Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1986 Heldur óvistlegur staöur. Myndin er tekin niðri í þröngu gili milli Skeiðarár- jökuls og Eystrafjalls. Bulak verður sóttur fyrir byltingaráform Varsjá. AP. PÓLSK yfirvöld sögðu í gær að Zbigniew Bujak, leiðtogi neðanjarðar- deildar Samstöðu, yrði sóttur til saka fyrir að stofna til samsæris um að bylta stjórn landsins og kollvarpa þjóðskipulagi kommúnism- ans. og virða fyrir sér útsýnið. Þarna má sjá hvernig jökullinn hefur þrengt sér utan í fjöllin, teygt sig inn í hverja vík og skoru og tekið á sig svartan lit af bergmylsnu og ryki. Greinilegur árniður er frá jöklinum þar sem leysing er í há- marki. Skriðjökull er ekki lifandi, hann er frekar sem dauðinn, eirir engu, byggir ekkert upp. Þar sem jökull- inn hefur farið yfir er venjulega dautt land í langan tíma. Við höldum göngunni áfram og göngum yfir að næsta skarði í Súlutindum og síðan suðvestur og niður með Skeiðarárjökli. Þarna á miðri malarheiði er ákaflega fal- legt lítið vatn. Á allar hliðar eru bakkarnir grasi grónir og fífan setur hlýlegan svip á umhverfið. Skammt frá fellur Súlnadalsá fram af háum stalli. Henni eru búin grimm forlög sem ekki eru öllum blátærum ám búin. Hún fellur í fallegri bunu niður milli jökuls og fjalls og blandast saman við skítugt leysingarvatnið af jöklinum. Þvílík forlög, og þarna hverfur hún töpuð um eilífð. Heimleiðin er auðveld. Gengið er í gegnum hið myndarlegasta berjaland þar sem heita Hnúkar og niður að tjaldsvæðinu við Fálkatind. Leiðin sem hér hefur verið lýst er líklega um 14 km að lengd og tekur gönguferðin um 6 tíma. Hún er mjög auðveld, á allra færi, fátt er sem glepur nema Súla, Skeiðar- árjökull og stöku berjalyng. Nýr ferðamannastaÖur Fleiri gönguleiðir mætti nefna í Núpsárdal og á Eystrafjalli. Fjöldi þeirra er varla tæmandi. Hér hefur þó ekki verið getið um gönguleiðir vestan Núpsár á fjalli því sem nefnist Björninn. Það er geysilega víðáttumikið og gengur fjöldi fjallsrana og hnúka fram úr því til austurs. Undirlendi milli þessa fjalls og Núpsár er víðast lítið. Þó er nokkuð stórt land þar sem heitir Rauðabergshólar. Þar er skógar- bleðill og vottur af jarðhita. Nefna mætti lengri gönguleiðir, s.s. upp af Grænalóni, en þangað eru um 20 km. Jafnvel er hægt að fara upp í jökul, þar sem heita Hágöngur og Eldgígur. Þar mun vera athyglisvert land. Best er þó að ætla sér tvo daga í svo langa leið og hafa með sér tjald. Enn er ógetið gönguleiða á Lómagnúp, en þeir ku vera fáir sem gengið hafa fram á syðsta hluta hans, hafi nokkrir farið svo langt. Núpsstaðarskógar eiga tvímæla- laust framtíð fyrir sér. Þangað vantar þó tilfinnanlega betri veg og um leið merkingar á veginn þangað. Ókunnugum er hætt við villum því svo virðist sem slóðir liggi þvers og kruss upp í dalinn. í Núpsstaðarskógum þarf að koma upp sæluhúsi eða skála til öryggis fyrir ferðamenn. Skálinn verður að vera þannig staðsettur að hlaup í Súlu eða Núpsá ógni honum ekki. Fjarlægðin frá þéttbýlinu við Faxaflóa veldur því að ferða- mannastraumurinn verður að óbreyttu aldrei mikill í Skógana. Þangað er um 6 stunda akstur og því koma þangað ekki aðrir en þeir sem hafa meiri tíma en helgi til ferðarinnar. Einnig veldur miklu að upp í Skóga er aðeins jeppafæri. Hins vegar er rétt að hugsa stórt. Ekki væri úr vegi að koma upp litlum flugvelli á áreyr- um Núpsár. Slíkt þarf ekki að vera ■mikið fyrirtæki, þvi efnið er til á staðnum. Aðeins þarf að ryðja burt stórum steinum og valta völl- inn. Með þessu móti mætti fá góð- an flugvöll þar sem flugvélar á borð við Twin Otter geta lent. Þá mun ferðatíminn styttast að mun og möguieikar á góðum helgarferð- um aukast að sama skapi. Flug- ferðir munu varla kosta miklu meira en rútuferðir. En líklega er langt í að flugtæknin verði tekin í þjónustu þeirra sem hingað til hafa ferðast í rútum um landið á vegum ferðaskrifstofa og ferðafé- laga. Að minnsta kosti eru ferðafé- lög á borð við Útivist og Ferðafélag íslands ekki enn farin að bjóða upp á flugferðir í Kverkfjöll, Nýjadal eða Hveravelli og eru þó litlir flugvellir á þessum stöðum. Núpsstaðarskógar eru á nátt- úruminjaskrá Náttúruverndar- ráðs. í athugasemd með skráning- unni segir að æskilegt sé að tengja Skógana við þjóðgarðinn í Skafta- felli. Sá sem þetta ritar telur það ekki rétta stefnu. Skaftafell og Núpsstaðarskógar eiga fátt sam- eiginlegt. Heilt haf jökuls skilur á milli og sögulega hafa þeir ætíð verið aðskildir. Núpsstaðarskógar eiga friðun skilda, t.d. sem útivist- arsvæði. Þarna er auðveldlega hægt að koma upp vinsælum ferða- mannastað sem sjálfkrafa léttir á öðrum ferðamannastöðum lands- ins. Ferðafélagið Útivist hefur átt forgöngu um ferðir í Núpsstaðar- skóga. í fyrra voru farnar þangað tvær ferðir og í ár hafa þcgar verið farnar þrjár ferðir og mun vera ætlunin að bæta þeirri fjórðu við í september. Berjaland er ágætt í Núpsstaðarskógum og nú er mjög gott berjaár. Jerzy Urban, ríkissaksóknari, hélt því fram að fundizt hefðu skjöl í felustað Bujaks, sem sýndu að hann hefði haft tengsl við „útlend- ar undirróðursmiðstöðvar". Hann sagði að Bujak yrði leiddur fyrir herdómstól og verði hann sekur fundinn af ákærunni á hann yfír höfði sér allt að 10 ára fangelsi. Urban sagði, að ef menn vildu vita hvar Bujak var handtekinn, Quito, Ecuador. AP. FLEST bendir til þess að forseti Ecuador hafi beðið persónuleg- an ósigur í þingkosningum sem fóru fram i landinu á sunnudag og er búist við að andstæðingar hans nái meirihluta á þingi. Eftir að yfir 50% atkvæða höfðu verið talin höfðu miðju- og vinstri flokkar hlotið mun meira fylgi en stuðningsflokkar for- setans til hægri. Forsetinn, Leon Febres, virtist einnig hafa lotið í lægra haldið fyrir andstæðingum sínum í þjóð- aratkvæðagreiðslu, sem fór fram samtímis þingkosningum, en kosið var um tillögu um að heimila óháð- um stjómnmálamönnum að bjóða sig fram til embætta á vegum hins opinbera. Telja margir fréttaskýr- endur að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið prófsteinn á efnahags- stefnu forsetans, sem fýlgjandi er markaðshyggju Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta. Ef fram heldur sem horfir munu andstæðingar forsetans fá 43 af 71 þingsæti, eða 35 af þeim 59 sem nú var kosið um. Áður en forsetinn tók við völdum 1984 höfðu stjómarandstæðingar meiri- hluta á þingi, en Febres tókst að fá nokkra stjómarandstöðuþing- menn til fylgis við samsteypustjóm sína, sem skipuð er fímm flokkum á hægri væng stjórmálanna. Talið er að ein ástæða þess að stjómarflokkamir misstu nú fylgi sé sú að efnahagsástandið hefur versnað mjög vegna þeirrar lækk- unar, sem orðið hefur á heims- markaðsverði á olíu, en um 70% skyldu þeir snúa sér til bandaríska sendiráðsins. Eigandi íbúðarinnar hefði fengið boðsbréf á kveðjuhóf fyrir menningarfulltrúa sendiráðs- ins og hefði Bujak veitt því mótt- töku. Talsmaður sendiráðsins sagði Urban fara með tilhæfulausar dylgjur er hann gæfí í skyn að sendiráðið hefði vitað um dvalar- stað Bujaks eða verið í sambandi útflutningstekna Ecuador má rekja til olíusölu. við hann. Að sögn Urbans voru fleiri Samstöðuleiðtogar handteknir á laugardag, þ. á m. tveir nánustu samstarfsmenn hans, Konrad Biel- inski og Ewa Kulik. Gengi gjaldmiðla Lundúnum. AP. DOLLARINN snarlækkaði gagn- vart evrópskum gjaldmiðlum í gær eftir að bandarískir embætt- ismenn spáðu því að hann mundi falla í verði. Hins vegar hækkaði gullverð nokkuð. Breska pundið kostaði 1,4925 dollara, en kostaði á mánudag 1,4792. Gengi dollars gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum var sem hér segir: 2,2725 vestur-þýsk mörk (2,3220), 1,3327 svissneskir frank- ar (1,9210), 7,2500 franskir frank- ar (7,3875), 2,5620 hollensk gyllini (2,6075), 1.560,25 ítalskar lírur (1.539,00), 1,3399 kanadískir doll- arar (1,3858). IFALLEGUM LITUM -fegrum húsin Nú er rétti tíminn. Eigum alls konar málningu. Utanhússseminnan. Einungis vönduö vara, góð vörumerki. Ráðgjöf - reynsla - vöruval Biúrínn Síðumúla 15, sími 84533 Ecuador: Stjórnarf lokkar missa fylgi í þingkosningum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.