Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 8
FERÐALOG
Kaninn gerist
ískyggilega
heimakær
Ed Koch borgarstjóri New York
og helztu forkólfar í ferðamál-
um borgarinnar hafa undanfama
mánuði hvatt Bandaríkjamenn ein-
dregið til þess að leggja leið sína
til stórborgarinnar á komandi
sumri. Og margir virðast ætla að
svara kallinu. Ótti Bandaríkja-
manna við hryðjuverk í Evrópu
veldur því að mun fleiri en venjulega
hyggjast dveljast innanlands í
sumarleyfinu og mun New York
verða ein þeirra borga sem hagnast
á því. Árlegar tekju af ferðaútvegi
í borginni eru tæpir hundrað millj-
arðar króna.
Ed Koch barst nýlega bréf frá
bálreiðri húsfreyju í St. Louis. Hún
kvartaði sáran yfír því að fjölskylda
hennar gæti hvergi fengið inni á
gistihúsi í New York í júlí, en hún
hefði haft í hyggju að vera þar við
hátíðahöldin miklu á þjóðhátíðar-
daginn, 4. júlí, en þá á jafnframt
að fagna því að mikilli viðgerð á
Frelsisstyttunni verður lokið.
Koch svaraði henni glaðbeittur
„Komið samt. Við skulum koma
ykkur fyrir. Við ætlum að koma
öllum fyrir, jafnvel þótt við þurfum
að breyta skrúðgörðum borgarinnar
í tjaldstæði."
New York og aðrar borgir í
Bandaríkjunum sem fjölsóttar eru
af ferðamönnum ætla að hagnast
á sjónarmiðinu „Heima er bezt“ sem
svffur yfír vötnum um þessar
mundir. Mikill ótti hefur gripið þar
um sig vegna hryðjuverkanna í
Evrópu og kemur það sér býsna vel
fyrir ferðaútveg landsins. Árlegar
tekjur af honum eru áætlaðar 10
þúsund milljarðar króna.
Auglýsingabæklingar ferðaskrif-
KKSTEIL
stofa hafa breytt um svip. Fram
að þessu hafa auglýsingamar um
Evrópuferðir þakið þar fremstu síð-
ur, en nú eru þær aftast. Fremst
eru auglýsingar um ferðir til
Hawaii-eyja og stranda við Karab-
íahafið og Kanada.
Frá San Francisco berast þær
fréttir að bókanir í Evrópuferðir
hafí minnkað um 75%. Ferðaskrif-
stofur í sunnanverðri Kalifomíu
segja að bókanir séu nær helmingi
færri en venjan hefur verið.
Þá er bandarískum ferðamönn-
um hreint ekki sama um með hvaða
flugfélagi þeir feðast og kemur sú
varkámi í kjölfar hinna sífelldu
frétta og frásagna af hryðjuverk-
um. Ferðaskrifstofumaður segir
„Farþegar velja í æ ríkara mæli
flugfélög sem talin eru ömgg, eins
og Swissair." British Airways,
Olympic, TWA og E1 A1 hafa verst
orð á sér að þessu leyti.
Starfsmenn British Airways hafa
viðurkennt í einkasamtölum að
afpantanir á ferðum frá Bandaríkj-
unum til Lundúna séu sex sinnum
meiri en almennt gerist og er það
talið í beinu sambandi við stuðning
Margrétar Thatchers forsætisráð-
herra við árás Bandaríkjamanna á
Líbýu.
Ferðaskrifstofumaður í Los
Angeles segir, að fólk kippist bók-
staflega við, ef því sé ráðlagt að
fljúga til Miðjarðarhafslanda með
flugvél frá TWA. Tilgangslaust er
að reyna að sannfæra það um að
öryggisgæsla hafí verið aukin og
líkumar á aðgerðum hryðjuverka-
manna séu margfalt minni en líkur
á umferðarslysum á þjóðvegunum
í grennd við borgina.
í apríl síðastliðnum lagði TWA
niður leiðimar Róm-Aþena og
Róm-Kaíró vegna þess að eftirspum
var lítil sem engin. Þá felldi flug-
félagið niður refsigreiðslur vegna
afbókana á öllum utanlandsferðum
fram eftir maímánuði. En ferða-
skrifstofumenn spá því að þetta
verði látið gilda áfram.
Þrátt fyrir þessar slæmu horfur
hefur bandaríska flugfélagið Pan
American samt lýst yfír að það
muni hefla áætlunarflug til ýmissa
borga í Evrópu nú í sumar. Það
hefur þó jafnframt tilkynnt 10%
hækkun á fargjöldum til megin-
lands Evrópu og Bretlands vegna
„sérstakra öryggisráðstafna".
Viðskiptatímaritið Travel Ind-
ustry Monthly spáir því að ferðum
frá Bandaríkjunum til Evrópu fækki
um 25% á þessu ári. í fyrra námu
tekjur af bandarískum ferðamönn-
um í ríkjum Vestur-Evrópu um 38
milljörðum króna, og er búizt við
að þær rými verulega á þessu ári.
Fulltrúar ferðamála í Kalifomíu
spá því jafnvel að þær verði ekki
nema 14 milljarðar króna.
En eins dauði er annars brauð,
eins og máltækið segir og samband
bandarískra gistihúsa hefur skýrt
frá því að pantanir séu nú 20%
meiri að jafnaði en í meðalári.
— WILLIAM SCOBIE
UNPRALVF
Langlíf i er
falt en það.
er ekki gef ið
Allmargir Kínvetjar hafa að
undanfomu komizt nokkuð í
álnir vegna breyttrar efnahags-
stefnu stjómvalda. Og þessu nýríka
fólki er mjög umhugað að eiga góða
daga. Fyrir vikið er mikil eftirspum
eftir töfradrykkjum sem eiga að
stuðla að langlífí eða aukinni kyn-
getu. Framleiðsla á slíkum lyflum
stendur á gömlum merg í Kína og
stjómvöld reyna nú að laga þessa
fomu list að þörfum nútímafólks.
Það lyf sem mest er selt um
þessar mundir heitir Ching Chun
Bao og á að vina gegn áhrifum
ellinnar. Hér er um að ræða vökva
sem er búinn til úr ginsengi og
drottningarhunangi. Áldnir leið-
togar kínverska kommúnistaflokks-
ins nota lyfið mikið samkvæmt
upplýsingum Feng Gengheng fram-
kvæmdastjóra lyfjafyrirtækis í
Hangzhou sem framleiðir lyf sam-
kvæmt gömlum, kínverzkum að-
ferðum.
Fyrir skömmu skoðuðu blaða-
menn fyrirtæki hans og ræddu við
hann sjálfan. Þar fuilyrti hann að
ekki væri unnt að anna eftirspum,
enda þótt framleiðslugeta fyrirtæk-
isins hefði aukizt um 87% á síðasta
ári vegna tölvutækni.
Framleiðsluvörumar eru marg-
víslegar. Þar má meðal annars
nefna gelatín úr asnahúð, sem kvað
vera nærandi fyrir mikilvæg líffæri
og sérstakar töflur sem eiga að
vinna gegn offítu og em framleidd-
ar úr bufflahomum. Þá má ekki
gleyma því nýjasta á markaðinum,
sem nefnist „Vorið kemur víst á
ný“. Lyfið er framleitt úr muldum
dádýrshomum og á að stórauka
kyngetu. Fyrirtækið í Hangzhou
státar líka af því að framleiða lyf
úr homum nashyminga, kirtlum
moskusdýra, sveppum og tígris-
dýrabeinum, ásamt með seyði úr
eðlum, skjaldbökum og slöngum.
Og allt á þetta að vera þeirrar nátt-
úm að græða og lækna.
Feng fór undan í flæmingi þegar
hann var spurður hvaðan hann
fengi hom nashyminga og kirtla
moskusdýra, en báðar þessar dýra-
tegundir eru á skrá yfír þær sem
mest útrýmingarhætta vofír yfír.
Alþjóðlegu náttúruvemdarsamtök-
in hafa reynt að telja þjóðir Asíu á
að banna innflutning á þessum
tegundum en án árangurs. Hom
nashyminga kosta u.þ.b. 180.000
krónur og á Taiwan eru flutt inn
hom fyrir 120 milljónir árlega.
Flest lyfjafyrirtækin þykjast hafa
aðgang að uppskriftum lyQa sem
eitt sinn vom eingöngu framleidd
fyrir kínversku keisarana og mikil
leynd hvílir yfír. En svo virðist sem
þau steli uppskriftum hvert frá öðm
og að ekki séu allir vandir að
meðulum í orðsins fyllstu merkingu.
Héraðsstjómir í landinu em nú í
óðaönn að setja á laggimar stofnan-
ir sem eiga að koma í veg fyrir að
fölsuð lyf séu á boðstólum.
Á síðasta ári komst upp um víð-
tæka svikamyllu í lyfjagerð í Fujian.
Fyrirtæki í 57 borgum höfðu selt
sérstakar töflur og mixtúmr sem
áttu að ráða bót á háum blóðþrýst-
ingi og hjartasjúkdómum en vom
nánast eingöngu búnar til úr sykri.
Feng fullyrðir að lyf hans, sem
á að vinna gegn áhrifum ellinnar,
hafí verið vandlega prófað. 10.000
naggrísir, rottur, mýs og hundar
hafí tekið það með góðum árangri
og tveir naggrísir hafí orðið tveggja
og hálfs árs en 20% hafí lifað í 2
ár fram yfír meðalaldur þessara
dýra.
Sérfræðingar í lyfjagerð upp á
foma kínverska vísu ’,om 330 þús-
und talsins á síðasta ári og 190
þúsund til viðbótar stunda nú nám
í þessum fræðum. Framleiðslan er
dijúg tekjúlind fyrir kínverska þjóð-
arbúið, því að 10 daga skammtur
af ching chun bao er seldur á 15
dollara í Bandaríkjunum sem er
fímm sinnum hærra verð en Kín-
veijar greiða fyrir langlífíð.
- JASPER BECKER
SER GREFUR GROF. . .
Beirút er í
andarslitrunum
að em þijár milljónir Líbana
eftir í þessu landi, sagði vinur
minn í Vestur-Beirút við mig fyrir
skömmu. „Ein milljón til að vera
drepin, ein milljón til að sjá um
drápin og ein milljón sem bíður
þess að vera flutt burt.“ Hann
kvaddi mig með þessum dapur-
legu orðum áður en ég steig upp
f herbílinn, sem flutti mig, 33
aðra Breta og einn Nýsjálending
yfír í Austur-Beirút þar sem ör-
yggið er tiltölulega meira.
Fyrir Líbani hafa framtíðar-
horfumar aldrei verið jafn dökkar
og nú og augljós feigðarsvipur er
á Beirút, höfuðborginni sem áður
var nokkurs konar inngangur að
Austurlöndum nær og alþjóðlegur
mótsstaður forríkra fursta og
njósnara, menntamanna og kaup-
sýslumanna.
Líbanir hafa kynnst styijöldum
fyrr, með trúflokkum hafa oft
orðið blóðug átök, en það var eins
og ekkert gæti ógnað tilveru
Beirút-borgar. Þeir sem þar
bjuggu, áttu líka allt undir því,
að lífíð gengi sinn venjulega gang.
Allt er þetta nú breytt, þáttaskilin
urðu þegar síðustu Bretamir,
Bandaríkjamennimir og Frakk-
amir fóru alfamir frá Beirút.
Til að skilja gengi Beirút-
borgar á árum áður verða menn
að minnast þess, að hún blómstr-
aði vegna þess að Vesturlanda-
menn mátu hana mikils. Frakkar
komu þangað með frönskuna sína,
skólakerfíð, viðskipti og stjóm-
kerfí, Bretar stofnuðu þar frægan
tungumálaskóla og Bandaríkja-
menn háskóla, sem ekki átti sinn
líka um öll Mið-Austurlönd.
„Það þurfa svo margir á okkur
að halda," voru Beirút-búar vanir
að segja með nokkrum sannfær-
ingarkrafti og jafnvel á dimmustu
dögum borgarastyijaldarinnar
blundaði sú trú í bijóstum manna,
að brátt yrði allt eins og það var
áður.
Þessi vissa er nú næstum horf-
in, hún hvarf á braut með útlend-
ingunum. Þeir fyrstu fóm þegar
borgarastríðið hófst árið 1974,
síðan jókst^ brottflutningurinn
eftir innrás ísraela árið 1982 og
nú má heita, að honum sé lokið.
Útlendingamir sem bjuggu í
Beirút vom einlægustu banda-
menn borgarinnar en hvers vegna
skyldu þeir hafa ákveðið að fara?
Allir, sem ég talaði við í herbfln-
um, höfðu orðið fyrir áfalli og
tekið mjög nærri sér algjört til-
gangsleysi morðanna á Bretunum
Leigh Douglas og Philip Padfíeld
og Bandaríkjamanninum Peter
Kilbum. Útlendingar, Vestur-
landabúar, hafa raunar áður verið
teknir sem gíslar og sumir myrtir
en munurinn er sá, að nú em allir
útlendingar, sér í lagi Bretar og
Bandaríkjamenn, eltir uppi eins
og villidýr f skógi.
Sumir mannræningjanna
stunda iðju sína aðeins í auðgun-
arskyni, þeir halda að þeir fái
stórfé fyrir hvem dauðan útlend-
ing. Enginn virðist hafa áhyggjur
af því að vonin um endurreisn
Beirút-borgar hefur líklega verið
endanlega slökkt.
- SHYAM BHATIA
DAGLEGT BRAUÐ -
„Ein milljón til að sjá um dápin...“
POSTULÍN
Af hafs-
botni undir
hamarinn
145 þúsund hlutir úr kínversku
postulíni, sem fundust á botni
Suður-Kínahafs, vom fyrir skömmu
seldir á uppboði fyrir um 600 millj-
ónir króna. Sérfræðingar í austur-
lenskum listmunum hafa samt
dregið iistrænt gildi þessara muna
mjög í efa og raunar sagt þá vera
ósköp hversdagslega.
Breska fyrirtækið Christies sá
um uppboðið en það fór fram á
hóteli í Amsterdam og var verðið
miklu hærra en við hafði verið búist.
Uppboðið fór fram í nokkmm
áföngum og var talið að Christies
hefði tekið nokkra áhættu með því
að bjóða allt þetta postulín upp á
skömmum tíma. Um 20 þúsund
manns komu að skoða gripina áður
en þeir vom boðnir upp og upp-
boðssalurinn var troðfullur á meðan
eitthvað var til að bjóða í.
Michael Hatcher skipstjóri fann
flakið af skipinu Geldermalsen á
síðasta ári. Það var hollenskt ind-
íánafar sem flutti í hinstu ferð sinni