Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 23
G 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986
Frá hljómleikum
Dirty Dozen
Brass Band
í Broadway
að virtist ekki ríkja mikii eftir-
vænting á Broadway áður en
Dirty Dosen Brass Band kom þar
fram, miðvikudaginn 14. maí — það
var eins og þeir vissu ekki við
hverju þeir ættu að búast, skrifar
Kristján Logason sem fylgdist með
hljómleikunum. Það tók þá Dirty
Dosen-félaga nokkurn tíma að ná
upp stemmningu en eftir hlé tókst
þeim það sannarlega til fulls.
Að hléi loknu bauð Vernharður
Linnet Dirty Dosen-bandið aftur
velkomið á svið. Innan um gömul
hefðbundin lúðrasveitarlög og ný-
lega marsa mátti heyra lög sem á
sínum tíma voru flutt af köppum
eins og Rolling Stones og Michael
Jackson. Sá blandaði aldurshópur
sem þarna var kunni vel að meta
þessa fjölbreytni. Það fór líka svo
að því fleiri sem lögin urðu því
ókyrrara varð fólkið í sætunum, og
í lokin þegar hljómsveitarmeðlimir
tóku sig til og gengu fram í salinn
stóð fólk upp, bæði eldri og yngri,
og dansaði og klappaði. Gerðu
sumir sig líklega til að mynda
skrúðgöngu á staðnum. Það má
því með sanni segja að þetta kvöld
sem byrjaði heldur rólega hafi
endað í einni allsherjar gleði.
Ég ræddi stuttlega við þá kappa
eftir tónleikana og voru þeir sam-
mála um það að dvölin hér á Fróni
hafði verið dásamleg. Landið yndis-
lcgt og fólkið mjög gestrisið. Þeir
höfðu • spilað á Akureyri áður en
þeir spiluðu í Broadway og einnig
höfðu þeir verið með einskonar
„work shop“ með íslenskum tónlist-
armönnum sem þeim fannst bara
skolli góðir. Allir voru þeir sammála
um það að æðislegt hefði verið að
fara til Akureyrar þrátt fyrir kuld-
ann. Þeir voru nokkuð hissa á því
að áhorfendur á Akureyri héldu í
fyrstu að þeir spiluðu ekki sjálfir
heldur væru með plötu bakvið sig.
Áhorfendurnir sannfærðust þó um
að þessi frábæra spilamennska
væri ekta þegar þeir gengu um
salinn og spiluðu.
Aðspurðir sögðust þeir hafa spil-
að saman í ein átta ár. Þegar þeir
voru spurðir út í viðbrögðin við tón-
list þeirra fyrst, sögðu þeir að sú
kynslóð sem væri að vaxa úr grasi
hefði annan smekk en sú fyrri og
þess vegna hefðu þeir lagt sig í líma
við að hafa á efnisskrá tónlist fyrir
alla aldurshópa þrátt fyrir gagn-
rýni. Meira var ekki hægt að ræða
við þá því þeir voru á þeytingi heim
á hótel til að ná einhverjum svefni
áður en þeir héldu úr landi að
morgni. Þeytingurinn á þeim er svo
mikill þessa dagana að þeir voru
ekki vissir hvaða dagur var, hvert
þeir væru að fara eða hvaðan þeir
voru að koma. Eitt voru þeir þó
vissir um að einhvem tíma myndu
þeir koma aftur til íslands.
Sérstæðir
skrautmunir
eila má um notagildi hlutanna
sem stúlkumar á myndinni em með
en framleiðandinn í London segir
að hlutir sem þessir njóti þar tölu-
verðra vinsælda. Fólk notar þá til
að skreyta íbúðir sínar og einnig
eru þeir vinsælir til útstillingar í
búðargluggum.
COSPER
PIB
COMHMtlN
■ Hún er bráðfalleg — röddin.
Ferdaskrifstolan Úrval v/Austurvölt. Simi (91) 26900.
Það tók þá Dirty Dozen-
félaga nokkurn tima að ná
upp stemmningu en eftir hlé
tókst þeim það svo sannarlega
tilfulls.
arís er full af lífi og krafti, fjöri og ferðamannalúxus.
JL Þar blómstrar lifandi menning og sérdeilis lystaukandi
matarlist; kræsingar fyrir líkama og sál á hverju götuhorni.
Vika á wöu hóteli
kostarjrá kr 23.295r
Úrval býður farþegum sínum mikinn fjölda
hótela í París. Allt frá notalegum 3ja stjörnu
hótelurn uppf 5 stjörnu lúxushótel. Innifalið
í verði er flug, gisting og morgunverður.
Vika íglœsilegum
íbúóum kostar Jrá
kr 20.934.-
i boði eru glæsilegar íbúðir á besta
stað í borginni. Þar eru öll þægindi.
Ef dvalið er lengur en 7 daga fæst
15% afsláttur og 30% ef dvalið er
lengur en 3 vikur. Innifalið:
Flug, gisting, söluskattur,
hreingerning o.fl.
Brottfarir til Parísar: Alla
miðvikudaga og sunnudaga
f júní, júlí og ágúst.
Sérstakar viku hóþ-
Jeióir 6. og 20. ágást
Gist er á fallegu 3ja stjörnu
hóteli-verðá mann f tvíbýli:
kr. 24.470,— eða lúxus-
hótelinu Lutetia Concorde -
verð á mann í tvíbýli: kr. 28.390,-. Innifalið:
Flug, gisting, morgunverður, akstur frá og að
flugvelli í París, skoðunarferðir um París og
Versali og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur.
Morgunblaðið/Kristján Logason
Dirty Dozen Brass Band gerði
stormandi lukku í Broadway á
dögunum.
I
Gon Föy