Morgunblaðið - 18.05.1986, Page 1
C
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
SUNNUDAGUR18. MAI1986
BLAÐ
Morgunblaðið/Bjami
Bragi Einarsson
Rætt við Braga Einarsson, ís-
firðinginn sem flutti f blóma-
ræktina á Suðurlandi og hefur
rekið Eden í Hveragerði um
áratuga skeið
Það ílengist margur á öðrum stað
en ætlað var. Þannig er með
ísfirðinginn sem kom til Hvera-
gerðis og ætlaði sér að dvelja
þar um þriggja mánaða skeið.
Var nýkominn frá Bandaríkjun-
um og búinn að sækja um endurnýjun vega-
bréfsáritunar til áframhaldandi dvalar ytra.
Ísfírðingurinn hafði því ekki uppi áform um
að skjóta rótum „ fýrir austan fjall“, en skaut
þeim samt og það heldur betur. Mánuðimir
þrír eru orðnir að þijátíu árum, þar af 28 árum
og einum mánuði betur frá því að hann opnaði
á sumardaginn fyrsta 1958 í einu gróðurhúsi
fyrirtæki sitt, sem í dag spannar 2200 fer-
metra svæði. Maðurinn er Bragi Einarsson
og fyrirtækið þetta með alþjóðlega heitinu sem
mörg okkar hafa komið við í á leið um Ölfusið
- Eden í Hveragerði.