Morgunblaðið - 28.02.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
21
Ronald Reagan í sjónvarpsræðu:
Oábyrgt og hættu-
legt að draga úr
útgjöldum til hermála
Washington, 27. febrúar. AP.
RONALD Reagan, Bandarikja-
forseti, gagnrýndi bandaríska
þingmenn harðlega fyrir áform
um að minnka útgjöld til hermála
um 320 miUjarða dollara. í ræðu,
sem forsetinn hélt í gærkvöldi,
sagði hann að útgjaldalækkun
væri „óábyrg, hættuleg og röng“
því hún gæti orðið til „að skerða
stórlega samningastöðu Banda-
ríkjanna gagnvart Sovétríkjun-
um“.
Reagan var þungmæltur í ræðu
sinni og sagði lækkun útgjalda til
hermála hið mesta ábyrgðarleysi,
því sýnt væri að herstyrkur Banda-
rílqanna væri trygging fyrir friði.
Þingið hefði nú þegar tekið vopn úr
höndum samningamanna í Genf
með því að banna tilraunir með
vopn til að granda gervihnöttum.
Með því að skera síðan niður útgjöld
til hermála væru Bandaríkjamenn
að afhenda Sovétmönnum trompin
sín.
Vaxandi andstaða er á Banda-
ríkjaþingi og meðal bandarísku
þjóðarinnar við stefnu Reagans í
vamarmálum. Leiðtogi demókrata
í fulltrúadeildinni, Jim Wright,
sagði það óhjákvæmilega nauðsyn
að skera niður hemaðarútgjöld til
þess að forða þjóðinni frá stór-
hættu, sem væra feikilegar skuldir.
Demókratar teldu skuldimar einar
og sér stofna þjóðaröryggi í hættu.
Sovézkir ijölmiðlar gagmýndu
ræðu Reagans í dag og tillögur
hans um útgjöld til hermála. Var
Reagan sagður enn sitja við sama
heygarðshom í afvopnunarmálum.
AP/Sfnuunynd
Geidar A. Aliev, félagi í stjóramálaráði sovéska kommúnistaflokks-
ins, á blaðamannaf undi sem haldinn var á fimmtudag.
írland:
Frumvarp um
hjúskapar-
löggjöf fellt
Dublin, 27. febniar. AP.
FRUMVARP, sem hefði geta leitt
til þess að lijónaskilnaðir yrðu
leyfðir í írska lýðveldinu, vai
fellt á miðvikudagskvöld í írska
þinginu. Frumvarpið sem lagt
var fram af fulltrúum írska
verkamannaflokksins var fellt
með 54 atkvæðum gegn 33, en
þingfulltrúar eru 166.
Fulltrúar stærsta stjómarand-
stöðuflokksins, Fianna fail, sat hjá
við atkvæðagreiðsluna. Framvarp
þetta hefði getað leitt til endurskoð-
unar á írsku hjúskaparlöggjöfinni
og þess að bann við hjónaskilnuðum
yrði afnumið.
27. þing sovéska kommúnistaflokksins:
Vantar sjálfstæða menn
við hagstj óni og rekstur
— sagði Ligachev, hugmyndafræðingur flokksins
Moskvu, 27. febrúar. AP.
HELSTI hugmyndafræðingur
sovéska kommúnistaflokksins
var í dag aðalræðumaðurinn á
flokksþinginu og réðst harka-
Alusuisse í
vandræðum
ÁSAKANIR um óreiðu í bókhaldi og þaðan af verra, uppsagnir
yfirmanna og taprekstur. Það verður af nógu að taka á árlegum
fundi hluthafa í Alusuisse, næst stærsta álframleiðanda í Evrópu, í
april.
Offramleiðsla á áli í heiminum
hefur gert að verkum að málmurinn
hefur fallið í verði og margir fram-
leiðendur fá nú minna greitt fyrir
álið en kostar þá að framleiða það.
En það er fleira en þetta, sem hijáir
fyrirtækið. Ásakanir hafa borist um
að afskriftir Alusuisse hafi verið
ofreiknaðar um 250 milljónir svissn-
eskra franka (um 4.000 milljónir
íslenskra króna) á síðasta ári. Yfír-
maður fyrirtækisins, Emanuel
Meyer, og aðstoðarmaður hans,
Brano Sorato, hafa sagt störfum
sínum lausum. Pierre Amold, for-
stjóri úraframleiðandans SMH, og
Nello Colio, fyrram forseti Sviss,
era teknir við.
Þetta er ekki fyrsta sinni sem
Alusuisse hefur verið sakað um
misferli. 1981 sakaði ríkisstjóm ís-
lands fyrirtækið um að reyna að
komast hjá skatti með því að of-
reikna verð á súráli, sem álverið í
Straumsvík keypti.
Starfsemi fyrirtækisins. Astralíu
hefur hnekkt áliti þess. Ástralíu-
stjóm heldur fram að dótturfyrir-
tæki Alusuisse, Austraswiss, hafí
reiknað útflutningsverðmæti súráls
of lágt. Stjómin vill fá 30 milljón
doliara skaðabætur (120 milljónir
ísl. kr.) og hótar að stöðva útflutn-
ing fyrirtækisins.
Meyer, fyrram forstjóri, er meira
en blóraböggul. Gerð var tilraun til
að bola honum frá 1985 þegar ráða-
gerðir hans um að auka fjölbreytni
í starfsemi fyrirtækisins um heim
allan fóra út um þúfur. Tap á rekstri
Aiusuisse var á síðasta ári 90 millj-
ónir svissneskra franka. Árið 1984
skilaði fyrirtækið 169 milljóna
franka hagnaði og var það fyrsta
sinni, sem fyrirtækið var rekið með
hagnaði síðan 1981. Aftur á móti
er talið að Lonza efnaverksmiðjum-
ar í Sviss hafí verið reknar með 100
milljón franka hagnaði á síðasta ári,
þannig að heildartapið gefur ranga
mynd af þeim vandamálum, sem
steðja að fyrirtækinu í helstu fram-
leiðslugreininni, álframleiðslu. Tap-
rekstur í álframleiðslu hjá Conalco
í Bandaríkjunum nam 45 milljónum
dollara. Í síðustu viku vora tvö lítil
dótturfyrirtæki, sem samanlagt
töpuðu 9,2 milljónum dollara á síð-
asta ári, seld, fyrsta merki þess að
nýir stjómendur hafa tekið við.
Celio og Amold hafa þó ástæðu
til bjartsýni. Alusuisse hefur slíkt
forskot á sviði tækninnar að banda-
rískir álframleiðendur fyllast af
öfund. Þetta á sérstaklega við um
Caster II framleiðsluaðferðina. Með
henni má framleiða álþynnur til
niðursuðudósaframleiðenda án þess
að fyrst þurfí að gera álstangir.
Þessi aðferð gæti m.a. orðið til þess
að halda Alusuisse á floti í hröm-
andi iðnaði — og fyrirtækið yrði
þá í bestri aðstöðu til að hagnast
þegar álverðið hækkar og eftir-
spumin eykst.
The Economist.
lega á þær aðferðir, sem áður
voru viðhafðar við að velja
embættismenn flokksins. Lagði
hann til, að fjölgað yrði embætt-
ismönnum af öðru þjóðerni en
rússnesku og að ýtt yrði undir
hæfileikaríka og sjálfstæða
menn við hagstjórn og rekstur
fyrirtækja.
Af ræðu Yegor K. Ligachev,
hugmyndafræðings kommúnista-
flokksins og næstráðanda í Kreml,
er ljóst, að meginstefíð á 27. flokks-
þinginu er uppgjör við Brezhnev-
tímann. Fór hann hörðum orðum
um þann hátt, sem áður var hafður
á við að velja embættismenn flokks-
ins og sagði, að hann hefði leitt til
stöðnunar. Sýndi þetta sig t.d. í
því, að 60% flokksmanna og emb-
ættismanna væra rússneskir og
16% úkraínskir. Innan Sovétríkj-
anna væra hins vegar rúmlega 100
þjóðir og þjóðarbrot en fulltrúatala
margra þeirra væri þó innan við
1%. Hefði þetta m.a. valdið því, að
mörgu hæfíleikaríku og sjálfstæðu
fólki hefði verið bolað burtu eða
ekki fengið nein tækifæri.
„Við verðum að hvetja hug-
myndaríkt fólk til dáða, menn, sem
geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir
og þora að gangast við ábyrgð,"
sagði Ligachev en lagði jafnframt
áherslu á, að enginn félagi í flokkn-
um gæti alveg ráðið sér sjálfur.
Geidar A. Aliev, félagi í stjóm-
málaráðinu, efndi í dag til óvana-
legs blaðamannafundar og kom þar
fram hjá honum, að hreinsanir í
flokknum stæðu ekki fyrir dyram.
Áfram yrði hins vegar barist gegn
spillingu innan flokks sem utan og
nú væri t.d. verið að kanna þau
sérstöku fríðindi, sem háttsettir
menn f flokknum njóta.
Aliev var í náðinni hjá Brezhnev
á sínum tíma og á blaðamannafund-
inum var hann inntur eftir ræðu,
sem hann flutti á flokksþinginu
1981 en í henni bar hann sífelit lof
á Brezhnev alla ræðuna út. Aliev
svaraði og sagði, að það hefði verið
eðlilegt því að þá hefði Brezhnev
verið leiðtogi flokksins. Nú væra
hins vegar áherslumar aðrar, nú
væri til siðs að „vera gagnrýninn
og opinskár" um vandamálin í
sovésku samfélagi.
í sovéskum Qölmiðlum segir, að
í næstum engum ræðanna, sem
fluttar hafa verið á flokksþinginu
nú, hafí Gorbachev sjálfur verið
lofaður. í þeim sé hins vegar ekki
látið af lofgerðinni um hina nýju
starfshætti flokksins.
Fækkun herja í Mið-Evrópu:
Þráttað um hvernig'
eftirliti skuli háttað
Vínarborg, 27. febrúar. AP.
SAMKOMULAG náðist ekki milli samningamanna NATÖ og Varsjár-
bandalagsins um hvar og hvernig háttað skuli eftirliti með gagn-
kvæmri ogjafnri fækkun heija í Mið-Evrópu, á fundi þeirra í dag.
Aðilar hafa nánast komist að
samkomulagi um málamyndafækk-
un sovézkra og bandarískra her-
manna í Evrópu og síðan líði þijú
ár án þess að fjölgun verði. Ágrein-
ingur er hins vegar enn um hvemig
eftirliti með framgangi samkomu-
lagsins verði háttað.
NATO-ríkin lögðu til að deiluaðil-
ar tilkynntu hvor öðram um allar
hreyfíngar heija innan svæðisins
og utan. Herirnir, sem fækkað
verður í, era í Hollandi, Belgíu,
Lúxemborg, Vestur-Þýzkalandi,
Austur-Þýzkalandi, Póllandi og
Tékkóslóvakíu. Varsjárbandalagið
hafnaði þessari hugmynd í dag.
Viðræður hófust um jafna og
gagnkvæma fækkun heija í Mið-
Evrópu í október 1973, en þeim
miðaði lítt fyrr en á þessu ári þar
sem aðilar gátu ekki sæst á fjölda
hermanna, sem fækkað skyldi um.
S JÁLFSTÆÐISMENNI
KÓPAVOGI
Munið prófkjörið laugardaginn 1. mars. Kosið er frá
kl. 10.00—21.00 að Hamraborg 1.
í bæjarstjórnarkosningum 1982 skipaði Bragi Michaelsson 2. sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. í prófkjörinu laugardaginn 1.
mars vinnum við stuðningsmenn Braga að því að hann skipi öruggt sæti á
framboðslista flokksins í vor.
Kosningasími Braga er 42910. Þeir sem þess óska geta fengið akstur
á kjörstað.
Stuðningsmenn