Morgunblaðið - 28.02.1986, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
Viðræður BSRB og ríkisins:
Smiðshöggið rekið á
samningana í dag?
BÚIST er við að árdegis í dag
muni samninganefnd BSRB bcr-
Fjármálaráðherra:
Ellilífeyrir
og tekjutrygg-
ing hækka
GERT ER ráð fyrir því að
ellilífeyrir hækki til samræm-
is við launahækkun sam-
kvæmt samningum ASÍ og
VSÍ og tekjutrygging til
samræmis við ákvæði um sér-
stakar bætur á lægstu laun í
sömu samningum, sagði Þor-
steinn Pálsson, fjármálaráð-
herra, efnislega eftir haft, í
Sameinuðu þingi i gær.
Fjármálaráðherra gaf fram-
angreinda yfirlýsingu í umræð-
um utan dagskrár um kjaramál,
sem Jón Baldvin Hannibalsson
(A.-Rvik) efndi til. Nánar er
sagt frá umræðunni á þingsíðu
Morgunblaðsins í dag.
ast heildartilboð frá samninga-
nefnd ríkisins og að reynt verði
að ljúka gerð nýs kjarasamnings
þessara aðila á þessum sólar-
hring. Fundi viðræðunefndanna
tveggja, sem hófst kl. 13:30 í
gær, lauk um miðnætti í nótt.
Nokkuð miðaði í samkomulagsátt
á fundum í gær og var farið yfír
ýmis atriði. Gert er ráð fyrir að
samningar BSRB og fjármálaráðu-
neytisins verði á sömu nótum og
nýgerðir samningar ASÍ og at-
vinnurekenda.
Ekkert formlegt samningstilboð
af hálfu ríkisins hefur enn verið
lagt fram í deilunni en skv. upplýs-
ingum blaðsins er reiknað með, að
það komi fram fyrir hádegi í dag.
I gærkvöld var gert ráð fyrir að
samningafundur viðræðunefndanna
hæfíst árdegis og að 50 manna
samninganefnd BSRB kæmi til
fundar síðdegis.
Samningamenn BSRB og ríkisins
hafa farið sér rólega undanfama
daga, eða síðan verulegur skriður
komst á samningaviðræður ASÍ og
samtaka atvinnurekenda.
o
-Morgunblaðið/ól.K. Magnússon.
SAMIÐ VIÐPRENTARA
SAMNINGAR tókust í gær-
kvöldi milli Félags bókagerðar-
manna og Félags íslenska
prentiðnaðarins (FÍP). Samn-
ingurinn er nánast samhljóða
samningi ASÍ og samtaka at-
vinnurekenda, sem undirritað-
ur var formlega í gær. í gær
var einnig haldinn samninga-
fundur i deilu Blaðamannafé-
lags íslands og útgefenda í FÍP.
Annar fundur hefur verið boð-
aður eftir hádegi í dag.
Myndin að ofan var tekin við
undirskrift samninga bókagerðar-
manna og fulltrúa FÍP. Vinstra
megin eru stjómarmenn Félags
bókagerðarmanna. Fremstur er
Sæmundur Ámason, þá Ásdís
Jóhannesdóttir, Svanur Jóhannes-
son, Magnús E. Sigurðsson, for-
maður félagsins, og Þórir Guð-
jónsson.
Fyrir endanum situr Ólafur
Eyjólfsson, stjómarmaður í FÍP,
þá Kristján Aðalsteinsson, Öm
Jóhannsson, Magnús I. Vigfússon,
formaður FIP, og Sveinn Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri félagsins.
Iðnrekendur skora á fyrirtækin:
INNLENT
Landsbankinn:
ísstöðin í
Garði keypt
á uppboði
LANDSBANKI íslands keypti
ísstöðina í Garði á uppboði síð-
astliðinn miðvikudag fyrir 12,3
milljónir króna. Brunabótamat
keyptra eigna er um 40 mil(jónir
króna.
ísstöðin var boðin upp vegna
kröfu allmargra aðilja, þar á meðal
Útvegsbankans, Landsbankans og
Fiskveiðasjóðs, sem áttu talsvert fé
útistandandi og í vanskilum hjá
fyrirtækinu. Fjárkröfur í þrotabúið
námu um 35 milljónum króna og
því ljóst að allmargir aðilar hafa
tapað umtalsverðum fjármunum.
Auk landsbanka íslands buðu
Fiskveiðasjóður og Útvegsbankinn
í eignir ísstöðvarinnar, frystihús,
fískverkunarhús, bflaverkstæði og
fleira.
7 Notið hvert tækifæri
til að lækka verðið
NÝGERÐIR kjarasamningar og
aðgerðir ríkisstjómarinnar gefa
ekki tilefni til almennrar hækk-
unar á framleiðsluverði inn-
lendrar iðnaðarvöm, segir í
ályktun, sem stjóra Félags is-
lenskra iðnrekenda gerði á fundi
sínum í gær. Með ályktuninni
vill stjóm félagsins ganga á
undan með góðu fordæmi og
beita sér gegn þvi, að launa-
hækkunum samnings ASÍ og
samtaka atvinnurekenda verði
ekki velt út í verðlagið.
I ályktuninni segir einnig: „Með
þeirri verðbólguhjöðnun, sem verð-
ur á árinu, gefst íslenskum fyrir-
tækjum tækifæri til öflugra að-
gerða til hverskonar hagræðingar
í rekstri og koma þannig í veg fyrir
verðhækkanir. Það veitir um leið
möguleika til að auka markaðshlut-
deild innlendrar vöru á kostnað
innflutnings.
Jafnframt beinir stjóm Félags
íslenskra iðnrekenda þeim ein-
dregnu tilmælum til félagsmanna,
að þeir endurskoði rekstraráætlanir
fyrir árið 1986 í ljósi gjörbreyttra
aðstæðna og nýti öll færi, sem
kunna að verða til að lækka vöru-
verð.“
Sama efni er í yfirlýsingu, sem
ASÍ og samtök atvinnurekenda -
Vinnuveitendasamband íslands,
Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna og Meistarasamband bygg-
ingamanna — gáfu út í gær. Þar
segir að aðilamir séu sammála um
að stuðla að ýtrasta aðhaldi í verð-
iagsmálum á samningstímabilinu.
„Þá beina samningsaðilar þeim
eindregnu tilmælum til fyrirtækja,
sem þegar hafa ákveðið verð á
grundvelli hærri verðbólgu, en
samningurinn byggir á, að þau
endurskoði ákvarðanir sínar í ljósi
breyttra aðstæðna," segir í yfírlýs-
ingunni.
íslenskt amerískt versl-
unarráð stofnað í New York
New York. Frá ívari Guðmundssyni.
RÚMLEGA 40 manns sátu stofn-
fund íslensks verslunarráðs í
New York sl. miðvikudag. Meðal
þeirra vom forstjórar og fulltrú-
ar helstu útflutningsfyrirtækja
sem eiga viðskipti við Bandarikin
svo og allmargir ræðismenn ís-
Lækningamáttur Bláa lónsins:
Vísbendingar um jákvæðan
árangur, en engar sönnur
RANNSÓKN landlæknisembættisins hefur ekki fært sönnur á
árangur böðunar psoriasis-sjúklinga í hinu svonefnda Bláa lóni
við Svartsengi á Reykjanesi, en hins vegar gefið vísbendingu um
jákvæðan árangur. Þetta kom fram i svari Ragnhildar Helgadótt-
ur, heilbrigðismálaráðherra, við fyrirspura Gunnars G. Schram
(S.-Rn.) um könnun á lækningarmætti jarðsjávarins við Svartsengi
í sameinuðu þingi sl. þriðjudag.
Gunnar G. Schram sagði, að
tilefni fyrirspumarinnar væri að
allnokkur fyöldi manna hefði á
síðustu misserum talið sig fá
verulega lækningu á ýmsum húð-
sjúkdómum við böð í Bláa lóninu.
Þar væri fyrst og fremst um að
ræða þá sjúklinga, er þjáðust af
sjúkdómnum psoriasis, en þeir eru
um 5.000 hér á landi.
Ráðherra sagði, að landlæknis-
embættið hefði unnið að rannsókn
málsins mánuðum saman og haft
samvinnu við Samtök psoriasis-
og exemsjúklinga, húðsjúkdóma-
lækna og Landspítalann um fram-
kvæmd hennar. Frá miðjum júlí
fram í septemberbyijun hefðu 10
einstaklingar baðað sig reglulega
í Bláa lóninu, og frá því í septem-
ber hefðu 14 einstaklingar tekið
þátt í böðunum. Niðurstöður, sem
lægju frammi úr þessum hluta
rannsóknarinnar, væru, að hjá
flestum hefðu útbrot minnkað,
afhreistrun verið allgóð og tölu-
vert dregið úr kláða. Hins vegar
hafí einn einstaklingur orðið að
hætta þátttöku þar sem útbrot
og kláði jukust og tvo varð að
Ieggja inn á sjúkrahús að lokinni
meðferð þar sem líðan versnaði.
Enginn hefði alveg gróið við
meðferðina.
Þá sagði ráðherra, að niður-
staðna frekari rannsókna á lækn-
ingamætti Bláa lónsins væri að
væntaáþessuári.
lands víðs vegar að úr Bandaríkj-
unum. Úlfur Sigmundsson, við-
skiptafulltrúi i New York, setti
fundinn en Helgi Agústsson,
sendifulltrúi í sendiráði íslands
i Washington, var fundarstjóri.
Ragnar Halldórsson formaður
Verslunarráðs íslands kom frá ís-
landi til að sitja stofnfundinn og
hélt framsöguræðu þar sem hann
skýrði tilgang verslunarráðsins sem
er „að vemda, skapa hvetja, auka
og hlúa að verslunarviðskiptum
milli íslands og Bandaríkjanna."
Aðrir gestir sem komu frá íslandi
voru Steinar Berg Björnsson,
Magnús Friðgeirsson og Ólafur
Johnson.
Magnús Gústafsson forstjóri
Coldwaters var kjörinn forseti hins
nýstoftiaða verslunarráðs.
Meðstjómendur eru Knud Berg
framkvæmdastjóri Flugleiða í New
Yorkt Jóhann Scheving Álafossi,
Jón Ámason lögfræðingur, Guðjón
B. ólafsson forstjóri Iceland Sea-
food Corporation, Hilmar B. Skag-
fjörð aðalræðismaður Islands í
Tallahassee í Florida og Jón S.
Guðmundsson frá Kentucky.
Stjómin mun skipta með sér verk-
um.
Að fundi loknum vom fundar-
menn boðnir til síðdegisglaðnings á
heimili Harðar Helgasonar sendi-
herra hjá Sameinuðu þjóðunum og
Söm konu hans.
Fiskmarkaðurinn
í Þýzkalandi:
Verð
óstöðugt
VERÐ á ferskum fiski I
Þýzkalandi hefur verið lágt
að undanförnu, en á fimmtu-
dag fékk Ögri RE mjög gott
verð fyrir afla sinn þar, 50,95
krónur á hvert kUó. Verð
fram tU þessa hefur verið
rúmlega 30 krónur.
Á miðvikudag seldi Ottó N.
Þorláksson 230,8 lestir af karfa
og ufsa í Cuxhaven. Heiidarverð
var 8.337.300 krónur, meðal-
verð 36,13. Ögri seldi í Bremer-
haven á fímmtudag 176,8 lestir,
mest þorsk. Heildarverð var
9.006.000 krónur, meðalverð
50,95. Sama dag seldi Guð-
mundur Kristinn SU 76,4 lestir
af netafíski f Grimsby. Heildar-
verð var 3.563.700 krónur,
meðalverð 46,65.