Morgunblaðið - 23.04.1986, Side 49

Morgunblaðið - 23.04.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986 49 og lánaði viðskiptamönnum sínum fullmikið á stundum og var slakur við innheimtu hjá þeim. Þess vegna og við skárri heilsu þá byijaði hann akstur á ný 52 ára gamall. Hann keypti hlut í Sendi- bílastöðinni hf. og hóf akstur á stöðinni 1968. Ekki höfðum við trú á að hann myndi endast lengi í starfinu, þar sem um er að ræða starf fyrir hrausta menn. En hann var fljótur að afla sér vinsælda og eignaðist góða viðskiptavini. Það leið ekki á löngu þar til hann var kominn í stjóm Sendibílastöðvar- innar jafnframt sem hann var kjör- inn formaður Trausta, félags sendi- bílstjóra. Þegar hann tók við stjóm Trausta átti félagið ekki neitt og hafði fram að því átt mjög erfitt uppdráttar. Var utan við öll samtök og kerfi, litlu meira en átthagafélag sem hélt spilakvöld einu sinni á ári. Hann reisti félagið við með því að opna skrifstofu, þar sem hann var til viðtals eftir vinnutíma. Hann barðist ötullega fyrir hagsmunum félaganna án þess að missa sjónar af því, að til þess að halda vinnu, þá þýðir ekki að spenna bogann of hátt heldur skal fara með gát. Starf Sigurðar var meira af hugsjón og innri þrá en peninganna vegna, enda vom laun hans í pen- ingum lítil, laun hans voru að sjá félagið eflast og dafna. Hann lagði úr eigin vasa fé, þegar fest voru kaup á húsnæði fyrir félagið, og gekk í persónulegar ábyrgðir fyrir félagana. Hann var heppinn með meðstjómendur, einn af hverri stöð, ágætismenn sem lagt hafa gmnn að sterku bflstjórafélagi. En bfl- stjórar em menn sem vilja vera sjálfs sín herrar og erfitt er að ná saman sem afli hvað þá sterku afli. Honum var ljóst að margt er þar ógert, en hann hefur á fáum ámm skapað samstöðu bflstjóra af mörg- um stöðvum. Undirritaður kynntist Sigurði þegar hann hóf akstur á Sendibfla- stöðinni hf. og störfuðum við saman í stjóm stöðvarinnar í mörg ár. Reynsla hans af félagsmálum kom okkur yngri mönnum mjög til góða, róleg yfirvegun og að skoða hvert mál frá fleiri en einni hlið varð okkur farsælt. Hann var alla tíð mikill framsóknarmaður og þegar hann kvæntist inn í sjálfstæðisfjöl- skyldu á Nesinu, þótti þar kominn kynlegur kvistur á Nesið en þar vom framsóknarmenn sjaldséðir fuglar. Hann dreif upp félag fram- sóknarmanna og mun það hafa verið með mestum blóma í hans tíð. Hann sat í hreppsnefnd fyrir fram- sókn í 8 ár. Ekki mátti hann heyra neitt illt um framsókn, þess vegna varð hann oft fyrir léttum skotum af okkar hálfu, en hann svaraði og sendi boltann glettinn til baka. Framsóknarmenn vom góðir menn og væm þeir líka úr Breiðdalnum þá vom þeir frábærir. Ef rætt var um einhvem, þá vildi hann vita hverra manna hann væri og hvaðan. Síðastliðin ár hefur Sigurður verið meira og minna rúmfastur en hann hafði síma við rúm sitt og sinnti ýmsum málum fyrir félagið, hringdi í embættismenn til þess að fá leið- réttingu á málum sendibflstjóra og var hann þá mjög fylginn sér. Fram á síðustu stundu snerist hugur hans um sendibflstjóra, gang mála hjá sinni stöð og hjá stéttarfélaginu þar sem honum fannst hann eiga margt ógert og háði hann harða baráttu í von um að ná heilsu, en árangurs- laust. Þegar hann sá að hveiju stefndi, sagði hann mér að stundum vorkenndi hann læknum sínum, öllum þessum ágætismönnum sem reyndu að lappa upp á sig án þess að hafa nokkuð af varahlutum, í staðinn fyrir ónýtt. Þar væru bif- vélavirkjamir ólíkt betur settir. Það er sagt að hinir góðu deyi ungir, en sannir gæðamenn, eins og Sigurður var, eru ungir þar til þeir deyja. Sigurður hefur nú farið í sinn síðasta „utanbæjartúr", við vitum ekki hver er næstur „á pijóni" en þegar þar að kemur vitum við að Sigurður mun greiða götu okkar. Astu og börnunum sendum við samúðarkveðjur, félagamir og starfsfólk Sendibflastöðvarinnar. Krístinn Arason Kristján Magnús- son-Kveðjuorð Kynni mín af Kristjáni hófust fyrir 3 árum, þegar ég gerðist leigjandi hjá honum og Gyðu konu hans. Systir mín benti mér á að leigja hjá þeim því þau væru einstaklega almennileg. Það kom líka á daginn. Alltaf heilsaði Kristján mér með bros á vör, rabbaði um daginn og veginn og lét mig finna að ég væri hjartan- lega velkomin í húsið. Kristján var lífsglaður maður og iðinn. Honum féll aldrei verk úr hendi, endalaust gat hann fundið sér verkefni til að dytta að á heimil- inu og þá syngjandi eða raulandi. Sérstaklega minnist ég laugardag- anna þegar bamabömin vom í heimsókn og öll hersingin tók sig til og ryksugaði. Þau flugu um teppin með Kristján í broddi fylk- ingar syngjandi og trallandi. Þegar von var á syni hans og fjölskyldu í jólafrí geislaði Kristján allur. Nú myndi færast fjör í húsið og fjölskyldan öll fengi að vera saman yfir jólahátíðina. Fjölskyldan var mjög samheldin, öll voru þau vinir og báru virðingu hvert fyrir öðru. Ég votta Gyðu konu hans og bömum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hanna Birna SMÁGÆTISEM SMAKKAST VEL1NÆSTA.. . EINFALT! SMJÖR OG “SÚKKULAÐIÆÐIГ Konfekt, súkkulaði og aftur konfekt er það fínasta fína þessa dagana. Nýjasta „æðið“ sem talið er eiga rætur sínar að rekja til Frakklands, og hefur þegar náð mikilli útbreiðslu m.a. í Bandaríkjunum. Hér er þó ekki um að ræða neitt yenjulegt konfekt eða súkkulaði sem við þekkjum svo vel úr hillum kaupmannanna - nei, handgert skal það vera og eingöngu úr ljúffengustu og fínustu náttúruefnum. Uppistaða þessa sælgætis er suður amerískt súkkulaði, ferskur rjómi og hreint smjör.Eví er skiljanlegt að gómsætið sé ekki gefið. Nú skulum við athuga málið. Við getum nefnilega útbúið okkar sælgæti sjálf fyrir aðeins Vio hluta þess verðs sem áðurgreint konfekt kostar og ekki skortir okkur hráefnið. Hér koma nokkrar góðar uppskriftir. Látum nú hendur standa fram úrermum. ROMMKONFEKT SUKKULAÐITO 125 g smjör 175 g flórsykur IV2 msk romm eða koníak 250 g suðusúkkulaði, brœtt yfir vatnsbaði. Hrærið smjörið þar til það verður létt og ljóst og bætið þá flórsykrinum og víninu út í. Látið súkkulaðið kólna ögn áður en þið blandið því saman við smjörhræruna. Setjið hræruna í sprautupoka og sprautið í lítil pappamót eða á plötu klædda srpjörpappir. Kælið. 110 g suðusúkkulaði 110 g smjör 300 g flórsykur romm eftir smekk. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og blandið smjörinu út í. Hrærið flórsykrinum og romminu saman við. Mótið litlar kúlur og veltið þeim upp úr súkkulaðikurli. Geymið í kæli. KÓKOSKÚLUR 75 g smjör 1 dlsykur 1 msk vanillusykur 3 dl haframjöl 175 g suðusúkkulaði, brætt yfir vatnsbaði 2 msk mjólk ldlkókosmjöl. Hrærið saman smjöri" sykri, vanillusykri, súkkulaði, haframjöli og mjólk. Mótið kúlur eða sívala bita og veltið upp úr kókosmjöli. Kælið. S/lUÖ** Wm IV < il V 1 .p v i í c\ I4r": v \ \ .< 'JF :^|g fe1 /. yXV$SSÉ|ÖP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.