Morgunblaðið - 04.06.1986, Side 4

Morgunblaðið - 04.06.1986, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. JÚNl 1986 Danska blaðið BT um atvikið yfir Austfjörðum: • • „Orfáum sekúndum frá dauðans dyrum 186 farþegar SAS höfðu ekki hugmynd um hættuástandið DANSKA blaðið BT greindi á litríkan hátt frá þeim atburði sem átti sér stað yfir Austfjörð- um í fyrradag, þegar nærri lá að Boeing 747-júmbóþota og DCB-þota frá SAS flygju saman í 10 þúsund metra hæð sunnan við Eskifjörð. hafí of seint komið auga á hina vélina og því hafí vélamar þotið hvor fram hjá annarri í skelfílegri nálægð, án þess að hvorugur fengi nokkuð að gert. Blaðamaður breska dagblaðsins Daily Mail sem kynnti sér mál þetta amaeti SflS-fly sekunder fra at blive knust mod jumbojet Radioamatðr underrettede B.f ] ---------...____...j Atburðurinn yfir Austfjörðum var mikill uppsláttur i danska dag- blaðinu BT í gær, eins og glöggt má sjá af þessari mynd. í frétt blaðsins kemur fram að það var danskur „radio-áhugamaður" sem kom BT á sporið en hann fylgdist með talstöðvarsamtali flugstjóra SAS-þotunnar við flugumferðarstjórnina í Reykjavík. í BT segir m.a.: „Það voru fagn- aðarfundir þeirra 186 farþega SAS DC8-þotunnar er þeir hittu sína nánustu á Kastrup-flugvelli í gær- kveldi, en vélin var þá að koma frá Grænlandi. Enginn þeirra hafði hugmynd um að þeir voru aðeins örfáum sekúndum frá dauðans dyrum er júmbóþota stefndi beint á vél þeirra yfír Atlantshafínu. Það var stórkostlegt lán hinna flölmörgu farþega og 12 áhafnarmeðlima að ekki varð af árekstri." Síðan greinir blaðið frá því að flugmaður SAS-vélarinnar, Fritz Eric Quit, hafí titrandi röddu til- kynnt flugumferðarstjóm í Reykja- vík kl. 17.36: „Það hryggir mig að upplýsa að rétt í þessu sluppum við mjög naumlega við árekstur við breska júmbóþotu 0085.“ Því næst greinir blaðið frá því að skömmu áður hafí flugumferðar- stjóm í Reykjavík stýrt báðum flug- vélunum inn á beina árekstrarbraut hvora við aðra. Flugmenn vélanna hafði í gær aflað sér upplýsinga um að breski flugstjóri júmbóþot- unnar, Ian Basnet, hefði gefíð þá skýrslu eftir komuna til Seattle í Bandaríkjunum að fjarlægðin á milli vélanna hefði aðeins verið um 200 fet, þegar tæpast stóð, og að SAS-vélin hefði verið ca. 50 fetum fyrir neðan júmbóþotuna þegar atvikið átti sér stað. Blaðafulltrúar flugfélaganna British Airways (BA) og Skandin- aviska Airlines Service (SAS) eru heldur fámálgir vegna þess at- burðar sem átti sér stað sl. mánu- dag yfír Austijörðum þegar Boeing 747-júmbóþota frá BA ogDC8-þota frá SAS voru hættulega nálægt því að fljúga hvor á aðra. Segja blaðafulltrúamir einungis að félög þeirra hafí þegar krafíð íslensk flugstjómaiyfírvöld skýringa á þessum atburði og bíði þess nú að niðurstöður þeirrar rannsóknar sem hófst í gærmorgun liggi fyrir. Að öðm leyti vildu blaðafulltrúamir ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Flugumferðarstj órar aflétta yfirvinnubanni FÉLAG íslenskra flugumferð- arstjóra hefur aflétt yfirvinnu- banni flugumferðarstjóra. Var það gert í gær að ósk fulltrúa ríkisins í sérkjarasamningum við flugumferðarstjóra. Ami Þorgrímsson, formaður félagsins, sagði að í gærmorgun hefði samninganefnd félagsins og fulltrúar samgönguráðuneytisins og launadeildar fjármálaráðu- neytmins komið til fyrsta fundar aðila um sérkjaraaamning fyrir flugumferðarstjóra. Fulltrúar rík- isins hefðu óskað eftir að yfír- vinnubanninu yrði aflétt ámeðan á viðraéðunum stæði ..ög. hefðu flugumferðarstjórar samþykkt að verða við því. Aðspurður sagði Ámi að þetta stæði ekki í neinum tengslum við atvikið yfír Austurlandi í fyrradag þegar nærri lá við árekstri tveggja farþegaflugvéla. Ámi nefíidi það í þessu sambandi að Félag ís- lenskra flugumferðarstjóra hefði óskað eftir því að fulltrúi félagsins fengi að fylgjast með rannsókn málsins. Þess hefði verið óskað munnléga áður, en í gær hefði óskin-verið ítrekuð með bréfí til Loftferðaeftiriitsins. - Sagði Ámi að svar Jiefði ekki -bonát .en taldi líkurá að viðþessu'yrðiörðið. ^ Slökkviliðsmenn sýndu nokkrar aðferðir við að ráða niðurlögum olíuelds að loknum blaðamannafundin- um. Hér er verið að kenna tveim starfsmönnum Stálvikur að fara með handslökkvitæki. f baksýn er norski slökkviliðsbíllinn sem notaður verður við brunavaraaátakið. Brunabótafélag íslands: Brunavarnaátak um allt land í sumar „ÞAÐ er ekki af þekkingar- skorti, heldur vegna hugsunar- leysis að svo oft kviknar í hér á landi sem raun ber vitni,“ sagði Ingi R. Helgason forstjóri Bruna- bótafélags Islands á blaðamanna- fundi sem haldinn var í skipa- smiðastöðinni Stálvik í tilefni af Brunavarnarátaki 86. Það em Landssamband slökkvi- liðsmanna, Bmnabótafélag Islands og Bmnamálastofnun ríkisins sem standa fyrir þessu átaki ásamt vá- tryggingafélaginu Storebrand í Noregi. Ætlunin er að ferðast um landið með slökkviliðsbíl búinn full- komnum slökkvitækjum og halda námskeið og fræðslufundi með vel- flestum bmnaliðsmönnum landsins. Storebrand hefur lánað bfl hingað til lands í þessu skyni og er einn starfsmaður fyrirtækisins með í för til trausts og halds. Næstu 7 til 8 vikur verður farið á um sextíu staði og sýndar nýjustu aðferðir við eld- vamir. „Aðaltilgangur ferðarinnar er þó sá að vekja menn til um- hugsunar um hættuna af eldsvoðum svo við getum komið í veg fyrir sem flest allra þeirra slysa sem henda fyrir einbert andvaraleysi," sagði Höskuldur Einarsson formaður landssambands slökkviliðsmanna. Ingi R. Helgason leiðir starfs- menn Stálvíkur og blaðamenn í allan sannleik um Brunavarna- átak ’86. Honum á vinstri hönd situr Höskuldur Einarsson for- maður Landssambands slökkvi- liðsmanna. Tíðni eldsvoða hér á landi er í meðallagi miðað við nágrannalönd- in, þó eru eldsvoðar í heimahúsum mun fátíðari hérlendis en gengur og gerist víða annarsstaðar. „En betur má ef duga skal,“ sagði Höskuldur Einarsson, „við getum hæglega fækkað þeim enn meir, en til þess þarf stórátak og athygli sem allra flestra." Að sögn Inga R. Helgasonar er fjöldi eldsvoða mjög breytilegur milli ára. „Arið 1983 var mesta brunaár í 70 ára sögu Brunabótafé- lagsins," sagði hann. „Síðastliðin tvö ár hafa verið nokkuð góð, en nú virðist eldsvoðum aftur fara Qölgandi. Við þurfum ekki að horfa aðgerðalaus uppá þessa þróun, það má breyta henni og það ætlum við að gera.“ Slökkvibfllinn norski hefur verið notaður til viðlíka námskeiðshalds í Noregi og ætlunin er hér. Ingi R. Helgason sagði að námskeiðin hefðu gefíst mjög vel í Noregi, og því stakk Brunabótafélagið upp á því á síðasta þingi Landssambands slökkviliðsmanna að þetta yrði reynt og bauðst til að fara þess á leit við Norðmennina að þeir lánuðu bflinn. Annað tilefni átaksins er 70 ára afmæli. Brunabótafélagsins í janúar 1987. Auk norska slökkviliðsmannsins verða fulltrúar Landssambands slökkviliðsmanna, Brunabótafélags íslands og Brunamálastoftiunar rík- isins með í ferðinni. Bjartsýnisverðlaunin af- hent Kjartani Ragnarssyni K&upmannahöfn. AFHENDING bjartsýnisverð- launa Bröste fór fram i Kaup- mannahöfn á þriðjudag. Teter Bröste forstjóri fyrirtækisins ávarpaði gesti og síðan afhenti Bertel Haarder menntamálaráð- herra Danmerkur Kjartani Ragnarssyni leikara og leikrita- höfundi verðlaunin. Bjartsýnisverðlaunin eru afhent í byijun júnímánaðar ár hvert til íslenskra listamanna, og er af- hendingin nú sú sjötta. Athöfnin hófst með því að Teter BröSte for- stjóri sagði frá upphafi bjartsýnis- verðlaunanna oghvéijirhefðu feng- ið þau áður. Vigdís Finnbþgadóttir forseti íslands*er -vémdari hjartsýn- issjóðs Bröste eins og kunnugt er. Rakti hann æviatriði Kjartans Ragnarssonar og sagði frá því hvað fyrirtækið hefði átt mikil samskipti við íslendinga. Bertel Haarder menntamálaráð- herra Danmerkur hélt ræðu og sagði meðal annars frá góðum samskiptum íslendinga og Dana. Sagði hann að handritamálið hefði verið leyst á þessu ári með góðri samvinnu þeirra Sverris Hermanns- sonar menntamálaráðherra íslands. Hann sagði að ísland væri eina landið í heiminum þar sem danska væri það tungumál sem fyrst væri byijað að kenna í skólonutn. Haatd- er hrósaði Bröste-fyrirtækinu fyrir að fá ungt fólk til starfa og fyrir þessa verðlaunaveitingar úr sjóðn- um. Afhenti hann Kjartani Ragn- arssyni verðlaunin sem voru að fjár- hæð 30 þúsund danskar krónur (147 þúsund krónur íslenskar). Fékk Kjartan verðlaunin I formi risastórrar ávísunar. Kjartan þakkaði fyrir að hafa orðið þessa heiðurs aðnjótandi og ræddi um samskipti íslendinga og Dana. Guðrún Ásmundsdóttir, kona Kjartans, var einnig kölluð upp og henni færður blómvöndur. Fjöldi gesta var viðstaddur þessa athöfn í Bröste-garðinum, bæði heiman að og danskt leikhúsfólk einnig áber- andL Á eftir vbru veitingar og léikin tónlist. -G.L.ÁSg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.