Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18.MAÍ 1986
Bókakaffi í Hlaðvarpanum:
12 daga kynning á
kvennabókmenntum
„TILGANGURINN er sá
að kynna skáldverk
kvenna, bæði með fræði-
legri útlistun og upplestri
eða leiklestri. Við teljum
að þessi bókmenntadag-
skrá eigi tvímælalaust er-
indi til kvenna. Kvenna-
bókmenntir eru ekki í
sjálfu sér ólíkar öðrum
bókmenntum, því það verð-
ur að líta á þær sem eina
leið til skilnings og þroska.
Sama á við með bók-
menntaverk eftir karla,“
sagði Súsanna Svavars-
dóttir hjá Hlaðvarpanum,
en á vegum Hlaðvarpans
verður haldin bókmennta-
dagskrá frá 19. til 30. maí
undir fyrirsögninni „Bóka-
kaffi: Konur og bækur“.
Alla þessa daga verður kynning
á verkum kvenna og verða átta
höfundar kynntir. „Það má nefna
Ijóðakvöld, þar sem við kynnum
núlifandi Ijóðaskáldkonur, einu
kvöldi er varið til kynningar á
leikritum eftir konur innlendar og
erlendar. Þá verður borið saman
málfar kvenpersóna í skáldverk-
um eftir því hvort konur rita þau
eða karlar," segir Svava.
„Hlaðvarpinn stendur á þessum
tíma fyrir bókamarkaði og verður
þar boðið upp á 200—300 bók-
artitla eftir konur, íslenskar og
erlendar. Um leið verður einnig
opin grafíkmyndasýning, þar sem
sýnd verða verk eftir konur en
það er Gallerí Borg sem útvegar
verkin og þau verða öll til sölu.
Þann 23. maí verður fyrsta mynd-
listarsýning sumarsins opnuð í
myndlistarsal Hlaðvarpans, en
það er Þórður Ben sem sýnir.
Salurinn verður opinn á meðan
dagskráin fer fram.
Þess ber að geta að það er
ókeypis inn á dagskrána, og boðið
verður upp á bamagæslu frá
17.15 til 19 á virkum dögum. Þá
er einnig á virkum dögum sögu-
stund fyrir böm, sem þau kunna
áreiðanlega vel að meta.“
Súsanna kvað bókmenntadag-
skrána vera með léttum undirtón.
„Við verðum með mikið léttmeti
inn á milli, bæði í fyrirlestrum og
leiklestrum. Við höfum varað
okkur á því að vera ekki of fræði-
leg. Það eru um 70 manns sem
taka þátt í dagskránni og þó svo
að það eigi að heita svo, að verið
sé að fjalla um kvennabókmennt-
ir, þá taka nokkrir karlar þátt í
upplestri.
Undirbúningurinn er búinn að
vera gífurlega mikill, sérstaklega
vegna þess að nú er verið að safna
saman konum með sérþekkingu
til fyrirlestrahalds og upplesarar
em allir úr leikarastétt. Það var
til dæmis mikil vinna að samræma
upplestrana og vinnutíma þeirra
í leikhúsunum."
„Karlar em að sjálfsögðu guð-
velkomnir, enda ekkert sem mælir
gegn því að þeir mæti og fræðist
um þau afrek sem konur hafa
unnið í bókmenntum síðustu 100
árin."
Bókmenntadagskrá í Hlaðvarpanum
Mánudagur 19. maí Kl. 16.00
kl. 16.00-22.00
Kl. 20.30
Þriðjudagur 20. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Miðvikudagur 21. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Fimmtudagur 22. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Föstudagur 23. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 17.30
Laugardagur 24. maí Kl. 14.00
kl. 14.00-20.00
Sunnudagur 25. mai Kl. 14.30
kl. 14.00-22.00
Kl. 17.00
Mánudagur 25. maí Kl. 17.00
kl. 16.00-22.00 KI. 20.30
Þriðjudagur 27. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 20.30
Miðvikudagur 28. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Fimmtudagur 29. maí Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Föstudagur 30. mai Kl. 17.15
kl. 16.00-22.00 Kl. 20.30
Opnun.
Kynning á bókaforlaginu
Bríeti. Upplestur úr „Reyndu
þaðbara".
„Ólyginn sagði mér“.
Erindi Guðrúnar Kvaran.
Upplestur: Kolbrún Péturs-
dóttir, Ragnheiður Tryggva-
dóttir og Kristbjörg Kjeld.
Sögustund fyrir böm.
„Nu mun hún sökkvast“
Helga Kress flytur erindi um
kvennamenningu og hrun
hennar að fornu. Lesarar
með henni eru Bríet Héðins-
dóttir og Anna Einarsdóttir.
Sögustund fyrir böm.
Kvöld tileinkað Svövu
Jakobsdóttur. Höfundur les
úr verkum sínum. Leiklestur:
Edda Þórarinsdóttir og Sig-
urður Karlsson. Upplestur:
Guðrún Ásmundsdóttir.
Sögustund fyrir böm.
„Hulda"
Guðrún Bjartmarsdóttir flyt-
ur erindi. Upplestur: Guð-
björg Þorbjamardóttir.
Sögustund fyrir börn.
Erindi um ritverk Kristínar
Sigfúsdóttur.
Flytjendur: Soffía A. Birgisd.
og Ragnhildur Richter. Upp-
lestun Svanhildur Jóhann-
esd. og Sólveig Halldórs-
dóttir.
„Karen Blixen"
Soffía Birgisdóttir flytur er-
indi. Upplestur: Svanhildur
Jóhannesd. „Karen Blixen".
Jóna Ingólfsdottir flytur er-
indi. Upplestur: Svanhildur
Jóhannesd.
Erindi um bamabókmenntir.
Silja Aðalsteinsdóttir flytur.
Félagar úr Félagi íslenskra
leikara lesa upp úr bamabók-
um.
„Elli“
Helga Thorberg og Edda
Björgvins. flytja.
Sögustund fyrir böm.
„Leikritun kvenna"
Umsjón: Helga Bachmann.
Félagar úr Félagi íslenskra
leikara lesa upp úr verkum
eftir konur.
Sögustund fyrir böm.
„Samastaður í tilverunni".
Ragnheiður Margrét Guð-
mundsdóttir flytur erindi um
Málfríði Einarsdóttur. Upp-
lestur: Herdís Þorvaldsdóttir.
Sögustund fyrir böm.
„Ásta Sigurðardóttir“
Erindi flytur Ragnhildur
Richter. Upplestur: Guðrún
Gísladóttir og Guðlaug
Bjamadóttir.
Sögustund fyrir böm.
„Ljóðakvöld"
Islenskar skáldkonur lesa úr
verkum sínum. Umsjón:
Þuríður Jóhannsdóttir.
Sögustund fyrir böm.
Kvöld tileinkað Jakobínu
Sigurðardóttur.
Upplestur: Félagar úr Félagi
íslenskra leikara lesa.
HELLUR
OC STEINAR
Viöurkennd gæöaframleiösla.
Staögreiösluafsláttur.
Heimsendingarþjónusta.
EURQCARD
____________
3
HELLUR
40x40 cm
kr. 525.- pr. m2
kr. 84.- pr. stk.
STEYPUSTÖÐ, AFGREIÐSLA, SUÐURHRAUNI 2, 210 GARÐABÆ.
SlMAR 651445 OG 651444