Morgunblaðið - 28.02.1986, Síða 24

Morgunblaðið - 28.02.1986, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986 Frj álshyggj an er mannúðarstefna Plnrgi Útgefandi ntHafeffr Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Hugarfarsbreyting að hefði verið heljar- stökk inn í náttmyrkrið áð fara gömlu verðbólguleið- ina,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verka- mannasambands íslands, í Morgunblaðssamtali í gær um nýju kjarasamningana. Þessi yfírlýsing hins gamalreynda samningamanns er dæmigerð fyrir þá hugarfarsbreytingu, sem verður að veruleika með samningunum. Af mörgu merki- legu, sem einkennir þá, er það einna athyglisverðast, að þeir eru gerðir á þeim forsendum, að meðalgengi krónunnar verði haldið sem stöðugustu. Það er ljósið, sem vísar leiðina út úr náttmyrkrinu. Ákvörðunin um að festa gengið byggist hins vegar á þeirri von, að ytri skil- yrði verði okkur hagstaeðari en þau hafa verið um langt árabil — olíuverð haldist lágt, afli verði góður og unnt verði að selja sjávarafurðir á góðu verði. Verðbólguna hér á landi hefur ekki alfarið mátt rekja til efna- hagslegra ástæðna, hún hefur ekki síður byggst á pólitískum forsendum. Þeir, sem taka ákvarðanir um stefnumótun í efnahagsmálum, eru ekki ein- vörðungu stjómmálamenn — þar koma fulltrúar launþega og atvinnurekenda einnig til sög- unnar. Orðið „misgengi" hefur oft verið notað um efnahags- þróunina undanfarin misseri, það hefur ekki síður verið mis- gengi í skoðunum þeirra, sem ákvarðanir taka og steftiu móta, á því hvaða leið skuli farin að hinu æskilega markmiði. Raun- ar má kalla þá samstöðu, sem nú hefur náðst, byltingu. Þessi bylting á sér nokkum aðdraganda. Þess hefur mátt sjá merki undanfarin misseri, að hægt og sígandi hafa menn viljað fíkra sig inn á nýjar braut- ir. Samningsaðilar hafa verið að þreifa fyrir sér í leit að nýjum leiðum. Forráðamerin ríkissjóðs hafa verið að laga sig að því, að hann verði að herða ólina ekki síður en launþegar. Þá hafa verið settar skorður við erlend- um lántökum og nú síðast ákveðið að halda meðalgenginu stöðugu. Magnús Gunnarsson, fráfar- andi framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, segir um samningana í Morgunblaðsvið- tali: „Þetta er tilraun — tilraun, sem ég tel vera þess virði að gera. Sú leið, sem var valin við gerð þessara samninga, mun hafa mikla erfiðleika í för með sér, talsverðar þrengingar en von um betri tíð. Það getur verið sársaukafullt að kreista allan gröftinn úr sárinu í stað þess að taka verkjastillandi — en það gefur von um bata. Því má ekki hlaupa frá vandanum." Öllum ætti að vera orðið ljóst, að það gerist ekki átakalaust að losna við verðbólgudrauginn. Þessi orð Magnúsar Gunnarssonar eru enn ein staðfestingin á því. Hann fer varlega í fullyrðingum um, að varanlegur árangur ná- ist. Með hliðsjón af góðum ásetningi áður er fyrirvari hans réttmætur. Hins vegar eru allir, sem hlut eiga að máli, vonbetri nú en oftast áður. Það byggist á þeirri staðreynd, að samkomu- lag hefur tekist milli fulltrúa verkalýðshreyfíngarinnar og atvinnulífsins „um að nálgast málin á nýjan og heilbrigðari hátt,“ eins og Magnús Gunnars- son orðar það. Á næstunni reynir á það, hvort foiystumenn launþega og atvinnurekenda, fá heimild umbjóðenda sinna til að stað- festa samningana endanlega. Ekki er ástæða til að ætla annað en þessi heimild fáist. Það hefur svo lengi verið kappsmál al- mennings að losna við verð- bólguna, að hann leggur ekki stein í götu þeirra, sem segjast vera að bægja henni á brott. Hitt er jafnframt mikilvægt, að þannig verði staðið að fram- kvæmdinni, að sem fyrst fínni menn áþreifanlega fyrir þeim umskiptum, sem af þessari bylt- ingu í samningsgerð leiðir. í því efni þarf að standa skipulega að verki. Eftir hina erfiðu samninga- lotu koma niðurstöðumar nú til meðferðar hjá alþingismönnum. Með því verður fylgst, hvort þeir taka málin sömu tökum og samningsaðilar, horfí á mark- miðið og ræði málefnalega leið- imar að því. Ef þingfundir um þessi alvörumál einkennast af auglýsingaskmmi og uppákom- um af öðm tagi, kemur enn í ljós, að kannski hefur orsaka verðbólgunnar ekki síst verið að leita við Austurvöll. Morgunblaðið hvetur til þess, að hugarfarsbreytingin, sem einkennir hina nýgerðu samn- inga, fái að njóta sín jafnt á Alþingi sem annars staðar í þjóðlífínu. „Ég er sannfærður um að almenningur I þessu landi ætlast til þess að ríkissljómin standi við sitt í þessu máli — og ef hún gerir það ekki, þá hafí hún lítið að gera við stjóm- völinn," sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti Alþýðusam- bandsins, í Morgunblaðinu í gær. Þessi óvenjulega trausts- yfírlýsing er táknræn fyrir mikilvægi samninganna. Ríkis- stjóminni hlýtur að vera kapps- mál að rísa undir henni. eftir Hannes Hólmstein Gissurarson í Landnámu segir frá Steinunni gÖmlu, frændkonu Ingólfs Amar- sonar. Hún fór til íslands og var sinn fyrsta vetur með Ingólfi. Síðan segir „Hann bauð at gefa henni Rosmhvalanes allt fyrir útan Hvassahraun, en hon gaf fyrir heklu flekkótta ok vildi kaup kalla; henni þótti þat óhættara við ripting- um“. Þessa litlu sögu má hafa til marks um frelsisþrá forfeðra okkar. Steinunn hin gamla kaus að vera veitandi ekki síður en þiggjandi. Hún vildi hitta frænda sinn Ingólf fyrir í frjálsum viðskiptum, en ekki eiga neitt undir náð hans eða erf- ingja hans. Hún viss, að menn halda sjálfstæði sínu, þegar þeir mætast í frjálsum viðskiptum, því að þá mætast þeir sem jafningjar og gera eitthvað hvor fýrir annan. Hins vegar er hætt við því, ef einn þiggur af öðrum, að hann standi ekki uppréttur eftir. Matthías skáld Johannessen segir svipað frá Júlfusi skóara, „sem var heldur tekjurýr smákapítalisti". Júlíus sagði eitt sinn við skáldið á verkstæði sínu: „Sjálfstæði er það að sækja það eitt til annarra, sem maður getur borgað fullu verði.“ íslendingseðlið hefur ekki breyst í þau ellefu hundr- uð ár, sem ber á milli Steinunnar hinnar gömlu og Júlíusar skóara. Bæði skilja þau, að frjáls viðskipti einstaklinganna fela í sér gagn- kvæma viðurkenningu á mönnum sem veitendum ekki síður en þiggj- endum. í þessu stutta erindi hyggst ég leggja út af hugsun þessara tveggja fijálslyndu íslendinga og reyna að leiða rök að því, að stefna frjálsra viðskipta sé hin eina sanna mannúðarstefna, því að hún feli f sér virðingu fyrir einstaklingunum og auðveldi þeim að uppgötva hæfileika sína og neyta þeirra. Ég ætla með þessu að reyna að hrekja kenningu, sem nokkrir verkalýðs- forsprakkar hafa nýlega komið orðum að á mannamótum, en hún er, að þessi stefna sé ómannúðleg, köld og hörð peningahyggja. Valdboð ómannúðlegra en frelsi Stefna okkar frjálshyggjumanna er f fæstum orðum, að ríkisvald beri að takmarka eins og auðið sé, svo að einstaklingar geti gert út um sem flest mál sín í ftjálsum viðskiptum og samningum. Hvemig í ósköpunum getur sú stefna verið ómannúðleg? Þeir, sem halda slíku fram, hljóta að hafa gleymt því að mestu grimmdarverk mannkyns- sögunnar hafa verið unnin af valds- mönnum og þjónum þeirra. Hefur valdið ekki verið notað miklu ómannúðlegar en frelsið? Franskir embættismenn féllu á vígvöllum Norðurálfu, til þess að Napóleon Bónaparte fengi metnaði sínum fullnægt. Gyðingar voru reknir inn í gasklefana samkvæmt skipun Adolfs Hitlers, helsta ráðamanns þriðja ríkisins. Og líklega hefur lífíð verið murkað úr á að giska tuttugu milljónum manna, vegna þess að Stalín þurfti að neyða samyrkjubú- skap upp á rússneska bændur! Ef frelsi frjálshyggjumanna er ekkert annað en skeytingarleysi um ná- ungann, eins og sumir segja, þá munu margir satt að segja fremur biðja um slíkt skeytingarleysi held- ur en allt það, sem ríkið hefur gert fólki. Má þó ekki eins nota vald til góðs og ills? Og getum við borið vestræn lýðræðisríki saman við alræðisríki Hitlers og Stalíns? Ég held, að valdsmönnum í vestrænum lýðræð- isríkjum gangi mörgum gott eitt til, þegar þeir beita valdi til eflingar mannúð. En ég er hins vegar ekki Viss um, að þeir skilji alltaf þann mikla mun á lifandi fólki og dauðum hlutum, að lifandi fólk bregst við kostnaði af verkum sínum. Ef kostnaður hækkar af einhverju verki, minnkar tilhneiging fólks til þess að vinna það. Ef kostnaður lækkar hins vegar, eykst tilhneiging þess til að vinna verkið. Borgaramir eru ekki alltaf eins meðfærilegir og stjómarherramir halda. Ráðagerðir valdsmanna snúast þess vegna stundum í höndunum á þeim og hafa þveröfugar afleiðingar við það, sem þeim var ætlað. Adam gam'i Smith orðaði þetta svo fyrir tvö hundmð árum, að stjómlyndir menn reyndu að hreyfa fólk til eins og peð á taflborði. Hann benti á það, að hönd skákmannsins gæti að vísu stjómað hreyfíngu tafl- manna á skákborði, en bætti því við að hver einstakur maður á hinu mikla skákborði mannlífsins hreyfði sig sjálfur og síður en svo alltaf eins og valdsmenn ætluðu honum. Ég skal hér nefna lítið dæmi um það, hvemig fólk bregst við, þegar kostnaði af verkum þess er breytt með valdboði til eflingar mannúð, og sæki ég það til dr. Vilhjálms Egilssonar hagfræðings. Það er af verkamannabústöðum. Til þess að fá íbúð í verkamannabústöðum þarf fólk að hafa lægri tekjur en nemur tiltekinni upphæð. Þetta felur auð- vitað í sér, að það borgar sig fyrir suma að lækka tekjur sfnar með því að minnka við sig vinnu (eða flytja hana niður í „neðanjarðarhag- kerfíð). Það, sem þeir {&, aðgangur að ódýrum íbúðum með viðráðan- legum greiðslukjörum, er meira en hitt sem þeir tapa, tekjumar, sem þeir hefðu ella aflað sér. Stuðningsmönnum verkamanna- bústaða gengur auðvitað gott eitt til eins og öðrum þeim, sem reyna að breyta gangi lffsins með ríkisaf- skiptum. Þeir eru að reyna að lið- sinna tekjulágu fólki. En þeir hugsa því miður ekki út í það, að með þessum afskiptum auðvelda þeir fólki að hafa lágar tekjur, en tor- velda því að hækka tekjur sfnar. Læsa þessir góðgjömu menn fólk ekki inni í láglaunagildru með af- skiptum sínum? Er ekki skynsam- legra að reyna að auðvelda fólki að komast út úr fátækt en að auðvelda þvf að sitja föstu í fátækt? Ummæli Sigurðar Nordals og Alexis de Tocquevilles Röggsamleg beiting rfkisvalds er síður en svo allra meina bót, hvað sem ætlun valdsmanna líður, enda er valdið klunnaiegt tæki og ómeð- færilegt, því að fólk er ekki eins og peð á taflborði, heldur hefur hver maður sitt eigið hrejrfílögmál, eins og Adam gamli Smith minnti okkur á. Þeir, sem með valdið fara inni á skrifstofum, geta aldrei aflað þeirrar þekkingar og kunnáttu, sem dreifíst á alla einstalingana úti f þjóðlífínu. Þeir geta ekki heldur séð fyrir allar afleiðingar verka sinna. Flestir hugsandi menn hljóta þess vegna að taka undir með Sigurði Nordal prófessor: „Ef fólki er inn- rætt, að ríkið eigi að leysa og geti leyst ÖII þess vandamál, fer það að lokum að kenna ríkinu um öll sfn mein. Hvort tveggja er vitanlega jafnfíarstætt. Það verður bæði að grafa dýpra, skyggnast víðar og seilast hærra en ríkisvaldið getur nokkum tfma náð til þess að fínna brýnustu þarfimar, mestu verð- mætin, alls konar böl og bölvabæt- ur“. Sigurður Nordal lét þessi orð falla í umræðum um hið norræna velferðarríki árið 1957. Ég get síð- an ekki stillt mig um að vitna til hins vitra franska heimspekings Alexis de Tocquevilles, sem sá það fyrir á nítjándu öld ekki síður en Steinunn hin gamla á landnámsöld, hversu hættulegt slíkt velferðarríki gæti orðið sjálfstæði fólks: „Ég er að reyna að sjá, hvaða mynd harð- stjóm getur tekið á sig. Það, sem ég kem fyrst auga á, er múgurinn, óteljandi menn, allir jafnir og líkir hverjir öðrum, allir að keppast við að afla þeirra lítilmótlegu og lág- kúrulegu gæða, sem þeir fylla líf sitt með... Fyrir ofan þennan skara rís síðan óskaplegt og ægilegt vald, sem tekur það að sér að fullnægja þörf- um hans og bera ábyrgð á örlögum hans. Þetta vald er altækt, smá- munasamt, reglubundið, forsjált og milt. Því mætti líkja við foreldra- valdið, hefði það þann tilgang að búa menn undir ftillorðinsárin, en það hefur annan tilgang og ólíkan: að koma í veg fyrir að þeir fullorðn- ist. Það hefur ekkert á móti því, að menn gleðjist, að því tilskildu að þeir hugsi ekki um annað á meðan. Þetta vald vinnur fúslega að slíkri hamingju, en það heimtar að fá eitt að skammta hana og skipuleggja. Það vemdar menn, áætlar þarfír þeirra og sinnir þeim, auðveldar þeim að láta sér líða vel, ræður helstu áhugamálum þeirra, stjómar framleiðslu, úthlutar eign- um og skiptir með þeim arfí. Hvað er eftir annað en að taka af þeim ómakið við að hugsa og lifa?“ Ég skal játa, að mér verður stundum hugsað til þessara orða Tocquevil- les, þegar ég lít í austur til granna okkar, Svía. Frjáls viðskipti auka velmegun og með þvi mannúð Efasemdir um ríkisvald þurfa þó ekki að vera röksemdir fyrir frelsi. Þótt ríkisafskipti hafí oft ómannúð- legar afleiðingar, getuhi við ekki sjálfkrafa dregið þá ályktun, að markaðsviðskipti hafí mannúðlegar afleiðingar. Ég hyggst því ræða hér um nokkrar sjálfstæðar röksemdir fyrir því, að markaðsviðskipti hafi mannúðlegar afleiðingar, hvort sem nenn ætli sér það eða ekki. Fyrst er það auðvitað, að f skipulagi frjálsra viðskipta bannar enginn mönnum að sýna öðmm mönnum miskunnsemi og veita þeim líkn. Mér fínnast þeir, sem krefjast rót- tækra ríkisafskipta til eflingar mannúð, satt að segja stundum ekki gera ráð fyrir því, að menn geti unnið góðverk ótilkvaddir og á eigin kostnað. En gleyma þeir ekki fjölskyldunni, mikilvirkasta trygg- ingarfélagi mannkjmssögunnar, kirkjunni ogóteljandi áhugamanna- samtökum? Einblína þeir svo á rík- ið, að þeir sjá ekki frjáls samtök einstaklinganna, sem ljrft geta grettistaki? Og ég er hræddur um að víðtæk ríkisafskipti af mannúð- armálum hafí ekki aukið áhuga fólks á að láta að sér kveða. Menn líta margir því miður svo á, að þessi mál komi þeim ekki við. Rfkið eigi að sinna þeim. Meginröksemdin fyrir því, að markaðsviðskipti hafí mannúðlegar afleiðingar, er þó sú, að þau leiða til aukinnar velmegunar og minnka þannig það mannanna böl, sem stafar af fátækt. Markaðsviðskipti eru nauðsynleg, til þess að við getum komið við verkaskiptingu og einbeitt okkur að því, sem við getum betur en aðrir, og lejrft öðrum að leggja sig fram við það, sem þeir geta betur en við. í viðskiptum færast lffsgæðin á milli einstaklinga eftir ftjálsu vali þeirra og til þess að fullnægja betur þörfum þeirra. Ef menn fá að eiga eitthvað sjálfír, þá verður það þeim hvatning til þess að rækta það, breyta því og bæta, svo að þeir geti að lokum selt það á sem hæstu verði. í skipu-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.