Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986
19
með að byggja nýtt íbúðarhúsnæði
langt umfram það sem æskilegt er.
Munurinn á lánafyrirgreiðslunni
til nýbygginga og kaupa á eldra
húsnæði er það mikill.
Hvað er til ráða?
1. Lánsrétt ber skilyrðislaust að
miða við einstaklinginn þannig
að tveir einstaklingar hafi að
öðru óbreyttu, hvort sem þeir
eru í sambúð eða ekki, tvöfaldan
rétt á við einn.
Þannig mætti hugsa sér að
sameiginlegur hámarksréttur
hjóna væri kr. 2.100 þús., en
einstaklings kr. 1.050 þús.
2. Aðalreglan á að vera sú að hver
og einn hafi aðeins rétt á láni
einu sinni. Til að tryggja þá
framkvæmd mætti hugsa sér að
skilyrði fyrir lánveitingu væri,
að viðkomandi ætti ekki íbúð og
hefði ekki átt umtalsverðan hlut
í íbúð sl. fimm ár.
3. til að auðvelda mönnum að
skipta um húsnæði (til að losa
veð og til að fá hærri útborgun
við sölu) og til að tryggja að
lánsréttur manna verði ekki
misnotaður, þ.e. verði ekki
„verslunarvara", eiga lán að
fylgja lántaka en ekki íbúð, sbr.
það sem almennt gildir um líf-
eyrissjóðslán í dag.
Ég leyfí mér að fullyrða að aðeins
á grundvelli framangreindra hug-
mynda er hægt að finna varanlega
og vitræna lausn á fjármögnunar-
vanda þeirra, sem eru að eignast
sína fyrstu íbúð, sbr. markmiðið
með samkomulagi aðila vinnumark-
aðarins frá þvf í febrúar.
Þetta eru ekki mínar hugmyndir
og þær eru ekki nýjar. Þær hafa
meðal annars verið ræddar í milli-
þinganefnd um húsnæðismál, sem
í eiga sæti fulltrúar þingflokkanna.
Þær eru hins vegar ekki það gamlar
að tími hafi unnist til að útfæra þær.
Vegna þess hve stutt er til þing-
lausna og hve hér er um stórt og
alvarlegt mál að ræða, skora ég á
þingmenn að fresta afgreiðslu
frumvarpsins til næsta þings.
Höfundur er
Verslunarráði Islands.
Hvolsvöllur:
Listi
sjálf-
stæðis-
manna og
annarra
frjáls-
lyndra
Hvolsvelli.
I-LISTI, listi sjálfstæðis-
manna og annarra frjáls-
lyndra í sveitarstjórnarkosn-
ingum í Hvolhreppi (dreif-
býli), Hvolsvelli 31. maí næst-
komandi hefur verið skipað-
ur.
Listann skipa: 1. Tryggvi
Ingólfsson, verktaki, 2. Ingi-
björg Þorgilsdóttir, húsmóðir,
3. Aðalbjöm Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri, 4. Guðfinnur
Guðmannsson, byggingameist-
ari, 5. Helgi Hermannsson,
kennari, 6. Stefán Kjartansson,
héraðsstjóri, 7. Benedikta Stein-
grímsdóttir, húsmóðir, 8. Guð-
mundur Magnússon, bóndi, 9.
Óskar Pálsson, húsasmiður, 10.
Ólöf Kristófersdóttir, húsmóðir.
I-listinn á tvo fulltrúa í núver-
andi sveitarstjóm, þau Aðal-
bjöm Kjartansson og Ingibjörgu
Þorgilsdóttur.
Gils
Skíðadeild Ármanns 50 ára
í ár minnist skíðadeild Ár-
manns 50 ára afmælis sins,
en aldur hennar miðast gjarn-
an við árið 1936 er á Jóns-
messunni var lagður horn-
steinn að skiðaskála Armanns
í Jósefsdal. í tilefni afmælis-
ins verður haldin veisla að
Hótel Sögu 30. april nk.
Landnám Armenninga í Jós-
efsdal hafði raunar byijað árið
1932 þegar þeir fyrst völdu Jós-
efsdal og Bláfjöllin sem sitt
skíðaland, segir í tilkynningu
frá skíðadeildinni. Fyrsti skáli
þeirra Armenninga brann árið
1942 og sá næsti fauk áður en
byggingu hans lauk. Armenn-
ingar gáfust ekki upp og hófu
smíði á stærri og vandaðri skála
vorið 1943. Jósefsdalurinn var
mjög svo snjóléttur á árunum
1960-70 sem gerði mönnum
erfítt fyrir að stunda íþrótt sína
og fluttu þeir sig þá vestar í
Bláfjöllunum, í Kóngsgil. Þar
hafa Ármenningar byggt upp
aðstöðu sína og starfrækja þar
tvær skíðalyftur og hafa komið
upp aðstöðu til mótahalds. Nú-
verandi 'Wrrnaður skíðadeildar
Ármanns er Ómar Kristjánsson,
endurskoðandi.
Allir félagar í skíðadeild Ár-
manns eru velkomnir á afmælis-
fagnaðinn. Aðgöngumiðar fást
hjá Halldóri Sigfússyni, rakara,
og í versluninni Útilífí.
*
•SÁÍ
Við bjóðum 1440 utanlandsferðir á
40.OOOkr.hverja,eða 120 utanlands-
____J n __ ferðir á mánuði.
aoe
tlAPPDRÆTTI
^l^rhpimílic alrlraára cinmnnna V
HAPPDRÆTTI
Dvalarheimilis aldradra sjómanna