Morgunblaðið - 04.06.1986, Page 18

Morgunblaðið - 04.06.1986, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986 Nýr ferðamannastaður l Sunnan við Vatnajökul stendur Lómagnúpur og horfír mikilúðlegur út yfír sanda og til sjávar. Stundum er hann hæruskotinn, en oft feykja vindar skýjum af honum og opinberast þá hinn ægilegi hamraveggur í sinni margbreytilegu mynd, sem fáir nema jarðfræðingar geta til hlítar lesið. Austan Lómagnúps er Skeiðarárjökull, skítugur og óárennilegur, og fyrir neðan er Skeiðarársandur, milljarðar tonna af framburði jökulvatna. Hér á öldum áður var þetta landsvæði ógreiðfært og tók á tíðum toll af mönnum og hestum. Nú er hins vegar flennifæri yfír Skeiðarársand eftir olíubornum vegum og steinsteyptum brúm. Jökullinn er þó enn á sínum stað, þó hann hafí hörfað nokkuð og skilið eftir sig háa ruðninga, jökulgarða. Sem fyrr er hann óárennilegur og ljótur. Líklega skotrar einn og einn ferðalangur augunum inn með hlíðum Lómagnúps. Fyrir augum verða eyrar, hlíðar, gljúfur og stálbrattir hamraveggir. Fjær rísa hæðir í fjöll. Líklegast er þó að flestir ferðalangar beini frekar augum sínum í austur, þar sem Öræfajökull skefur himininn, tignarlegur og mikiil um sig. AHir þekkja hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk, 2119 m háan. Og Lómagnúpur, gilin, gljúfrin og áreyrarnar gleymast um leið. Súla í Súlutindum. Fyrir neöan er Skeiöarárjökull og í fjarska má greina Skaftafellsfjöll. Margt hefur verið skrifað um Öræfajökul, Skaftafell og landið þar um slóðir. Hvort tveggja er að náttúrufegurð er mikil og sögu- leg frægð einnig. Þarna er líka vinsæll ferðamannastaður. En reynum þó að gleyma Skaftafelli um stund og staðnæmumst frekar við Lómagnúp. Lítum í norður og aðgætum landakortið. Við erum við Núpsvötn, en þau myndast þegar jökulámar Súla og Núpsá renna saman. Súla kemur undan Skeiðarárjökli, en upptök hennar eru í Grænalóni um 20 km ofar. Núpsá mun einnig hafa komið hér áðurfyrr úr Grænalóni en svo mun ekki vera lengur. Núpsá er orðin að bergvatnsá og safnast vatn í hana víða að. Stundum er Núpsá þó með jökullit og valda því tvær ár, sem nefnast Vestri- og Mið- Bergvatnsár, en þær fá stundum vatn undan Vatnajökli, vestan við Grænalón. Jeppaslóð liggur af þjóðveginum upp með Lómagnúp. Slóðin lætur lítið yfir sér og hún er ekki merkt. Leiðin liggur þvers og kruss yfir Núpsá og gamlan farveg Súlu. Súla hefur breytt sér talsvert frá því sem sýnt er á landakorti. Hún rennur ekki lengur í vestur heldur fyrst og fremst í suður. Smám saman opnast undarlegt land. Fæstir búast við þessu lands- lagi hér í skjóli jökla. Nær væri að búast við iökulsleiktum hæðum og fjöllum. A vinstri hönd höfum við haft hinar breytilegu hlíðar Lómagnúps með fjölmörgum ör- nefnum; Geldingatorfur, Klifna- nef, Morskora, Fjaðrárdalshnúk- ur, Fossdalur, Seldalasnið, Hvirfil- dalur, Loftsárhnúkur og fleiri og fleiri. Þegar hér er komið sögu erum við til móts við upptök Súlu úr Skeiðarárjökli og höfum hann á hægri hönd. Þar rís upp Eystra- fja.ll. í því vestanverðu eru Núps- staðarskógar, þangað sem ferðinni er heitið. Núpsstaðarskógar eru kenndir við Núpsstað og er landið afréttur. Þama er útivistarparadís, sem tiltölulega fáum er kunnugt um. Landið líkist um margt Þórs- mörk og Goðalandi, en er þó um leið allt öðru vísi. Eystrafjall skiptist í Ámundaflöt, Bunka, Súludal og Súlutinda. Utan í Súlutindum nudd- ar Skeiðarárjökull sér og sækir svartan lit. Vestan megin er fjallgarður sem nefnist Björninn. Út úr honum ganga fjölmargir fjallsranar, klofnir í herðar niður af hrikaleg- um gljúfrum og dölum. Á milli eru sléttar áreyrar. Mynni þessa dals er vítt og sér þaðan út yfir víðan Skeiðarársand, jafnvel til sjávar. Eftir því sem innar dregur mjókkar dalurinn og endar loks í háu gljúfri: Innst í því eru tveir fossar sem falla sem næst ofan í sama hylinn. Þetta eru Núpsárfoss og Hvítárfoss, sem eru í samnefndum ám. Hvítá er berg- vatnsá og svo ætti Núpsá að vera svo að öllu jöfnu. Hér áður fyrr var Núpsá jökulfljót ættað úr Grænalóni og blandaðist þá berg- vatnsá og jökulfljót í sama hylnum og nefnist hann því Tvílitihylur. Hlíðar Eystrafjalls og Bjamarins eru sundurskomar af gljúfmm og giljum. Beggja vegna em skógar- torfur, misstórar að vísu, en því lengra sem komið er inn í daiinn, því stærri verður birkiskógurinn. Mestur er hann við svonefndan Staðarhól og þar fyrir innan. Þar er jafnframt fegursta svæðið. Víða má finna tjaldsvæði á aurunum fyrir neðan Eystrafjall. Þær grastorfur sem þar er að finna eru þó viðkvæmar eins og gerist og gengur með gróður á áraurum. Með vaxandi ferðamannastraumi verður því að leggja áherslu á að útbúa góð tjaldsvæði. Við Fálka- tind er nokkuð stór grastó og þar hefur ferðafélagið Útivist yfirleitt sett upp tjaldbúðjr sínar. Finna má betri tjaldsvæði ef farið er upp fyrir kiettabeltin, sérstaklega framarlega á Eystrafjalli, s.s. þar sem heita Hnúkar, eða ofan við Meingilin. Þar er gróður allur meiri og þroskaðri enda kjörlendi. Gallinn er hinsvegar sá að fara verður upp um 100 metra og þá um frekar ógreiðfær gljúfur. Fyrir ungt fólk og hraust er þetta erfiði tvímælalaust á sig leggjandi. Gönguleiðir eru fjölmargar á þessum slóðum. Nefna má hér tvær. Sú fyrri er inn að Tvílitahyl og upp á Bunka. Þetta er auðveld hringleið. Sú síðari er upp á Eystrafjall, suður fyrir Bunka, í Súludal og á Súlutinda og siðan með jökulröndinni til baka. Hér skal nú þessum gönguleiðum lýst nokkuö nánar. Tvflitihylur og Bunki Frá tjaldsvæðinu við Fálkatind eru aðeins um fjórir km að Tvílita- hyl. Gengið er um áreyrarnar sem eru ákaflega auðveldar yfirferðar. Við úfinn og Ijótan Skeiðarárjökul. Á leiðinni ber margt fyrir augu. Helst vekja athygli hin þverhníptu björg og margbreytileg uppbygg- ing þeirra. Þarna má sjá stuðla- berg, bólstraberg, móberg og fleira og fleira, hvert upp af öðru. Austan Núpsár gína gljúfurkjaftar og bera vitni um gífurleg árrof. Fyrir innan Staðarh'.I var fyrir nokkrum áratugum lón er nefndist Núpsárlón, en tíð hlaup úr Græna- vatni í Núpsá báru með sér feikn af aur svo botn lónsins hækkaði smám saman og neyddi ána upp að fjallinu þar sem hún hefur fundið sér farveg. Staðarhóll er stór skógartorfa sem teygir sig út á áraurana. Má vart á milli sjá hvort uppblástur sé að byrja í suðurjaðri hennar eða skógurinn sé að klæða þar fornan árbakka. Líklega er það síðar- nefnda þó raunin. * Þarna er gróður allur mikill. Finna má breiður af eyrarrós og fleiri bjartlita jurtum. Fyrir fram- an rísa upp hamrarnir við Kálfs- klif, þverhníptir og greinilega erf- iðir upp að fara. Upp eftir skriðum teygja sig skógarbleðlar. Skyndi- lega opnast hrikalegt gljúfur á hægri hönd. Klifgil segir landa- kortið. Þama eru risastórir hamraveggir, stakstæðir vatns- sorfnir tindar og hnausar. Langir berggangar vekja athygli, minjar um eldvirkni fyrr á tímum. Berg- gangarnir eru ótrúlega samfelldir og háir. Með tíð og tíma hefur áin sorfið burt veikara berg umhverfis gangana og skilið þá eina eftir. Lengra verður ekki komist án þess að klífa bergið. Hér kemur áin fram milli hárra bjarga og er ekki manngengt þar undir. Stígur liggur upp í gegnum kjarrið að bereveggnum. Þar hangir keðja og má styðjast við hana á uppleið. Bergið þarna um slóðir er þó ekki með öllu ókleift, en öruggast er að notast við keðjuna. Skammt austan við keðjuna sker gil nokk- urt bergtind frá heiðinni. Upp á hann er auðvelt að fara og er hann sléttur að ofan, vaxinn mosa. Þegar upp á heiðina er komið liggur beinast við að ganga að þverhnípinu fyrir ofan Tvílitahyl, sem áður var getið. Þar falla tveir fossar því sem næst ofan í sama hylinn. Hvítárfoss er í samnefndri bergvatnsá og er vatnið því fagur- blátt, en Núpsá er mjólkurgrá. í hylnum verða til skörp skil milli þessara tveggja lita. En annað- hvort er vatnsmagnið í Núpsá meira eða grái liturinn má sín

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.