðarmenn hafa lýst yfir því
að þeir myndu ekki leggjast gegn
því að stjómin skrifaði undir breyt-
ingartillögumar ef þjóðin segði já
við þeim.
TYRKLAND .—.J
\
Wy | Suleymaniyah y
V
x BAGDAD,
ÍRAK
SAUDI-
ARABÍA
TEHERAN1
Órvamar á kortinu sýna hvar
íranir gerðu innrás.
Innrásin í Irak:
Barist um-
hverfis
Suley-
maniyah
Nikósíu, 27. febrúar. AP.
ÍRAKAR kváðust í kvöld
hafa hrakið írana til baka
úr hæðunum umhverfis
borgina Suleymaniyah
Kúrdistan og einnig
Faw-skaganum í suður-
hluta landsins.
Yfirmenn íranshers birtu
yfirlýsingar, sem voru á allt
annan veg. Kváðust íranir
hafa hrundið gagnsókn óvinar-
ins við Suleymaniyah. Þá kváð-
ust þeir hafa rofið víglínu hans
á Faw og tekið þar íraskan
herdeildarforingja til fanga.
Báðir stríðsaðilar lýstu í dag
velgengni sinni í harðvítugum
átökum og káðust hafa hoggið
skörð í vamir hvors annars.
Sögðust írakar hafa fellt 30
til 40% hersveita írana á Faw
og murkað lff úr heilu herdeild
unum og stökkt öðrum á flótta.