Morgunblaðið - 04.06.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 04.06.1986, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986 Jónína Ben. Einsog alþjóð veit sér Jónína Benediktsdóttir um morgun- trimmið og ferst það bara vel úr hendi að mínu mati. Ýmsir hafa fundið að því er Jónína kemur með athugasemdir um lífíð og tilveruna mitt í hita leiksins. Ég kann bara vel við þessar athugasemdir Jónínu, enda lít ég ekki á líkamsrækt sem einskonar helgiathöfn þar sem menn fetta sig og bretta grafalvar- legir á svip og heilastarfsemin stöðvast á meðan ósköpin dynja yfír. Af hveiju ekki að krydda leik- fímitímana með hnittnum athuga- semdum um menn og málefni og þá á hún Jónína það til að mata sveitta heilsuræktendur á kjam- miklum fróðleiksmolum er að vísu verða ekki mældir í kaloríum en gætu samt styrkt menn í trúnni á heilbrigða sál í hraustum líkama. Einn slíkur fróðleiksmoli er féll úr svuntu Jónínu Ben. í morguntrimmi mánudagsins verður nú skoðaður nánar. Fróðleiksmolinn Jónína sagði okkur frá því að nýlegar rannsóknir í Bandaríkjun- um bentu til þess að eldra fólk þarlendis væri sífellt ötulla við trimmið enda hefðu Bandaríkja- menn að undanfömu lyft grettistaki á þessu sviði. Máð mynd skreppur hér fram á hugarspegil. Undirritað- ur er staddur á ægifögrum íþrótta- velli uppi í fjallshlíðum N-Kalifom- íu. Sólin bakar hlauparana þar sem þeir silar hring eftir hring í 10 þúsund metra hlaupinu. Að lokum er aðeins einn eftir á hlaupabraut- inni, kona á áttræðisaldri. Þögn slær á ungæðislegan áhorfenda- skarann er konan stikar sjóðheita brautina og það er eins og tíminn standi á öndinni. Svo titrar loftið af fagnaðarlátum, fólkið sprettur á fætur og konan lyftir upp höndun- um brosandi — andinn hefír sigrað efnið. En ekki er úti... En ekki er úti ævintýri, hún Jón- ína fræddi okkur í fyrrgreindum morguntrimmþætti ekki bara um aukna líkamsrækt eldri borgara í Bandaríkjunum hún bætti við ... rannsóknir benda ennfremur til að böm séu orðin helstu kyrrsetumenn í Bandaríkjunum ... Þau hanga fýrir framan sjónvarpið daginn út og inn og éta óhollan mat. Það lá nú við að mér svelgdist á morgun- kaffinu er þessi hluti fróðleiksmol- ans skaust inn um hlustimar og ég var ekki í rónni fýrr en ég hafði grafíð upp marktækar tölur er sýndu reyndar að meðalfjölskylda í Bandaríkjunum setti nýtt met í fyrra í neyslu vitundarfóðurs. Þann- ig héngu fjölskyldumeðlimir að meðaltali í sjö klukkustundir og tíu mínútur á dag fýrir framan sjón- varpstækin á því herrans ári 1985 og hafði glápið aukist um tvær mínútur á dag frá fyrra ári. Ja, hvar endar þetta nú allt saman? En það er annars fróðlegt fyrir okkur íslendinga er nú stöndum á tímamótum á þessu sviði að skoða fýrrgreindar tölur ögn nánar. Það kemur nefnilega í ljós að hin venju- lega ^ölskylda horfír nú skemur á þráðlausar sendingar sjónvarps en fyrr, þannig horfðu menn að meðal- tali í sex klukkustundir og 36 mín- útur á dag á þráðlausar sendingar 1984 en í sex klukkustundir og 31 mínútu 1985. Það sem eftir lifír sjónvarpsdags glápa menn svo á ljósþráðasendingar og virðist slík þjónusta njóta aukinna vinsælda. Eg hef þessar tölur eftir þekktasta hlustendakannanafýrirtæki Banda- ríkjanna, A.C. Nielsen Co, svo sennilega hefur hún Jónína bara á réttu að standa. En hvenær kemur röðin að okkur? Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Ludwig van Beethoven Síðdegistónleikar: Píanótónlist Vladimir Ashkenazy ■1 Leikin verður 20 píanótónlist af “” plötum á síð- degistónleikum sem eru á dagskrá rásar eitt í dag. Vladimir Ashkenazy leikur sónötu nr. 21 í C-dúr op. 53 eftir Ludwig van Beet- hoven og Claudio Arrau leikur „Papillons" op. 2 eftir Robert Schumann. Hótel: Gömul kynni MMB Gömul kynni, OA55 16- þáttur v — bandaríska myndaflokksins Hótel, er á dagskrá sjónvarps í kvöld. Með aðalhlutverk fara James Brolin, Connie Sellecca og Anne Baxter. Þýðandi er Kristrún Þórð- ardóttir. Um konur og bókmenntir: Að hverfa inn í hugarheim ■H Þátturinn um 20 konur og bók- ““ menntir er á dagskrá rásar eitt í kvöld. Þetta er þriðji þáttur af fjórum og nefnist hann Að hverfa inn í hugarheim og er í umsjá þeirra Soffíu Auðar Birgisdóttur og Sig- urrósar Erlingsdóttur. Þar segir frá gyðju lífsins, Demeter og dætrum henn- ar, sem allar völdu sér ólík hlutskipti nema Persifóna, sem Hades, konungur undirheima, nauðgaði og nam á brott til að hún yrði eiginkona hans. Sagt er frá Persifónu nútímans, andstöðu hennar við hlut- skipti sitt og dóma sam- félagsins. Lesið verður í þessu sambandi úr verkum Nínu Bjarkar Ámadóttur, Bergþóru Ingólfsdóttur, Sylviu Plath o.fl. ÚTVARP MIÐVIKUDAGUR 4. júní 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.16 Morgunvaktin 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.16 Veðurfregnir. 8.30 Fréttir á ensku 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „I afahúsi" eftir Guð- rúnu Helgadóttur. Steinunn Jóhannesdóttir lýkur lestrin- um (8). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Guömundur Sæ- mundsson flytur. 10.10 Veöurfregnir. 10.30 Áður fyrr á árunum. Umsjón Ágústa Björnsdótt- ir. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Hljóm- sveitan/erk og Ijóðasöngur. 12.00 Dagskrá.Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Börn og umhverfi þeirra. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir. 14.00 Miödegissagan „Fölna stjörnur" eftir Karl Bjarnhof. Kristmann Guðmundsson þýddi. Arnhildur Jonsdóttir les (8). 14.30 Segðu mér að sunnan. Ellý Vilhjálms velur og kynnir lög af suöraenum slóðum. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Hvað finnst ykkur? Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur- eyri.) 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. a. Sónata nr. 21 í C-dúr op. 53 eftir Ludwig van Beet- hoven. Vladimir Ashkenazy leikur. b. „Papillons" op. 2 eftir Robert Schumann. Claudio Arrau leikur. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Vernharður Linnet. Aðstoðarmaður: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.45 í loftinu. Blandaður þátt- ur úr neysluþjóðfélaginu. Umsjón: Hallgrímur Thor- 17.00 Úrmyndabókinni. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni: Kuggur — myndasaga eftir Sigrúnu Eldjárn. Klettagjá, Snúlli snigill og Alli Álfur, Arnar- fjörður, Raggi ráöagóöi. og Lalli leirkerasmiður. Umsjón AgnesJohansen. 17.50 Vestur-Þýskaland — Uruguay Bein útsending frá Heims- steinsson og Sigrún Hall- dórsdóttir. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Að utan. Þáttur um er- lend málefni. 20.00 Sagan: „Sundrung á Flambardssetrinu" eftir K.M. Pe>don. Silja Aðal- steinsdóttir byrjar lestur þýöingarsinnar. 20.30 Ýmsar hliðar. Þáttur í umsjá Bernharös Guð- mundssonar. 21.00 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 21.30 Þankar úr Japansferð. Guömundur Georgsson læknirflytur. Fyrri hluti. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. MIÐVIKUDAGUR 4. júní meistarakeppninni f knatt- spyrnu. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Listahátíö f Reykjavik 1986. 20.55 Hótel 16.Gömulkynni. Bandarískur myndaflokkur f 22.20 Að hverfa inn í hugar- heim. Þriðji þáttur af fjórum um konur og bókmenntir. Umsjónarmenn: Soffia Auð- ur Birgisdóttir og Sigurrós MIÐVIKUDAGUR 4. júní 09.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Kolbrún Hall- dórsdóttir, Kristján Sigur- jónsson og Páll Þorsteins- 22 þáttum. Aðalhlutverk: James Brolin, Connie Sellecca og Anne Baxter. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 21.50 Skotland — Danmörk Bein útsending frá Heims- meistarakeppninni í knatt- spyrnu. 23.46 Fréttir í dagskrárlok. Erlingsdóttir. Lesari með þeim: María Sigurðardóttir. 23.00 Djassþáttur. Tómas R. Einarsson. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. son. Inn í þáttinn fléttast u.þ.b. fimmtán minútna barnaefni kl. 10.05 sem Guöríður Haraldsdóttir ann- ast. 12.00 Hlé 14.00 Kliður Þáttur f umsjá Sigurðar Kristinssonar. (Frá Akureyri) 15.00 Núerlag Gunnar Salvarsson kynnir gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. 16.00 Taktar Stjórnandi: Heiðbjört Jó- hannsdóttir. 17.00 Erill og ferill Erna Arnardóttir sér um tón- listarþátt blandaðan spjalli við gesti og hlustendur. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar í þrjár minútur kl. 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVÖRP REYKJAVÍK 17.03—18.15 Svæöisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJÓNVARP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.