Morgunblaðið - 28.02.1986, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.02.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986 7 Vona að það sé dálítið af lífi, gleði og fjöri í sýningunni - segir Gísli Sigurðsson sem opnar sýningu á 70 málverkum á Kjarvalsstöðum á laugardag GÍSLI Sigurðsson opnar sýn- ingu á Kjarvalsstöðum kl. 14.00 laugardaginn 1. mars. Þar sýn- ir hann 70 olfumálverk sem máluð hafa verið á siðastliðnum þremur ánun. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Gísla að máli á Kjarvalsstöð- um. Hann var spurður um mynd- efnið og hvert hann leitaði fanga. „Þetta er mjög íslenskur mynd- heimur" sagði Gísli, „enda byggð- ur að verulegu leyti á því sem ég hef sjálfur séð og upplifað. Allt frá kreppuárunum austur í Tung- um þegar kirkjan í Úthlíð fauk og ícaupakonur komu á hveiju sumri. Nokkur hluti sýningarinnar fjallar um það að maður er manns gaman, sem sagt um samkomu- hald af ýmsu tagi. Ég fer allar götur aftur í Jörfagleðina frægu sem var bönnuð vegna ósóma. Stærsta myndin á sýningunni er um þann fræga dans í Hruna. Þá eru nokkrar mjmdir frá úti- skemmtunum eins og ég man eftir þeim um og fyrir 1950, einkum héraðsmótinu á Þjórsártúni þar sem Ámesingar og Rangveilingar komu saman í júli ár hvert. En ég kem líka við á sláturhúsballi og í „partíum" eins og við þekkjum þau nú á dögum". Nokkrar myndir Gísla eru byggðar á bókmenntalegu efni, Völuspá, þjóðsögum og tvær myndir, Örlygsstaðafundur og Egill í Jórvík, byggja á íslendinga- sögum. Þá er myndröð um Olaf Kárason Ljósvíking. „Það má segja að nokkur hluti sýningarinnar sé myndir af fólki. Þar er t.d. Sigríður Ella Magnús- dóttir í hlutverki Carmen, Helgi Sæmundsson og Jón Engilberts. Ég tileinka honum sýninguna vegna þess að hann var mér hjálp- arhella og uppgötvaði mig þegar ég var að byria í sýningarhaldi rétt eftir 1960.“ Að lokum sagði Gísli: „Ég vona að það sé dálítið af lífí, gleði og flöri í þessari sýningu og hún geti orðið sem flestum veisla fyrir augað". Sýningin stendur til 16. mars næstkomandi. Gísli Sigurðsson myndlistarmaður. Morgunbiaðið. Áætlunarf lug milli Nuuk og Reykjavíkur FLUGFÉLAGIÐ Grænlands- flug hefur í dag vikulegt áætl- unarflug milli Nuuk og Reykjá- víkur í samstarfi við Flugleiðir. Notuð verður Dash Seven flug- vél frá Grænlandsflugi. Brottför verður frá Nuuk á hveijum föstudegi kl. 13.45 og lending í Reykjavík kl. 20.45. Frá Reykjavík verður síðan brott- för á sunnudögum kl. 16.20 og lendingíNuukkl. 17.20. Vegalengdin milli Reykjavíkur og Nuuk í lofti er 1.475 km og flugtíminn um flórar klukku- stundir. Tímamismunur milli ís- lands og vesturstrandar græn- lands er þrír tímar. í hverri ferð er pláss fyrir 21 farþega, eða rými fyrir 2 xh tonn af frakt. Heildar sætaframboð yfír árið er 2.100 sæti hvora leið. Afgreiðsla Grænlandsflugs er hjá innanlandsflugi Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli og félagið tekur við farpöntunum og annast sölu farmiða. Á fluginu milli Nuuk og Reykjavíkur er borinn fram mat- ur, te og kaffi og drykkir boðnir til sölu. Einnig er selt tollfijálst vín og tóbak um borð í flugvélinni, segir í frétt frá kjmningardeild Flugleiða. Framleiðnisjóður landbúnaðarins: Leggur fram fé til lausnar á vanda bænda STJÓRN Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hefur samþykkt að kaupa búmark af þeim bændum, sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda samkvæmt niðurstöðum fjárhagskönnunarnefndar og verja auk þess 15 milljónum króna árlega næstu fjögur ár, tíl viðbótar áður ákveðn- um skuldbrejrtingaráformum. Þá samþykkti stjóm sjóðsins að kanna leiðir til að kaupa framleiðslurétt af einstökum bændum og miðla meðal annarra, sem eru með mikla fjárfestingu miðað við fram- leiðslurétt. Að sögn Jóhannesar Torfasonar, formanns stjómar Framleiðnisjóðs, var fjallað um tillögu fjárhagskönn- unamefndar um lausn á vanda þeirra bænda sem vom í könnun- inni. Þar var talið að um 120 bændur þyrftu á sérstakri aðstoð að halda, annaðhvort til að hætta • búskap eða taka upp aðrar búgrein- ar. Afgreiðsla málsins var á þá leið að samþykkt var að kaupa búmark af bændum eftir þeim reglum sem Framleiðnisjóður hefur haft um slíkt og veija auk þess næstu 4 ár 15 milljónum á ári, sem koma til viðbótar öðmm aðgerðum, svo sem skuldbreytingum á vegum stofn- lánadeildar og skuldbrejáingum á vegum viðskiptaaðila og banka heima fyrir. Þetta er ennfremur bundið því að landbúnaðarráðu- neytið skipi sérstakan trúnaðar- mann til að annast samningsgerð við hvem einstakan bónda og við- skiptaaðila hans og fylgjast með framgangi samninganna næstu flögur ár. Stjóm framleiðnisjóðsins sam- þykkti ennfremur að kanna þá leið að kaupa framleiðslurétt af einstök- um bændum og nota um 70 til 80% af þeim rétti sem keyptur er til að miðla milli bænda innan svæða, sérstaklega þeirra sem eru með mikla fjárfestingu miðað við fram- leiðslurétt. Jóhannes sagði að mark- miðið væri að nýta sem best þá fjár- festingu, sem búið er að leggja í og skapa svigrúm fyrir yngri bænd- ur að vinna sig út úr sínum fjárfest- ingum með framleiðslu og um leið ákveðin hvatning fyrir hina til að hætta, þá sem búa við erfíðar að- stæður og eru ef til vill komnir nærri þeim aldursmörkum að eðli- legt megi telja að starfsdegi þeirra sé að ljúka. Hluti þessa framleiðslu- réttar yrði einnig til ráðstöfunar á landsmælikvarða til að skapa eðli- legt svigrúm á tilfærslu milli svæða. Afmælisfund- ur Varðar LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður heldur afmælisfund í tilefni 60 ára afmælis félagsins, laugar- daginn 1. mars nk. í Sjálfstæðis- húsinu Valhöll. Fundurinn hefst kl. 14.00. í fréttatilkynningu frá Verði segir að Þorsteinn Pálsson formað- ur Sjálfstæðisflokksins flytji ávarp á fundinum. Þorvaldur Garðar Kristjánsson forseti Sameinaðs Aiþingis fjallar um Vörð í fortíð. Birgir ísleifur Gunnarsson alþingis- maður ræðir um félagsstarf Sjálf- stæðisflokksins og Jónas Bjamason formaður Varðar §allar um framtið Varðar. Fundarstjóri verður Davíð Ólafs- son seðlabankastjóri. Allt sjálfstæð- isfólk er velkomið á fundinn. JNNLENT öJALr ö 1 Æ/U1öf ULIV í KÓPAVOGI Hvetjum ykkur til að taka þátt í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins laugardag- inn 1. mars og efla með því flokkinn. Tryggjum kosningu Richards Björg- vinssonar í 1. sæti. Stuðningsmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.