Morgunblaðið - 23.04.1986, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.04.1986, Qupperneq 42
Fyrstu verðlaun Þessa mynd sendi Bryndís Steinunn í Keflavík okkur. Við máttum til með að birta hana. Þessi grímubúningur fékk fyrstu verðlaun að sögn Steinunnar. Eldspýtna- þraut Hér er tólf eldspýtum raðað upp. Fáðu lánaðar eld- spýtur og gerðu eins. Síðan áttu að flytja þrjár eldspýtur til og frá þannig út þrjá fern- inga. Klappleikur ú spilar e.t.v. ekki á fiðlu né annað hljóðfæri en hér er leikur sem þú getur boðið vinum eða bekkjarfélögum í við tækifæri. Þetta er spurninga- leikur. Þú hugsar þér lag sem allir viðstaddir þekkja. Nú vandar þú þig við að klappa taktinn í laginu og hinir eiga að giska á hvaða lag þetta er. Sá sem fyrstu er að svara rétt má klappa næsta lag og síðan kollaf kolli. Börn Hafið þið ekki stundum séð börn á ferð með töskur sem þið vitið að ekki eru skólatöskur og ekki eru leikfimi- eða íþrótta- töskur? Þið hafið e.t.v. komist að því að sumar þessar töskur eru hljóðfæratöskur eða kassar. Stórir svartir gítarkassar, litlar flautu: töskur eða brúnar fiðlutöskur. I dag ætlum við að tala við Guðrúnu Hrund Harðardóttur sem við sjáum stundum á labbi með fiðlu- töskuna sína. — Hvað ertu gömul og í hvaða skóla ertu? Ég er ellefu ára og er í 5. bekk í Laugamesskóla. — Hefurðu alltaf verið í Laug- amesskóla? Nei, ég byijaði í skóla í Þýska- landi. Það var opinn skóli, bland- aður aldur nemenda og tímar þar sem við máttum alveg ráða sjálf hvað við gerðum. — Þú segist hafa verið í Þýska- landi, en nú eru flutt fyrir nokkr- um ámm síðan hingað heim. Talarðu þýskuna ennþá? Ég skil hana, en það tekur mig svolítinn tíma að byija að tala hana aftur. — Hvað finnst þér skemmtileg- ast í skólanum? Teikning og handmennt em skemmtilegustu fögin. Það er líka gaman í matreiðslu en hún er bara 2—3 tímar yfir veturinn. — Ég nefndi áðan að þú sæist stundum á gangi með fiðlutösku. Er langt síðan þú byijaðir að læra á fiðluna? Það var líka í Þýskalandi sem ég byijaði að læra á fiðlu. Ég hafði japanskan kennara sem kenndi eftir Suzukiaðferðinni. Þegar við fluttum hingað þá fór ég í Tónmenntaskólann og hef verið þar síðan. Kennarinn minn heitir Gígja Jóhannsdóttir. — Fer mikill tími í fiðlunámið? Ég er í tveim fiðlutímum á viku, einum hóptíma og svo hljóm- sveitaræfing einu sinni í viku. — Þarftu að æfa þig oft á fiðluna? Ég þarf að æfa mig klukkutíma á dag og ég reyni að gera það en stundum tekst það ekki. — Er erfitt að spila á fíðlu? MYNDAGÁTAN2 Mörg svör bárust við fyrstu myndagátunni okkar og öll rétt. Það var gaman að fá svona mörg bréf og svo víða að af landinu. Flest bréfin komu frá Reykjavík, en auk þess komu bréf frá Kópavogi, Flafnarfirði, Keflavík, Grinda- vík, Garðabæ, Stöðvarfirði, Eskifirði, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum og Akra- nesi. Svarið við myndagát- unni var tappi af gosflösku og sumir bættu við, sem rétt var, að hann var beyglaður. Dregið var úr réttum lausn- um til að birta nafn í blaðinu og upp kom: Hannes Ingi Jónasson, Vesturbergi 140, Reykjavík. Nú fáum við aftur mynd til að spreyta okkur á. Ef þið hafið rétt svar sendið okkur þá línu. Heimilisfangið er: Barnasíða Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. með töskur Guðrún Hrund með töskuna sína. Já, en þó ekkert voðalega. Það eru helst einstaka tæknileg atriði sem eru erfíð. — Spilarðu einhvern tíma opin- berlega? Já, það eru vortónleikar hjá hljómsveit Tónmenntaskólans. Svo spilaði ég á nemendatónleik- um síðastliðið vor. í Tónmennta- skólanum eru líka mússíkfundir þar sem við spilum. í vetur spilaði ég í morgunsöng í Laugarnesskól- anum. — Morgunsöngur! Hvað er það? Á milli fyrsta og annars tíma á morgnana koma allir nemendur saman fyrir framan stofurnar sín- ar og syngja saman. Einu sinni í viku fá nemendur að spila undir í þessum morgunsöng. — Ertu ekkert hrædd að spila fyrir aðra? Nei, ég er ekki hrædd ef ég kann lagið, en ég er kannski svolítið feimin. — Hvað gerirðu annað en vera í skólanum og læra á fíðlu? Það er ekki mikill tími afgangs, en ég les mikið og leik mér auðvit- að líka. — Hefurðu einhveijum skyld- um að gegna á heimilinu? Það er ekkert ákveðið verk sem ég á að vinna en ég reyni að hjálpa til. Við þökkum Guðrúnu Hrund fyrir spjallið. Fiðlur Fiðlur eru sögð göfug hljóð- færi. Hvað sem um það má segja er hitt víst að fiðlan er gamalt hljóðfæri. Fyrir rúm- um hundrað árum bárust fiðlur Hér er teikning af fiðlu og merkt við heiti nokkurra hluta hennar: til landsins. Til eru sögur af mönnum sem áttu fiðlur og fóru milli bæja til að leika fyrir fólk. Nú til dags getur fólk unnið við að vera fiðluleikarar t.d. í Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Þar er stór strengjasveit og auk fiðlanna eru þar lág- fiðlur, celló og kontrabassar. Fiðlan er stengjahljóðfæri með fjórum strengjum. Strengirnir eru stroknir með boga sem í eru hrpsshár. Fiðlu- boginn orsakar sveiflu á strengina þegar honum er strokið eftir þeim. Þannig myndast hljóðið eða tónninn sem við heyrum frá fiðlunni. Mismunandi tóna fáum við með því að styðja fingrum vinstri handar á strengina eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hérna er teikning af fiðlu þar sem merkt er inná heiti ein- stakra hluta fiðlunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.