Morgunblaðið - 23.04.1986, Page 50

Morgunblaðið - 23.04.1986, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986 Fríður Guðna- dóttir - Minning Fædd 4. ágúst 1938 Dáin 13. april 1986 Móðir mín, Fríður Guðnadóttir, var fædd og uppalin í Reykjavík og voru foreldrar hennar Ragn- hildur Jónsdóttir og Guðni Nikulás Sigurðsson. Hún giftist föður mín- um, Ómari Sigtryggssyni, 26. des- ember 1975, en þau slitu samvistir eftir sjö ára sambúð, en það var aldrei nein óvinátta þeirra á milli þrátt fyrir það. Þau umgengust hvort annað eins og gamlir vinir. Eg ólst upp fyrstu árin hjá mömmu minni en fluttist svo til pabba míns og er hjá honum. En ég heimsótti alltaf mömmu mína með stuttu millibili og mér þótti svo mikið vænt um hana alveg eins og um pabba minn. Svo fyrir nokkrum mánuðum veiktist mamma og varð að fara_ á Landspítalann þar sem hún dó. Eg heimsótti hana á sjúkrahúsið eins oft og ég gat. Mig langaði svo mikið til að hún fengi að lifa, en nú er hún dáin og farin í burtu til Guðs síns. Ég, sem er tíu ára gömul, stend hér og horfi á eftir henni, en hugur minn er hlaðinn sorg og söknuði því mér þótti svo vænt um mömmu mína og henni þótti vænt um mig. Svo kveð ég elsku móður t Eiginmaður minn og faöir okkar, SIGURGARÐUR STURLUSON, Hrauntungu 8, Kópavogl, lést í hjartadeild Landspítalans 21. apríl. fna Böðvarsdóttir og börn hins látna. t Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, ANDREA HELGA INGVARSDÓTTIR, Hamarsbraut 12, Hafnarfirði, andaðist i St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 21. apríl. Ámundi Eyjólfsson, Gunnar Ámundason, Auður Skúladóttir, Ingóifur Halldór Ámundason, Ragnheiður Sigurbjartsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA LIUA GUÐMUNDSDÓTTIR, Austurbergi 36, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þriðjudaginn 22. apríl. Ólafur Guðmundsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín og móðir, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Bíldudal, síðast til heimilis á Vallarbraut 2, Ytri-Njarðvík, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Finnbogi Rútur Guðmundsson, Jón Haukur Torfason og aðrir vandamenn. t Útför eiginmanns míns, PÁLS BJÖRNSSONAR hafnsögumanns, Sporðagrunni 12, ferfram frá Dómkirkjunni föstudaginn 25. apríl kl. 13.30. Ólöf Benediktsdóttir. t Móðir okkar og dóttir, HELGA LÁRA ÓSKARSDÓTTIR, Skipholti 14, verður jarðsett frá Fríkirkjunni föstudaginn 25 þ.m. kl. 15.00. Óskar Sveinsson, Rakel Sveinsdóttir, Rakel Sæmundsdóttir, Óskar Hallgrímsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls föður okkar, JÚLÍUSAR F. KRISTINSSONAR. Sérstakar þakkir til sóknarprests og kirkjukórs Keflavíkur og systkina hins látna. Guð blessi ykkuröll. Börn, tengdabörn og barnabörn. mína og þakka henni hjartanlega fyrir allar stundimar sem við feng- um að vera saman. Ég mun aldrei gleyma þeim. Fylgi henni guðs- blessun yfir í nýjan heim. Hafi hún ástkæra þökk fyrir allt. Kolbrún Ósk Ómarsdóttir Við andlátsfregn vina og ætt- ingja sækja minningamar að. Fríður Guðnadóttir lést þann 13. apríl sl. í Landspítalanum, eftir stutta en stranga legu. Því miður eru læknavísindin ennþá máttvana gegn sumum teg- undum krabbameins og svo var í þetta skipti. Við minnumst fæðingar frænd- konu okkar, þ. 4. ágúst 1938. Foreldrar hennar, Ragnhildur Á. Jónsdóttir og Guðni Sigurðsson, verslunarmaður ásamt einkasyni sínum, Jóni Sigurhans, arkitekt, þá flögurra ára, bjuggu í húsi móður okkar og voru fjölskyldumar sem ein, enda skyldleikinn náinn. Arið 1942 veiktist móðir Fríðar alvarlega og þurfti að dvelja á Víf- ilsstöðum um tíma. Varð það til þess, að Fríður varð heimilisföst hjá okkur um eins árs skeið. Hún var skemmtileg og falleg lítil stúlka, og höfðum við mikla ánægju af henni. Á heimili foreldra hennar var tónlistin í hávegum höfð. Faðir hennar var mjög tónelskur, spilaði á píanó og hafði fallega söngrödd. Var því oft tekið lagið. Fríður lærði um hríð á fiðlu og léku þau mæðginin saman á góðum stundum. í minningunni voru það miklar hátíða- og gleðistundir. Á æskuheimili sínu naut Fríður alls þess, sem gott heimili getur veitt. Þegar skyldunámi lauk kaus hún að læra hárgreiðslu. Hún lauk prófi í þeirri iðn og stundaði hana af og til um árabil. Fríður var listræn og mjög hand- lagin, eins og hún átti kyn til. Það sem hún tók sér fyrir hendur var mjög vel af hendi leyst. \ Ung að árum fór Fríður úr for- eldrahúsum og alvara lífsins tók við. Hún gekk að eiga unnusta sinn, Ágúst Sigmundsson, árið 1957. Þeim varð þriggja bama auðið. Þau eru: Sigmundur, múrari, f. 24/4 1956, Guðni, tónlistarmaður, f. 7/4 1960 og Ragnhildur, húsmóðir, f. 25/7 1962, búsett í Bandaríkjunum. Fríður og Ágúst slitu samvistir. Þann 31/12 1968 giftist Fríður Einari Bogasyni og eignuðust þau einn dreng, Val Boga, f. 8/3 1970. Þau slitu samvistir. Ýmsir erfíðleikar kvöddu dyra hjá Fríði um árabil og var lengi tvísýnt, hvort hún kæmist heil úr þeirri baráttu. Hún hefði mátt spyija sömu spuminga og gert er í gömlu rússn- esku kvæði, sem Magnús Ásgeirs- son íslenskaði svo: Hví tendrast sól, fyrst giæta hverrar glóðar dvín? Hví leiftrar gleði, er aftur hverfur óðar sýn? Ó, hvað og tii hvers er vor gieði, móðir mín? Er hjartað vaknar, faðmar það og fagnar það um fleyga stund, svo saknar það og þagnar það. Ó, hvað er hjartað, móðir góð, hvað gagnar það? Guðrún Þorleifs- dóttir - Minning Fædd 19. nóvember 1907 Dáin 26. mars 1986 „Mér var sagt að dauðinn væri eins og góðurvinur því meira sem þú þekktir hann því minna óttaðist þú hann. Ég gekk niður að vatninu og kastaði steini og vatnið gáraðist. Það var kvóld.“ (VilmundurGylfason) Aðeins eitt vitum við með vissu, við eigum öll eftir að deyja. Hversu lítið sem við höfum átt sameiginlegt í lífinu, sameinar dauðinn að lokum allt og alla. Gerir alla jafna. Við getum endalaust velt því fyrir okkur hvað tekur við eftir dauðann, en mestu máli skiptir að lifa sjálfum sér og öðram til góðs. Njóta í gleði og einlægni alls þess sem lífíð hefur að gefa okkur. Lifa í sátt við umhverfíð, annað fólk og umfram allt í sátt við sjálfan sig. Guðrún Þorleifsdóttir fæddist í Svínhólum í Lóni, elst af sex börnum hjónanna Ragnhildar Guðmundsdóttur og Þorleifs Bjamasonar. Sjálfsagt hefur æska hennar og uppvöxtur verið líkt og hjá öðra fólki á þessum áram, strit fyrir daglegum nauð- synjum. Vinna í eldhúsinu og á éngjunum, en jafnvel hin hvers- dagslegustu störf eiga sína gleði sé að þeim unnið með jákvæðu hugarfari. Rúna, eins og hún var kölluð, giftist Skúla Siguijónssyni frá Bæ í Lóni og í mörg ár bjuggu þau í Lóni, í Bæ, Hvammi og síðast í Svínhólum en þaðan fluttu þau til Reykjavíkur 1954. Skúli og Rúna áttu ekkert bam, en tóku í fóstur Pálínu Magnúsdóttur sem var þeim elskuleg dóttir. Pálína, maður henn- ar og böm vora fjölskylda Rúnu og það var góð fyölskylda. Það var þungt áfall fyrir alla en ekki síst fyrir Rúnu þegar Pálína lést fyrir nokkram áram, langt um aldur fram. Skúli maður Rúnu var þá látinn fyrir allmörgum áram. Á seinni áram bjó Rúna í lítilli íbúð í Breiðholti. Þar fór vel um hana meðan hún hafði sæmilega heilsu. Henni var eðlilegt að vera fremur veitandi en þiggjandi og oft var gestkvæmt hjá henni enda var hún mjög félagslynd. En tvö síðustu árin átti Rúna oft erfítt vegna veikinda sinna og þó hún ætti ýmsa góða að sem vildu liðsinna henni, er eins og hver eigi nóg með sig í þessu frumskógarþjóðfélagi. Það er sárt til þess að vita að þegar fólk hefur lokið löngu og farsælu ævistarfí, skuli þjóðfélagið ekki koma meira til móts við það en raun ber vitni. Fullorðið fólk er stolt og leitar ekki eftir aðstoð fyrr en í fulla hnefana þó það þægi hjálp sem boðin væri að fyrra bragði. Ævikvöldið ætti ekki að þurfa að vera fólki áhyggjuefni. Þjóðfélag sem þannig býr að þegnum sínum hefur ekki rétt á að kalla sig vel- ferðarþjóðfélag. En Rúna var ekki vön að vera að kvarta. Þó hún ætti alla tíð sterkar rætur hér austur í Lóni, var hún svo opin og víðsýn að hún undi sér líka vel í Reykjavík. Hún hafði til hins síðasta brennandi áhuga á öllu sem var að gerast í kringum hana. Hún vissi hvað var að gerast í hennar nánasta um- hverfí og eins hér fyrir austan. Hún fylgdist með þjóðmálum og vissi vel hvað tímanum leið. Rúna var lífs- glöð, einlæg og hispurslaus, hafði Til iífs á jörðu án eigin gerða giæddist ég. Til dauða af sorg frá Guði og mönnum mæddistég. Ó, móðir, móðir, móðir, til hvers fæddistég? Þann 25/12 1975 gengu Fríður og Ómar Sigtryggsson í.hjónaband, þau eignuðust eina dóttur, Kol- brúnu Osk, f. 17/11 1985. Þau slitu samvistir. Á síðasta ári virtist hamingjan loks hafa heimsótt Fríði. Hún gekk að eiga eftirlifandi eiginmann sinn, Martein B. Björgvinsson, þ. 7/4. Hann reyndist henni mjög vel og best þegar mest á reyndi. Hjá þessum manni naut Fríður þess besta atlætis, sem hún hefur átt við að búa, síðan hún fór úr foreldrahúsum. Vinir hennar og skyldfólk samglöddust henni innilega, en nú harmar þetta sama fólk hvað leiftur gleðinnar hverfur skjótt. Lífí Fríðar, héma megin grafar, er lokið. Við kveðjum hana með trega. Hún verður lögð til hinstu hvfldar við hlið föður síns er hún unni svo mjög. Hvfli hún í Guðs friði. Blessuð sé minning hennar. Innilegar samúðarkveðjur send- um við aðstandendum. Þórunn og Sigríður Þann 13. þessa mánaðar lést á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja mánaða sjúkdómslegu Fríð- ur Guðmundsdóttir. Hún var eiginkona föður okkar, Marteins B. Björgvinssonar. Þau giftu sig fyrir rúmu ári og vora mjög samhent og hamingjusöm. Hún var mjög hæg og hafði hlýlegt viðmót. Ávallt tók hún vel á móti okkur þegar við heimsóttum þau á heimili þeirra. Og nú þegar við minnumst henn- ar er okkur bömum Marteins efst í huga þakklæti fyrir hvað hún var honum mikils virði. Megi hún hvfla í friði. Sigurrós, Brynja, Skúli og Tryggvi. yndi af söng og tónlist og söng oft eða raulaði við vinnu sína. Ég undraðist oft hvað hún svona full- orðin manneskja fylgdist vel með öllu og við hana gat maður talað um allt milli himins og jarðar. Hún ljfði svo sannarlega lífínu lifandi. Ég kynntist Rúnu frænku mest sumarið 1983 en þá kom hún austur í Lón í síðasta sinn. Það sama sumar dvaldi ég hjá henni nokkra daga í Reykjavík og naut gestrisni hennar og hlýju. Þá lágum við vakandi frameftir allri nóttu og töluðum um alla hluti, allt frá popptónlist upp í ættfræði. og trúmál. Þrátt fyrir 56 ára aldursmun á okkur fann ég ekkert kynslóðabil og við áttum ekki í neinum erfíðleikum að skilja hvor aðra. Ég reyndi að hafa reglu- legt samband við hana gegnum bréf og síma og ég fann að henni þótti vænt um það. Fjarlægðin milli okkar var svo löng í kílómetram talið að ég gat ekki gert annað fyrir hana sem kom henni betur. Þegar ég talaði síðast við Rúnu, stuttu áður en hún dó, fann ég að henni var veralega bragðið. Hún kveið því að verða upp á aðra komin og þurfa að semja sig að breyttum aðstæðum. Hún óskaði þess að þessu færi að ljúka og sú ósk hennar rættist skömmu síðar. Þegar þannig er komið kemur dauðinn eins og góður vinur. Við stöndum eftir í hversdags- legri baráttu við gott og illt, erum ríkari af því að hafa þekkt Rúnu, eins og við verðum ríkari af kynnum okkar við allt gott fólk á lífsleiðinni. Sólin mun enn um sinn rísa úr hafí, grasið vaxa og fjallahringurinn sem geymir sveitina hjúpast blárökkri þegar kvöldar. Og þegar kvöldar í síðasta sinn munum við einnig kalla feiju yfír það fljót sem skilur milli lífs og dauða og leggja upp í þá ferð sem okkar allra bíður, hvað sem framundan er. Með þessum orðum viljum við hér á Hlíð kveðja Rúnu frænku. Blessuð sé minning hennar. Kristín Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.