Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986
Lægsta tilboði
tekið í byggingu
tveggja skóla
Á FUNDI Borgarráðs í gær var
ákveðið að taka lægsta tilboði
frá Sigurði og Loga sf. í bygg-
ingu tveggja skóla á Eiðsgranda
og í Selási. Tilboðið hijóðaði upp
á kr. 23.061.120 i báða skólana
og er það 76,86% af áætluðu
kostnaðarverði.
Frá menntamálaráðuneytinu var
lagt fram til umsagnar leyfi til
handa Iðnskólanum í Reykjavík um
að útskrifa stúdenta. Meðal annarra
mála sem lögð voru fyrir fundinn
var samþykkt Búnaðarsambands
Suðurlands til stuðnings dýragarði
í Laugardal. Á sama fundi var
samþykkt að leyfa vinstri beygju á
ný upp Vatnsstíg frá Skúlagötu og
niður Laugaveg af Vitastíg.
Mjólkurlítrinn
kostar 36,20 kr.
ÚTSÖLUVERÐ búvara hækkaði á bilinu 0,8% til rúmlega 3% um
mánaðamótin. Mjólk í eins lítra pökkum kostar nú 36,20 og hækkaði
um 80 aura, eða 2,2%.
Rjómi í eins lítra femum hækkaði
úr 225,70 í 227,60 kr., eða um 1,90
kr. (0,8%). Undanrenna í 11 femum
hækkaði úr 24,30 í 24,50 kr., eða
um 0,20 kr. (0,8%). Eitt kíló af
skyri hækkaði úr 63,40 í 63,90
kr., eða um 50 aura (0,8%). Smjörk-
flóið hækkaði úr 275,00 í 279,10
kr. eða um 4,10 kr. (1,5%). Kíló
af 45% osti hækkaði um 2,70 kr.,
úr 346,80 f 349,50 kr. (0,8%). Þá
hækkaði nýmjólkurduft úr 253,10
í 272,90 kr., eða um 3,7%.
Dilkakjöt í 1. verðflokki (DI) í
heilum skrokkum, skipt að ósk
kaupenda, hækkaði um 6,30 kr.
hvert kfló, úr 217,90 í 224,20 kr.,
eða um 2,9%. Nautakjöt í heilum
og hálfum skrokkum 2. verðflokki
(UNI) hækkaði um 4,90 kr. (2%),
úr 240,70 í 245,60 krónur kílóið.
í ofangreindum dæmum er í öll-
um tilvikum miðað við hámarks-
smásöluverð. Smásöluverð er ftjálst
á hrossakjöti og kartöflum. Afurðir
þessar hækkuðu um 2,5% til fram-
leiðenda eins og aðrar búvörur.
Verðið til bænda á einu kflói af
hrossakjöti (dýrasti verðflokkur) er
nú 102,72 krónur. Þá eiga bændur
að fá 32,85 krónur fyrir hvert kfló
af kartöflum í úrvalsflokki.
Vilhjálmur Ketilsson
bæjarstjóri Keflavíkur
FULLTRÚAR Alþýðuflokksins í
bæjarstjóm Keflavíkur sem þar
náðu meirihluta í kosningunum
hafa ákveðið að Vilhjálmur Ket-
ilsson skólastjóri, sem skipaði
annað sæti lista þeirra, verði
bæjarstjóri Keflavíkur næstu
fjögur árin. Efsti maður listans,
Guðfinnur Sigurvinsson deildar-
stjóri, verður forseti bæjar-
stjórnar og Hannes Einarsson,
byggingameistari, sem skipaði
þriðja sæti listans, verður for-
maður bæjarráðs.
Að sögn Guðfinns verður fyrsti
fundur nýkjörinnar bæjarstjómar
eftir miðjan mánuðinn og verður
þá formlega gengið frá þessum
hlutum. Hann sagði að nú væri
verið að velja menn í nefndir bæjar-
ins;
í Kópavogi vom fundir í flokks-
félögum alþýðubandalags- og al-
þýðuflokksmanna þar sem ræða átti
meirihlutasamstarf. Guðmundur
Oddsson efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins taldi mestar líkur á
að þessir flokkar ræddu saman um
meirihlutamyndun. í gærkvöldi
funduðu bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags um
hugsanlegt meirihlutasamstarf
þessarra flokka í bæjarstjóm Hafn-
arfjarðar.
Sveinn R. Eiríksson,
siökkviliðsstfóri, látinn
SVEINN Eiríksson, slökkviliðs-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, lézt
á sjúkrahúsi i London síðastlið-
inn mánudag, 51 árs að aldri.
Sveinn var þekktur viða um heim
fyrir störf sín og hlotnuðust
honum ýmsar viðkenningar,
bæði heima fyrir og erlendis.
Sveinn Eiríksson fæddist á Seyð-
isfirði 30. júlí 1934, en ólst upp í
Narfakoti í Innri-Njarðvík. Hann
lauk gagnfræðaprófí frá Flens-
borgarskóla árið 1950 og réðst til
vamarliðsins í ágúst sama ár, en í
slökkviliðinu var hann frá 1. maí
1952. Hann varð eldvamaeftirlits-
maður í nóvember 1962 og slökkvi-
liðsstjóri frá 1. júlí 1963. Hann
hlaut atvinnuflugmannsréttindi árið
1965 og stundaði flug í nokkur ár
með starfi sínu í slökkviliðinu.
Sveinn sótti fjölmörg námskeið í
stjómun á sviði sínu heima og er-
lendis. Árið 1975 tók hann við
stjóm snjóruðnings á flugbrautum
og upp úr því varð til undir stjóm
hans sérstök flugvallarþjónustu-
deild, sem annaðist flesta þætti er
tengdust þjónustu við flugvélar á
jörðu niðri. Hann var í Vestmanna-
eyjum í eldgosinu 1973 og stjómaði
þar ýmsum aðgerðum, meðal ann-
ars kælingu hraunsins. Vegna
þeirra starfa var hann sæmdur
riddarakrossi fálkaorðunnar í des-
ember 1973. Þess utan hlaut Sveinn
Qölmargar viðurkenningar frá ís-
landi, Bandaríkjunum og öðrum
löndum. Meðal annars var hann
sæmdur afreksorðu bandaríska sjó-
hersins fyrir frábæra þjónustu
þeirra deilda, sem hann stjómaði
og slökkviliðið undir stjóm hans
hefur meðal annars tvívegis hlotið
æðstu viðurkenningu Brunavama-
samtaka Bandaríkjanna, sem ná
yfír Bandaríkin og Kanada auk
vama- og herstöðva Bandaríkja-
hers, sem bezta slökkvilið í sinni
grein.
Sveinn tók einnig virkan þátt í
stjóm- og félagsmálum. Hann átti
sæti í bæjarstjóm Njarðvíkur síð-
asta kjörtímabil fyir Sjálfstæðis-
Morgunblaðið/Stmamynd/Skapti
Frá viðræðum fulltrúa Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks í bæjarstjóm Akureyrar í gær. Vinstra megin eru
Bergljót Rafnar, Björn Jósef Arnviðarson og Gunnar Ragnars. Á móti þeim eru Áslaug Einarsdóttir,
Freyr Ófeigsson, Sigurður J. Sigurðsson og Gísli Bragi Hjartarson.
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkur á Akureyri:
Verulegar líkur eru
taidar á samstarfi
Akureyri.
VERULEGAR líkur eru á meiri-
hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks í bæjarstjóm
Akureyrar næsta kjörtímabil,
samkvæmt heimiidum Morgun-
blaðsins. Nýlqömir bæjarfull-
trúar flokkanna funduðu í gær,
nær stanslaust frá klukkan 13.30
til miðnættis, fyrstu stundirnar
óformlega þar sem kannaðar var
grundvöllur viðræðna en síðan
formlega um möguleika á meiri-
hlutasamstarfi og mun góður
andi hafa verið i viðræðunum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 4
menn kjöma f bæjarstjóm Akur-
eyrar, jafn marga og áður, og
Alþýðuflokkurinn fékk þtjá, en
hafði einn áður. Samtals hafa þessir
flokkar því góðan meirihluta, eða
sjö af ellefu fulltrúum í bæjarstjóm-
inni. Fulltrúar flokkanna hafa boð-
að blaðamenn á fund sinn í dag
klukkan 13 þar sem staðan í við-
ræðunum verður skýrð.
Á fundi hjá Alþýðubandalaginu
í fyrrakvöld var ákveðið að fara
fram á viðræður við Alþýðuflokk
og Framsóknarflokk um möguleika
á meirihlutamyndun. Framsóknar-
menn lýstu sig reiðubúna til við-
ræðna en alþýðuflokksmenn ákváðu
að ræða frekar við fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins.
Meirihluta í bæjarstjóm Akur-
eyrar á því kjörtímabili sem nú er
að ljúka mynduðu Framsóknar-
flokkur, Alþýðubandalag og
Kvennaframboð. Helgi M. Bergs
bæjarstjóri lætur senn af störfum.
Vitað er að fuiltrúar Alþýðuflokks-
ins hafa mikinn hug á að fá Sigfús
Jónsson sveitarstjóra á Skaga-
strönd til að taka við bæjarstjóra-
starfínu.
Ráðherraf undur EFTA hefst í dag í Reykjavík:
Samskiptin við Evrópu-
bandalagið aðalverkefnið
Ráðherrafundur Fríverslunar-
samtaka Evrópu, EFTA, hefst í
Reykjavik í dag. Aðalefni fund-
Sveinn R. Eiríksson
flokkinn og skipaði efsta sætið á
lista hans til nýafstaðinna sveitar-
stjómarkosninga. Hann átti sæti í
ýmsum nefndum og ráðum á vegum
bæjarins og var auk þess félagi í
Varðbergi frá stofnun þess.
Sveinn lætur eftir sig þijú böm
frá fyrra hjónabandi, sambýliskonu
og fósturbam.
arins eru samskipti samtakanna
við Evrópubandalagið. De Clerq,
framkvæmdastjóri utanríkis-
mála EBE, er væntanlegur til
viðræðna við ráðherrana. 110
manns koma tíl landsins vegna
fundarins, auk fréttamanna.
Að sögn Þorsteins Ingólfssonar,
varafastafulltrúa íslands hjá EFTA,
sat ráðgjafamefnd samtakanna á
rökstólum á þriðjudag og undirbjó
ráðherrafundinn. í nefndinni eiga
sæti flmm menn frá hveiju aðildar-
ríkjanna, fulltrúar helstu atvinnu-
greina í viðkomandi löndum. Ráð-
gjafamir skýra álit sitt á stefnu
sambandsins fyrir ráðherrunum í
dag. Þau mál sem efst verða á
baugi em starfsemi samtakanna á
undanfömum 6 mánuðum, tollamál,
afnám tæknilegra viðskiptahindr-
ana, og samræmd stefna í rann-
sóknum og þróun. Þungamiðja
þessara hugmynda er samvinna
EFTA og EB, en 18 Evrópuríki
mynda bandalögin tvö. Búist er við
að eftir fund ráðherranna með De
Clercq liggi fyrir ákvörðun um
samræmingu tollskjala á fríverslun-
arsvæði Evrópu.
Fundur ráðherranefndar EFTA
hefur aðeins einu sinni áður verið
haldinn á íslandi. Lönd samtakanna
skiptast á um að gegna for-
mennsku, 6 mánuði í senn. Það er
Albert Guðmundsson sem stjómar
fundinum, í fjarveru Matthíasar
Bjamasonar viðskiptaráðherra. í
gærkvöldi sátu allir gestimir veislu
á Hótel Sögú, þar sem fundahöldin
fara fram. Síðdegis tekur Vigdís
Finnbogadóttir forseti á móti ráð-
herrunum og fylgdarliði á Bessa-
stöðum.
í Fríverslunarsamtökum Evrópu
em Austurríki, Finnland, Noregur,
Svíþjóð, Sviss og Liechtenstein, auk
íslands. Samtökin vom stofnuð árið
1960, en ísland gerðist aðili árið
1970. Á síðasta ári bjuggu 31,7
milijónir manna í EFTA-löndunum.
í upplýsingaefiii frá samtökunum
segir að stofnun EFTA og þróun
sé þáttur í sögu aukinnar efna-
hagssamvinnu í , Vestur-Evrópu.
Markmið stofnaðilanna var að gera
álfuna að einu markaðssvæði. Arið
1984 undirrituðu ráðherrar frá öll-
um EFTA- og EB-löndum sam-
komulag um að stefna að endanlegu
afnámi tolla í viðskiptum rílq'anna.
Höfuðstöðvar samtakanna em í
Genf, fastafulltrúi íslands er Hann-
es Hafstein.
INNLENT