Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. MAÍ1986
í gróðurskálanum ásamt yngstu
dótturinni og sambýliskonunni,
f.v. Olga Björk Bragadóttir,
Bragi og Karen Mellk.
Mestu framkvæmd-
irnar til þessa
„Ég hef byggt þetta í áföngum
og reynt að safna ekki of miklum
skuldum í hvert sinn. 1970 byijaði
ég að byggja þetta hús og það var
í framhaldi af því sem fyrirtækið
fór að ganga fyrir alvöru, að segja
má. Ein ástæðan var að vegurinn,
sem hafði verið hér beint fyrir fram-
an, var fluttur fjær og þá hafði
maður eðlilega áhyggjur af við-
skiptunum. Síðan hefur verið
stækkað, bæði gróðurhúsin og svo
afgreiðslan við innganginn 1981.
Það varð að gera því að þegar mikil
umferð var komst fólk varla inn,
heldur stóð þama frammi eins og
síld í tunnu og það er ekki hægt.
I vetur var svo veitingasalan stækk-
uð og þessa dagana erum við að
leggja síðustu hönd á matsöluna,
en stækkunin núna, bæði vegna
hennar og eldhússins, eru einar
mestu framkvæmdirnar sem ég hef
farið út í.
Einhvern veginn er það svo að
við hveija stækkun finnst mér verið
að bæta úr brýnni nauðsyn og það
má sjálfsagt halda lengi áfram áður
en að maður verður fyllilega án-
ægður,“ segir hann og bætir við
að næst á dagskrá sé að byggja
sýningarskála við Eden. „Það verð-
ur þó ekki gert fyrr en skuldimar
vegna þessara breytinga em frá.
En mig langar til að koma upp
sýningarskála fyrir suðrænan gróð-
ur, bananatré, vínvið ogþess háttar.
Það verður líka að vera hér fleira
sem fólki fínnst gaman að sjá og
skoða, það á ekki að þurfa að koma
hér inn einungis til að versla."
Aldrei langað að eiga tívolí
I allri þessari stækkunammræðu
víkur sögunni að tívolíinu sem reis
á lóð Braga á liðnu ári. Bragi
kveður sér hafa litist vel á hug-
myndina strax í upphafi og lagt fé
í fyrirtækið, en í dag hefur hann
dregið sig út úr rekstrinum, en
leigir lóðina undir aðstöðuna. Tívolí-
kóngurinn hefur sem sé ekki blund-
að með honum frá barnæsku?
„Nei, mig hefur nú aldrei langað
til að eiga tívolí," segir hann og
brosir í kampinn. „En ég þóttist
sjá það fyrir að tívolí í Hveragerði
myndi tryggja aðsókn að þorpinu
og Eden og tók þess vegna þátt í
að koma því af stað. Rekstur þess
Ánægjan af rekstrin
um er mitt brennivín
Rætt ifið Braga Einarsson, eiganda Eden í Hveragerði
Upphaflega kom ég hingað
af því að ég vildi fara í
garðyrkjunám. Var þá 18
ára og sá eiginlega engan
tilgang í öðm námi. Þegar ég kom
svo frá Bandaríkjunum 1956, eftir
að hafa kynnt mér blómarækt á
Long Island lengst af og starfað
við eitt og annað, var ég með þá
hugmynd í kollinum að ef ég fyndi
góðan stað þar sem hægt væri að
sameina blómarækt og veitinga-
sölu, þá væri það nákvæmlega það
sem mig langaði til að gera,“ segir
Bragi. Staðinn fann hann við þjóð-
veginn í Hveragerði, talsvert frá
bænum sem í þá tíð hafði um 300
íbúa og þurfti reyndar að borga
aukalega fyrir heitt og kalt vatn
„sökum fjarlægðar við byggðina".
En fyrir vikið fékk hann úthlutað
talsvert stærri lóð en ella og kveður
það hafa verið stóran kost þegar
fram liðu stundir. í dag stendur
Eden á þessari lóð, auk gróðurhúsa
og einbýlishúss fjölskyldunnar, að
ógleymdu tívolíinu, sem var reist á
svæðinu á sl. ári. Og enn er rými
til að byggja.
Heimiliskaffikannan á
afgreiðsluborðinu
„Þegar ég kom frá Bandaríkjun-
um átti ég bíl sem ég seldi og
notaði peningana til að borga skuld-
ir. Átti um 50.000 þá í afgang og
það var bytjunin á Eden,“ segir
Bragi. „Þær krónur voru hins vegar
löngu búnar áður en gróðurhúsið
var fullbyggt." En upp fór það samt
og veitingasalan hófst á afgreiðslu-
borðinu „í kaffíkönnu úr eldhúsinu
heima. “Bragi segir fyrstu árin
hafa verið erfíð, „það má segja að
þetta hafí ekki farið að ganga vel
fyrr en eftir svona tíu ár og á vet-
uma var oft lítið sem ekkert að
gera“. Hann segir sér þó aldrei
hafa hugkvæmst að breyta um starf
og lífsviðurværi. „Ég hafði alltaf
von um að þetta myndi ganga vel
og hún rættist."
- Hvemig er tilfínningin við að
sjá þá von rætast svo rækilega?
„Mér fínnst alltaf hálfundarlegt
að sitja hér í húsinu sem var einu
sinni fjarlægur draumur. En samt
er þetta hús ekki endanlegt tak-
mark, mér fínnst ég aldrei vera
kominn í mark. Einhvemveginn vex
maður líka með verkefnum og ein-
setur sér að ná enn betri árangri
næst. Og það er númer eitt í þessu
öllu saman að gera staðinn betri
og frambærilegri," segir hann þeg-
ar hann sýnir blaðamanni nýjustu
viðbyggingu staðarins, matsölustað
innst í húsinu.
Bragi ásamt hluta starfsfólksins í Eden, sem eru um 40 manns.