Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
Reagan telur Gorba-
chev vilja toppfund
þrátt fyrir „hálfreiðilegar yfirlýsingar“
Wanhington. AP.
RONALI) Reagan Bandaríkja-
forseti sagði á mánudag, að hann
hefði trú á, að Mikhail Gorbachev
Sovétleiðtogi hefði enn áhuga á
að eiga fund með honum á þessu
ári þrátt fyrir yfirlýsingar um
hið gagnstæða.
Gorbachev sagði í Austur-Þýska-
landi á mánudag, að Sovétmenn
væru „reiðubúnir til að eiga fund
með Bandaríkjamönnum, svo fram-
arlega sem andrúmsloft á alþjóða-
vettvangi leyfír og grundvöllur er
fyrir árangri í viðræðum um af-
vopnun".
Reagan svaraði þessum athuga-
semdum í fréttaviðtölum á mánu-
dag: „Ég held, að í þessum hálfreiði-
legu yfirlýsingum Gorbachevs, sé
ekkert það að fínna, sem gefí tilefni
til að halda, að hann vilji hætta við
Gengismál
London. AP.
GENGI Bandaríkjadollars féll
enn i gær og hefur það ekki
verið lægra í fjögur ár gagn-
vart vestur-þýsku marki,
svissneskum franka og hol-
lensku gyllini. Gagnvart jap-
anska jeninu hefur gengi
dollarans ekki verið minna
frá striðslokum.
Gjaldeyriskaupmenn segja,
að slæmar fréttir af bandarísku
efnahagslífí og vaxtalækkunin í
fyrradag hafí valdið mestu um
gengisfall dollarans. í marsmán-
uði minnkaði eftirspum eftir
endingargóðum vömm um 2,5%
og venjulegir bankavextir vora
lækkaðir um hálft prósentustig,
úr 9% í 8,5%. Japanski seðla-
bankinn hefur reynt að halda
aftur af falii dollarans með
miklum dollarakaupum en þau
hafa komið fyrir ekki. Búist er
við, að dollarinn hækki nokkuð
þegar innflytjendur í Japan taka
til við að kaupa dollara en þeir
halda þó enn að sér höndum í
von um, að dollarinn lækki frek-
ar. Þegar kauphallarviðskiptum
lauk i gærkvöld fengust 169,35
jen fyrir dollarann en 171,90 í
fyrrakvöld. Breska pundið
hækkaði aðeins í verði og feng-
ust í gær 1,5125 dollarar fyrir
það en 1,5120 í fyrrakvöld.
Gengi dollarans gagnvart
öðram gjaldmiðlum var þetta:
2,1900 vestur-þýsk mörk
(2,2115); 1,8335 svissneskir
frankar (1,8523); 6,9875
franskir frankar (7,0575);
2,4710 hollensk gyllini (2,4960);
1.503,00 ítalskar lírar
(1.516,25); 1,3880 kanadískir
dollarar (1,3865).
í London hækkaði verð á
gulli í 345,60 dollara únsan, var
341,50 deginum áður.
áætlaðan leiðtogafund," sagði Re-
agan. „Ég held meira að segja, að
hann hafí fremur á vissan hátt gefið
til kynna í nýjustu yfirlýsingum sín-
um, að hann vildi, að af fundinum
yrði."
Reagan hefur ákveðið að láta rífa
tvo bandaríska kjamorkukafbáta til
þess að takmarkanir Salt II sam-
komulags stórveldanna séu haldn-
ar. Hins vegar hefur hann einnig í
hyggju að hraða framleiðsluáætlun-
um um önnur vopn, sem ekki er
getið í samkomulaginu, að því er
embættismenn í Washington sögðu
á mánudag.
Einn embættismannanna sagði,
að forsetinn hefði einnig talið, að
það væri „hagkvæmt frá hemaðar-
legu sjónarmiði" að fara út fyrir
takmarkanir samkomulagsins, þeg-
ar ný kjamorkuvopn yrðu fáanleg
í árslok.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í Moskvu í gær,
að Sovétstjómin „hefði til athugun-
ar“ áætlun Bandaríkjastjómar um
að láta rífa kjamorkukafbátana tvo.
AP/Símamynd
Sulfiah, eiginkona Moammars Khadafys, ávarpar blaðamenn fyrir utan rústir heimilis síns í Trípolí.
Fyrir aftan hana standa synir Khadafy-hjónanna, Sadiq, þrettán ára (t.v.), og Seph Al-Salim, fjórtán
ára. Al-Salim er með höndina i fatla.
„Ef ég finn fliigmanninn
þá drep ég hann sjálf “
— segir eiginkona Moammars Khadafys
Belgrad. AP.
„EF ÉG einhvem tima finn bandaríska flugmanninn, sem varpaði
sprengju á hús mitt, þá drep ég hann sjálf,“ sagði Sulifa Khadafy,
eiginkona Moammars Khadafys, Líbýuleiðtoga, og strauk tár af
hvarmi sínum þar sem hún studdist við hækju fyrir utan rústir
heimilis síns. Khadafy neitaði í viðtali við sjónvarpið í Sarajevo í
Júgoslavíu á mánudag að Líbýa kynti undir hryðjuverkastarfsemi
og sór að baráttunni gegn Bandaríkjamönnum yrði haldið áfram
af auknum krafti.
„Heimurinn getur barist gegn
heimsvaldastefnu Bandaríkja-
manna með því að standa saman.
Aðeins þannig getur friður og rétt-
læti ríkt í heiminum," sagði Khad-
afy.
„í Líbýu er hvorki ógnarstjóm,
né hryðjuverkastarfsemi. Líbýu-
menn munu halda áfram baráttunni
gegn Bandaríkjamönnum af aukn-
um krafti þar til því stigi er náð
að semja megi við Bandaríkjamenn
á jafnréttisgrandvelli og þeim
komið í skilning um að heimurinn
var ekki skapaður fyrir þá eina,“
sagði Khadafí.
Sulifa Khadafy sat ásamt sonum
sínum Sadiq og Sephal Al-Salim
fyrir framan blaðamenn og álasaði
bæði Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta, fyrir
árásina á Líbýu 15. apríl.
Blaðamennimir vora fluttir í
langferðabflum að rústum heimilis
Khadafy hjónanna. Frú Khadafy
talaði á arabísku og var túlkur
viðstaddur til að þýða mál hennar
á ensku. Embættismenn fóra með
annan hóp blaðamanna til Bengh-
azi, um 1930 km. leið í austur frá
Trípolí, til að skoða skemmdir eftir
árásina.
Frú Khadafy sagði að heimurinn
gerði sér rangar hugmyndir um
mann hennar. Bandaríkjastjóm
hefur til að mynda lýst yfír Khadafy
sem hinum óða hundi miðaustur-
landa svo að eitthvað sé nefnt.
„Ef ég héldi að hann væri hryðju-
verkamaður myndi ég ekki búa með
honum og eignast með honum
böm,“ sagði Sulfiah Khadafy og
bætti við: „Ef Bandaríkjamenn og
Bretar era fijálsir og lifa í réttlátu
þjóðfélagi verða Reagan og Thatch-
er dregin fyrir rétt. Khadafy er
manneskja og hann hefur ættleitt
munaðarlaus böm.“
Vestrænir menn jTfir-
gefa Vestur-Beirút
Beirút. AP.
TUGIR Evrópu- og Bandaríkja-
manna yfirgáfu vesturhluta
Beirút í gær af ótta við hryðju-
verk arabískra hryðjuverka-
manna í kjölfar loftárásarinnar
á Líbýu.
Hermenn drúsa fylgdu fólkinu að
Leggst löggæslan
niður í Finnlandi?
Helsinki. AP.
LÖGREGLUMENN, sem fylgj-
ast með ferðalöngum frá öðr-
um löndum en Norðurlöndum,
fóru í gær í 16 stunda verkfall
til að knýja á um kröfur ríkis-
starfsmanna.
Engin lausn virðist vera í sjón-
máli í verkfalli ríkisstarfsmanna
í Finnlandi. 2. apríl Iögðu 15.000
manns niður vinnu og fyrir viku
bættust við aðrar 27 þúsundir
þannig að nú era verkfailsmenn
42.000 talsins. Hefur vinnustöðv-
unin bitnað mest á samgöngum,
flugi og lestarferðum, og einnig
stöðvað póstsendingar til og frá
Iandinu. Búist var við, að verkfall
lögreglumanna við vegabréfaeft-
irlit ylli ferðamönnum öðrum en
Norðurlandabúum allt að níu
stunda töf.
Yfirstjóm jámbrautanna, sem
era í eigu ríkisins, ákvað í gær
að heíja aftur takmarkaða flutn-
inga á fólki til og frá vinnu á
höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir
verkfallið og fínnska flugráðið fór
að dæmi hennar. Umferð um
aðaljámbrautastöðina í Helsinki
og flugvöllinn þar var þó aðeins
Qórðungur af því, sem venjulega
er. Flugvélar, sem koma frá út-
löndum, verða að lenda í Turku
eða Tampere, en þaðan er tveggja
stunda ferð með áætlunarbfl til
höfuðborgarinnar.
„Aðgerðir þessara ríkisfyrir-
tækja munu aðeins verða til að
stappa í okkur stálinu," sagði
Suvi Veramo, talsmaður ríkis-
starfsmanna, „og ef ríkisvaldið
þverskallast við að ræða við okkur
munum við láta lögreglumenn og
landamæraverði leggja niður
vinnu.“
Engar viðræður era á döfínni
milli ríkisins og starfsmanna þess
en margir binda vonir við, að um
mánaðamótin komist hreyfíng á
málin.
grænu línunni og var gert hlé á
átökum kristinna mann og múham-
eðstrúar í klukkustund. Margir
hinna brottfluttu era starfsmenn
amerísku og frönsku háskólanna í
Beirút. Hermt er að fólkið muni
halda til í austurhluta Beirút, á
svæði kristinna manna, og ekki
yfirgefa borgina. Bandarísk her-
þyrla sást hins vegar lenda í Aust-
ur-Beirút skömmu eftir komu
flóttafólksins þangað, en óljóst er
hvort einhveijir hafí verið fluttir
um borð í bandarísk herskip undan
ströndinni.
Áð sögn bandarísks sendimanns
era fjölmargir Bandaríkjamenn
eftir í vesturhluta Beirút. Sumir
þeirra era fæddir í Líbanon og með
tvö ríkisföng en ýmsir neituðu að
verða við tilmælum við að yfirgefa
borgarhlutann.
Á sunnudag voru 32 Bretar flutt-
ir frá Beirút af sömu ástæðu og
fólkið yfírgaf borgina í gær. Fjöldi
manna af ýmsu þjóðemi fór þaðan
á mánudag, meðal þeirra tveir
norskir sendifulltrúar, sem héldu til
Damaskus.
Bangladesh:
Sex hundruð manna
saknað eftir ferjuslys
Dhaka. AP.
EMBÆTTISMENN í Bangladesh
sögðu á þriðjudag að leitarmenn
hefðu náð líkamsleifum 147
manna úr fljótabátnum, sem
hvolfdi í óveðri aðfaranótt
sunnudags. Óháða dagblaðið
Sangbad sagði að 600 manna
væri enn saknað.
Feijunni hvolfdi á Dhaleswari
fljóti nærri Mushiganj um 16 km.
suður af Dhaka.
Starfsmenn á slysavarðstofunni
í Mushiganj sögðu að á mánudag
hefði tekist að ná líkum 125 manna
úr kili skipsins og einnig hefðu lík
fundist á floti í ánni. Vitað er um
þijátíu og sjö böm, sem fórast er
feijan sökk.
Sjónarvottar og þeir, sem komust
af, segja að verið geti að rúmlega
þúsund manns séu enn ófundnir.