Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 64
...MEÐ Á
NOTUNUM.
|<tjj j3J,
0 Mflaöaitankinn
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
_258 milljónir
til að LÍN nái
endum saman
SVERRIR Hermannsson, menntamálaráðherra, hyggst beita sér fyrir
þvi að aflað verði þeirra 258 milljón króna, sem Lánasjóð íslenskra
námsmanna vantar á þessu ári til að geta staðið við skuldbindingar
sínar. I þvi efni nýtur hann stuðnings rikisstjórnarinnar.
Þessar upplýsingar koma fram í
skýrslu menntamálaráðherra um
málefni lánasjóðsins, en hún var
ötrð fram á Alþingi í gær. Þar
kemur einnig fram, að stjómar-
flokkamir hafa gert með sér sam-
komulag um að nefna tvo menn
hvor í samstarfsnefnd til að endur-
skoða lög um lánasjóðinn og sam-
ræma sjónarmið flokkanna tveggja
fyrir þing á hausti komanda.
í skýrslunni greinir menntamála-
ráðherra ýtarlega frá þeim breyt-
ingum, sem hann hefur lagt til að
gerðar verði á lögum um námslán
og námsstyrki. Þær felast m.a. í
■■því að tekjur námsmanna hafi ekki
áhrif á upphæð lána, að lántöku-
og innheimtugjald verði lagt á
námslán, að lánin beri 3,5% ársvexti
auk verðtryggingar, að endur-
greiðslutími verði styttur úr 40
árum í 30 ár og beinum námsstyrkj-
um komið á, auk þess sem heimilt
verði að verðlauna afburða nemend-
ur sérstaklega. Gert er ráð fyrir
því í tillögum ráðherra, að Alþingi
ákveði með fláriögum hversu miklu
fé skuli varið til lánasjóðsins og lán
og styrkir úr sjóðnum miðist við
þá upphæð.
Sjá skýrslu ráðherra í
heild á bls. 26-27 og þing-
síðu bls. 40.
Morgunblaðio/01.K.M.
*
Ifötum eins ogMaría Antoinette
„Það er ekki á hveijum degi, sem menn hitta konur klæddar eins og María Antoinette,** sagði Ijós-
myndari Morgunblaðisins, er hann kom með þessar myndir af dimittöntum í Fjölbrautaskóla Breið-
holts. Nemendurnir spókuðu sig í góða veðrinu í gær klæddir eins og hirðmenn Frakkakonungs.
Síðan hefst alvara lífsins, próflesturinn fyrir stúdentsprófið.
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Samþykkt ríkisslj órnarinnar:
Bensínsprengja
sprakk ekki
BENSÍNSPRENGJU var
kastað í átt að sendiráði
Bandaríkjanna í Reykjavik
um klukkan hálf eitt i nótt.
Enginn eldur kviknaði.
Lögreglunni barst tilkynning
frá starfsmönnum sendiráðsins
að áfengisflösku með bensíni
hefði verið kastað í átt að sendi-
ráðinu. í stút flöskunnar hafði
verið komið fyrir bómull. Ekki
er vitað hveijir voru þarna að
verki en talið er að það hafi
verið tveir piltar. Þeir komust
undan.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur fengið málið til meðferðar.
Dæmd til endurgreiðslu
hluta ferðakostnaðar
Ferð á vegnm hennar fyrir ellilífeyrisþega ekki talin
hafa staðið undir auglýsingu um aðbúnað og þægindi
FERÐASKRIFSTOFA ríkis-
ins hefur verið dæmd til að
endurgreiða vipskiptavini
ferðaskrifstofunnar 6.650 af
greiddum ferðakostnaði auk
10.000 króna í málskostnað.
Dómurinn var kveðinn upp í
bæjarþingi Reykjavíkur og
er niðurstaða hans byggð á
þvi, að ferðin hafi ekki staðið
undir auglýsingu um aðbúnað
og þjónustu.
Stefnandi, Ragnhildur Pálsdóttir,
búsett í Reykjavík höfðaði málið
20. nóvember á síðasta ári og krafð-
ist þá 10.000 króna endurgreiðslu
eða helmings verðs ferðarinnar.
Ferðin, sem hér um ræðir, var fyrir
ellilífeyrisþega og farin til Færeyja
og Noregs í júní í fyrra. í auglýs-
ingu var þess getið að fararstjóri
yrði danskur. Er Ragnhildur keypti
Laugardalurínn alhliða skemmtigarður:
„Skapar þáttaskil í úti-
lífi iiman borgariiinar“
— segir Davíð Oddsson borgarstjórí
BORGARRÁÐ samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um upp-
byggingu alhliða skemmtigarðs í Laugardalnum, en miðað er við
að ljúka framkvæmd verksins á næstu 3—4 árum. „Þetta er
alhliða skemmtigarður, sem mun skapa þáttaskil í útilífi innan
borgarinnar," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri f samtali við
Morgunblaðið i gærkvöldi.
„Það hefur vérið lagt kapp á
að þetta sé raunhæf hugmynd
gagnvart fjárhagsáætlun, þama
verður m.a. aðgengilegur dýra-
garður með öllum íslenskum dýr-
um og einnig öðrum dýrum af
norðlægum slóðum. Einnig verður
sædýrasafn í dýragarðinum auk
annars. Þá verða skjólsæl skóg-
ræktarsvæði og skipulag garðsins
verður afmarkað með ttjágróðri.
Samkomusvæði ýmiskonar verða
byggð upp, skautasvell og tívolí
sem verður aðallega ætlað yngstu
borgurunum upp að 12 ára aldri,
en þetta tívolí verður með rólegu
yfirbragði og hávaðalítið. Við
ætlum að fullnýta þetta svæði og
ljúka því á 3—4 árum og strax
næsta ár munu menn sjá breyting-
ar.“
Borgarskipulag hefur stjómað
undirbúningi verksins, en Teikni-
stofa Reynis Vilhjálmssonar hefur
gert tillöguuppdrætti um svæðið,
allan Laugardalinn, sem er um
77 hektarar að stærð. Fyrsta
skrefið í framkvæmd verksins
verður væntanlega að deiliskipu-
leggja hin ýmsu svæði og hefjast
handa um víðtæka trjárækt til að
undirbúa dalinn fyrir nýtt og
aukið hlutverk. 25 ha. dalsins
heyra nú undir íþróttir af ýmsu
tagi. Austan Laugardalshallar er
áætluð bygging skautahallar, en
á liðlega 11 hektara svæði í kring-
um grasagarðinn er áætlað að
byggja skemmtigarð með marg-
víslegri aðstöðu, m.a. þar sem fólk
getur umgengist öll íslensku hús-
dýrin meðal annars. Þar er einnig
ráðgert að byggja litlar tjamir
fyrir skauta og báta, tívolíið, gróð-
urskála og einnig er ráðgert að
umhverfi þvottalauganna verði
skipulagt sérstaklega.
farseðil lét starfsmaður ferðaskrif-
stofunnar þess getið að fararstjóri
yrði íslenzkur. Er í ferðina var
komið, sem að hluta til var farin
með færeysku feijunni Norrönu,
taldi Ragnhildur ferðina ekki svara
til væntinga hennar og aðbúnað
ekki vera við hæfi ellilífeyrisþega.
Meðal annars vegna þess, að þátt-
takendum hafi verið komið fyrir í
fjögurra manna klefum neðst í
skipinu og þurft að ganga upp og
niður 50 þrep tii að fara á milli
klefa og matstofu. Reyndar hafi
henni tekizt að fá tveggja manna
klefa ofar í skipinu með eigin eftir-
gangsmunum. í Noregi hafi komið
í ljós að enginn fararstjóri hafi verið
í ferðinni, einungis færeyskur bíl-
stjóri, sem ekki hafi verið kunnugur
staðháttum. Vegna óánægju far-
þega með ferðina bauð ferðaskrif-
stofan farþegum tveggja nátta dvöl
á Eddu hóteli þeim að kostnaðar-
lausu. Ragnhildur segir að sér hafi
ekki borizt slíkt boð, fyrr en mála-
rekstur var hafínn.
Fulltrúar Ferðaskrifstofu ríkisins
benda í þessu máli á að þama hafi
verið um sérstaklega ódýra ferð að
ræða og alkunnugt sé að bílstjórar
séu jafnframt fararstjórar. Enn-
fremur hafi Ragnhildur fengið betri
klefa strax og hún kvartaði og
krafðist ferðaskrifstofan sýknu en
vemlegrar lækkunar málsbóta til
vara.
í áliti dómsins segir meðal annars
að stefnandi hafi mátt búast við,
að ferðin væri fremur þægileg og
aðbúnaður svaraði til aldurs þeirra,
sem ferðin hafi verið auglýst fyrir.
Stefnanda hafi verið sagt að farar-
stjórinn kynni íslenzku og hefði
mátt gera ráð fyrir því. Vegna þess
og með hliðsjón af lögum eigi stefn-
andi rétt á nokkrum afslætti.