Morgunblaðið - 28.02.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR 1986
23
Holland:
17.000 keppendur í
200 km skautahlaupi
Fræðslufundur
Wageningen, 26. febrúar 1986. Frá Egfgert H. Kjartanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins i Hollandi.
„DE ELFSTEDENTOCHT" (ellefubæjakeppnin), 200 km skauta- höfðu haldið opnum
keppni eftir vötnum, skurðum og síkjum í Fríslandi í nístandi kulda
og með vindinn i fangið dijúgan hluta leiðarinnar, var haldin í dag.
Klukkan hálf fimm í morgun voru um 17.000 keppendur mættir til
keppni og þúsundir áhorfenda höfðu komið sér fyrir meðfram
keppnisleiðinni eða á kaffihúsum í nágrenninu.
„De
Elfstedentocht" er í raun
mun meira en keppni. Um er að
ræða einskonar þjóðhátíðardag
fyrir Frísi í sýslunni Fríslandi í
N-Hollandi þar sem keppnin fer
fram. Af öllum þeim þúsundum sem
taka þátt í keppninni eru í raun
aðeins nokkur hundruð keppendur
í þeirri merkingu, sem alla jafna
er lögð í orðið. Langflestir keppa
við sjálfan sig og klukkuna. Stoppa
öðru hvoru á kaffihúsi, fá sér heita
súkkulaðimjólk og ræða við aðra
gesti og þátttakendur. Hljómsveitir,
sönghópar og lúðrasveitir koma
þennan dag úr öllum áttum til Frís-
lands. Fjöldi fyrirtækja og stofnana
gáfu frí svo starfsfólkið gæti annað
hvort setið heima og fylgst með
keppninni eða lagt leið sína til Frís-
lands.
Það er erfítt fyrir þá, sem ekki
hafa alist upp í Hollandi og fylgst
með því frá æsku hvemig „de elf-
stedentocht“-sjúkdómurinn grípur
um sig meðal Hollendinga og þá
sérstaklega íbúa Fríslands, að gera
sér grein fyrir gildi þessarar keppni.
Allt frá því fyrstu tjamir, vötn,
skurðir og sýki fer að leggja fara
rólegustu menn að sýna merki
taugaspennu og æsings. Allar
stöðvar heilans virðast einbeita sér
að því hvort, og þá hvenær keppnin
verði haldin. Stjómmála- efnahags-
og íþróttafréttum er ýtt til hliðar í
dagblöðum og sjónvarpi. Veður-
fréttimar heita upp frá því „elfsted-
entocht“-veðurfréttimar. Fréttir af
fundum formanns keppninnar og
þeirra 20 ísmeistara, sem fylgjast
dag frá degi með ísnum, em reglu-
legur viðburður í fréttatímum út-
friðhelgi einkalífsins eða þarfír vís-
indanna. Skyld vandamál koma oft
upp, þegar rætt er um upplýsinga-
skyldu yfírvalda þegar um er að
ræða öryggi ríkisins annars vegar
og rétt einstaklingsins hins vegar.
Samfélagið á rétt á að gera kröfur
til vísindanna um þekkingu á viss-
um sviðum, m.a. til þess að skipu-
leggja fyrirbyggjandi aðgerðir og
til þess að afla hennar verður iðu-
lega að snúa sér til einstaklinganna
persónulega. Svör einstaklinganna
hafa svo enga þýðingu þegar búið
er að vinna úr þeim og komast að
niðurstöðunum. Þá ætti að jafnaði
að þurrka út öll kennimerki, þannig
að svör verði ekki tengd ákveðnum
einstaklingum.
Það er mikilvægt, að fræðimenn
geri fólki grein fyrir tilgangi og
hlutverki rannsókna og afli sam-
þykkis þess þegar um er að ræða
skrár með upplýsingum um ein-
staklinga, jafnvel þó það kunni að
gera rannsóknina dýrari og tíma-
frekari en ella. Þá er og jafn mikil-
vægt að þurrka út þessar upplýs-
ingar þegar þær hafa gegnt sínum
tilgangi. Misbrestur í þessu sam-
bandi getur valdið óbætanlegu tjóni.
1 þeim dæmum, sem að ofan eru
nefnd, virðist einhver misbrestur
hafa orðið varðandi þessi atriði.
Sænska hagstofan hefur nú þegar
orðið vör við, að fólk er tortryggn-
ara og tregara til að svara spum-
ingalistum en áður. Sænski hag-
stofustjórinn, Sten Johanson, hefur
áhyggjur af skaðsemi neikvæðrar
umræðu varðandi persónulegar
upplýsingar á tölvuskrám. Hann
bendir á, að stofnunin geti ekki
gegnt hlutverki sínu sem skyldi án
þess að tiltrú almennings sé fyrir
hendi. Rannsóknimar eru, þegar á
allt er litið, í þágu almennings.
varps og sjónvarps. Á þann hátt
eflist dag frá degi áhuginn meðal
landsmanna. Einn og einn rífur
teppið af stofugólfínu heima hjá sér
til þess að leggja það á ísinn á
daginn svo sólin nái ekki að bræða
efsta lagið eða veikja ísinn á annan
hátt. Heilu þorpin í Fríslandi við-
höfðu þessa aðferð til þess að
vemda ísinn fyrir sólargeislunum
þegar sýnt var síðastliðinn sunnu-
dag að hægt yrði að halda keppnina.
Undir brúm og á stöðum þar sem
selta var í vatninu var slökkvilið
staðarins kallað út til þess að dæla
fersku vatni í sýkin í von um að
þar mundi einnig myndast íslag.
Endur og aðrir vatnafuglar urðu
að sætta sig við að vakir, sem þeir
og voru á
keppnisleiðinni, voru girtar af og
fuglamir færðir á staði þar sem
þeir voru ekki fyrir neinum. Allir
leggjast á eitt um að svellið verði
í sem bestu ásigkomulagi þegar
keppnin hefst. Þær þúsundir sem
standa meðfram keppnisleiðinni
hvetja keppendur fullum hálsi og
það veitir ekki af.
Fyrir þá sem ljúka keppninni eru
verðlaunin „elfstedentocht“-kross-
inn. Hann er tákn um. persónulegan
sigur og á mörgun heimilum hlýtur
hann heiðursess í stofunni. Það sem
gerir þessa keppni svo sérstæða
umfram aðrar er að í raun eru allir
þeir sem ljúka keppninni sigurveg-
arar og þeir eru meðhöndlaðir sem
slíkir af vinum og vandamönnum.
Fyrstur í mark að þessu sinni var
Evert van Bentum sem einnig sigr-
aði í keppninni í fyrra. Hann lagði
þessa 200 km að baki á 6 kls. 55
mínútum og 10 sekúndum.
Fræðslufundur verður haldinn á morgun
1. marz að Hótel Hofi Rauðarárstíg 18.
Fundurinn hefst kl. 14.00.
Á fundinum mun Helgi Valdimarsson prófessor flytja erindi
sem hann nefnir „Á Psoriasis rætur að rekja til ónaemiskerfis-
ins?“
Helgi er sérfræðingur í ónæmisfræöum og hefur hann á
undanförnum árum unnið að rannsóknum ásamt breskum
húðlæknum og ónæmisfræðingum, á ónæmiskerfi psoriasis-
sjúklinga.
í erindinu mun Helgi fjalla um þessar rannsóknir og hvað þær
hafa leitt í Ijós og jafnframt um tengsl ónæmiskerfisins um
exem.
Auk erindis Helga verður sýnt nýtt myndband sem fjallar um
vandamál psoriasis-sjúklingsins.
Við viljum hvetja alla psoriasis-sjúklinga
að mæta og fræðast um sjúkdóminn.
Stórar plötur frá 25 krónum.
atlOaw
W«of.W
VtW;.;:
m
Odýrasta plötubúð
landsins á Stórútsölu-
markaðnum Fosshálsi 27
Þann tíma sem Stórútsölumarkaðurinn Fosshálsi 27 stendur yfir, starfrækj-
um við ódýrustu hljómplötuverslun landsins. Líttu inn því þú gerir hvergi
hagstæðari hljómplötukaup en einmitt hjá okkur.
nlistarleg
kjarabót
Allar nýjustu plöturnar á óvenjulega hagstæðu verði.
Eldri gæðaplötur á sprenghlægilegum prísum.
Beverly Hills Cop — Ýmsir
Hits 3 — Ýmsir
Depeche Mode — The Singles ’81 —’85
Með lögum skal land byggja — Ýmsir
Dúndur — Ýmsir
Simple Minds — Once Upon A Time
Rocky IV —Ýmsir
Stuðmenn — Sumar á Sýrlandi
Ríó T ríó — Lengi getur vont versnað
BillyJoel —Greatest Hits Vol 1 & 2
Þú hefur ekki efni á að láta slíkt
kostaboð framhjá þér fara, þvl þú
hreinlega hagnast á þessum við-
skiptum.
! dag er opið frá kl. 13.00 til 19.00.
Á morgun laugardag, opnum við kl. 10.00
og höfum opið frameftir degi til kl. 16.00.
Meiriháttar úrval
af íslenskum og
erlendum hljómplötum
Póstkröfusími
(91 >-46463
stoinorhf