Morgunblaðið - 23.04.1986, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986
43
Stj órnunarstörf í öldrunarþjónustu
eftir Sigþrúði
Ingimundardóttur
I lögum um málefni aldraðra frá
1983 segir í 17. gr. um íbúðir og
dvalarstofnanir fyrir aldraða:
Ibúðir og dvalarstofnanir fyrir
aldraða skv. lögum þessum eru:
1. íbúðir, sérhannaðar fyrir þarfír
aldraðra. Þær geta verið tvenns
konar:
a) Þjónustuíbúðir, þar sem er hús-
varsla og afnot af sameiginlegu
rými, en engin önnur þjónusta.
b) Vemdaðar þjónustuíbúðir, þar
sem er húsvarsla og afnot af
sameiginlegu rými. íbúðirnar
skulu búnar kallkerfí, með
vörslu allan sólarhringinn og
veitt skal sameiginleg þjónusta,
s.s. máltíðir og ræsting.
2. Dvalarheimili, ætluð öldruðu
fólki, sem ekki er fært um að
annast eigið heimilishald með að-
stoð. Þar skulu vera einstaklings-
herbergi, hjónaherbergi og fjölbýlis-
einingar. Dvalarheimili aldraðra
skulu veita þjónustu s.s. fullt fæði,
þvotta, þrif, umönnum, lyf, læknis-
hjálp, hjúkrun, endurhæfíngu og
félagsstaðr. Þau skulu búin sameig-
inlegum vistarvemm til vinnu og
tómstundastarfs.
Samkvæmt þessum lögum eiga
þjónustuíbúðir aldraðra að Dalbraut
21-27 í Reykjavík að vera vandaðar
þjónustuíbúðir. í reynd má segja
að þær séu sambland af vernduðum
þjónustuíbúðum og dvalarheimili.
Astæðan er augljós, fólk bíður mörg
ár eftir að komast að og er því oft
orðið lasburða þegar loks íbúð fæst.
Komi síðan til viðvarandi heilsu-
brestur, andlegur eða líkamlegur
getur oft tekið langan tíma að
komast að á hjúkrunarheimili. Það
sama gildir fyrir fjölda af gömlu
fólki víðsvegar um bæinn. Skortur
á rými fyrir hjúkrunarsjúklinga
hefur verið og er stærsta heilbrigð-
isvandamál borgarinnar.
Atak hefur verið gert í vemduðu
vistrými undanfarin ár og er það
vel, en mikið vantar á að þörfínni
fyrir hjúkrunarheimili sé fullnægt.
Borgarstjóri segist líta svo á að
þau heimili sem borgin rekur fyrir
aldraða séu ekki heilbrigðisstofnan-
ir, og því ekki nauðsynlegt að fag-
fólk sé þar í forsvari.
Stöðuauglýsingar Reykjavíkur-
borgar undirstrika þetta því ávallt
er auglýst eftir forstöðumanni.
Gildir þetta t.d. fyrir stöður yfír-
manns á Droplaugarstöðum og
Seljahlíð. Þetta er sjónarmið út af
fyrir sig, sem sjálfsagt er að virða
en fær samt ekki staðist. Því hafí
nokkur hópur þjóðfélagsþegna þörf
fyrir heilsugæslu, eru það böm og
aldraðir. Það hlýtur því að vera
nauðsynlegt að yfírmaður stofnana,
sem aldraðir dveljast á hafí fag-
þekkingu. Reyndin er líka sú að
forstöðumenn Droplaugarstaða og
Seljahlíðar eru hjúkmnarfræðingar.
I ljósi þessa tel ég rétt að líta á
stöðu forstöðumanns þjónustuíbúða
við Dalbraut. Reykjavíkurborg
gerði kröfu um reynslu á sviði
stjómunar og reksturs, einnig þekk-
ingu og reynslu í félagsmálum,
þegar staðan var auglýst.
Af þeim umsóknum er bámst
vom tvær frá hjúkrunarfræðingum,
Önnu Margréti Einarsdóttur og
Hrönn Jónsdóttir.
Anna Margrét hefur starfað
mikið með öldraðu fólki, m.a. á
Hrafnistu í Reykjavík og í heinm-
hjúkran. Hjúkranarfræðingar í
heimahjúkran sjá um ákveðna
hjúkranarþjónustu daglega á Dal-
braut. Anna Margrét hefur jafn-
framt starfsreynslu í heilsugæslu.
Hrönn Jónsdóttir hefur góða
menntun og fjölþætta starfs-
reynslu. Hún lauk sémámi í geð-
hjúkran og kennslu og uppeldis-
fræði. Hefur margra ára starfs-
„Þessar þrjár konur
hafa því allar ákveðið
til brunns að bera, sem
g-erir þær hæfar til
starfsins. Spurningin
hlýtur því að vera sú
hver sé hæfust.“
reynslu sem hjúkranarfræðingur,
deildarstjóri og kennari. I dag
stundar hún nám í stjórnun. Upp-
bygging námsins miðar að því að
nemendur öðlist þekkingu og færni
í almennri stjómun annars vegar,
er sá hluti tengdur viðskintadeild
Háskóla íslands, og hinsvegar að
nemendur öðlist hæfni í hjúkranar-
stjómun.
Það var miklum áfanga náð
þegar nám þetta hófst, en því lýkur
í vor, áður hafa hjúkranarfræðingar
orðið að sækja erlendis í slíkt nám.
Hjúkranarforstjórar allra stærri
sjúkrahúsa landsins hafa þetta nám
ásamt fleiram er gegna stjórnunar-
stöðum innan hjúkrunar.
Margrét S. Einarsdóttir, sjúkra-
liði, hefur undanfarna 6 mánuði
gegnt starfi forstöðumanns við
Dalbraut. Margrét hefur víðtæka
reynslu í félagsmálum Reykjavíkur-
borgar, sem án efa hefur reynst
henni vel í starfinu.
Þessar þijár konur hafa því allar
ákveðið til branns að bera, sem
gerir þær hæfar til starfans. Spum-
ingin hlýtur því að vera sú hver sé
hæfust. Hjúkranarfélag íslands tók
afstöðu og taldi Hrönn Jónsdóttur
hæfastan umsækjanda vegna
menntunar og starfsreynslu.
Sú afstaða er á engan hátt til
að kasta rýrð á aðra umsækjendur.
Hún er tekin til þess að undirstrika
mikilvægi þess að góð fagleg
menntun og fjölþætt starfsreynsla
sé grandvöllur fyrir því að til stjóm-
unarstarfa í þágu aldraðra veljist
sem hæfastir einstaklingar.
Höfundur er fomiaður Hjúkr-
unarfélags íslands.
Sigþrúður Ingimundardóttir
PHILCO A HORKUGOÐU VERÐI.
ÞVOTTAVÉL FYRIR KR. 24.990.-*
OG ÞURRKARINN FYRIR KR. 18.890.-*
Philco 421 þurrkarinn.
Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti
sama magn og þvottavélin. Hann er
einfaldur í notkun; þú velur á milli 3
sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum
tegundum þvottar. Þurrktími getur
varaö allt aö tveimur klst. auk átta
mínútna kælingar í lok þurrkunar.
Philco w 393 þvottavélin.
Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir
Philco aö enn betri og öruggari
þvottavél en áöur. Vélin vindur meö
allt aö 1000 snúninga hraða á mínútu.
Hún hefur stóran þvottabelg og tekur
inn á sig bæöi heitt og kalt vatn.
Þannig sparast umtalsverð orka.
Hægt er að láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni
- það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði.
Á vélunum er öryggisbúnaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað.
Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco
og eru frá Heimilistækjum. Það talar sínu máli: Traust nöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta.
Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur.
Við erum sveigjanlegir í samningum.
/Vpglýsinga-
síminn er 2 24 80