Morgunblaðið - 23.04.1986, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986
41
Hús á lóðum Alþíngís
eftir Hilmar
Biering
Alþingi hefur samþykkt að fram
fari samkeppni um gerð og skipulag
nýbyggingar fyrir starfsemi þings-
ins. Það mun öllum kunnugt að
starfsemi Alþingis fer nú fram í
mörgum húsum í kringum gamla
þinghúsið sem nú er orðið allt of
lítið fyrir starfsemina þótt það hafi
einu sinni hýst ekki aðeins þing-
haldið heldur einnig í upphafi lands-
bókasafnið og forngripasafnið.
Segja má að um tuttugu ára
skeið hafi Alþingi „safnað" lóðum
á reit sem afmarkast af Kirkju-
stræti, Tjarnargötu, Vonarstræti og
Templarasundi. Allar lóðir á þessu
svæði eru nú í eigu Alþingis að
undanskilinni lóðinni Vonarstræti
10 en þar reisti Oddfellowreglan
sér stórhýsi árið 1931 sem enn var
stækkað 1950 þegar byggð var
rishæð með kvistum.
Hilmar Biering
f skýrstu sem húsameistari ríkia-
ins gerði árið 1977 segir að það sé
eðlilegt að Alþingi nýti þann húsa-
kost sem fyrir er á þessu svæði og
tengi hann með nýbyggingum.
Hvernig slíkt myndi takast er ekki
gott að segja en eflaust mundi
framkvæmd þessarar hugmyndar
húsameistara vera erfiðari og bjóða
heim meiri hættu á ósamræmi en
að skipuleggja nýjar byggingar frá
grunni á þessu svæði. Etdsvoðar
og niðurrif hafa þegar leikið þetta
svæði svo að ekki virðist margra
kosta völ.
Auk Alþingishússins og Odd-
fellowhússins standa nú á þessu
svæði sjö hús og ekki er það ætlun
mín að rita um þau eftirmæli heldur
segja að nokkru sögu þeirra því að
hún er kunn og er það ekki síst
frábæru starfi í Árbæjarsafni að
þakka þótt víðar hafi ég leitað
fanga.
Með örfáum orðum er ef til vill
rétt að_ byija á Alþingishúsinu
sjálfu. Á þingi sem haldið var 1.
júlí til 27. ágúst 1879 voru veittar
á fjárlögum 100 þúsund krónur til
byggingar alþingishúss í Reykjavfk.
Leitað var til danska húsameistar-
ans og forstöðumanns listaháskól-
ans í Kaupmannahöfn, F. Meldahl,
um að gera uppdrátt að alþingis-
húsinu. Eftir deilur um staðsetn-
ingu hússins var það reist þar sem
það nú stendur. Byijað var að grafa
fýrir grunni 5. maí 1880 og 9. júní
sama ár var hornsteinninn lagður
af Hilmari Finsen, landshöfðingja.
Um haustið 1880 var húsið komið
undir þak og mátti heita að það
væri að mestu fullgert þegar þing
kom þar saman í fyrsta sinn 1. júlí
1881.
Næsta hús fyrir vestan Alþingis-
húsið við Kirkjustræti er tvflyft,
rauðmálað timburhús sem hýsir nú
verslunina Kirkjumuni. Þetta er
Kirkjustræti 10 sem Kristján Ó.
Þorgrímsson byggði árið 1879 en
fékk þó ekki á sig núverandi mynd
fyrr en hann byggði við það árið
1907. Kristján Þorgrímsson var
bókbindari að iðn og rak lengi bóka-
verslun S húsinu. Hann var konsúll
og um langt skeið bæjarfulltrúi.
Kristján var leikari, einn af frum-
kvöðlum reglulegrar leiklistarstarf-
semi í Reykjavík og einn af stofn-
endum Leikfélags Reykjavíkur
1897. Eftirlát hans, 1915, bjóekkja
hans, Magnea Norðfjörð, lengi í
húsinu. Eigendur hússins eftir hana
voru Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
og Samband ísl. samvinnufélaga en
ríkið keypti húsið 1982.
Kirkjustræti 8b er áfast við hús
Kristjáns Þorgrímssonar að vestan.
Þar er nú til húsa verslun sem
verslar með kínverska muni. Kirkju-
stræti 8b byggði Magnús Blöndahl
árið 1905. Á framhlið hússins er
stór kvistur og tum sitt hvoru
megin við hann. Magnús var tré-
smiður að iðn en rak síðar verslun,
togaraútgerð og verksmiðjuiðnað.
Hann var einn af stofnendum tré-
smiðjunnar Völundar og fram-
kvæmdastjóri hennar 1903 til 1911.
Magnús var þingmaður Reykvík-
inga 1909 til 1911. Fimm eigendur
voru að húsinu þangað til Samband
ísl. samvinnufélaga seldi ríkinu hús-
ið 1982.
Vestasta húsið af þeim þremur
sem standa við Kirkjustræti er
þekkt sem Hótel Skjaldbreið en það
reisti Sigríður Sigurðardóttir 1907.
Hún rak þar ásamt systur sinni
matsölu og var þar um langt skeið
rekið matsöluhús, Skjaldbreið, og
síðar gistihús með sama nafni.
Margir eigendur hafa verið að þessu
húsi en ríkissjóður eignaðist það
1967.
Á bak við húsin í Kirkjustræti
stendur lítið rauðmálað timburhús,
einlyft með risi, Tjarnargata 3c.
Þetta hús er elsta húsið á svæðinu
því að það reisti Lúðvíg A. Knudsen
árið 1880 en 1887 keypti það Ind-
riði Einarsson sem bjó þar með
fjölskyldu sinni í 51 ár. Indriði var
„ Auk Alþingishússins
og Oddfellowhússins
standa nú á þessu svæði
sj hús, og ekki er það
ætlun mín að rita um
þau eftirmæli heldur
segja að nokkru sögu
þeirra ... “
embættismaður frá 1878 og var
skrifstofustjóri stjómarráðsins er
hann lét af störfum 1918. Þekktast-
ur er þó Indriði vegna ritstarfa
sinna en á meðal verka hans eru
leikritin Nýársnóttin og Dansinn í
Hruna. Hann var einn af stofnend-
um Leikfélags Reykjavíkur og um
áratuga skeið forustumaður Góð-
templarareglunnar. Kona Indriða
var Marta María, dóttir Péturs
Guðjohnsen organleikara sem víða
kemur við sögu Reykjavíkur. Þor-
steinn Sigurðsson, kaupmaður, átti
húsið um 14 ára skeið en ríkið
keypti húsið af Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga 1982.
Fimmta húsið sem hér er sagt
frá stendur á homi Tjarnargötu og
Vonarstrætis, grænmálað tvflyft
timburhús sem um margra ára
skeið hefur verið notað af AA-
samtökunum. Þetta hús er Tjamar-
gata 5a sem var reist af Geir T.
Zoéga í garðinum fyrir sunnan
fyrra íbúðarhús hans sem var
Tjamargata 5. Geir T. Zoéga varð
kennari við Lærða skólann í Reykja-
vík 1884, rektor Menntaskólans. í
Reykjavík 1913 en hann lést 1928.
Ríkissjóður eignaðist húsið 1967.
Næsta hús fýrir austan Tjamar-
götu 5a er Vonarstræti 12 sem
Skúli Thoroddsen alþingismaður
reisti árið 1908 en hann hafði átt
Bessastaði á Álftanesi og búið þar
frá því að hann flutti frá Ísafírði
1901. Skúli var kosinn þingmaður
1890 og sat á þingi frá 1891 til
1915, hann dó 21. maí 1916. Eftir
lát Skúla Thoroddsen eignaðist
Þórður Bjamason húsið en frá árinu
1946 til 1966 að ríkissjóður eignað-
ist húsið áttu það og bjuggu í því
Ásgeir Ólafsson stórkaupmaður og
böm hans.
Vonarstræti 10, Oddfellowhús-
inu, hefur þegar verið getið að -
nokkru en fyrir austan það er
Vonarstræti 8 sem nú hýsir bóka-
safn Alþingis. Þetta hús reisti Sig-
uijón Sigurðsson trésmiður 1915.
Um sama leyti var byggt hús Ólafs
Þorsteinssonar Iæknis við Skólabrú
2 sem nú hýsir skrifstofur alþingis-
manna og afgreiðslu þingskjala.
Þegar þessi og önnur svipuð hús
voru reist sagði eitt af blöðum
bæjarins: „Steinöldin færist nær.“
Siguijón bjó í Vonarstræti 8 ásamt
íjölskyldu sinni fram undir 1950. í
húsinu bjuggu margir leigjendur og
mætti þar á meðal nefna Arreboe
Clausen, föður Hauks og Amar
Clausen, og bjó sú fjölskylda lengi
í húsinu. Árið 1949 eignaðist Anna
Guðmundsdóttir húsið en ríkissjóð-
ur keyptiþað 1970.
Ég sé ekki ástæðu til að segja
sögu þeirra húsa sem á svæðinu
umhverfís Alþingishúsið vom en
eru horfín því þessi upptalning er
ef til vill þegar orðin of löng og
eins mætti þá segja sögu kartöflu-
garðanna sem menn vonuðu lengi
og loksins urðu Vonarstræti.
Vonandi ber Alþingi gæfu til
þess að gera þetta svasði eins fallegt
og kostur er þótt ný hús verði byggð
og einhver hús verði fyrir það að
vílq'a enda er ekki allt gott þótt
gamalt sé.
borgarstarfsmaður.
.....................................: • "
tttr.
Það er staðreynd að alvðru líkamsþjálfun sem skilar fögrum vexti,
verður aldrel létt. Við hjá Dansstúdíói Sóleyjar getum hins vegar
skemmtileg og hressandi.
fyrir
Nú er kjörið tœkifœrí til að koma
Ifnunum í lag fyrir sumarið.
Þann 28. aprfl hefjast ný
námskeið sem að
eru jafnt
karla og konur.
Byrjendanámskeið,
og fyrlr þá sem lengra eru komnir.i
Kennarar-. Cornelius, Sóiey og Ásta
Trio'jiir þrek
Skemmtilegir þoltímar
sem auka þrek og létta lund.
Sóley kennir.
IpflnBlW
Góð nómskeið fyrir þá sem
lengra eru komnir.
(Graham-tœkni.)
Kennarl,- Marta Rúnarsdóttir.
Sigtuni 9, simi 687701.