Morgunblaðið - 23.04.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
Ungfrú Akureyri
’86 krýnd í kvöld
Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Þær keppa í kvöld um titilinn Ungfrú Akureyri. Frá vinstri: Helga Björg Jónasdóttir, Sólveig Guð-
mundsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Helga Margrét Bjartsdóttir, Kristin Sveinsdóttir og Gígja Birgis-
dóttir.
Rýrir hásetahlut á
ákveðnum frystitog-
ara um 124.000 kr.
UNGFRÚ Akureyri verður
kjörin og krýnd í kvöld i
Sjallanum. Sex stúlkur keppa
um titilinn og hlýtur sigur-
vegarinn m.a. að launum þátt-
tökurétt í keppninni um
Ungfrú ísland sem haldin
Um 800.000
krónur í boði
fyrir fálkaunga
Mennatmálaráðuneytinu hefur
borist beiðni um sölu á fimm ís-
lenskum fálkum, en hér er um
að ræða beiðni frá rannsóknar-
stofnun í eigu eins kunnasta olíu-
fursta í Dubai. Boðnir eru 20.000
dollarar fyrir fálkann, fjórar til
fimm milljónir króna, fyrir fimm
fugla.
Runólfur Þórarinsson hjá
menntamálaráðuneytinu kvað mál-
inu hafa verið vísað til fuglafriðun-
amefndar sem er á móti því á þessu
stigi málsins, en hefur þó ákveðið
að afla upplýsinga um það.
Ævar Petersen fuglafræðingur
sagði í samtali við Morgunblaðið
að í þessum heimshluta arabaríkj-
anna væri það mikið stöðutákn að
eiga fálka til veiða og íslenskir fálk-
ar og grænlenskir væru sérlega
eftirsóknarverðir. Ævar sagði að
allar nágrannaþjóðir íslendinga
legðu nú mikið kapp á að stemma
stigu við sölu á ránfuglum frá við-
komandi Iöndum. Hugmyndir hafa
verið uppi um sölu á íslenskum fálk-
um, meðal annars frá Ólafi Karli
Nielsen, sem vinnur nú í Bandaríkj-
unum að doktorsritgerð um fálka,
en hugmynd hans var að selja u.þ.b.
§óra fálkaunga á ári til þess að
fjármagna rannsóknir á fálkastofn-
inum og eftirlit með honum.
verður í Broadway í lok maí.
Það eru Ferðaskrifstofa
Akureyrar, Verslunin Perfect,
Dansstúdíó Alice, Sjallinn og
Fegurðarsamkeppni íslands
sem halda Fegurðarsamkeppni
Akureyrar 1986. Heiðursgestur
í kvöld verður Hrafnhildur
Hafberg, Ungfrú Akureyri
1985.
í dómnefnd eru Ólafur Lauf-
dal, sem er formaður nefndar-
innar, Alice Jóhanns, Friðþjófur
Helgason, Berglind Johansen
ungfrú ísland 1984 og Sigurður
Þ. Sigurðsson.
Dagskráin í Sjallanum hefst
kl. 19.30 með fordrykk en er
annars þannig: borðhald —
strengjasveit, sem sett var
saman sérstaklega í tilefni
kvöldsins, leikur undir borðum
— stúlkumar kynntar í sport-
fatnaði — New York New York,
frumsýning á dansi frá Dans-
stúdíó Alice — tískusýning:
sumarlínan frá versluninni
Perfect — stúlkumar kynntar í
kvöldkjólum — Úrslitin kynnt
- vinsælasta stúlkan kosin - ljós-
myndafyrirsætan kosin — ung-
frú Akureyri 1986 krýnd.
Ungfrú Akureyri 1986 hlýtur
í sigurlaun þátttökurétt í Úng-
frú ísland-keppninni eins og
áður segir en auk þess fataút-
tekt frá versluninni Perfect að
upphæð 5.000 krónur, ferða-
ávísun frá Ferðaskrifstofu
Akureyrar að upphæð 20.000
krónur, ullarjakka úr útflutn-
ingslínu ullariðnaðar fyrir
heimsmarkaðinn 1986 frá Iðn-
aðardeild SÍS og ljósatíma frá
Dansstúdíói Alice.
NOKKUR sjómanna- og verka-
lýðsfélög og samtök sjómanna
hafa sent útgerðarmönnum
frystitogara og formanna sjávar-
útvegsnefnda Alþingis bréf, þar
sem vakin er athygli á tekjurým-
un sjómanna á frystitogurum,
sem felst i frumvarpi um ein-
földun sjóðakerfisins. Er þar
bent á að tekjutap háseta vegna
þessa á ákveðnum togara sé
124.000 krónur miðað við afla-
verðmæti síðasta árs.
í bréfi til útgerða frystitogaranna
frá Farmanna- og fiskimannasam-
bandi íslands og Sjómannasam-
bandi íslands, segir að til þess að
greiða fyrir einföldun sjóðakerfis
sjávarútvegsins sé gert ráð fyrir
að skiptaverðmæti á frystitogurum
á botnfískveiðum eingöngu verði
ákveðið 70% af af fob-verðmæti.
Fyrir gildistöku laganna sé þetta
hlutfall 72,25% auk þess, sem
greiddar séu verðbætur á afla þess-
ara skipa, sem koma til skipta. Með
breytingunni sé því ljóst að tekjur
sjómanna á þessum skipum lækki
verulega. Á hinn bóginn sé ljóst að
útgerðin haldi sínu. Með þetta í
huga fari SSÍ og FFSÍ fram á það
við útgerðir þessara skipa að þær
hækki álag á aflahlut sjómanna í
13,5% á skipum undir 500 brúttó-
lestum og í 12,5% á stærri skipum
til að þeir haldi óskertum hlut eftir
einföldun sjóðakerfísins.
í bréfí til formanna sjávarútvegs-
nefnda Alþingis frá nokkrum verka
lýðs- og sjómannafélögum segir að
tap sjómanna á frystitogurum nemi
5,6 til 5,8% miðað við núverandi
verðbætur, en séu þær undanskildar
nemi tekjutapið 3,43%. Sé tekið
þekkt aflaverðmæti ársins 1985 af
ákveðnum frystitogara, sem ein-
göngu veiði bolfísk, komi í ljós að
tekjutap ársins á hásetahlut hefði
numið 124.000 króna. Sjávarút-
vegsnefndir þingsins hafa ákveðið
að leggja ekki til breytingu á frum-
varpinu enda hafí formenn FFSÍ
og SSÍ áður samþykkt frumvarpið
eins og það var lagt fram.
Enn berast
umsóknir um
skólastj órastöðu
TVÆR umsóknir hafa borist um
stöðu skólastjóra Grandaskóla til
viðbótar þeim sex sem lagðar
voru fyrir fund Fræðsluráðs á
mánudaginn.
Umsóknimar tvær eru frá Elínu
K. Thorarensen kennara og Ólöfu
S. Rafnsdóttur kennara. Umsóknir
þessar höfðu verið sendar fyrir til-
settan tíma, en bárust ekki
Fræðsluráði fyrir fundinn.
Að sögn Ragnars Júlíussonar
formanns Fræðsluráðs er stefnt að
því að fjalla um þrettán umsóknir
sem borist hafa um stöður skóla-
stjóra í Grandaskóla og Selásskóla
á fundi Fræðsluráðs mánudaginn
28. apríl.
Greinargerð til borgarstjóra:
Blaðamenn eiga ekki
erindi við slasaða
Hér fer á eftir greinargerð
frá yfirlækni svæfinga- og
gjörgæsludeildar Borgarspítal-
ans, sem lögð var fram á fundi
borgarráðs í gær. Greinargerð
þessi var samin að beiðni fram-
kvæmdastjóra Borgarspítalans
vegna gagnrýni sem fram kom
á fundi borgarráðs vegna birt-
ingar viðtals í Morgunblaðinu
við annan þeirra, sem komst lífs
af í flugslysinu í Ljósufjöllum:
„Hr. borgarstjori,
Davíð Oddsson.
Eftirfarandi greinargerð er rit-
uð að beiðni framkvæmdastjóra
Borgarspítalans, Jóhannesar
Pálmasonar, til að svara gagnrýni
á gjörgæsludeild Borgarspítalans,
sem fram kom á fundi borgarráðs
þ. 15/4 ’86 frá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarfulltrúa.
Gjörgæsludeild Borgarspítal-
ans hóf starfsemi sína 24. okt.
1970 og hefur því starfað í 15 V2
ár. Allan þann tíma hefur tekist
að halda blaðamönnum frá sjúkl-
ingum deildarinnar, þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir þeirra. Það hafa
verið óskrifuð lög innan deildar-
innar að leyfa ekki blaða- eða
fréttamönnum að hafa viðtöl við
sjúklinga eða taka af þeim myndir
á meðan þeir vistast á deildinni.
í sumum tilfellum, einkum eftir
alvarleg slys, sem þylq’a frétt-
næm, hefur starfsfólk deildarinn-
ar átt fullt í fangi með að veijast
ágangi þeirra. Starfsfólkið hefur
verið varað við því að gefa upplýs-
ingar til fjölmiðla varðandi sjúkl-
ingana, en bent á að vísa þeim
til viðkomandi sérfræðings, sem
annast sjúklinginn.
í þessu tilfelli urðu þau leiðu
mistök að einn af aðstoðarlækn-
um deildarinnar leyfði blaða-
mönnum frá Morgunblaðinu að-
gang að deildinni að kvöldi til, án
þess að bera það undir yfírlækni
deildarinnar eða vakthafandi sér-
fræðing.
Nánari frásögn af því, sem
fram fór umrætt kvöld, þriðjudag-
inn 8. aprfl sl., er höfð eftir hjúkr-
unarfræðingi, sem hjúkraði sjúkl-
ingnum þetta kvöld og vakthaf-
andi aðstoðarlækni á svæfinga-
og gjörgæsludeild.
• Blaðamaður frá Morgunblaðinu
hringir um kl. 19.00 á deildina
0g talar við nefndan hjúkrunar-
fræðing og biður leyfís að fá að
koma og tala við sjúklinginn,
Pálmar S. Gunnarsson, sem hafði
lent í flugslysi í LjósuQöllum þ.
5. þ.m. Hjúkrunarfræðingur svar-
ar því til að blaðaviðtöl við sjúkl-
inga á þessari deild séu ekki ieyfð
og vísar því frá sér til vakthafandi
aðstoðarlæknis. Nokkru síðar var
aftur hring frá blaðinu, sömu
erinda, og töluðu þeir þá við
aðstoðarlækninn, sem segist hafa
neitað beiðni þeirra, fyrst í stað,
en síðan farið og borið þetta undir
sjúklinginn sjálfan og hafí hann
eindregið óskað eftir viðtalinu.
Bróðir sjúklingsins var á þeirri
stundu í heimsókn við sjúkra-
beðinn, en lagði ekkert til mál-
anna. Aðstoðarlæknirinn gaf þá
leyfi til viðtalsins, að eigin frum-
kvæði. Þennan sama dag hafði
fréttamaður frá sjónvarpi hringt
og óskað eftir viðtali við sama
sjúkling, en því verið hafnað.
Það var mér mikið áfall að sjá
þetta viðtal á forsíðu Morgun-
blaðsins, í æsifréttastfl, að morgni
miðvikudagsins 9. aprfl sl. og
harma ég það mjög að sfld skyldi
koma fyrir.
Þetta voru mistök, sem hefðu
ekki átt að koma fyrir, en gerðust
samt, og hvemig að fréttinni var
staðið af hendi blaðamanna Morg-
unblaðsins sannar það glögglega,
að blaðamenn eiga ekkert erindi
við sjúklinga, sem hafa lent í
alvarlegum slysum, hvort sem
þeir liggja á þessari deild eða
öðrum deildum spítalans.
Virðingarfyllst,
Þorbjörg Magnúsdóttir
yfirlæknir svæfinga- og
gjörgæsludeildar Bsp.“
Aths. ritstj.:
Vegna greinargerðar þeirrar,
sem hér er birt, vill Morgunblaðið
taka fram eftirfarandi:
1. Greinargerð yfírlæknis svæf-
inga- og gjörgæsludeildar
staðfestir að Morgunblaðið
hafði heimild ábyrgs starfs-
manns deildarinnar til þess að
taka umrætt viðtal.
2. Greinargerðin staðfestir, að
sjúklingurinn sjálfur sam-
þykkti að veita viðtalið.
3. I siðareglum Læknafélags ís-
lands eru ákvæði um samskipti
læknis og sjúklings og þar
segir svo: „Þess skal ávallt
gætt og ef með þarf skal sjúkl-
ingi gert það ljóst, að læknir
ráðleggur, en skipar ekki.“
Skv. þessu er ljóst, að vilji
sjúklings sjálfs hlýtur að ráða
í þessum efnum, enda ekki
hægt að svipta sjúka menn
mannréttindum, þótt þeir liggi
í sjúkrahúsi.
4. Sú athugasemd Þorbjargar
Magnúsdóttur, að viðtal þetta
hafí verið í „æsifréttastiT er
órökstudd og tilefnislaus.
Hið sama á við um athuga-
semdir yfírlæknisins um það
„hvemig að fréttinni var staðið
af hendi blaðamanns Morgun-
blaðsins".