Morgunblaðið - 23.04.1986, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.04.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986 29 V opnasöluhring- ur afhjúpaður New York. AP. BANDARÍSKIR embættismenn sögðu í gær, að komist hefði upp um hóp manna, sem ætluðu að selja írönum flugvélar og vopn fyrir hálfan þriðja millj- arð dollara. Embættismennimir sögðu, að í vopnasöluhringnum hefðu verið 17 menn og hefðu þeir ætlað að smygla úr landi og selja írönum F-4- og F-5-orrustuþotur, flug- skeyti af Python- og Tow-gerð og Skyhawk-flugvélar og -þyrlur auk ýmissa vopna annarra. Janet Rap- aport, talsmaður bandarísku toll- gæslunnar, sagði, að aldrei fyrr hefði komist upp um jafn stórkost- legt ráðabrugg um ólöglega vopna- sölu. Panama miðstöð fíkniefnaviðskipta Washingtou. AP. EIN helsta miðstöð eiturlyfja- smyglara til að koma eiturlyfja- gróða í umferð er um þessar mundir i Panama. Þarlend yfir- völd eru treg til að láta til skarar skríða gegn þeim á eiturlyfja- smyglurum og -sölum af ótta við að það skaði bankaviðskipti, sem eru í miklum blóma í Panama. Þetta er haft eftir starfsmönnum Bandaríkjastjórnar. Raymond J. McKinnon, aðstoðar- yfirmaður fíkniefnalögreglu Banda- ríkjanna, segir að eiturlyfjagróðinn, sem fari gegn um banka í Panama, nemi um 600 milljónum dollara ár- lega. Elliott Abrams, aðstoðarutan- ríkisráðherra um málefni rómönsku Ameríku, sagði að þetta væri mikið áhyggjuefni, en lét þess jafnframt getið að Panamastjóm hefði starfað með Bandaríkjamönnum við að stemma stigu við fíkniefnasmygli og eyða marijuana-ökrum. Embættismennimir báru vitni fyrir undimefnd Bandaríkjaþings um utanríkismál á mánudag. Abrams sagði að um 125 bankar væra í Panama, flestir útibú banda- rískra, japanskra, kanadískra og evrópskra banka. McKinnon sagði að stærstu eitur- lyfjahringimir gerðu samninga og smygluðu í auknum mæli um Pan- ama. Þar væri þetta hægt í skjóli löglegra vöraflutninga um landið og alþjóðleg fyrirtæki væra einnig skálkaskjól smyglaranna. AP/Símamynd Fjársjóðurinn var ein flaska Leynihvelfing A1 Capones, einhvers nafntogaðasta glæpamanns í Bandaríkjunum, var opnuð sl. mánu- dagskvöld og var sjónvarpað frá því um Bandaríkin og níu önnur lönd. Bjuggust sumir við að í hvelfing- unni, sem er undir Lexington-hótelinu í Chicago, fyndist eitthvert brot af þeim ólöglega auði, sem Capone komst yfir um dagana, og því urðu vonbrigðin mikil þegar í ljós kom, að þar var ekkert að hafa nema eina áfengisflösku. A myndinni sést þegar verið var að ryðja úr vegi síðustu hindranunum að hvelfingunni. Bandaríkin: Tilraunasprenging í Nevada-eyðimörk Las Vegas, Bandaríkjunum. AP. KJARNORKUSPRENGJA var í gærmorgun sprengd i tilrauna- skyni í Nevada-eyðimörkinni í Bandarikjunum. Nokkur hópur Veður víða um heim Laoit Hæ.t Akureyri 4 skýjað Amaterdam 4 12 skýjaö Aþena 9 23 haiöaklrt Barcelona 19 skýjað BerKn 10 16 rlgnlng Bruaael 4 11 skýjað Chicago 2 S halðakfrt Dubifn 5 10 heiðskfrt Feneyjar vantar Frankfurt 7 13 rtgnlng Ganf 7 18 skýjað Halalnki 2 4 rignlng HongKong 20 23 skýjað Jeruaalem vantar Kaupmannah. 4 11 rlgning Laa Palmaa vantar Uaaabon 9 15 rlgnlng London 4 11 skýjað Loa Angalaa 19 31 tkýjað Lúxamborg 8 akýjað Malaga 19 akýjað Mallorca 18 léttskýjað Miami 22 27 haiðakfrt Montreal 9 14 rlgnlng Moakva 7 11 tkýjað NewYork 11 17 heiðakfrt Oaló +1 2 anjókoma Paría 6 14 akýjað Paking 7 23 halðskfrt Reykjavík 7 þokum. Ríó de Janeiro 16 32 akýjað Rómaborg 4 18 heiðakfrt Stokkhólmur +1 9 skýjað Sydnay 13 26 helðskfrt Tókýó 14 17 akýjað Vfnarborg 2 10 akýjað Þórshöfn 7 léttskýjað kjarnorkuvopnaandstæðinga hélt því fram, að þeir hefðu komist óséðir inn á tilraunasvæð- ið. Sprengikrafturinn jafnaðist á við 150.000 tonn af TNT, nærri 12 sinnum öflugri en sprengja, sem eyddi Hiroshima. Sprakk sprengjan rúma 600 metra undir yfirborðinu. Steve Rohl, talsmaður grænfrið- unga, sagði, að menn úr samtökun- um hefðu nóttina áður faríð inn á bannsvæðið en Chris West, tals- maður bandaríska orkumálaráðu- neytisins, bar á móti því og sagði, að engir hefðu komist nálægt sprengistaðnum. Tilgangurinn með þessari sprengingu og öðram að undan- fomu er að prófa ný tæki, sem nota á til að fylgjast með kjamorku- sprengingum. Kallast þau eða þetta kerfi Corrtex og hefur Reagan, Bandaríkjaforseti, boðið Sovét- mönnum að fylgjast með tilraunun- um og áreiðanleika Corrtex-kerfis- ins. Því boði hafa þeir látið ósvarað. Sovétríkin: Gromyko í sjúkrahúsi Moskvu. AP. ANDREI A. Gromyko, forseti Sovétríkjanna, sem sagður er hafa lagst inn á spítala í síðustu viku, mætti ekki á mikilvægan fund hjá kommúnistaflokknum i gær. Fund þennan sækja venju- lega allir þeir, sem sæti eiga i stjórnmálaráðinu og búa í Moskvu. Gromyko var einnig sá eini, sem vantaði í þennan hóp, þegar tekið var á móti Gorbachev á Moskvu- flugvelli, er hann kom heim frá flokksþinginu í Austur-Berlín. ZdttoM* Veldu þér SANYO bíl- tæki og JENSEN hátal- ara í bílinn. Því þú hlustar hvergi meira á útvarp en í bílnum. Athugaðu það. ÖNNUMST ÍSETNINGAR SAMDÆGURS Gunnar Ásgeirsson hf. SuðurianasDraur 16 Simi 91 35200
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.