Morgunblaðið - 23.04.1986, Page 52
-52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
fclk í
fréttum
Sherisse
Laurence
Kynning á
öllum lögnm Eurovisionkeppninnar
„Ryder“ Maynard Williams,
Paul Robertson, Rob Terry,
Dudley Philips, Geoff Leach og
Andy Ebsworth.
slenska sjónvarpið tekur nú í
fyrsta skipti þátt í söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, sem
haldin er í umsjá Evrópubandalags
útvarpsstöðva (EBU) og er hluti
af gagnkvæmum dagskrárskiptum
sem kallast „Eurovision“. Tilgangur
keppninnar er að örva samningu
vandaðra dægurlaga með sam-
keppni og aiþjóðiegum samanburði
á verkum texta- og lagahöfunda.
Keppnin er fyrst og fremst ætluð
til sýningar í sjónvarpi. Lag það er
þátttakendur senda til keppninnar,
skal að mestu leyti sungið á því
tungumáli, eða einu þeirra tungu-
mála, sem töluð eru í heimaiandi
þeirra.
Lokakeppnin hefur áður verið
sýnd í íslenska sjónvarpinu, en
— dagana
20. til 28.
apríl
þátttaka í keppninni hefur það í for
með sér að auk þess að velja lag
til að keppa í úrslitunum er einnig
reiknað með því að þátttakendur
kynni öll lögin er valin hafa verið,
fyrir almenningi fyrir sjálfa keppn-
ina. Upptaka, á filmu eða myndseg-
ulbandi, með flutningi laganna áttu
að hafa borist BBC í London fyrir
9. apríl og voru sendar út þaðan
þ. 16. Kynningin verður síðan að
fara fram í tveimur eða fleiri dag-
skrárliðum einhvem tíma milli 20.
og 28. apríl. Eilefu manna dóm-
nefnd í hveiju landanna 20 mun
síðan gefa lögunum stig í loka-
keppninni. Ekki má skýra dóm-
nefndinni frá vali hennar né nefna
hana opinberlega fyrr en 26. apríl.
Dómnefndarmenn, að formanninum
frátöldum, mega ekki tengjast tón-
list á neinn hátt. Leitast skal við
að skipa jafnmarga karla og konur,
ekki yngri en 16 ára og ekki eldri
en 60 ára. Formaður íslensku
nefndarinnar verður Markús Öm
Antonsson útvarpsstjórí og ritari
Guðrún Skúladóttir.
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
hafa nú séð tvo af kynningarþáttun-
um Qórum hérlendis. Hafa þeir
verið nokkuð mismunandi, sem
eðlilegt er, þar sem sviðssetning
upptökunnar er algerlega á valdi
sjónvarpsstöðvarinnar, sem lagið
sendir. Nota má þar eins marga
listamenn og henta þykir, en söngv-
aramir verða að vera þeir sömu og
koma fram í lokakeppninni. A
sunnudagskvöldið voru lög Lúxem-
borgar, Júgóslavíu, Frakklands,
Noregs, Bretlands og íslands kynnt.
í gærkveldi Hollands, Tyrklands,
Spánar, Sviss og ísrael. Okkur hafa
borist upplýsingar og myndir af
nokkrum söngvaranna.
Lúxemborg sendir lagið L’AMO-
UR DE MA VIE, sungið af Sherisse
Laurence. Lagið eftir Rolf Soja,
ljóðið eftir Alain Garcia og Frank
Dostal. Laurence er Kanadabúi af
úkraíniskum ættum, fædd í Selkirk,
Manitoba. Hún hóf píanónám 6 ára
gömul og byijaði snemma að syngja
og semja sín eigin lög. Um tvítugt
vann hún til verðlauna í „American
Song Festival" fyrir lag er hún
hafði samið. Síðan hefur hún sungið
inn á plötu og komið fram í sjón-
varpi m.a. hinni vinsælu sjónvarps-
sýningu „Circus".
Noregur teflir fram laginu
ROMEO, er Ketil Stokkan syngur
og samdi hann einnig lag og ljóð.
Ketil Stokkan er fæddur 1956 í
Harstad í Norður Noregi. Auk þess
að syngja og semja lög, leikur hann
á gítar og hefur leikið í ýmsum
hljómsveitum og gefið út margar
plötur. Árið 1985 varð hann í öðru
sæti á eftir Bobbysocks í úrslita-
Flestir munu sammála um það
að íslenska myndbandið sem
sýnt var í kynningu sjónvarpsins
á lögunum í Eurovision-söngva-
keppninni þ. 20. apríl hafi verið
mjög gott. Hugmynd og Saga
Film sáu um gerð þess fyrir ís-
lenska sjónvarpið. Við litum inn
á æfingu hjá ICY-söngflokknum
þar sem þau æfðu sviðsframkomu
í Dansstúdíói Sóleyjar, undir
stjóm Sóleyjar Jóhannsdóttur og
Egils Eðvarðssonar. Eins og
myndin ber með sér voru þau
ekki búin að fá búningana sem
Dóra Einarsdóttir hannar og í stað
hljóðnema vom kókbox látin
nægja. En „Gleðibankinn" hljóm-
aði af fullum krafti og söngvar-
amir Eiríkur, Helga og Pálmi
sögðu að þau sinntu víst ekki
mörgu öðm þessa dagana en því
að undirbúa lokaátakið sem er
vitaskuld keppnin sjálf þann 3.
maí í Bergen.