Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ; MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
35
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Oskað frekari
aðstoðar við afg-
anskt flóttafólk
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá vinstri: Skúli Möller formaður karlakórs Fóstbræðra, Finnbogi Alexanderson ritari, Eiríkur Tryggva-
son varaformaður og Guðni Guðmundsson formaður gamalla Fóstbræðra.
Karlakórinn Fóstbræður 70 ára:
Afmælistónleikar á
morgun og laugardag
í LANDSSÖFNUN Hjálparstofn-
unar kirkjunnar um síðustu jól
var m.a. safnað til aðstoðar afg-
önsku flóttafólki. Eins og kunn-
ugt er af fréttum síðustu vikna
hafa stríðsátökin í Afganistan
harðnað mjög. Staumur flótta-
fólks hefur stöðugt aukist í vet-
ur, bæði vegna harðnandi
stríðsátaka og þá hefur veðurfar
í Afganistan verið slæmt, miklir
þurrkar ásamt frosthörkum.
Straumur flóttamanna er lang-
mestur til Pakistan, en þar hafa
tugir þúsunda nýrra flóttamanna
safnast saman í vetur, og nú er
talið að í Pakistan bíði 150 þús-
und nýir flóttamenn í bráða-
birgðabúðum án skráningar við
skort og harðræði. Talið er að
allt að 3 milljónir afganskra
flóttamanna dvelji nú í Pakistan
vegna striðsátakanna í Afganist-
an.
Biýn þörf er á auknu hjálpar-
starfi við afganska flóttafólkið.
Nokkuð hefur borið á að hjálpar-
stofnanir hafi neyðst til að draga úr
hjálparstarfínu vegna fjárskorts til
verkefna fyrir afganskt flóttafólk.
Þessar upplýsingar komu fram á
fundi hjálparstofnana kirkna, er
hafa á hendi hjálparstarf við afg-
anskt flóttafólk, sem haldinn var
fyrir skömmu í Uppsölum. Starfs-
fólk hjálparstarfsins á meðal af-
ganskra flóttafólksins lýsti yfír
miklum áhyggjum varðandi áfram-
hald starfsins ef ekki kæmi til aukið
fé. Þá kom einnig fram að ástandið
á meðal almennings innan Afgan-
istan væri hreint skelfilegt. Þar ríkti
Sauðanes-
prestakall
laust til
umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst
SauðnesprestakaU í Þingeyjar-
prófastsdæmi laust tíl umsóknar.
Séra Ingimar Ingimarsson settur
prestur hefur þjónað Sauðanes-
prestakalli að undanfomu. Tvær
sóknir tilheyra prestakallinu, Sval-
barðssókn og Sauðanessókn. Prest-
setur er á Þórshöfn.
Umsóknarfrestur er til 17. maí
næstkomandi. (Fríttatilkynningr)
neyðarástand. Mikil þörf væri á
öflugu hjálparstarfi innan Afganist-
an.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur
nú þegar lagt til aðstoðar afgönsku
flóttafólki um 3 milljónir króna. Á
fundinum í Uppsölum lýsti Hjálpar-
stofnunin því yfir að hún mundi
veija á fjórðu milljón króna til við-
bótar til hjálparverkefna við afg-
anskt flóttafólk. Þessir peningar
munu renna til verkefna á sviði
hjálpar við nýkomið flóttafólk til
Pakistan, heilbrigðisþjónustu í
flóttamannabúðum og einnig til
hjálparstarfs innan Afganistan, auk
þess að Hjálparstofnun kirkjunnar
tók að sér að fjármagna skóla og
heilbrigðisþjónustu afganskra
læknasamtaka, sem senda lækna
og hjúkrunarfólk inn í Afganistan.
Ráðstöfun íslenskra framlaga
mun fara fram í náinni samvinnu
Hjálparstofnunarinnar og hjálpar-
aðila á vettvangi.
Hjálparstofnunin leggur mikla
áherslu á að ísienska aðstoð megi
enn auka við afganska flóttafólkið.
Það ræðst af því, hvort um frekari
framlög til starfsins verði að ræða
hér innanlands.
Fréttatílkynning frá Hjálparntofnun kirlq-
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Biskupsstofu:
Vegna umsóknar sr. Cecils Har-
aldssonar um Laugalandsprestakall
og þá umfjöllun sem umsókn hans
hefur hlotið, vill Biskupsstofa taka
eftirfarandi fram:
Sr. Cecil skrifaði biskupi íslands
9. maí 1984 og leitaði upplýsinga
um möguleika hans til að sækja um
embætti hérlendis. Biskup tjáði sr.
Cecil í svarbréfi að hann gæti inn-
ritast í Guðfræðideild Háskóla ís-
lands og látið meta prófin sem tekin
hafa verið í Svíþjóð en bæta við
prófum í kirkjusögu íslands, kristni-
rétti og helgisiðafræði.
Biskup benti einnig á þann val-
kost að sr. Cecil sæki um laust
prestsembætti og ráðherra leggi
fram frumvarp til laga að hann
taki að sér embættið að undangeng-
inni kosningu.
Þá kynnti biskup starfsmanna-
frumvarp kirkjunnar, sem þá var í
mótun en þar er kveðið á um hvaða
viðbót þeir þurfa í námi til að verða
prestar á Islandi, sem lokið hafa
Karlakórinn Fóstbræður held-
ur tónleika á morgun, sumardag-
inn fyrsta, og aðra nk. laugardag
guðfræðiprófi erlendis og er hlið-
stæð því sem prestar héðan að
heiman þurfa að afla sér til þess
að verða prestar á hinum Norður-
löndum.
Þykir rétt að taka það fram að
sr. Cecil hefur fengið ofangreindar
upplýsingar fyrir nær 2 árum. Bisk-
up mælti með því við alþingismenn
að sérstakt lagaákvæði kæmi til
þess að hægt yrði að taka umsókn
sr. Cecils gilda.
Biskupsstofa væntir þess að
starfsmannafrumvarp kirkjunnar
fái greiða umfjöllun af hálfu Al-
þingis, svo að umsóknir guðfræð-
inga frá háskólum Norðurlanda fái
eðlilegan framgang héreftir.
í tilefni af 70 ára afmæli kórsins
á árinu. Báðir hefjast þeir kl.
15.00 i Háskólabíói. í tilefni af
þessum merku tímamótum í sögu
kórsins verða tónleikarnir með
nokkuð nýstárlegu sniði og er
þeim ætlað að sýna i hnotskurn
þá margvíslegu tónlistariðkun,
sem kórmenn hafa lagt stund á.
Efnisskrá tónleikanna verður
afar fjölbreytt, að sögn kórfélaga,
en auk hins starfandi kórs, mun
koma fram um 50 manna kór
gamalla Fóstbræðra, sem starfar
af mikilli grósku og kemur saman
einu sinni í mánuði til æfinga. Þá
koma „Fjórtán Fóstbræður" fram á
afmælistónleikunum, en nú eru liðin
23 ár síðan þeir komu fyrst fram
í útvarpsþáttum hjá Svavari Gests.
Svokallaðir „Átta Fóstbræður" ætla
líka að láta í sér heyra, en það er
tvöfaldur kvartett innan kórsins og
hafa þeir sungið á ýmsum samkom-
um sl. tvö ár.
Stjómandi kórsins er Ragnar
Bjömsson og stjómandi gamalla
Fóstbræðra er Jónas Ingimundar-
son. Eftirtaldir hljóðfæraleikarar
koma fram: Alfreð Álfreðsson, Ámi
Scheving, Grettir Bjömsson, Jónas
Ingimundarson, Jónas Þórir Jónas-
son, Kristján Stephensen, Magnús
Ingimarsson, Sigurður Markússon,
Kjartan Óskarsson og Joseph Ogni-
beni.
Starf Fóstbræðra á yfirstandandi
starfsári hefur verið mjög blómlegt
undanfarin ár, að sögn formanns
kórsins Skúla Möller. Sl. haust vom
haldnar haustskemmtanir fyrir
styrktarfélaga. Fyrir sl. jól gaf
Fálkinn út tvær hljómplötur með
söng kórsins undir stjóm Jónasar
Ingimundarsonar. í janúar tók kór-
inn þátt í tónleikahaldi á Suð-
Vesturlandi með íslensku hljóm-
sveitinni og í maíbyijun hyggst
kórinn leggja land undir fót til tón-
leikahalds um Norðurland.
Bændafundur á Patreksfirði:
Varar við takmörkun fram-
leiðslu á búmarkssvæðinu
Athugasemd frá Biskupsstofu
Tónlistarskóli Garðabæjar:
Burtfarartónleikar Ingi-
bjargar Guðjónsdóttur
TÓNLISTARSKÓLI Garðabæjar
heldur tónleika i Garðakirkju á
fimmtudag og föstudag.
Á fimmtudag, 24. apríl, kl. 17.00
syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir ljóð
og óperuaríur. Hún hefur stundað
nám við Tónlistarskóla Garðabæjar
undanfarin sex ár og em þessir
tónleikar liður f lokaprófí hennar
frá skólanum. Kennari hennar í
söngnámi er Snæbjörg Snæbjamar-
dóttir.
Ingibjörg hlaut 1. verðlaun í
Söngkeppni sjónvarpsins vorið
1985. Þau veittu henni rétt til þátt-
töku í alþjóðlegri keppni ungra
söngvara í Cardiff í fyrrasumar þar
sem frammistaða hennar vakti
athygli. Ingibjörg heldur utan til
Bandaríkjanna í haust til fram-
haldsnáms.
Föstudaginn 25. aprfl verða aðrir
vortónleikar Tónlistarskóla Garða-
bæjar. Þar verður leikið á píanó,
orgel, fiðlur, selló, gítar og flautur
og er eftiisskráin Qölbreytt. Þessir
tónleikar verða einnig í Garðakirkju
og hefjast þeir kl. 20.30.
Aðgangur að báðum tónleikunum
er ókeypis og er öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfír.
(Fréttatilkynning.)
• BÚNAÐARSAMBAND Vest-
fjarða boðaði til bændafundar í
félagsheimilinu á Patreksfirði
fyrir skömmu til að fjalla um
framleiðslustjórnun í landbún-
aði. Fundurinn samþykkti sam-
hljóða eftirfarandi ályktun:
„Almennur bændafundur haldinn
í féiagsheimilinu á Patreksfirði 7.
apríl varar við þeim takmörkunum
á búvöruframleiðslu sem boðaðar
eru hér á búmarkssvæðinu þar sem
bú eru öll það lítil að útilokað er
að lifa af þeim nema framleiðslu-
geta þeirra sé nýtt til fullnustu. Þá
kemur til frekari þörf vegna niður-
skurðar sauðfjár í Barðastrandar-
hreppi. Það blasir við, ef að fram-
leiðsluskerðingu verður svo sem
boðið er, munu margir bændur
yfírgefa jarðir sínar og byggð leys-
ast upp. Fundurinn skorar á ráða-
menn í landbúnaði og stjórnvöld að
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til að tryggja hér áframhaldandi
búsetu, meðal annars með trygg-
ingu fulls verðs á allt að 1,2 milljón-
um lftra mjólkur. Ennfremur fáist
fullvirðisréttur á sauðfjárafurðum í
sambærilegu magni og var á árinu
1978—80, áður en riðuveikin dró
verulega úr framleiðslu.
Fundurinn varar við mikilli fé-
lagslegri röskun sem verða muni
ef af fólksfækkun verður."