Morgunblaðið - 28.02.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR 1986
13
,
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Guðríður Elíasdóttir, annar varaforseti ASÍ, og Gunnar J. Frið-
riksson, formaður VSÍ, gleðjast yfir nýjum samningi.
— segir Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri um kjarasamningana
„ÞEIR kjarasamningar, sem nú
hafa verið gerðir, ásamt þeim
aðgerðum af hálfu ríkisstjórnar-
innar, sem þeim fylgja, gætu
markað þáttaskil í verðlagsþróun
hér á landi. Skaðsemi verðbólg-
unnar fyrir efnahagsþróun og
hagvöxt hér á landi er áreiðan-
lega meiri en flesta grunar, og
því er til mikils að vinna að koma
verðlagsþróuninni aftur niður á
svipað stig og í nágrannalöndum
okkar,“ sagði Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, er Morgun-
Björn Björnsson, hagfræðingur ASÍ:
Samningarnir happa-
dijúgir félögum í ASÍ
„ÉG HELD að menn verði að
skoða samninga hveiju sinni í
ljósi þeirrar stöðu, sem uppi er.
Ég er fyrir hönd ASÍ ánægður
með þennan samning. Ég held
að hann muni reynast félags-
mönnum okkar happadijúgur og
þjóðinni í heild hagkvæmur á
sama hátt. Ég held þvi að þetta
sé góður kjarasamningur í þess-
ari stöðu,“ sagði Björn Björns-
son, hagfræðingur ASÍ, er Morg-
unblaðið innti hann álits á ný-
gerðum kjarasamningum.
„Ég tel að þessir samningar
marki að mörgu leyti tímamót,“
sagði Bjöm. „Þessir samningar eru
á margan hátt flóknari en þeir
samningar, sem gerðir hafa verið
hér á undanfömum ámm og
kannski em þetta flóknustu samn-
ingar, sem gerðir hafa verið hér á
landi og jafnvel þó víðar væri leitað.
Það er tekið á ákaflega mögum
málum í þeim. Fyrir utan það, sem
snýr beint að kjaramálum, em fyrst
og fremst húsnæðis- og lífeyrismál-
in, sem tekið er á og samningsaðilar
ná þar samstöðu um ákveðnar til-
lögur til ríkisstjómarinnar um úr-
bætur. Hvað varðar launahlið
samninganna og niðurfærsluna,
held ég að engin tvímæli séu á
því, að þeir marki tímamót. Stefnt
er að tilteknum kaupmáttarmark-
miðum, en það var frá upphafi ljóst,
að auknum kaupmætti á árinu yrði
ekki náð nema með vemlegri niður-
færslu. Þess vegna er það mjög
merkilegt að deiluaðilar skuli hafa
náð saman um þessa leið og tillögur
til ríkisstjórnarinnar um það, hvem-
ig að þessari niðurfærslu skuli stað-
ið.
Þessir samningar em á margan
hátt tilraun og það verður ekkert úr
því skorið fyrirfram hvemig hún
tekst. Það er hins vegar ljóst, að
til að þetta takist, þurfa allir aðilar
að vinna saman að sömu markmið-
um; að tryggja að verðlagsþróun
fari ekki fram úr þeim viðmiðunum,
sem settar em upp í samningunum
og til þess þarf aðhald þeirra, sem
fara með verðákvarðanir í þjóð-
félaginu, atvinnurekenda og stofn-
ana. Það þarf líka ákveðinn vilja
ríkisstjómarinnar til þess að tryggja
framgang þessara markmiða.
Sömuleiðis er það mjög brýnt að
verðgæzla og verðkannanir verði
stórauknar til þess að efla verðskyn
almennings og á því ættu að vera
miklir möguleikar í ljósi lækkandi
verðbólgu.
Það em margir, sem spyija hvort
áhættan með þessum samningum
sé ekki allt of mikil. Það er vissulega
rétt að menn taka áhættu með
þessum samningum. Það er hins
vegar ekkert nýtt að svo sé í kjara-
samningum. Ahættan hefur alltaf
verið til staðar og hún hefur fyrst
og fremst verið fólgin í því, að
menn hafa stungið sér til sunds í
verðbólgufenið og látið verðlags-
þróunina ráða og stjóma kaup-
mættinum. Með þeim aðgerðum,
sem nú er verið að tala um, ætla
menn að stilla verðlagsþróunina af
fyrir fram eftir því, sem kostur er
og tryggja þannig að árangur náist.
Ég held því, þegar grannt er skoð-
að, að sé áhættan í þessum samn-
ingum í raun minni en flestum síð-
ustu smningum, sem við höfum
gert. I þessu sambandi er líka rétt
að minna á, að í þessum samningum
er^glgin, 4Kv6ðin kaupmáttartrygg-
ing. Hún er að vísu þannig, að sett
er á laggirnar launanefnd til að
fjalla um málin, fari verðlagsþróun
fram úr viðmiðunarmörkunum, en
ég held að menn þurfi ekki að óttast
það, ef til kemur, að verðlag hækki
um of, að bætur komi ekki til launa-
fólks, svo framarlega sem ástæður
eru ekki beinlínis raktar til rýmunar
viðskiptakjara eða versnandi stöðu
þjóðarbúsins," sagði Bjöm.
blaðið innti hann álits á kjara-
samningunum.
„Jafnframt verða menn að gera
sér grein fyrir því, að þessi árangur
er ekki tryggur, nema samningun-
um fylgi árangursrík hagstjóm á
öðrum sviðum, einkum í fjármálum
ríkisins og peningamálum. Mikil
hætta er á því, að auknar byrðar á
ríkissjóð leiði til eftirspumarþenslu,
sem verður að reyna að draga úr
með lækkun úgjalda og auknum
innlendum spamaði. Þótt sjálfsagt
sé, að jafnvextir lækki ört í kjölfar
þessara samninga, verða raunvextir
að verða nægilega háir til þess að
tryggja heilbrigðan innlendan
spamað og jafnvægi í peningamál-
um. Það er launþegum sjálfum
hættulegast, ef óeðlileg þensla eft-
irspumar verður til þess að eyði-
leggja gmndvöll þessara mikilvægu
samninga. Áratugareynsla hefur
sýnt, að það er einmitt hið almenna
launafólk, sem mestu tapar á verð-
bólgunni.
Enn er of snemmt að dæma um
aðra þætti samninganna. Mikilvægt
skref hefur auðsjáanlega verið stig-
ið I átt til samkomulags í lífeyris-
málum, en tillögumar í húsnæðis-
málum þurfa frekari athugunar við.
í húsnæðismálum er gert ráð fyrir
mjög auknu ijárstreymi til íbúðar-
bygginga og hagstæðari kjörum.
Þótt slíkar tillögur séu eðlilegar í
kjölfar þeirra erfiðleika, sem við
hefur verið að etja í þessum efnum
að undanfömu, má ekki láta tíma-
bundin vandamál ráða of miklu um
ráðstöfun fjármagus til frambúðar.
Margt bendir til þess, að eftirspum
eftir nýju húsnæði muni fara
minnkandi á komandi árum, en
jafnframt verða brýn þörf fyrir
aukið fjármagn til nýsköpunar í
atvinnulífinu. Þetta verða menn að
hafa í huga, þegar ákvarðanir eru
teknar um forgang og kjör á lánum
til íbúðarbygginga í framtíðinni,"
sagði Jóhannes Nordal.
reglulega af
öllum
fjöldanum!
Kópavogsbúar
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 1.
mars gefst ykkur kostur á að velja
til setu í bæjarstjórn traustan
athafnamann með mikla reynslu
í félagsmálum.
Tryggjum Kristni öruggt sæti.
Stuðningsmenn
Kristinn Kristinsson,
húsasmíðameistari.
Formleg undirritun kjarasamninganna 1 gær:
ASI skorar á félögin
að afgreiða samningana
FORYSTUMENN Alþýðusam-
bands íslands hafa skorað á að-
ildarfélög sambandsins að undir-
búa fundahöld til að afgreiða
nýjan kjarasamning ASI og
samtaka atvinnurekenda, sem
var formlega undirritaður í húsi
Vinnuveitendasambands íslands
í Garðastræti siðdegis í gær. Að
undirrituninni lokinni þakkaði
Gunnar J. Friðriksson, formaður
VSÍ, samningamönnum fyrir
langa og stranga samningalotu
og kvaðst vona að samningurinn
yrði umbjóðendum þeirra og
þjóðinni allri til heilla.
í yfírlýsingu sem ASÍ gaf út eftir
undirritun samninganna, segir að á
fundi með ríkisstjóminni fyrr um
daginn hafí því verið lýst yfír, að
mjólk og kjöt myndi ekki hækka
1. mars og að búvörur í heild í
framfærsluvísitölu hækki ekki. „Á
sama hátt verði tryggt, að hækkun
búvöruverðs verði ekki umfram
umsamda hækkun launa síðar á
árinu,“ segir í yfírlýsingunni.
Þar segir einnig að ríkistjómin
hafí tilkynnt Seðlabanka, að hún
geti ekki fallist á hækkun vaxta á
verðtryggðum lánum úr 5% í 6%
og að staðfest sé, að ríkisstjómin
sé sammála þeim hugmyndum, sem
settar hafa verið fram um lausn
húsnæðismála. Þá hefur verið
ákveðið að tryggingabætur al-
mannatrygginga hækki í samræmi
við kjarasamningana og að tekið
verði tillit til hinna sérstöku lág-
launabóta við hækkun tekjutrygg-
ingar.
Gætu markað þáttaskil
í verðbólguþróun hér